Morgunblaðið - 27.01.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.01.1994, Blaðsíða 1
72 SIÐURB/C 21.tbl. 82. árg. FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Rúmenar fyrstir til samstarfs um frið við NATO Brussel. Reuter. RÚMENAR undirrituðu í gær fyrstir austantjaldsríkja samkomuiag um friðarsamvinnu við Atlantshafsbandalagið (NATO) og við það tækifæri sagði Teodor Melescanu utanríkisráðherra að Rúmenar vonuðust til þess að verða fullgildir aðilar að NATO í fyilingu tímans. „Þjóð mín lítur á Samstarf um frið sem undanfara fullrar aðildar Rúmeníu að NATO,“ sagði Melesc- anu er hann ávarpaði fastafulltrúa aðildarríkjanna 16 við athöfn í höf- uðstöðvum bandalagsins í gær. Friðarsamvinnan felur í sér nánara samstarf á sviði varnarmála, m.a. þátttöku í sameiginlegum heræf- ingum. Amedeo de Franchis aðstoð- arframkvæmdastjóri NATO lýsti undirrituninni í gær sem „virkilega sögulegri stund“. Ráðgert var að Litháar undirrit- uðu samkomulag af þessu tagi í Brussel í dag. í gær hefði Nicolae Ceausescu fyrrum einræðisherra í Rúmeníu orðið 76 ára hefði honum enst aldur en hann var tekinn af lífi í blóð- ugri uppreisn skömmu fyrir jólin 1989. Kom á annað hundrað stuðn- ingsmanna Ceausescu saman í kirkjugarði þar sem hann er graf- inn. Fluttu þeir lofræður um fyrrum leiðtoga sinn og báðu fyrir því að kommúnistar kæmust á ný til valda. -----♦ ♦ ♦----- Kaldara um helgar London. Reuter. KENNINGIN um að mannlegar athafnir, þar á meðal ferð til vinnu, leiði til hækkandi lofthita hefur verið staðfest með sérstök- um hitafarsmælingum á árunum 1979 til 1992. í breska vísindablaðinu Nature segir að leitt hafi verið í ljós með rannsóknum í Adeleide í Ástralíu að loft sé kaldara um helgar en virka daga. Líklegasta skýringin er að þá haldi fólk fyrst og fremst kyrru fyr- ir, sé minna á ferli en virka daga. Reuter Manntjón er þak hrundi ÓTTAST var um líf allt að 18 manna eftir að þak hrundi á stórmarkaði í borginni Nice á frönsku rivíer- unni í gær. Lík þriggja höfðu fundist í gærkvöldi í rústunum en 15 var enn saknað. Að minnsta kosti 90 slösuðust. Slysið varð klukkan 15 að staðartíma og meðal þeirra sem biðu bana voru bæði starfsmenn og viðskiptamenn, að sögn sjónvarpsstöðvanna TF-1 og France-2. Unnið hafði verið að framkvæmdum við bygginguna sem hýsir stórmarkaðinn sem ber nafnið Casino. Stendur hún við strandveginn skammt frá flug- velli borgarinnar. Til stóð að loka versluninni í næstu viku meðan smiðshöggið væri rekið á framkvæmdirnar. Borís Fjodorov spáir þjóðfélagslegri sprengingu í Rússlandi Segir framtíð Rússlands nú vera í höndum Jeltsíns Reuter Zhírínovskíj hefur í hótunum ÁKÆRA var gefin út á hendur herskáa rússneska þjóðernissinnanum Vladímír Zhírínovskíj í gær fyrir stríðsæsingar. í nýlegri bók hvatti hann til þess að Rússar legðu undir sig Tyrkland, íran og Afganist- an. Reiddist hann ásökununum á blaðamannafundi í gær, vísaði stríðsæsingum á bug og hótaði að senda pólitíska andstæðinga sína í útlegð til Síberíu. Sakaði hann fjölmiðla um samsæri um að sverta sig í augum Rússa og umheimsins. Við hlið hans sat Gerhard Frey, leiðtogi hægri öfgamanna í Þýskalandi, sem minnti blaðamennina á að senn yrði Zhírínovskíj rússneskur forseti. Hann sagði það ekki þjóna neinum tilgangi að móðga verðandi forseta, allra síst væri það í þágu Þjóðveija. Að svo mæltu rak Zhírínovskíj þýskum vini sínum rembingskoss á kinn og var myndin tekin við það tækifæri. Moskvu. Reuter. FUNDI þeirra Borísar Fjodorovs, fjármálaráðherra Rússlands, og Borísar N. Jeltsíns forseta lauk í gærmorgun með því að hinn fyrr- nefndi lagði fram formlega lausnarbeiðni sína vegna ágreinings um stjórnarstefnuna. „Þú getur ekki kastað öllu frá þér og gengið á brott,“ hafði Fjodorov eftir forsetanum. Ráðherrann fyrrverandi sagðist ekki geta setið i stjórn með „hugmyndafræðilegum fjendum" sínum og tjáði Jeltsín að verið væri að tortíma umbótastefnunni. Framtíð Rússlands væri nú í höndum forsetans. Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði í stefnuræðu sinni í fyrrinótt að Bandaríkin myndu áfram hafa samstarf við Rússa og hvetja þá til að halda áfram efnahagsumbótum. Forsetinn var fyrir skömmu í Moskvu en síðan hafa nær allir umbótasinnar sagt sig úr ríkisstjórn Víktors Tsjernomýrdíns forsætisráð- herra. Borís Fjodorov vill m.a. beita háum vöxtum gegn verðbólgunni og hraða einkavæðingu. Hann krafðist þess að tveir skjólstæðingar Tsjerno- mýrdíns yrðu látnir víkja úr ríkis- stjórninni en Jeltsín hafnaði skilyrð- um hans. Forsætisráðherrann vill hverfa frá róttækum markaðsum- bótum og veita risastórum fyrir- tækjasamsteypum frá tímum Sovét- ríkjanna gömlu, sem ekki hafa verið einkavæddar, aukinn fjárstuðning. Þær eru nú margar gjaldþrota í reynd og hjara aðeins á ríkisstyrkj- um, sama er að segja um samyrkju- búin í landbúnaðinum. í tilfinningaþrungnu ákalli Fjod- orovs til forsetans sem Interfax- fréttastofan birti sagði ennfremur: „Borís Níkolajevítsj: Verið er að fremja efnahagslegt valdarán í land- inu, afturhvarf til fortíðar. Allar vonir eru nú bundnar við þig.“ Fjod- orov spáði því að slæmir tímar væru að renna upp. „Hættan á þjóðfélags- legri sprengingu er að færast af vettvangi fræðanna yfir í raunveru- leikann", sagði hann. Átak gegn glæpagengjum Einn af ráðgjöfum Jeltsíns, Pjotr Fílípov, sagði í gær að vel skipulögð mafíusamtök, grá fyrir járnum, væru nú farin að ráða lögum og lofum í miklum hluta landsins. „Þetta líkist næstum því borgara- styrjöld," sagði hann. í nýrri skýrslu leggur Fílípov til að lögum verði breytt svo að hægt verði að hafa menn í varðhaldi allt að þijá mánuði án þess að þeir séu dregnir fyrir dómara. Einnig verði komið á lag- girnar sérþjálfuðum úrvalssveitum undir forsetastjórn, þær verði há- launaðar og einbeiti sér að því að uppræta glæpagengin. Sjá viðtal við Arnór Hannibals- son á blaðsíðuni 26 og 27. Berlusc- oni fer í framboð Mílanó. Reuter. SILVIO Berlusconi, 57 ára fjölmiðlakóngur, ákvað í gær að snúa sér að stjórnmálum og sagðist verða í fylkingar- brjósti í „krossferð frjálsræð- isaflanna" gegn vinstrimönn- um í þingkosningunum í mars. „Það er óhjákvæmilegt að stofná frelsishandalag gegn samfylkingu vinstrimanna," sagði Berlusconi er hann kynnti ákvörðun sína í útsendingu_ á sjónvarpsstöð sinni, Stöð-4. „Ég vil ekki búa í landi sem stjórnað er af mönnum sem eru nátengd- ir pólitískum og efnahagslegum mistökum fortiðarinnar." Berlusconi hefur gert kjörorð íþróttamanna, „Áfram Ítalía", að kjörorði stjórnmálafylkingar sinnar. Vegna stjórnmálaaf- skipta sinna sagðist hann myndu víkja úr sæti forstjóra Fininvest-fjölmiðlasamsteypu sinnar sem á þijár sjónvarps- stöðvar, blaðaútgáfu, stórversl- anakeðju og knattspyrnufélagið AC Milan. Skoðanakannanir frá í síð- ustu viku benda til þess að bandalag vinstriflokka með gamla kommúnistaflokkinn, Lýðræðisflokk vinstrimanna (PDS), í broddi fylkingar hljóti um 40% atkvæða í kosningun- um 27.-28. mars. Djúpstæður ágreiningur hef- ur komið i veg fyrir að mið- og hægriflokkarnir myndi kosn- ingabandalag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.