Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982 17 Reykjavík. Mér er kunnugt um, að þar lagði hann mörgum hags- muna- og framfaramálum gott lið þótt ekki verði talin hér. Síðar átti hann um 12 ára skeið sæti í út- hlutunarnefnd listamannalauna en varla mun það starf hafa aflað honum vinsælda fremur en öðrum. Karlmennsku sinni samkvæmt hefur Hjörtur löngum verið ódeig- ur að takast vanda á hendur og hygg ég ekki ofmælt að forn drengskaparhugsjón, sem lesa má um í sögum, sé honum inngróin. Laun fyrir liðsemd veit ég ekki til að hann hafi tekið en látið sér nægja ánægjuna eina. Eftir Hjört liggja allmörg kvæði gerð af listfengi og hagleik, svo og fjöldi snjallra vísna. Hann hefur verið eftirsótt tækifæris- og samkvæmisskáld og þá jafnan hitt í mark. En lítt hefur honum verið um það hugað að koma kveðskap sínum á framfæri við almenning, helst er að hann hafi látið leiðast til slíks fyrir bænastað vina sinna. Hann hefur meir notað dýrmæta skáldskapargáfu til að auðga sam- skiptin við förunautana en yrkja sér til lofs og frægðar. Að undanförnu hefur Hjörtur átt við vanheilsu að búa, en er þó jafnhress í anda og fyrr á árum, sami kraftur og kímni í fasi hans og máli. Þessa viljum við vinir hans njóta sem lengst. Ég flyt þeim hjónum hlýjar kveðjur með þakklæti. Óskar Halldórsson Eftir dvölina á Austurlandi hélt Hjörtur til Danmerkur og stund- aði nám við lýðháskólann í Askov um eins árs skeið en lauk síðan kennaraprófi hér heima 1935 og gerðist sama ár kennari við Laug- arnesskólann í Reykjavík. Þegar ég bættist þar í hóp, tæpum ára- tug síðar, bar ég þjóðsagnaper- sónu Eiðamanna fyrst augum. Sjaldan mun hetjunni hallkvæmt að stíga út úr dýrðarljóma goðsög- unnar en hér kom það ekki að sök. Raunar hafði Hjörtur „lagt niður að rjá“, en við samverkamennirnir urðum þó varir við afl hans þegar bera þurfti píanóið. Og um dulræn efni vildi hann naumast ræða. Hitt duldist ekki, að íslensk fræði áttu hug Hjartar og fann ég brátt að ekki hafði farið ofsögum eystra af tungutaki hans og skáldhneigð. Hann var ekki einungis þaulkunn- ugur sagna- og skáldskaparmáli fornu og nýju heldur einnig orð- færi alþýðunnar bæði á Vestur- og Austurlandi. Mest hefur mér þó fundist til um það að móðurmálið er Hirti Kristmundssyni ekki að- eins þekking eða heilafylli, eins og ýmis dæmi eru til um málfróða menn, heldur er íslensk tunga í allri sinni dýrð íþrótt mannsins, hluti af persónuleika hans. Fæ ég seint fullþakkað það „fóstur“ á sviði íslenskra fræða er hann veitti mér ungum né heldur hinar mörgu og lærdómsríku ánægjust- undir sem ég hef notið á heimili þeirra hjóna, en Hjörtur er kvæntur Einöru A. Jónsdóttur frá Kirkjubæ í Húnaþingi, fjölgáfaðri konu. Þar hefur löngum ríkt glað- værð og reisn sem þeim báðum er eiginleg og þangað vöndu komur sínar margir vísnavinir og skáld, fólk sem flest er nú horfið en ómetanlegt var að kynnast. Meðal þeirra minnisstæðustu var bróðir húsbóndans, skáldið Steinn Stein- arr, enda tíður gestur, oft með nokkru föruneyti. Ýmsir létu fjúka þarna í kveðlingum og komu þá sjaldnast að tómum kofum hjá húsráðendum. I þessari upprifjun hef ég verið fáræðinn um störf Hjartar. Ég kynntist honum sem atkvæða- miklum kennara og efast ekki um að eftir að leiðir okkar skildu í starfi hafi hann stjórnað hinum fjölmenna skóla sínum af viðlíka 75 ára f gær: Hjörtur Kristmunds- son fv. skólastjóri TRYGGÐU GÆÐIN -TAKTÁ KODAK EFÞAÐERFRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU TOYOTA P. SAMÚELSSON & CO. HF. UMBOÐIÐ A AKUREYRI BLAFELL S/F OSEYRI 5A — SlMI 96-21090 UMBOÐIÐ NÝBÝLAVEGI 8 KÓPAVOGI SIMI44144 í gær, 1. febrúar, varð Hjörtur Kristmundsson, fv. skólastjóri Breiðagerðisskóla hér í borg, 75 ára að aldri. Þar sem undirrituð- um hefur orðið þetta afmælisbarn minnisstæðara en flest fólk annað, fer hér á eftir eitthvað af því sem hefur á hugann leitað af þessu til- efni. Kynni mín af Hirti hófust óbeint. Rétt fyrir og um 1930 varð skólafólki á Eiðum og ýmsum þar nærsveitis furðu tíðrætt um námsmann einn vestan af fjörðum sem þangað hafði sótt til mennta liðlega tvítugur að aldri og ölium ókunnur eystra. Virtist manni einkum lögð áhersla á atgervi hans á ýmsum ólíkum sviðum. Hann var sagður sterkastur skóla- sveina þótt ýmsir þeirra þættu vel að manni. Kom þrek hans í ljós í íþróttaleikjum pilta og raunar ekki síður þegar þörf var á góðum liðsmanni, svo sem til að bera jólaföng o.fi. af Seyðisfirði yfir Vestdalsheiði. Mál manna var einnig að hinn ókunni væri skyggn og kynni ýmislegt fyrir sér og þótti slíkt ekki með ólíkindum um Vestfirðing. Síðast en ekki síst fór mikið orð af málsnilld kynja- mannsins og skáldgáfu. Hjörtur hét hann og kenndi sig við Rauða- mýri. Þarf öngvan að undra þótt orðrómur um mann af slíkri gerð vekti forvitni ungra lesenda hetju- bókmennta, ljóða og þjóðsagna. Og þegar ég var nemandi í sama skóla að áratug liðnum, lifði hann þar enn. röggsemi. í annan stað hefur hann unnið ötullega að félagsmálum, sat m.a. um skeið í stjórn Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja og var um allmörg ár formaður Stéttarfélags barnakennara í CARINA DE LUX 5 gíra VERÐ kr. 134.650.— Innifalið í verði: 5 gíra kassi, 2 hliðarspeglar, útvarp, metalliclakk, tímarofi á þurrkum, quartsklukka, Halogenljós, rúllubelti, 70A rafgeymir, barnalæsingar á hurðum. —4?-1982- VEL AÐMERKIA.. UÓSMYNDIN VERÐUR ALDREI BETRI EN FILMUGÆÐIN LEYFA ÞAÐ SEGIR SIG SJÁLFT! BÍLL í LÚXUS KLASSA! Nýtt og rennilegt straumlínuútlit. Stærri og rúmbetri að innan. Lúxus innrétting sem gleður augað, full af velgerðum smáþægindum. Gottfarangursrými. Einstakir aksturseiginleikar. Toyota gæði frá grunni — tryggir hátt endursöluverð og lítinn viðhaldskostnað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.