Morgunblaðið - 20.02.1988, Side 11

Morgunblaðið - 20.02.1988, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988 11 Fjölmenni á þorra- blóti í Hólmavík Hólmavfk. SÍÐUSTU helgina í janúar var haldið árvisst þorrablót á Hólmavík. Mjög vel var mætt og má segja að félagsheimili staðarins hafi bólgnað út vegna milcila fjðlmennis. Þorrablótið hófst að vanda á að konumar buðu karlmennina form- lega velkomna. Þá var sungið og tóku allir undir þegar kom að þorraþrælnum, svo að undir tók í salnum. Þá var tekið til við matinn og virtist fréttaritara veislugestir taka vel til matar síns. Konumar höfðu pantað allt hráeftii frá ýms- um áttum en soðið, skorið og snyrt allt sjálfar. Hákarlinn var feyki vinsæll og harðfískurinn og hangi- kjötið komu þar ekki langt á eftir, hvað vinsældir varðaði. Sfldin virt- ist einnig njóta töluverðra vin- sælda. Skemmtiatriðin voru þá næst á dagskrá og að venju var sagt frá því spaugilega úr lífí Hólmvíkinga. Veislugestir kunnu vel að meta það sem skemmtinefndin bauð uppá Mikið var sprellað og hlegið, enda þekktu margir það sem um var fjallað. Að lokum sungu kon- urnar gamanvísur við undirleik skólastjóra Hólmavíkurskóla, Þor- kels Jóhannssonar. Siðast tóku Hólmvíkingar til við dansinn. Hljómsveitin Árbandið lék fyrir dansi en hana skipa ijórir ungir sveinar frá Blönduósi og komu þeir upp miklu §öri á dansgólfínu. Dansleikurinn stóð til kl. 3.30. og þótti flestum mjög vel hafa til tek- ist. Eins og áður sagði var mjög vel mætt á þorrablótið, en af því sköpuðust viss vandkvæði. Félags- heimili Hólmavflmr, sem komið er nokkuð til ára sinna, er orðið allt- of lítið og erfítt er að halda þar MorgunblaAið/Baldur Rafn Sigurðsson skemmtanir ef vel er mætt. Á Hólmavík er hafínn bygging nýs félagsheimilis og heimavistar fyrir Hólmavflcurekóla, en hægt gengur með þá byggingu því fjármagn skortir frá hinu opinbera. Hólm- vfldngar vona samt að úr rætist fljótlega svo fólk þurfí ekki að veigra sér við að fara á skemmtun vegna þrengsla. - BRS Félagsheimili Hólmavíkur þar sem þorrablótið fór fram. Mjög vel var mætt og má segja að fé- iagsheimili staðarins hafi bólgn- að út vegna mikils fjölmennis. Félagsheimilið sem komið er nokkuð til ára sinna, er orðið alltof lítið og því erfitt að halda þar skemmtanir ef vel er mætt. Hudson’s Bay uppboðshúsið: Jónas Bald- ursson fram- leiddi bestu skinnin JÓNAS Baldursson refabóndi á Grýtubakka í Suður-Þingeyjar- sýslu varð gæðakóngur þeirra islensku loðdýraræktenda sem sendu refaskinn sin á uppboð Hudson’s Bay & Annings í Lon- don á síðasta sölutímabili. Um- boðsaðili Hudson’s Bay, Kjör- bær hf. í Kópavogi, veitir gæða- kóngnum verðlaun, sem er Lundúnaferð á meðan á febrú- aruppboði árið eftir stendur. Jónas átti ekki heimangengt en Karl bróðir hans, sem varð ann- ar á gæðalistanum, er nú stadd- ur í London til að fylgjast með refaskinnauppboðinu. Skinnin sem fara á Lundúna- uppboðin eru flokkuð og gefín stig, samkvæmt upplýsingum Skúla Skúlasonar framkvæmdastjóra Kjörbæjar. Mikilvægust er stærð- arflokkun skinnanna, síðan gæða- flokkun, þá lithreiníeiki og loks hártegund. Samanlögð stig úr þessari fíokkun raða bændum á gæðalistann. Jónas Baldursson á Grýtubakka fékk 1.135,2 stig og Karl Baldureson á Grýtubakka 1.124,7 stig. Reyndar varð einn loðdýrabóndi hærri að stigum, Heimir Ingólfsson á Lómatjöm, en hann varð einnig efstur í fyrra og samkvæmt reglum keppninnar má verðlaunahafínn ekki fá verð- laun fyrr en eftir þijú ár. Heimir á Lómatjöm varð efstur í stærðarflokkun, með 1.009,2 stig, Vilhjálmur Jónasson á Síla- læk í Aðaldal í gæðaflokkun með 261,6 stig, Þoreteinn Sigureteins- son á Búrfelli í Reykholtsdal í lit- hreinleika með 65 stig og Jón A. Magnússon á Lambhaga í Ölfusi í hártegund með 58,2 stig. ÍÍeSÍP1 Nyr metsölubíll með fimm ára ábyigð. Hyundai (borið fram hondæ) er í dag einn mest vaxandi bílaframleiðandi heims og sel- ur nú bíla í 65 þjóðlöndum. Hyundai Excel hefiir verið mest seldi innflutti bíllinn, bæði í Bandaríkjunum og Kanada, síðustu 18 mán- uði.* Þennan árangur má þakka þeirri einföldu staðreynd að Hyundai er rétt byggður og rétt verðlagður. Hyundai Excel er fyrsti bíllinn á íslenskum markaði með 5 ára ábyrgð**. Hann er gerð- ur til að endast, viðhaldið er í lágmarki og þú getur verið áhyggjulaus í 5 ár. Excel er sterkbyggður og hannaður til að þola rysjótt veðurfar og misgóða vegi. Einnig hefiir verið séð til þess að bílarnir séu aðlagaðir viðkomandi markaði, t.d. eru allir bílamir sem seldir eru hér á landi búnir styrktu rafkerfí og með sérstakri ryðvörn. Excel er með framhjóladrifi og sjálfstæðri íjöðrun á hverju hjóli, 1,5 lítra kraftmikilli vél og hægt er að velja um 4 eða 5 gíra bein- skiptingu eða 3 stiga sjálfskiptingu. Öryggi farþeganna gleymist heldur ekki. Hyundai Excel er með styrktarbitum í hurðum og öryggisstuðurum. Hyundai Excel kostar frá 428 þúsund krónum og er betur búinn en gengur og ger- ist með bíla í sama flokki. Excel er bíll fyrir skynsamt fólk sem vill eiga vel hannaðan, öruggan og endingargóðan bíl, án þess að þurfa að kosta allt of miklu til. •Wards Automative Reports ’ Kvnnið vkkur áb\Tgðarskilmála Iscan M. HYunoni í Framtíð við Skeifima. Sími 685100. BÍLBELTIERU SKYNSAMLEG. TÖLVUPRENTARAR l

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.