Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982 41 fclk f fréttum + í bresku blaði sagði nýverið, að á ári hungurs, morða, hryðjuverka, atvinnu- leysis o.s.frv. hefðu menn sameinast í einum atburði — hinu konunglega brúðkaupi. En hvenær getum við átt von á annarri konunglegri ást? Náttúrlega — segir hið breska blað og er það heimild okkar að öllu því sem hér fer á eftir — jafnast ekkert á við brúðkaup Karls og Díönu — en það eru að minnsta kosti átta börn úr konungsfjölskyldunni orðin gjafvaxta og vel það. Nú þegar eru uppi getgátur meðal manna, hver verði næstur — og skulum við skoða stuttlega hvernig málin standa hjá hverjum og einum. + Þetta er Edward prins, átján vetra og bróðir þeirra Karls og Andrews. Hann þykir ekki ólíkur systur sinni Onnu, en feiminn er hann stundum í framgöngu og segja sálfræðingar, að skýringa sé sennilegast að leita í því, að honum finnist undir niðri að eldri bræður hans skyggi á hann! Hann tók seint við sér í skóla, en á endanum reyndist hann snöggtum skárri námsmaður en Andrew. Þá hefur hann sýnt burði til að verða flug- maður snjall og skytta góð. Hann hefur sést í fylgd með nokkrum stúlkum, en ósagt skal látið hve- nær hann finnur hina einu sönnu ... + Systir James er Marina og þykir mjög aðlaðandi, en einörð í skapi, þótt hún sé ekki nema tæpra sex- tán vetra. Spekingar segja, að hún verði mjög falleg kona og hún fer oft í útreiðartúra, er sundkona ágæt, og svo er hún mjög list- hneigð. Oftlega situr hún daglangt við pianóið og spilar klassíska tónlist og einnig þykir hún listmál- ari efnilegur. Þá sló hún í gegn í skólaleikritinu fyrir tveimur ár- um, en þar sem hún er ekki sextán ennþá, þá er ekki lfklegt að hún giftist í bráð, en vissulega er hún kvenkostur góður ... + Viscount Linley, tvítugur og sonur Margrétar prinsessu og ljósmyndarans Snowdons. Hann gengur jafnan undir nafninu „Lord Charming”, og er hrókur alls fagn- aðar og hvar sem drengurinn kem- úr, er honum það helsta hugðar- efni að allir séu í ljómandi skapi, kátir og hressir o.s.frv. Drengur- inn er svo yfirþyrmandi, að stúlk- unni hans á dansleik finnst sem hún sé eina stúlkan í salnum, en því miður þá hefur hann enga sér- staka í takinu ennþá. Hann er nú í námi í innanhússarkitektúr og vin- ir hans segja, að hann sé kappsam- ur og áfjáður í að byrja að vinna strax að loknu námi, sem verður að ári... + Lafði Helen Windsor þykir sú ásjálegasta í konungsfjölskyld- unni. Hún verður átján ára í vor. Hún er falleg eins og mamma, segja Bretarnir (og þá gáfuð eins og pabbi?), en hún er dóttir her- togans og hertogaynjunnar af Kent. Enn sem komið er hefur hún ekki oft sést í fylgd ungra manna, heldur nægir henni félagsskapur fjölskyldu sinnar og hún er inni- lega tengd móður sinni ... + Sarah er systir „Lord Charm- ing" og er átján ára gömul og hafa þegar birst af henni litmyndir í tímaritinu Vogue. Faðir hennar tók myndimar. Barnslund hennar er enn ríkjandi með henni og þeir sem ungangast hana þykjast sjá fá merki þess að hún nálgist tvítugs- aldurinn. Hún stendur sig samt Ijómandi vel í skólanum og þykir þrátt fyrir allt rólynd að eðlisfari og spámenn segja, að vel geti svo farið, að hún komi öllum á óvart og verði fyrst allra ólofuðu ung- mennanna í konungsfjölskyldunni að finna æviförunautinn, senni- legast mann sér eldri, og ganga í það heilaga ... + James Ogilvy verður átján vetra nú í febrúar og segir ekki í heimild okkar, hinu breska blaði, hverra manna hann er — nema hann þyk- ir einn hinn laglegasti í konungs- fjölskyldunni. Hann er náinn vin- ur Edwards prins og er öruggur í fasi og aldrei feiminn en þó hygg- inn. Semsé, allir möguleikar á því að honum takist að næla sér í gott kvonfang — en hvenær veit eng- inn ... + Þessi drengur er kominn undir tvítugt. Hann þótti efnilegur í æsku, varð hæstur á prófum, og menn bjuggust við að þar væri gáfnaljósið í konungsfjölskyldunni fundið — en því miður. Hann stóð sig slælega á stúdentsprófinu og nú hefur komið á daginn, að helstu hugðarefni hans eru knattspyrna, kappakstur og skytterí. Semsé ekki lengur bókhneigður. Hann heitir Georg og er sonur hertogans af Kent. Hann er maður hávaxinn, eins og pabbinn, og hinn geðþekk- asti í framgöngu — en ekki líkleg- ur kandídat í næsta konunglega brúðkaup ... + Bretar segja, að þessi sé nú inn- undir hjá meyjunum: Andrew prins, bróðir Karls, 22ja vetra og gengur jafnan undir nafninu „Randy Andy", vegna þess hversu sólginn hann er í ljóshærðar sýn- ingarstúlkur með stór blá og sak- leysisleg augu. Andrew er ekki bókhneigður maður, enda gekk hann við fyrsta tækifæri í sjóher- inn og hefur reynst gieðimaður mikill. Flest kvöld er hann að finna á næturklúbbum í West End, þar sem hann gengur jafnan fram af félögum sínum með því að stíga villtan dans við stúlkur sem eru helst til frjálslegar í fasi — svo konungbornir menn geti leyft sér að umgangast þær meira opinber- lega en brýnustu nauðsyn ber til. En hann gengur semsé í augun á stúlkunum og eftir öllum sólar- merkjum að dæma verður hann hetjan í næstu stóru ástarsög- unni... 1 IBM system 32. 16 K — 13,7 MB — 155 LPM. Verö D.kr. 60.000 — fyrir utan kostnað. 1 IBM system 32. 16 K — 13,7 MB — 120 CPS. Verö D.kr. 55.000 — fyrir utan kostnaö. Afhendist meö IBM viöhaldsskírteini. Ókeypis flutningur og uppsetning á íslandi. Viö kaupum einnig notuö IBM-kerfi. q.C. co^putar ÍfCOND NAND fOUIt ItCOND HAND tOUlÞHCNT ApS Molhavevej 14 DK-9440 Abybro . Tlf. (08) 24 25 55 SIEMENS Einvala liö: Siemens- heimilistækin Urval v-þýskra SIEMENS-heimilistækja þar sem hvert tæki leggur þér lið við heimilisstörfin. Öll tæki á heimiliö frá sama aðila er trygging þín fyrir góðri þjónustu og samræmdu útliti. SMITH & NORLAND HF. NÓATÚNI 4, SÍMI 28300. Sími 25700 Vetrarverö okkar hafa sjaldan veriö hagstæöari. Eins manns herbergi meö sturtu kostar aöeins kr. 248.- og tveggja manna herbergi með sturtu aöeins kr. 325.-. Ný og glæsileg gestamóttaka, setustofa og Piano Bar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.