Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982 43 íONBOGIII 19 OOO Kvikmyndhátíð í Regnboganum Þriðjudagur 2. febrúar 1982 ÆVINTYRIÐ UM FEITA FINN — „FATTY FINN“ Ástralía 1981. Eftir Maurice Murphy. Frá- bærlega skemmtileg kvlk- mynd fyrir börn og unglinga. Sjaldan hefur eins skrautlegt lið sést á hvíta tjaldinu, dýr, börn og fullorönir. í litum. íslenskur texti. Kl. 3, 5. KONA FLUGMANNS- INS — „LA FEMME DE L’AVIATEUR" Frakkland 1981. Eftir Eric Rohmer. Nýjasta mynd Rohmer, sem eftir ferð- ir á önnur mið og svið, á nú endurfundi við frönsku ný- bylgjuna, sem hann var einn upphafsmanna að. Snilldar- verk sem segir margslungna sögu á einfaldan og gaman- saman hátt. Enskur texti Kl. 7, 9, 11. LITIÐ MEÐ SÖKNUÐI TIL LIÐSINS TÍMA Kína 1981. Eftir Zhang Shuihua. Tilfinn- ingarík mynd um einmana mann sem minnist konunnar sem hann hefur misst. Enskur texti. Síðustu sýningar. kl. 3.05, 5.05. VEIÐIFERÐIN ísland 1980. Eftir Andrés Indriðason. Létt gamanmynd sem gerist öll á einum sumardegi á Þingvöll- um. Aöeins þessi eina sýning. Kl. 7.05. VERA ANGI — „ANGI VERA“ Ungverjaland 1978. Eftir Pál Gabor. Fögur og gamansöm mynd um ástir og skoöanainnrætingu á Stal- ínstímanum í Ungverjalandi. Kvikmyndin hefur hlotiö ótal verölaun og var kjörin af gagnrýnendum besta erlenda kvikmyndin i Bretlandi 1980.1 litum. Enskur texti. Síöustu sýningar. Kl. 9.05, 11.05. ENGIN ÁSTARSAGA - KVIKMYND UM KLÁM „Not a love story — Film about pornography" Eftir Bonnie Sherr Klein. Kanada 1981. Atgangshörö og tilfinningarík heimildarmynd um klámheim- inn. Sterkt framlag til umræðu um konur og ofbeldishneigö. ( litum. Enskt tal. Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára. Kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10, 11.10. PUNTILA OG MATTI - „HERR PUNTILA" Finnl./Svíþj. 1979. Eftir Ralf Langbacka. Myndin er byggö á leikriti Brechts og Hellu Wuolijoki, sem hér var sýnt fyrir nokkrum árum. Langbacka er frægur fyrir Brecht-uppfærslur sínar. i lltum. Enskur texti. Kl. 3.15, 5.15. NORÐURLJÓS - „NORTHERN LIGHTS" Bandaríkin 1978. Eftir John Hanson og Rob Nilsson. Noröurljós fjallar um baráttu norrænna bænda í Noröurríkjunum veturinn 1915 og hefur hlotiö fjölda- mörg verölaun fyrir áhrifa- mikla og fagra kvikmyndun. Svart/hvít. Enskt tal. Síöustu sýningar. Kl. 7.15, 9.15, 11.15. Víxlar nú án afsagnar „AN AFSAGNAR44 mun fram- vegis standa á víxileyðublöðum, sem bankar og sparisjóðir nota, en frá 1. febrúar munu bankar og sparisjóðir stefna að því að kaupa aðeins þá víxla af við- skiptamönnum þar sem útgef- endur og ábekingar lýsa því yfir að fallið sé frá afsögn. Samvinnunefnd banka og sparisjóða auglýsti um helgina þessa breyttu tilhögun og seg- ir að það sé gert til að létta meðferð víxla í bönkum og sparisjóðum og ekki síst til að spara viðskiptamönnum oft óþarfa kostnað vegna afsagn- ar víxla. Þessi tilhögun hefur í för með sér að nú þarf banki eða sparisjóður ekki lengur að láta afsegja víxil til að tryggja rétt sinn gagnvart útgefanda og ábekingum. Þó munu bank- ar taka við víxlum viðskipta- manna sinna til innheimtu þótt útgefendur og ábekingar slíkra víxla hafi ekki fallið frá afsögn og yrðu þeir víxlar því afsagðir með hefðbundnum hætti ef á þyrfti að halda. í hjarta borgarinnar m Opið frá 18-01 Halldór Ární veröur í diskótekinu og leikur réttu blönduna, af réttu tónlistinni, fyrir rétta fólkið. Brand- ari dagsins, er haföur eftir Victor Borge. „Pabbi minn spilaði á fiðlu og vióiu, en mamma varð alveg vitlaus, vegna þess að Vióla var einn af ná- grönnunum.” Spakmæli dagsins: Ekki tjáir úlfshár af gylla. Allir í ---------m m ÓSAL Stangaveiðifélag Reyjavíkur heldur árshátíð sína í Súlna- sal Hótel Sögu föstudaginn 12. febrúar (annan föstudag) 4*, <«, <*, <*, <* <*■, <* <*, <*■ Veizlustjóri verður Svavar Gests (til hægri á mynd- ínni) Stangaveiðimenn, nú er um aö gera að grípa símtólið kl. 13 í dag og tryggja sér aðgöngumiöa á þessa einstæðu árshátíð, því skemmtinefndin er þess fullviss að allir miðar muni fara á örskammri stundu. Aðgöngumiðar verða síðan afhentir og borð tekin frá nk. laugard. kl. 13.50-15. Sími félagsins er 86050. Skemmtinefndin. Hinn bráöskemmtilegi „Barber- shop“ kvartett úr Fóstbræörum skemmtir af sannri innlifun. Hinar list- rænu lit- myndir Rafns Hafn- fjörö frá veidiám verda hengdar upp gestum til augna- yndis. Ragnar Bjarnason og hans lands- kunna hljómsveit leika við hvern sinn fingur undir dansi fram eftir nóttu. Lag kvöldsins er að sjálfsögðu „Lax, lax, lax“. Jörundur og Laddi með glænýjan gamanþátt í tilefni kvöldsins og nefnist hann „Glannar í Norðurá". Súlnasalur verður skreyttur sérstaklega og verður þar að verki blómaskreytingarsnill- ingurinn Hendrik Berndsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.