Morgunblaðið - 13.04.1985, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.04.1985, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985 Magnús Kjartansson á nokkur málverk á sýningunni og einnig á hann skúlptúr sem hann kallar „Áhyggjur“. FASTEIGNA- OG SKIPASALA HVERFISGÖTU 98 (horni Baronstigs) Sími 26650, 27380 Opið í dag og á morgun frá kl. 1-4. 3ja herb. Njálsgata. Rúmg. ib. Sérinng. og allt sér. verð: tilboð. Furugrund. Ca. 95 fm aiveg skínandi íb. á 2. hæð. Verð 1900-2000 þús. Engihjalli. Stór og góö íb. á 6. hæö. Laus strax. Hrísmói Gbæ. Mjög stór lb. á 1. hæð i glæsilegri blokk. Tilb. u. trév. Ótal greiöslumögul. Öldugata. Ca. 85 fm 3ja herb. nýstandsett ib. á 3. hæð. Verö 1700 þús. 4ra — Furugrund Stórglæsileg 4ra herb.ib. á 1. hæö. Suöursv. Ný teppi. Herb. i kj. með aögangi að snyrtingu. Verð 2,5 millj. 5 herb. - sérhæöir í Hlíðunum. Stór og góö neðri sérhæð í þribýli. Bilskúrsr. Nánari uppl. á skrifst. Tjarnarból. 130 fm stór- glæsileg ib. á 4. hæö. Verð 2,4-2,5 millj. Kaplaskjólsvegur. 5-6 herb. ca. 140 fm endaibúö. Verð 2.3 milij. Einbýli - raðhús Kleifarsel. Ca. 230 fm glæsilegt raöhús ásamt bilskúr. Miðvangur. Glæsilegt 5-6 herb. einbýlish. á einnl hæð ásamt 54 fm tvöf. bilsk. Ákv. sala. Verð 4,7 millj. Mosfellssveít. Nýtt ca 146 fm einb.hús. Uppl. á skrifst. Kambasel. Ca. 230 fm glæsil. raöhús ásamt bilsk. Skipti á minni ib. Verð 4 millj. í byggingu í Grafarvogi. Endaraöhús á 2 hæöum ásamt bílsk. Mjög stórar sólsvalir þar sem gert er ráö fyrir stóru garöhúsi. Afh. fokhelt eöa lengra komiö eftir ósk kaupanda. Teikn. á skrifst. Vantar Fyrir fjársterkan kaupanda 2ja herb. íb. i Rvik. Skoóum og verdmetum samdægurs Lögm.: Högni Jónsson hdl. V ______________/ 29555 Opiö kl. 1-3 2ja herb. Hafnarfjöröur. vorum aö fá i sölu 65 fm ibúö, alla nýstand- setta. Nýtt gler i gluggum. Mögul. aö taka bil uppi hluta kaupverös. Hraunbær. 65 fm vönduö ib. á 3. hæð. Verö 1400-1450 þús. 3ja herb. Hólmgarður. Vorum aö fá i sölu 80 fm íb. á 1. hæö í nýju húsi. Suöursv. Glæsileg eign. Verö 2-2,1 millj. Engihjalli. 90 fm ib. á 2. hæö. Verö 1750-1800 þús. Hraunbær. 3ja herb. 100 fm íb. á 1. hæð ásamt rúmg. aukaherb. á jaröhæö. Mjög vönduö sameign. Verð 1900-1950 þús. Kleppsvegur. 3ja herb. á 1. hæð. Verö 1750 þús. 4ra herb. og stærri Goöheimar. Góö sérhæö ca. 155 fm á 1. hæö. 3-4 svefnherb., góö stofa, stórt eldhús meö góö- um borökr. Verö 3,4 mlllj. Sklpti mögul. á góöri 4ra-5 herb. íb. Bugðulækur. Góö 4ra-5 herb. íb. á 3. hæð ca. 110 fm. 3-4 svefnherb., góð stofa. Verö 2,2 millj. Vesturbær. 117 fm (b. á 1. hæö sem þarfnast standsetn. Möguleg skipti á minni eign. Æsufell. 120 fm ib. I lyftublokk. Mögul. skipti á 2ja herb. ib. Hugsanlegt aö taka bil aö auki. Leirubakkí. 110 fm ibúö á 3. hæö. Sér þvottahús i ibúöinni. Möguleg skipti á 2ja herb. ibúö. Kóngsbakki. 4ra herb. 110 fm ib. á 2. hæö. Vönduö eign. Verö 2 milij. Mávahliö. 4ra herb. 117 fm mikiö endurn. Ib. I fjórb.húsi. Verö 1950 þús. Mögul. skipti á minni eign. Dalsel. 4ra herb. 110 fm ib. á 2. hæö. Ibúðin skiptist i 3 rúmg. svefnh., sjónv.þol og rúmg. stofu. Þv.hús og búr innaf eldh. Bilskýli. Mögul. aö taka minni eign uppi hluta kaupverös. flaðhus og einbýli Alftamýri. Vorum aö fá i sölu vandað 190 fm raöhús á tveimur hæöum. Verö 5 millj. Rauöagerói. Vorum aö fá i sölu 180 fm hús á 3 hæöum ásamt 45 fm bílsk. Mjög snyrtil. lóö meö gróöurhúsi. Verö 2,5 millj. Hryggjarsel. Faiiegt raöhús ca. 230 fm. Á 1. hæö eru tvær stofur, eldhús, þvottaherb. og gestasn. Á efri hæö eru 4 stór svefnherb. og gott bað. í kj. er fullbúin 60 fm einstakl.ib. Stór tvöf. bilskúr. Verö 4,3 millj. kiWymlih EIGNANAUSTé Bólstaöarhlið 6, 105 Reykjavik. Símar 29555 — 29558. Hrolfur Hjaltason, viöskiptafrœómgur Hugheilar þakkir flyt ég öllum þeim sem sýndu mér vinsemd og viröingu í tilefni af 50 ára klausturafmæli mínu 17. mars sl. Systir Hildegard. Félag íslenskra mynd- listarmanna opnar vor- sýningu á Kjarvalsstöðum FÉLAG íslenskra myndlistarmanna heldur sfna árlegu sýningu á Kjarvalsstöðum frá 13. apríl til 5. maí. Sýningin er opin daglega frá kl. 14.00 til 22.00. Á sýningunni sýna 30 félagar úr FÍM, en þar af hafa fimm mynd- listarmenn verið valdir í svokall- aðan kjarna, sem gerir þeim kleift að sýna fleiri myndir en aðrir á sýningunni og einnig eru þeim gerð betri skil í sýningarskránni en öðrum. Á sýningunni eru 111 verk, þar af er fimm-manna kjarninn með 39 verk samtals. Jóhanna Þórð- ardóttir, formaður sýningarnefnd- ar, sagði í samtali við Mbl. að í ár hefði verið ákveðið að hafa sýn- inguna eingöngu opna fyrir félags- menn. „Við ákváðum að láta reyna á styrk félagsins. Árlegu sýn- ingarnar fram til þessa hafa þró- ast í þá átt að vera vettvangur fyrir utanfélagsmenn og hafa þeir oft verið fleiri að tölu en félags- menn. Sýningar félagsins undan- farin ár hafa alltaf verið á haust- in, en nú ákváðum við að breyta til og hafa vorsýningu." Þeir fimm myndlistarmenn er boðið var að mynda kjarnann eru: Jóhann Briem, Magnús Kjartans- son, Valgerður Bergsdóttir, Ragn- heiður Jónsdóttir og Sigurður Sig- urðsson. Jóhanna sagði að sýningin væri þriðja kjarna-sýningin sem haldin er og hefur það gefist mjög vel. „Það eru yfir 100 félagsmenn í FÍM og er skemmtilegt að draga út nokkra einstaklinga og kynna þá vel, og gera þeim kleift að njóta sín betur en ella.“ Jóhanna sagði að 17 félagsmenn hefðu sett upp sýningu í Færeyj- um sl. október og á dagskrá er i júlí nk. að sex myndlistarmenn setji upp sýningu í Austur-Þýska- landi. Valgerður Bergsdóttir, mynd- listarmaður, er með níu myndir á sýningunni og kallar hún þær all- ar „Skuggar". „Þetta eru allt teikningar unnar með grafit og hef ég unnið þær allar á þessu ári. Ég vinn mikið myndir í hópum — ein mynd leiðir af annarri. Það er engin algild lausn á mynd — hægt er að taka sömu hugmyndina og snúa henni á hundrað vegu,“ sagði Valgerður. Hún sagðist eingöngu vinna með svart og hvítt. „Það eru öll þau blæbrigði sem ég þarf — frá því bjartasta til hins svart- asta.“ Magnús Kjartansson er bæði með málverk og skúlptúr á sýn- ingunni. „Ég sýni myndir undir gleri, unnar á pappír með alls kyns ljósnæmum efnum. Skúlp- túrinn er gerður úr steinleir og vann ég hann á verkstæði konu minnar í Búðardal. Skúlptúrinn er átta lóð, sem saman mynda orðið „áhyggjur". Lóðin og heitið eiga að tákna allar áhyggjurnar sem hvíla á þjóðinni og er verkið tileinkað ríkisstjórninni," sagði Magnús að lokum. Myndhöggvarafélagið í Reykjavík opnar sýningu Myndhöggvarafélagið f Reykja- vfk opnar úti- og innisýningu á skúlptúr á Kjarval8stöðum laug- ardaginn 13. aprfl kl. 14.00. Á sýningunni verða 47 verk eftir 20 listamenn. Ellefu verkanna eru úti og 36 þeirra eru í vestursal Kjarvalsstaða. Sýn- ingin verður opin daglega frá klukkan 14.00 til 22.00 og henni lýkur 5. maí. Ragnar Kjartansson, blaða- fulltrúi sýningarnefndar, sagði að sýningin væri einskonar út- tekt á stöðu höggmyndalistar- innar í dag. „Sýningarnar fram til þessa hjá okkur hafa verið mjög frjálsar og engin dómnefnd hefur verið hjáókkur til að velja og hafna verkum. En nú má hins vegar segja að við séum komnir með spariandlit, vonandi. Sér- stök sýningarnefnd hefur valið öll verkin á þessa sýningu. Ragnar sagði einnig að flestir myndhöggvarar sem starfandi eru hér á landi væru i vinnu ann- ars staðar og þvi væri mynd- höggið einskonar aukabúgrein. Myndhöggvarafélagið í Reykjavík var stofnað formlega 1972, en varð til 1967, þegar haldnar voru fimm sýningar á skólavörðuholti og 2 sýningar á Lækjartorgi. Síðan hafa verið haldnar 18 sýningar, þar af 5 úti á landi og 2 erlendis — i Noregi og á Álandseyjum. 3u Jón Gunnar Árnason og Ragnar Kjartansson og nokkur þeirra verka sem verða á sýningu Myndhöggvarafélags- ins í Reykjavík. _____
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.