Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982 + Móöir okkar, JAKOBÍNA GUDMUNDSDÓTTIR, Dalbraut 27, áður Vesturgötu 52, lést í Borgarspítalanum 31. janúar. Börnin. Eiginmaður minn, er látinn. ÞORGILS STEINÞÓRSSON, Sigriöur Guömundsdóttir. t Systir okkar, SÓLVEIG STEFÁNSDÓTTIR, Víöimel 32, lést aö Elliheimilinu Grund, laugardaginn 30. januar. Fyrir hönd fósturdóttur, barnabarna og annarra vandamanna. Jórunn Stefánsdóttir, Rannveíg Stefánsdóttir. t Dóttir okkar og mamma min, SIGRÍÐUR SIGFÚSDÓTTIR, Réttarbakka 17, Reykjavfk, andaðist í Borgarspítalanum laugardaginn 30. janúar. Jaröarförin verður auglýst siöar. Sigfús Jóhannesson, Guórún Gunnarsdóttír, Þórir Ólason. Faöir okkar. JÓN MAGNÚSSON, fyrrum kaupmaóur, frá Stokkseyri, lést i Elliheimilinu Grund sunnudaginn 31. janúar. Börnin. h Faðir minn. EYSTEINN EYMUNDSSON, lést laugardaginn 30. janúar. Fyrir hönd barna hins látna. Ólafur Skúli Eysteinsson. + Móöir okkar, JÓNA EINARSDÓTTIR, Spítalastíg 2b, lést í Landakotsspitala þann 30. janúar sl. Synir hinnar látnu. Írís Sigmarsdótt- ir - Minningarorð Fædd 23. septetnber 1964 Dáin 26. janúar 1982 í dag kveðjum við írisi Sig- marsdóttur, flautuleikara og „tamborinu“ Hornaflokks Kópa- vogs. Kynni okkar írisar hófust er Skólahljómsveit Kópavogs spilaði í fyrsta skipti á jólaskemmtun í Kársnesskóla nokkrum dögum fyrir jól 1967. Iris var þar í fylgd móður sinnar, Gróu Sigfúsdóttur, hjúkrunarkonu skólans. Þessi litla 3ja ára gamla stúlka kom til min og sagði mér að hún ætlaði að koma í hljómsveitina til mín þeg- ar hún yrði nógu stór. Þar með var það ákveðið. Árið 1973 fór Skólahljómsveit Kópavogs í hljómleikaferð til Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands. Annar fararstjórinn í þessari ferð var Gróa Sigfúsdóttir. Iris, sem þá var 8 ára, fór með sem fánaberi og vakti alls staðar at- hygli fyrir prúða og fallega fram- komu, sem reyndar fylgdi henni alla tíð. Að þessu ferðalagi loknu hóf Iris nám í flautuleik hjá Skólahljómsveit Kópavogs. Fyrsti kennari hennar þar var Manuela Wiesler, en nú síðustu árin Jón H. Sigurbjörnsson — og öll erum við sammála um það að indælli nem- anda var ekki hægt að fá. Eitt af því sem Skólahljómsveit- in og Hornaflokkur Kópavogs hafa haft fyrir sið er að láta „tambúrínu" ganga í broddi fylk- ingar. Frá upphafi hafa þær verið þrjar, og hin síðustu ár skipaði Ir- is þann sess, sér og Hornaflokkn- um til sóma. Félagslíf hefur verið mikið og gott hjá nemendum í Skóla- hljómsveitinni og Hornaflokkn- um. Ferðir hafa verið farnar margar bæði hérlendis og erlend- is, og í slíkum ferðum myndast oft vináttubönd sem aldrei slitna. íris átti sinn besta vin í Hornaflokkn- um, Guðmund Rafn, slagverks- leikara og píanista. Að leiðarlokum við ég þakka ír- isi fyrir samveruna, allar ánægju- stundirnar í Skólahljómsveit Kópavogs og Hornaflokki Kópa- vogs og sendi mínar innilegusu samúðarkveðjur til Grétars, Gróu, Höllu, Brynhildar og Guðmundar Rafns. Björn Guðjónsson, Skólahljómsveit Kópavogs. íris, sem við kveðjum í dag, var yngst þriggja systra, dætra Gróu Sigfúsdóttur, forstöðumanns Sonur okkar og unnusti, HANNES KRISTINN ÓSKARSSON, er fórst af slysförum 21. janúar sl. veröur jarösunginn frá Landa- kirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 6. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuö en þeir, sem vildu minnast hins látna, láti Hjálparsveit skáta i Vestmannaeyjum njóta þess. Sigríöur Sigurðardóttir, Óskar E. Björnsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir. + Okkar ástkæri faöir, tengdafaöir, afi og langafi, STEINGRÍMUR STEINGRÍMSSON, Lindargötu 24, Reykjavík, veröur jarösunginn, miövikudaginn 3. febrúar frá Fossvogskirkju kl. 10.30 fyrir hádegi. Aöalsteinn G. Steingrimsson, Guöný S. Steingrímsdóttir, Óskar Þ. Óskarsson, Steingrímur H. Steingrímsson, Birna Árnadóttir, Ólafía G. Steingrímsdóttir, Hrafn Ingvason, Aðalheiður S. Steingrímsdóttir, Emil Sigurjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Faöir minn, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINBJÖRN JÓNSSON, byggingameistari, Háteigsvegi 14, Reykjavík, veröur kvaddur hinstu kveöju í Dómkirkjunni, miövikudaginn 3. febrúar kl. 15:00. Minnt er á hug hans til Gideonfélagsins og Kristniboössambands- ins. Björn Sveinbjörnsson, Guölaug Björnsdóttir, Afkomendur og makar. + Börnin okkar. SIGRÚN ÁGÚSTSDÓTTIR og BOGI PETUR THORARENSEN, létust af slysförum 30. janúar síöastliöinn. Sigríöur Eiríksdóttir, Ágúst Sigurösson, Guðrún Thorarensen, Höröur Thorarensen. Útför elskulegrar móöur okkar,^^ ELÍNAR BERGS, fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 4. febrúar 1982, kl. 15.00. Blóm og kransar eru afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á liknarstofnanir. Guðbjörg Helgi, Halla og Jón H. Bergs. Faöir okkar, tengdafaöir og afi, ÞÓRLINDUR ÓLAFSSON, Lækjarhvoli, Fáskrúösfiröi, andaöist í Fjóröungssjúkrahúsinu á Neskaupstaö, föstudaginn 29. januar. Vandamenn. + Þakka innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför fósturmóður minnar, ELÍNAR J. MAGNÚSSEN, Jaöri, Gríndavík. Stígur Lúövík Dagbjartsson. Heilsugæslustöðvar Kópavogs, og Sigmars Grétars Jónssonar, full- trúa hjá Brunabótafélagi íslands. Iris var heitbundin ungum og efni- legum manni, Guðmundi Rafni Guðmundssyni. Við minnumst Irisar allt frá þeim tíma er hún fyrst leit þennan heim fyrir rúmum sautján árum og sem hún hefur nú kvatt skyndi- lega og óvænt. Á fyrstu árum ævi sinnar var hún tíður gestur á heimili okkar og með ljúfu brosi sínu og hlýju viðmóti varð hún strax hvers manns hugljúfi. Margar kærar endurminningar skilur hún eftir frá samverustundum þar sem un- að var við leik, föndur og söng ljúfra barnalaga, sem hún söng með þeim innileik, sem börnum einum er eiginlegt. Hún hafði heillandi eiginleika til að hnýta bönd vináttu og tryggðar og rækt- aði þau tengsl í hógværð og af al- úð. Viðmót hennar sem barn kall- aði fram þörf og löngun til að fylgjast með vexti hennar og þroska. íris ólst upp í foreldrahús- um ásamt systrum sínum, á traustu og ástríku heimili og var uppvaxtarferili hennar öllum þeim er hana þekktu til gleði, ánægju og örvunar. Hjá henni þroskuðust og döfnuðu þeir mannlegu eiginleikar, sem við metum svo mikils svo sem næmar tilfinningar, vilji til sjálfsbjargar og listrænir hæfileikar. Þroski ír- isar stefndi til fulltíða konu, sem víst var að myndi glæða umhverf- ið fegurð og veita því birtu og gleði. Hún bjó yfir heillandi við- móti, mikilli lífsgleði og heilbrigð- um viðhorfum og kveikti þetta vonir um glæsta framtíð, er öllum fannst eðlikgt að myndu rætast. Því kom fréttin um að íris hefði látist af slysförum og væri horfin af jarðnesku sviði, öllum á óvart og er óskiljanlegt enn þótt við eig- um að vita, að lífsskeið mannanna er fyrirfram óþekkt og ótryggt. Það er erfitt að kveðja góðan vin, sem ieggur í hina löngu för á fegursta skeiði í lífi sínu. Á því skeiði þegar væntingarnar til framtíðarinnar eru hvað mestar og trúin á manninn og kærleikann er hrein og fölskvalaus. En hér tók sá ákvörðun, sem er mönnunum æðri. í vanmætti okkar getum við aðeins beðið þess að íris fái góða ferð yfir móðuna miklu og að Guð leiði hana og verndi svo og að hann styrki ástvini hennar og aðra þá, sem sakna hennar sárt. Didda og Steinar Kveðja frá Mennta- skólanum í Reykjavík Mannslát snerta mann alltaf mikið, en oft er þó svo, þegar fólk nær nokkurri elli, hefur lokið miklu og góðu ævistarfi og deyr satt lífsaga, að maður getur hugg- að sig við, að það hafi gert vel, afkastað miklu, þurfi ekki lengur að þjást. Þegar hins vegar ung stúlka, við upphaf lífsins, lætur lífið í slysi, er hrifin óvænt út úr önn hvers- dagsins og er ekki lengur, þá brestur mann orð, þá er fátt, sem huggar vinina, skólafélagana,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.