Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982 27 Það lið sem sigrar í V-Þýskalandi þarf að skora meira en 100 mörk Mjög mikil harka er í vesturþýsku knattspyrnunni. Þessi mynd er frá mjög umdeildu atviki í upphafi keppnistímabilsins. Þá hlaut Ewald Lienen stóran opinn skurð á lærið eftir að hafa verið sparkaður niður. Erlendir leikmenn í „Bundesligunni“ Leikmaður Heimaland Aldur FéUg Ásgeir Sigurvinsson ísland 26 Bayern Múnchen Lars Kastrup Danmörk 26 Hamburger SV BorLsa Djordjevic Júgóslavía 28 Hamburger SV Alexander Szatmari Kúmenía 29 VKB StuUgart Didier Six Frakkland 27 VKB Stuttgart Konnie Hellström Svíþjód 32 Kaiserslautern Jon Won Park S-Kórea 26 Kaiserslautern Bruno l'ezzey Austurríki 26 Kintract Krankfurt Bum kun ( ha S-Kórea 28 Kintract Krankfurt Kobert Langers Luxemborg 21 Mönchengladbach Magnús Bergs fsland 25 Borussia Dortmund Atli Kdvaldsson fsland 24 Kortuna Dusseldorf l'étur < )rmslev fsland 24 Kortuna Dusseldorf Tony Woodcock Kngland 25 R Köln Kené Botteron Sviss 27 Yi' Köln Arne Larsen Ökland Noregur 27 Bayern Leverkusen Keinhold llintermaier Austurríki 27 IT’ Núrnberg Kees Bregman llolland 34 Armenia Bielefeld Jens StefTensen Danmörk 25 Armenia Bielefeld Vasuhiko Okudera Japan 29 Werder Bremen l'asi Kautiainen Kinnland 20 Werder Breman Jasse Borg Svíþjód 28 Braunschweig llija Zavisic Júgóslavía 29 Braunschweig Ajax ekki sama stórveldió og áður FRANK Arnesen frá Danmörku er einn af tuttugu og sex útlendingum sem leika á Spáni. Arnesen leikur með Valencia og þykir einn af burð- arstólpum liðsins. Erlendir leikmenn á Spáni ATLETICO MADRID José Dirceu (Brasilía) Hugo Sanchez (Mexico) FC BARCELONA Bernd Schuster (V-Þýskaland) Allan Simonsen (Danmörk) BETIS SEVILLA Carlos Diarte (Paraguay) Carlos Perurena (Uruguay) CADIZ Dusan Gallis (Tékkóslóvakía) Jan Pivarnik (Tékkóslóvakía) CASTELLON Dagomir Racic (Júgóslavía) ESPANOL Theo Custers (Belgía) Secundino Aifuch (Paraguay) SPORTING GIJON Enzo Ferrero (Argentína) Fernando Gomes ( Portúgal) HERCULES ALICANTE Jan Tomaszewski (Pólland) Sandor Múller (Ungverjaland) LAS PALMAS Nilson Bertinat (Uruguay) Crispin Maciel (Paraguay) REAL MADRID Uli Stielike (Vestur-Þýskaland) Laurie Cunningham (England) RACING SANTANDER Veron (Argentína) FC SEVILLA Julio Cesar (Brasilía) Pintinho (Brasilía) FC VALENCIA Frank Arnesen (Danmörk) Kurt Welzt (Austurríki) VALLADOLID Carlos Fenoy (Argentína) Fernando Ali (Argentína) REALZARAGOZA Jorge Valdano (Argentína) Ton Blanker (Holland) Gengur Þar hefur gengið á ýmsu, allt frá verkfalli knattspyrnumanna hjá 54 félögum vegna vangoldinna launa og upp í skærur samherja á milli á knattspyrnuvellinum. Mbl. hefur áð- ur greint frá aðför Þjóðverjans Bemd Schuster að félaga sínum sem varð það á að flækjast fyrir honum. Annað mál kom upp hjá Atletico Madrid eigi alls fyrir löngu. Þjálfari liðsins heitir Garcia Traid og í bráð- mikilvægum leik Atletico og La Cor una í Teresa Hererra bikarkeppn- inni bað Traid brasilíumanninn Dirceu að framkvæma vítaspyrnu sem lið hans fékk snemma í leikn- um. Dirceu frábað sér að spyrna knettinum og Ruben Cano hljóp þá í í VesturÞýskalandi vita menn vart hvað orðið „vörn“ þýðir. Þýska „Búndeslígan" bófst í 19. skiptið í haust með nýju meti, 36 mörkum í 9 leikjum og áhorfendur sem borguðu sig inn voru yfir 250.000 talsins. „Það lið sem vinnur Þýskalandstitil- inn að þessu sinni á eftir að skora meira en 100 mörk,“ var haft eftir hinum kunna og umdeilda Pal Czernai hjá Bayern Miinchen. „Við munum ganga til leiks með það fyrir augum að vinna eins stórt og frekast er kostur, við munum aldrei leggjast í vörn og halda fengnum hlut,“ sagði Ernst Happel hjá Hamburger SV og haft var eftir Jiirgen Sundeman hjá Stuttgart: „Við höfum innstillt okkur að leika algera sóknarknattspyrnu og gefa vörnum andstæðinganna aldrei frið.“ Flestir reikna með því, að Bay- ern verji titil sinn, sérstaklega þar sem þeir halda enn saman Paul Breitner og Karl Heinz Rumen- igge. Þó eru að sjá brestir; Breitn- er er ekki eins snjall og í fyrra, auk þess sem hann hefur átt við þrálát meiðsli að stríða og misst úr marga leiki af þeim sökum. Hamburger SV er með geysisterkt lið um þessar mundir og þeim hef- ur farið fjölgandi eftir því sem á veturinn hefur liðið sem spá liðinu sigri. Tvö lið önnur hafa þó hrifið • Arnór Guðjohnsen þykir nú vera einn besti leikmaðurinn í belgísku 1. deildinni. á ýmsu skarðið, spyrnti og skoraði örugg- lega. Seinna í leiknum fékk Atletico aðra vítaspyrnu, en þá var Cano far inn út af. Juan Rubio hafði tekið stöðu hans og hann er vön vítaskytta. Traid kallaði til Rubio og sagði honum að taka spyrnuna, en áður en hann gat deplað auga hafði Dirceu stillt knettinum upp, og brennt af. Tveimur mínútum síðar hugðist Traid taka Dirceu út af og fór þá allt í háaloft og jaðraði hreinlega við handalögmál. Gengu menn á milli Traid og Dirceu og urðu þeir að sætta sig við að láta orð tala en ekki hnefa. Daginn eft- athyglina meira til sín, Werder Bremen og FC Köln. Bremen-liðið þykir eitt besta lið Þýskalands í dag, en það kom upp úr 2. deild á síðasta keppnistímabili. Flestir leikmenn liðsins eru ungir og bráðefnilegir, en kjölfestuna’ mynda þó tveir 35 ára gamlingjar sem búið var að afskrifa sem knattspyrnumenn i 1. deild. Eru það miðherjinn hörundsdökki Erwin Kostedde og miðvörðurinn Klaus Fichtel. Kölnarliðið tefldi fram fleiri „stjörnum" heldur en nokkuð annað lið. Fyrir voru menn á borð við Pierre Littbarski og Tony Woodcock, en félagið keypti á skömmum tíma heims- fræga leikmenn á borð við Reiner Bonhof, Klaus Fischer, Klaus All- ofs og Rene Botteron. Lengi vel gekk þessi blanda alls ekki upp, Woodcock var fyrst á bekknum, síðan Botteron, meira að segja bæði Littbarski og Fischer einu sinni. Með heppni tókst Kölnarlið- inu þó að hanga í efstu liðunum framan af, en síðustu vikurnar fyrir áramótin fór liðið að smella saman, Botteron var þá komin endanlega út úr myndinni, en þeir Littbarski, Woodcock, Fischer og Allofs, mynduðu stórhættulega 4 manna framlínu. Margir spá Köln frama áður en vertíðin er öll. Reiknað er meö aö Anderlecht sigri aftur Þrátt fyrir að Anderlecht hafi selt átta af leikmönnum þeim er gerðu liðið að Belgíumeistara á síðasta keppnistímabili, er fastlega reiknað með því að liðið verji titilinn þó svo að lið eins og Standard, Lokeren og fleiri reyni að setja strik í reikning- inn. Anderlecht keypti 6 leikmenn í stað þeirra sem fóru, þar á meðal Bert Cluytens frá Bevern og Michel Renquin frá Standard, hörkuleik- menn báðir tveir. Félagið keypti einnig Danann unga Per Friman og íslendinginn Pétur Pétursson, en þeir hafa háð rimmu um sæti í fram- línu Anderlecht. Við þetta má bæta, að Lokeren hefur verið á mikilli uppleið síð- ustu vikurnar, unnið hvern leikinn af öðrum og er það ekki síst að þakka frábærri frammistöðu Arn- órs Guðjohnsen, sem leikið hefur betur en í annan tima á stuttri knattspyrnuævi sinni. á Spáni ir var Traid rekinn og Dirceu sett- ur á sölulista. En enginn vill kaupa hinn skapstóra Dirceu, því hann hefur áður veist að þjálfara sem vildi skipta honum út af og enginn þjálfari vill eiga líkams- árás yfirvofandi. Um baráttuna í deildinni er það að segja, að allt er í járnum og mörg lið kölluð. Á þessu stigi er ekkert hægt að segja, ekkert lið hefur enn sýnt þann stöðugleika sem þarf til að vinna titil. I einni umferðinni gerðist það til dæmis að öll fimm efstu lið deildarinnar töpuðu. Baráttan er því óvíða meira spennandi en á Spáni. PSV Eindhoven virðist vera að koma upp með topplið á nýjan leik, liðið hefur reyndar jafnan verið meðal efstu liða, en skort stöðug- leika. Var liðið efst er hátíðafríið hófst. Gæfumuninn hafa gert þeir Hallvar Thoresen, norski landsliðs- útherjinn, og Ruud Geels, hollenski landsliðsmiðherjinn sköllótti, en PSV fékk þá til liðs við sig með ofangreindum árangri. Ajax seldi sinn besta leikmann, Ðanann Frank Arnesen til Val- encia, og setti liðið nokkuð niður við það. Dani kom hins vegar í Dana stað, Ajax festi kaup á korn- ungum pilti að nafni Jesper Olsen og eru miklar vonir bundnar við hann. Feyenoord er ekki lengur sama stórveldið og fyrir fáum árum. Leikmenn liðsins hafa gengið kaupum og sölum, en sá eini sem grætt hefur á öllu braskinu er framkvæmdastjórinn Peter Stephan, en hann hefur að sögn jafnan passað vel upp á að þéna vel persónulega af hverri sölu. Loks meistaraliðið AZ’67 Alk- maar. Þar ekki fyrir að finna sama styrkleika og í fyrra, en þó er liðið í einu af efstu sætunum í deildinni. Liðið seldi einn af bestu leikmönnum sínum, Austurrík- ismanninn Kurt Welzl til Val- encia. Welzl er ekki eini snilling- urinn sem yfirgefið hefur hol- lensku knattspyrnuna nýlega. Þar í landi eiga félög í stökustu fjár- hagsvandræðum og þau geta ekki boðið leikmönnum sínum betri laun en til dæmis spænsk lið, eða jafnvel ensk. Áður er þeirra Welzl og Arnsen getið, en leikmenn á borð við Franz Thijssen og Arnold Muhren hafa einnig horfið af hol- lenskum knattspyrnuvöllum. Knattspyrnan í Evrópu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.