Morgunblaðið - 20.02.1988, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1988
31
Mexíkó:
18 fórust
í árekstri
Mexíkó-borg, Reuter.
ÁTJÁN manna létust og ellefu
slðsuðust þegar áætlunarbifreið
rakst á oliubQ í Veracruz-fylki á
fimmtudag.
Slysið varð þegar rútan skipti
um akrein á þjóðvegi og 6k á olíu-
bflinn. Mikil sprenging varð og
bflamir fuðruðu upp.
Vestur-Þýskaland:
Málshöfðun
vegna mynd-
ar af líki
Barschels
Genf, Reuter.
FJÖLSKYLDA Uwes Barschels,
fyrrum forsætisráðherra Schles-
wig-Holsteinfylkis i Vestur-
Þýskalandi, sem fannst látinn í
hótelherbergi i Genf i október,
hefur höfðað mál gegn tveimur
blaðamönnum, sem mynduðu
10dð.
Mynd af lfkinu, þar sem það lá
í baðkeri hótelherbergisins, birtist
í vestur-þýska tímaritinu Stem,
viku eftir andlát Barschels. Blaða-
mennimir skrifuðu að þeir hefðu
fundið líkið eftir að hafa farið inn
um ólæstar dyr herbergisins. í dag-
blaðinu La Suisse, sem gefið er út
í Genf, segir að blaðamennimir séu
sakaðir um að hafa vanhelgað frið-
helgi heimilisins með því að fara inn
í gistiherbergið, tmflað frið hins
látna, myndað hann án heimildar
og birt einkabréf sem þeir hafí fund-
ið í herberginu.
Að sögn lögreglunnar í Genf
leiddi kmfning í ljós að Barschel
hefði framið sjálfsmorð með þvf að
taka of stóran skammt af svefnlyfj-
um. Fjölskylda hans heldur því hins
vegar fram að hann hafí verið myrt-
ur.
Manigon sýknuð
Reutcr
Tveir vopnaðir lögreglumenn fylgjast með sjúkrabíl, sem flutti
Nathalie Manigon, foringja vinstrisinnuðu öfgasamtakanna Act-
ion Directe, í dómshúsið f París á fimmtudag. Manigon var í
hungurverkfalli, ásamt þremur öðrum foringjum samtakanna,
og var hún borin inn í dómshúsið og út úr þvi aftur, enda vegur
hún nú aðeins um 30 kiló. Sakborningarair vora sýknaðir eftir
að meint fórnarlamb morðtilræðis af þeirra hálfu bar að þau
væru saklaus. Þau Manigon áttu yfir höfði sér 15 ára fangelsi
hefðu þau verið sakfelld.
Greenpeace-samtökin:
Vilja viðræður um
vígbúnað í höfunum
Aukin hætta á kjarnorkuátökum
London, Reuter.
GREENPEACE-samtökin hvöttu til þess á þriðjudag að hafnar yrðu
viðræður um útrýmingu kjarnorkuvopna í höfunum. í skýrslu sem
samtökin hafa látið vinna og birt var í London segir að griðarleg
fjölgun kjarnorkuvopna í höfunum hafi orðið til þess að auka hætt-
una á kjaraorkuátökum.
Colin Haines, helsti sérfræðingur
samtakanna á sviði vfgbúnaðar-
mála, sagði á blaðamannafundi á
þriðjudag að nokkrir sérfróðir menn
um flotamálefni hefðu látið í ljós
það álit að unnt væri að hefja kjam-
orkuátök á hafí án þess að hætta
skapaðist á að þau breiddust út.
Sagði hann ummæli sem þessi sér-
lega ógnvekjandi og minnti á að
viðræður risaveldanna um fækkun
kjamorkuvopn hefðu aldrei tekið til
þeirra vopna sem komið hefði verið
Sovétríkin:
Miðstjórnin fjallar um
umbætur í menntamálum
Moskvu. Reuter.
MIÐSTJÓRN sovézka kommúni-
staflokksins kom saman tíl fund-
ar í gær. Er helzta viðfangsefnið
umbætur i menntamálum, að
sögn TASS-fréttastofunnar.
Jegor Lígatsjov, hugmyndáfræð-
ingur Moskvusyómarinnar og ann-
ar valdamesti maður flokksins,
flutti fyrstu ræðu fundarins, sem
stendur nokkra daga. Míkhafl Gorb-
atsjov, aðalritari, er einnig á
mælendaskrá.
Búist er við að tilkynnt verði á
fundinum um einhveijar breytingar
í æðstu valdastöðum í Sovétríkjun-
um. Sérfræðingar spá því að Boris
Jeltsín, fymim leiðtogi kommún-
istafíokksins í Moskvu, verði form-
lega sviptur sæti sínu í stjóm-
málaráðinu, en þar hefur hann se-
tið sem fulltrúi án atkvæðisréttar.
Jeltsín var settur af í nóvember
eftir að hafa hvatt Gorbatsjov til
að hraða umbótum og fylgja þeim
eftir af meiri ákveðni.
Útvarpið í Moskvu tilkynnti á
þriðjudag að ákveðið hefði verið að
Caspar Weinberger.
Reuter
éska innrásarliðsins frá Afganistan,
sem sovéskir ráðamenn hafa boðað
að undanfómu. Hann sagðist fyrst
leggja trúnað á yfírlýsingar þessar
er sovéska innrásarliðið væri horfíð
úr landinu. „Síðast er Sovétmenn
sögðust vera á fórum frá Afganist-
an fækkuðu þeir nokkmm orustu-
flugvélum," sagði Weinberger og
bætti við að sú fækkun hefði ekki
breytt neinu um gang styijaldarinn-
ar þar sem sveitir skæmliða réðu
ekki jrfir flugvélum. Þar að auki
hefðu Sovétmenn fljótlega bætt við
nýjum tegundum flugvéla til árasa
á frel8issveitimar.
„Þegar her Sovétmanna er farinn
úr landinu og þjóðin hefir öðlast
rétt til að velja sér ríkisstjóm á
lýðræðisgmndvelli skal ég trúa því
að innrásinni í Afganistan sé lokið,
en ekki fyrr. Þeir ættu ekki að vera
lengi að koma sér út úr landinu.
Það tók þá þijár vikur að hemema
það og þeir ættu að geta haft sig
á brott á þremur til fjórum vikum,"
bætti Weinberger við.
Fælingarmáttur heraflans
Að lokum fjallaði Caspar Wein-
berger um nauðsyn þess að gripið
yrði til fullnægjandi ráðstafna til
að treysta fælingarmátt heraflans
í Vestur-Evrópu. Sagði hann að
friður og farsæld yrði eingöngu
tryggð með öflugum vömum og
aðeins nútímaleg vamarvopn gætu
komið í veg fyrir tvísýnu í öryggis-
málum álfunnar. Kjamorkueld-
flaugar beggja vegna jámtjaldsins
hefðu fram til þessa komið í veg
fyrir átök og nú bæri brýna nauð-
syn til að efla fælingarmátt þess
herafla sem eftir stæði.
Weinberger sagðist ekki fá séð
að Sovétmenn hefðu horfíð frá
heimsvaldastefnu sinni. Nú um
stundir gerðu þeir enn eina tilraun
til að nota fjölmiðla heimsins (áróð-
ursskyni. „Þetta gera þeir með
fögmm orðum, breiðu brosi og hlý-
legu handabandi til vegfarenda þeg-
ar þeir eru á ferðalagi erlendis. En
það þarf meira til að sannfæra
menn um, að verulegar breytingar
séu í vændum, eða hafí þegar átt
sér stað í Sovétríkjunum," sagði
Caspar Weinberger að lokum.
Kafbátaleit í Svíþjóð:
Vilja 10 milljarða
aukafj árveitingn
Stokkhólmi, Reuter.
YFIRMAÐUR sænska hersins, Bengt Gustafsson, fór þess á leit við
sænsku ríkisstjómina á fimmtudag að hún veitti 1,7 milljarði
sænskrakróna aukalega til kafbátaleitar. Sagði Gustafsson að Sviar
gerðu ekki nægUega mikið tU að leita að og fanga kafbáta sem
yrði vart við innan sænskrar lögsögu. „Við getum ekki stöðvað allan
átroðning en við getum minnkað hann og veradað hafsvæði okkar
betur en nú er,“ sagði Gustafsson á blaðamannafundi í Stokkhólmi
á fimmtudaginn.
Þrátt fyrir fjölda skýrsla um að
sést hafi til kafbáta við strendur
Svíþjóðar hefur sænska hemum
aldrei tekist að hafa upp á erlendum
kafbáti innan sænskrar lögsögu.
Að sögn Gustafssons fjölgaði ferð-
um erlendra kafbáta á síðustu þrem
mánuðum ársins 1987 miðað við
fyrri ár. Hann neitaði að svara fyrir-
spumum um það hversu margir
kafbátar hefðu sést og hvaðan þeir
væm. „Allt sem ég get sagt er að
prófanir okkar sýna að kafbátamir
sem við höfum fylgst með em allir
með sama tæknibúnað þannig að
gera má ráð fyrir að þeir séu allir
frá sama landi," sagði Gustafsson
í samtali við Reuíers-fréttastofuna.
Gustafsson fór fram á aukafjár-
veitingu sem næmi 1,7 milljörðum
sænskra króna (svarar til 10 millj-
arða íslenskra króna), sem nota
ætti næstu fjögur árin til að elta
uppi kafbáta sem vart yrði í sænskri
lögsögu og til kaupa á rafeinda-
búnaði til að nota við kafbátaleit.
Snemma á síðasta ári veitti
sænska stjómin 6,2 mil|jörðum
sænskra króna (um 38 milljarðar
íslenskra króna) til hemaðar eftir
að Gustafsson varaði við að fjárveit-
ingar til hermála hefðu lækkað
hættulega mikið í Svíþjóð.
Vamarmálaráðherra Svíþjóðar,
Roine Carlsson, bað Gustafsson í
janúar að kanna getu sænska hers-
ins til að bregðast við átroðningi
erlendra kafbáta. Þessi beiðni
Skotar seigir
við drykkju
og reykingar
Lundúnum, Reuter.
SKOTAR, sem þekktir era
um víðan völl fyrir úrvals
viskíframleiðslu, taka öðrum
Bretum fram í drykkjuskap
og reykingum samkvæmt
nýjum tölum breskra heil-
brigðisyfirvalda.
Meðalskotinn eyddi 326
sterlingspundum (rúmum 21
þúsund krónum) í áfengi á
síðasta ári, en meðaltalið á allt
Bretland var um 275 pund (um
18.000 krónur).
Þá eyddu Skotar að meðal-
tali um 162 pundum (10.500
krónum) í tóbak, en þeir sem
næstir komu, íbúar Norður-
Englands, reyktu upp 139 pund
(9.000 krónur).
fyrir í skipum og kafbátum.
Að sögn talsmanna Greenpeace
hefur Atlantshafsbandalagið tekið
upp nýja og gjörbreytta flotastefnu.
í skýrslunni segir að NATO hafi
horfíð frá vamarstefnu sem hafí
einkennt flotastefnu bandalagsins á
áttunda áratugnum og tekið upp
árásarstefnu. Nú sé gert ráð fyrir
að bresk og bandarísk skip og kaf-
bátar sigli inn á Norður-Atlantshaf
til árasa á kafbáta og skip Sovét-
manna og á skotmörk á landi. Full-
yrt er að þessi stefna NATO geti
leitt til kjamorkuátaka. Segir enn-
fremur að heilsu fólks, sem býr í
nágrenni við flotahafnir þar sem
geymd em kjamorkuvopn, sé stefnt
í voða auk þess sem ekki hafí verið
gerðar fullnægjandi öryggisráðstaf-
anir vegna meðferðar kjamorku-
vopna í höfnum víða á Bretlandi.
sæma Vladimír Stsjerbítskí, leið-
toga flokksins í Úkraínu, Lenínorð-
unni í tilefni 70 ára afmælis hans.
Þykir það benda til þess að hann
muni halda sæti sínu ( stjómmála-
ráðinu. Hann er eini náni samstarfs-
maður Leonfds Brezhnevs, fyrrum
aðalritara, sem enn á sæti í ráðinu.
Brezhnev er nú fallinn ( ónáð.
Carlssons kom í kjölfar skýrslu um
að sést hefði til 30 kafbáta við
strendur landsins á síðasta sumri.
Venja er að á sumrin berist flestar
ábendingar um kafbátaferðir við
strendur Svíþjóðar, enda em þá
almennir borgarar gjaman á ferð
um skeijagarðinn sér til skemmtun-
ar og yndisauka.
Símar 35408
og 83033
SELTJNES
Látraströnd
Hrólfsskálavör
SKERJAFJ.
Einarsnes
MIÐBÆR
Lindargata 39-63 o.fl.
Hverfisgata 4-62
Tjarnargata 3-40
Laugavegur1-33 o.fl.
UTHVERFI
Sæviðarsund hærri tölur
KOPAVOGUR
Kársnesbraut 77-139