Morgunblaðið - 20.02.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1983
29
Laos og Thailand:
Vopnahlé eykur
vonir um var-
anlegar sættir
Bangkok. Rcuter.
ALLT var með kyrrum björum
á landamærum Thailands og
Laos í gær eftir að vopnahlés-
samkomulag’ ríkjamia gekk í
gildi i fyrrinótt.
Vopnahléssamkomulagið á að
binda enda á átökin á landamærum
ríkjanna. Þykir samkomulagið
sæta nokkrum tíðindum og ber
stjómmálaskýrendum saman um,
að það sé til mikils álitsauka fyrir
bæði ríkin.
„Leiðtogar herstjómanna í
hvomtveggja ríkinu hafa komið
umheiminum á óvart og náð sam-
komulagi, sem gerir þeim kleift að
leggja niður vopn með fullri reisn.
Nú hvílir það á þeim að fylgja því
eftir í framkvæmd," sagði í dag-
blaðinu The Nation í Bangkok en
í samningnum segir, að allur her
skuli kallaður burt af umdeildum
svæðum og samningaviðræður
hafnar innan hálfs mánaðar.
Átökin hófust í ágúst á fyrra ári
og hafa harðnað síðan. Stendur
deilan um 80 ferkflómetra svæði í
mjög torfæm fjalllendi en skógar-
högg þar varð til að kynda undir
henni að þessu sinni. Nokkur
hundmð hermanna hafa fallið af
liði beggja.
Landamæri Laos og Thailands
em 1.600 km löng og vom ákveðin
með samningi konungsins af Síam
(nú Thailand) og frönsku nýlendu-
stjómarinnar í Laos árið 1907.
Frönskum, bandarískum og sov-
éskum kortum, sem byggja á þess-
um samningi, ber hins vegar ekki
saman og bera stjómir ríkjanna
jafnan fyrir sig það kortið, sem er
hagstæðast. Belgar em eina vest-
ræna þjóðin, sem hefur tekið af-
stöðu í deilunni, og styður Thai-
lendinga en Víetnamar hallast á
sveif með Laosbúum. Sagt er, að
þeir séu þó mjög hálfvolgir í stuðn-
ingi sínum. .
Leiðtogar herstjómanna, Chava-
lit Yongchaiyudh í Thailandi og
Sisavat Keohounphan í Laos, sátu
saman í tvo daga áður en þeir
undirrituðu vopnahléssamninginn
og er sagt, að vel hafi farið á með
þeim.
Fomleifafundur í ísrael:
Nútímamaður-
inn eldri Neand-
erdalsmannimim
London. Reuter.
KOMIÐ hefur í Ijós við rannsóknir á forsögidegum hellabygg’ð-
um í ísrael að nútimamaðurinn hefur verið kominn til sögunn-
ar löngu áður en hinn frumstæði steinaldarmaður var uppi,
að sögn alþjóðlega visindaritsins Nature.
Að sögn Nature fundu franskir Hingað til hefur verið talið að
og ísraelskir vísindamenn Neanderdalsmaðurinn, hinn
vísbendingar skammt fi-á Nasaret frumstæði steinaldarmaður, sem
sem sýndu að hinn upprétti mað- var að ýmsu leyti líkur öpum,
ur hafi verið kominn til sögunnar hafi verið deilitegund nútíma-
í Suðaustur-Asíu fyrir 100 þús- mannsins. Hann var uppi á
und árum. Er það 50 þúsund síðasta jökulskeiði og átti heim-
árum fyrr en talið hefui; verið, kynni í Vestur-Evrópu. Að sögn
og mörgþúsundum árum áður en tímaritsins hefur fundurinn koll-
Neanderdalsmaðurinn kom til varpað fyrri kenningum um þró-
skjalanna. unarskeið mannsins.
IBM:
Fundin upp hrað-
virkari tölvuflaga
New York-borg, Reuter.
TÖLVUFYRIRTÆKIÐ IBM til-
kynnti á miðvikudag, að því hefði
tekist að framleiða hröðustu
minnisflögu I heimi. Að sögn
visindamanna fyrirtækisins hef-
ur tekist að smíða tilraunaflög-
ur, sem geta endurkallað eina
minniseiningu — eða bita — á
tuttugasta milljarðasta hluta úr
sekúndu. Það er þrefalt hraðar
en nokkur önnur tölvuflaga.
Þrátt fyrir að þessi framþróun
nái aðallega til tölvna, sem nota
minnisflögur þessar til þess að
geyma upplýsingar, mun hún áður
en varir hafa áhrif á alls konar
rafmagnstæki og gera þau hrað-
virkari, fullkomnari og skilvirkari.
Á það við um tæki allt frá brauðrist-
um til stýrikerfa kjamorkueld-
flauga.
Fram að þessu hafa rannsóknir
tölvufyrirtækja helst beinst að því
hvemig koma megi fleiri minnisein-
ingum fyrir á einni flögu. Hefur
þeim tekist að auka geymslurýmið
úr 64 kflóbitum (64 þúsund bitum)
í 4 megabita (4 milljónir bita).
Vísindamenn IBM ákváðu á hinn
bóginn að reyna einnig að gera flög-
umar hraðvirkari, þar sem lítið
væri unnið með upplýsingahrauk,
sem tæki mikinn tíma (í hugarheimi
tölvu) að kalla fram. Þrátt fyrir að
hver aðgerð taki ekki mikinn tíma
í mannsævinni, er hér um talsverð-
an tíma að ræða þegar flókin
vinnsla er á ferðinni.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til
viðtals i'Valhöil, Háaleitisbraut 1, á laugardög-
um frá kl. 10-12. Er þar tekið á móti hvers
kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum
borgarbúum boðið að notfæra sér viðtalstíma
þessa.
Laugardaginn 20. febrúar verða til viðtals Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formað-
ur skipulagsnefndar Reykjavíkur og Sigurjón Fjeldsted, formaður stjórnar SVR
og í stjórn skólamálaráðs og fræðsluráðs.
rttaö P°
ttalP
.. j.í. oinlöK;
ona
V/SA