Morgunblaðið - 18.01.1989, Blaðsíða 23
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1989
MORGUNBUAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1989
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstofiarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fróttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
BjörnJóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Kveikt í
sparifé fólks
Asama tíma og menn eru
almennt sammála um að
nauðsynlegt sé að bæta rekstr-
arskilyrði helstu atvinnugreina
þjóðanna er harkalega deilt um
tvö mál. Þar er annars vegar
um að ræða ríkisábyrgð á At-
vinnutryggingarsjóðnum og
hins vegar vaxtaákvarðanir.
Þessi mál eru skyld að því leyti,
að í báðum tilvikum efast þeir,
sem hafa axlað þá ábyrgð að
ávaxta fé annarra, um að þeir
geti gert það með sómasamleg-
um hætti, ef farið er að vilja
ráðherra. Lífeyrissjóðir krefjast
þess að ríkisábyrgð á Atvinnu-
tryggingarsjóðnum sé ótvíræð.
Forráðamenn banka vilja
bregðast þannig við vaxandi
verðbólgu, að sparifé lands-
manna rými ekki vegna hennar.
I síðustu viku vom birtar
niðurstöður í könnun sem Fé-
lagsvísindastofnun gerði fyrir
Samband íslenskra sparisjóða á
viðhorfum sparifjáreigenda.
Færi vel á því að tillit yrði tek-
ið til sjónarmiðanna sem þar
koma fram, þegar vegið er og
metið hvað gera skal í vaxta-
málum. Þar skiptir hagur
þeirra, sem treysta lánastofn-
unum fyrir fjármunum sínum,
ekki minna máli en hinna sem
skulda þessum stofnunum. Rifj-
um upp nokkrar meginniður-
stöður þessarar könnunar: 1)
Rúmlega 58% fólks segjast eiga
sparifé, hlutfallslega flestir eru
60 til 75 ára (77,8%) en næst-
flestir em á aldrinum 18 til 24
ára (65,2%). 2) Mikill meiri-
hluti, 72%, telur að Iandsmenn
geti almennt sparað meira en
þeir nú gera. 3) Þegar spurt
er hvaða þáttur sé mikilvægast-
ur, ef menn ættu að velja leið
til að ávaxta sparifé sitt, telja
flestir, 45,8%, að háir vextir
skipti mestu máli. Næststærsti
hópurinn, 27,3%, nefnir ömgga
endurgreiðslu. 4) Flestir segja
ástæðuna fyrir því að þeir
leggja fé til hliðar vera þá, að
þeir vilji tryggja afkomu sína
og öryggi, eða 58%. Næstflestir
segjast vera að safna fyrir hús-
næði, 18%. 5) Flestir kjósa að
ávaxta fé sitt á sérkjarareikn-
ingi, 64,6%, og næstflestir á
almennri sparisjóðsbók, 47,1%.
Fyrir tilstilli ríkisstjórnarinn-
ar og vegna opinberra hækkana
af margvíslegu tagi er verð-
bólguhjólið farið að snúast
hraðar en það gerði skömmu
áður en gripið var til marg-
reynds ráðs, sem aðeins dugar
í skamman tíma, að setja „al-
gjöra“ verðstöðvun. Aðgerðir
af þessu tagi em aðeins bráða-
birgðaúrræði, sem bera ekki
varanlegan árangur, nema
þannig sé staðið að úrlausn
mála, að verðhækkanir safnist
ekki fyrir „í pípunum" og flæði
síðan yfir, þegar skrúfað er frá
að nýju. Bankastofnanir lækk-
uðu vexti eftir að verðhækkanir
vom bannaðar og sló á verð-
bólguna. Nú þegar sækir aftur
í verðbólgufarið hafa einka-
bankar hækkað vexti á ný en
styrinn stendur um aðgerðir
ríkisbankanna. Flóðið eftir „al-
gjöra“ verðstöðvun er þó ekki
komið enn.
Þegar litið er á þær tölur sem
birtar em hér að ofan úr fyrr-
greindri könnun kemur í fyrsta
lagi í ljós, að það er ekki fá-
mennur hópur manna, sem
fylgist náið með öllum hræring-
um í vaxtamálum með það í
huga, hvernig hann getur best
varðveitt sparifé sitt. I öðm
lagi velja langflestir þann kost
að ávaxta fé sitt á sérkjara-
reikningum og sparisjóðsbókum
bankanna. Þetta fólk fer að
sjálfsögðu með fé sitt til þeirra
banka sem bjóða því bestu kjör-
in. Bjóði einkabankar betur
færast viðskiptin einfaldlega
frá ríkisbönkunum.
Sverrir Hermannsson,
bankastjóri Landsbankans, hef-
ur lent í útistöðum við ráðherra
vegna vaxtamálanna. Hann
segir réttilega í Morgunblaðinu
í gær, að fólk fylgist vel með
því hvað bankarnir bjóði hveiju
sinni og ákveði viðskipti sín í
samræmi við það. Ef ráðherrar
ætla að rýra samkeppnisstöðu
ríkisbankanna hljóta þeir að
sitja uppi með ábyrgðina á því
og taka afleiðingunum. En
Sverrir Hermannsson hefur
bent á fleira í þessu sambandi,
hann minnir á, að fyrir jól sögðu
ráðherrar að vextir ættu að
fylgja verðbólgu en nú vilji þeir
taka upp neikvæða vexti. „Það
þýðir á mæltu máli að kveikja
í sparifé mann.a," sagði Sverrir
Hermannsson í DV á mánudag-
inn. Það er mikill misskilningur
hjá ráðhermm að ætla, að þeir
leysi úr aðsteðjandi efnahags-
vanda með því að ráðast á
sparifjáreigendur og setja
lífeyrissjóðum afarkosti. Það er
ekki vænlegasta leiðin til að
bæta rekstrarskilyrði atvinnu-
veganna.
Tíu fluttir á slysadeild er áætlunarbíll 6k út af Vesturlandsvegi
I
Kreppti mig samaii og
reyndi að halda mér í
- segir Benedikt Sverrisson, 15 ára Mosfellingur
TÍU manns, fimm þeirra böm
og unglingar, vom fluttir á slysa-
deild og tveir þeirra vora lagðir
inn á sjúkrahús eftir að áætlun-
arbíll frá Mosfellsleið lenti út af
Vesturlandsvegi milli Korpúlfs-
staða og Keldnaholts um klukkan
15.30 í gær. Tveir þeirra ellefu
farþega, sem í bílnum vom,
sluppu ómeiddir. Snjókoma var
og hálka á Vesturlandsvegi þar
sem slysið varð. Bíllinn var á
áætlunarferð á leið úr Mosfells-
bæ til Reykjavíkur þegar öku-
maðurinn missti stjórn á honum
í beygju. Bíllinn rann út af vegin-
um um það bil 50 metra og stöðv-
aðist yfir læk, framendi bílsins
sunnan hans en afturendinn
norðan megin.
Bíllinn skall af miklu afli á lækj-
arbakkanum. Benedikt Sverrisson,
15 ára Mosfellingur, sem sat hægra
megin í rútunni miðri, lýsti aðdrag-
anda slyssins þannig að þetta hefði
gerst svo snöggt að hann hefði
varla verið farinn að átta sig á
hvað væri á seiði þegar allt hefði
verið afstaðið. „Ég fann að bíllinn
rann til og bflstjórinn hrópaði. „Var-
ið ykkur.“ Ég kreppti mig saman
og reyndi að halda mér föstum í
eitthvað en þegar bíllinn rakst á
lækjarbakkann, hentist ég á stól-
bakið fyrir framan mig og það lét
undan, brotnaði niður,“ sagði Bene-
dikt. Hann er handarbrotinn eftir
slysið.
Lögregla og sjúkralið komu á
vettvang eftir skamma stund og
voru níu farþegar strax fluttir á
slysadeild, flestir með skurði og
Morgunblaðið/Kristján E. Einarsson
Sá farþeganna sem mest slasaðist borinn í sjúkrabil.
Morgunblaðið/Sverrir
Benedikt Sverrisson.
Morgunblaðið/Kristján E. Einarsson
Lögreglan kom fljótlega á staðinn og
aðstoðaði farþegana við að komast
út um glugga rútunnar.
Morgunblaðið/Júlíus
Eins og sjá má stóðvaðist rútan yfir miðjum læknum.
minniháttar brot, að sögn Leifs
Jónssonar bæklunarlæknis á slysa-
deild. Tveir farþeganna kenndu sér
ekki meins en ökumaðurinn, sem
var meiddur á baki, neitaði að-
hlynningu fyrr en farþegum hefði
verið sinnt og ný rúta væri komin
á áætlunarleiðina. Hann hélt á
slysadeild síðar um daginn _ og
reyndist brákaður á baki. Atta
þeirra sem í rútunni voru fengu að
fara heim að lokinni skoðun á slysa-
deild en tveir voru lagðir inn á
sjúkrahús, annar var brotinn á hné
og hinn úr axlarliði og brotinn um
ökkla.
Að sögn Leifs Jónssonar hafði
slysið enga röskun í för með sér á
starfsemi slysadeildarinnar og
þurfti ekki að grípa til neinna sér-
ráðstafana þar vegna þess.
í gærkvöldi hafði rútan enn ekki
verið fjarlægð af slysstaðnum, að
sögn Kristjáns Guðleifssonar hjá
Mosfellsleið, en ljóst þótti að
skemmdir á henni hefðu orðið mjög
miklar. Hins vegar taldi Kristján
ljóst að gert yrði við bílinn.
Einvígi Jóhanns og Karpov í Seattle:
Allt getur gerst
- seg-ir Jóhann Hjartarson stórmeistari
EINVÍGI þeirra Jóhanns Hjartar-
sonar og Anatoly Karpov i skák
hefst í Seattle í Bandaríkjunum í
næstu viku. Einvígið er eitt af §ór-
um einvígjum í fjórðungsúrslitum
áskorendakeppninnar um réttinn
til að tefla við Garry Kasparov.
Einvígið verður stutt eða sex skák-
ir og segir Jóhann að allt geti
gerst í sex skákum. Hann gerir sér
hinsvegar ekki miklar vonir um
að vinna Karpov og telur viðun-
andi árangur að fá tvo vinninga
af sex.
Á blaðamannafundi sem Skáksam-
band íslands hélt til að kynna ein-
vígið kom fram að Karpov hefur aldr-
ei verið hærri að stigum, á ELO-
skalanum, heldur en nú. Hann er þar
í öðru sæti með 2750 stig en Jóhann
er i 11. sæti með 2615 stig. Því
munar 135 stigum á þeim.
í máli Jóhanns kemur fram að
Karpov er mun reyndari en hann í
einvígjum af þessu tagi og nefna má
sem dæmi að enginn hefur teflt jafn-
mikið af heimsmeistaraeinvígjum og
Karpov. Hvað varðar taflmennsku
þeirra tveggja innbyrðis hafa þeir
teflt fjórar skákir, Karpov hefur unn-
ið tvær og tveimur lauk með jafntefli.
Einvígið hefst föstudaginn 27. jan-
úar og þá verður dregið um liti. Tafl-
mennskan hefst svo daginn eftir og
stendur fram til 8. febrúar. Vinnings-
upphæð er 80.000 dollarar og skipt-
ist hún í hlutföllunum 70/30 milli
keppenda. Vettvangur einvígisins er
The Amphiteather of St. Nicholas
Hall of Lakeside School. Aðstoðar-
menn Jóhanns verða þeir Margeir
Pétursson og Elvar Guðmundsson en
Helgi Ólafsson og Jón L. Árnason
munu einnig leggja hönd á plóginn.
Auk þeirra verður Þráinn Guðmunds-
son forseti Skáksambandsins með í
för.
Á blaðamannafundinum kom fram
að mikill áhugi er á einvíginu meðal
bandarískra skákmanna sem búsettir
eru í, eða við, Seattle. Meðal þeirra
sem búa í borginni má nefna sterk-
asta skákmanna Bandaríkjanna um
þessar mundir Yasser Seirawan.
Einvígi Jóhanns Hjartarsonar og Anatolíjs Karpovs:
Tel að Jóhann eigi möguleika
- segir Yasser Seirawan stórmeistari í skák
„JÓHANN mun auðvitað eiga mjög
á brattan að sækja gegn Karpov
en ég tel samt að hann eigi raun-
hæfa möguleika í einvíginu," sagði
Yasser Seirawan stórmeistari i
skák í samtali við Morgunblaðið.
Seirawan, sem er stigahæsti skák-
maður í Bandarikjunum og tefldi
i áskorendaeinvigunum i St. John
á síðasta ári, er búsettur í Seattle
þar sem einvígi Jóhanns Hjartar-
sonar og Anatolíjs Karpovs hefst
28. janúar nk.
Seirawan sagði að Karpov væri
sennilega besti skákmaður sem uppi
hefur verið, þegar horft væri á árang-
ur hans í skákmótum og einvígum.
„Karpov er mjög erfiður andstæðing-
ur og Jóhann er óheppinn að þurfa
að tefla við svo sterkan andstæðing
svo snemma í einvígalotunni.
Jóhann stendur auðvitað lakar að
vígi, en hann á þó möguleika. Þannig
er einvígið mjög stutt, eða aðeins sex
skákir, og því gæti nægt að vinna
eina skák. I öðru lagi eru seturnar
lengri en Karpov er vanur, eða 6
klukkutímar í stað 5. Jóhann er mun
yngri en Karpov og ætti því að vera
sterkari líkamlega og hafa betra út-
hald. Að lokum tel ég að það geti
komið Jóhanni til góða, að hann kann
að flækja skákir og er sennilega jafn-
oki Karpovs í tímahraki. í þessu
þrennu liggja möguleikar Jóhanns.
En ef Karpov nær að leiða skákimar
inn á sínar uppáhaldsbrautir, lendir
Jóhann í vandræðum, svo byija-
naundirbúningur hans verður að vera
mjög góður,“ sagði Seirawan.
Hann sagði að einvíginu yrðu gerð
góð skil í fjölmiðlum og skákirnar
yrðu sýndar í sjónvarpi, bæði í staðar-
stöðvum og einnig um öll Bandaríkin.
„Við emm að kenna Bandaríkja-
mönnum að meta skák og við munum
reyna að auka áhuga almennings
smátt og smátt á einvíginu þar til
raunvemlegur áhugi vaknar á úrslit-
um þess,“ sagði Yasser Seirawan.
420.000 tonn
veidd af loðnu
UM 420 ÞÚSUND tonn af loðnu
höfðu verið veidd á vertíðinni
síðdegis í gær, þar af 108.170
tonn efftir áramótin. Loðnan
splundraðist í fyrrakvöld og kom
ekki upp, að sögn Ástráðs Ing-
varssonar starfsmanns loðnu-
nefiidar.
Síðdegis í gær höfðu þessi skip
tilkynnt um afla: Keflvíkingur 500
tonn til Seyðisfjarðar, Súlan 770
til Krossaness og Bergur 450 til
Eskifjarðar.
Síðdegis á mánudag tilkynntu
þessi skip um afla: Hólmaborg
1.300 tonn til Eskiíjarðar,
Skarðsvík 620 til Færeyja, Örn 750
til Krossaness, Albert 550 til Seyð-
isfjarðar, Gígja 700 til Reyðarfjarð-
ar, Jón Kjartansson 650 til Eski-
fjarðar, Guðmundur 800 til Nes-
kaupstaðar, Svanur 710 til Reyðar-
fjarðar og Grindvíkingur 850 til
Seyðisfjarðar.
Reykjanesbraut:
Sex á slysa-
deild eftir veltu
6 VORU fluttir á slysadeild efftir
að japanskur bíll valt í hálku á
Reykjansbraut við Lónakot
síðdegis á mánudag.
Bíllinn var á leið sunnan að.
Meiðsli fólksins vom ekki talin al-
varlegs eðlis, að sögn Hafnarfjarð-
arlöprep'lu.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir PÁL ÞÓRHALLSSON
Efinaverksmiðja rís í Líbýu:
Vestur-þýsk fyrirtæki
á mála hjá Gaddafi
Bandaríkjamenn sakaðir um að leika tveimur skjöldum
„GETUR verið að hinir „góðu Þjóðveijar“ séu enn við sama
heygarðshomið — haldandi því fram að þeir viti ekkert um
þátttöku sumra landa sinna í áætlunum valdasjúks manns um
Lokalausn?1* spyr hinn þekkti bandariski gyðingur og dálkahöf-
undur William Safire í grein í New York Times, sem birtist
rétt efftir áramótin. Tilefiii skrifanna vom fréttir sem birst hafá
í heimspressunni um að þýsk fyrirtæki, auk annarra, aðstoði
Muammar Gaddafi einræðisherra í Líbýu við að reisa gríðar-
stóra efiiaverksmiðju i eyðimörkinni suður af Trípólí. Safíre
heldur þvi ffram að markmið Gaddafis sé að beita efiiavopnum
til að útrýma ísraelum og þess vegna notar hann í nýju sam-
hengi hið sakleysislega hugtak „Lokalausn" (Endlösung) sem
nasistar fundu upp yfir útrýmingu gyðinga.
Gaddafi heldur því fram að í
Rabta eigi að framleiða
læknislyf en Bandaríkjamenn
telja víst að um efnavopnaverk-
smiðju verði að ræða og hafa
birt gervihnattamyndir því til
stuðnings, sem sýna fyrst og
fremst stærð verksmiðjunnar.
Einnig segjast þeir hafa hlerað
símtal í ágúst þar sem Líbýu-
menn biðja vestur-þýsk fyrirtæki
um hjálp við að stöðva eiturgas-
leka í Rabta. í raun er mjög erf-
itt að segja til um hvers konar
framleiðsla eigi sér stað í slíkum
verksmiðjum, hvort um eiturgas-,
ly§a- eða skordýraeitursfram-
leiðslu sé að ræða. Hins vegar
þykir bandarískum stjómvöldum
í meira lagi grunsamlegt að allt
í kringum verksmiðjuna í Rabta
hefur loftvamareldflaugum verið
komið fyrir. Safire heldur því
fram að vestur-þýska ríkisstjóm-
in hylmi yfir með þýsku fyrir-
tækjunum og fyrisögn pistils
hans hljóðar svo: „Þýskaland má
ekki loka augunum fyrir Ausch-
witz í eyðimörkinni." Helmut
Kohl kanslari Vestur-Þýskalands
hefur mótmælt skrifum Safires
og „skipulagðri ófrægingarher-
ferð bandarískra fjölmiðla" en
smám saman hafa vestur-þýsk
stjómvöld viðurkennt að ásakanir
Bandaríkjamanna eiga við rök
að styðjast. Reglur um útflutning
tækniþekkingar sem gagnast
gæti við efnavopnaframleiðslu
hafa verið hertar og fyrirtækið
Imhausen hefur verið sótt til
saka.
í nýjasta hefti þýska vikurits-
ins Der Spiegel kemur reyndar
fram að þýskir aðilar hafa að-
stoðað Gaddafi við að breyta
Herkúles-flutningavélum í
„fljúgandi bensínstöðvar" sem
gera líbýskum sprengjuflugvél-
um mögulegt að taka eldsneyti
í lofti en það auðveldar árás á
ísrael.
Góðgerðarsamkunda
mafíunnar
Christoph Bertram, sem skrif-
ar reglulega um vígbúnaðarmál
í vestur-þýska vikuritið Die Zeit,
fjallaði nýverið um ásakanir
Bandarílg'amanna á hendur
Líbýumönnum og Vestur-Þjóð-
veijum. Hann minnir á að þegar
upp komst að írakar beittu eftía-
vopnum gegn Kúrdum í Persa-
flóastríðinu þá hafi heimsbyggðin
yppt öxlum. En þegar Gaddafí,
erkióvinur Ronalds Reagans
Bandaríkjaforseta, eigi í hlut þá
sé blásið í herlúðra. Bertram líkir
efnavopnaráðstefnunni sem lauk
í síðustu viku í París við „góð-
gerðarsamkundu mafíunnar til
styrktar eiturlyfjasjúklingum".
Ástæðan fyrir þessari samlíkingu
sé sú að Bandaríkin, frumkvöðlar
Parísar-ráðstefnunnar, og mörg
önnur ríki, sem hana sátu, fram-
leiði sjálf efnavopn og breiði þau
jafnvel út. Auk þess hafi það
verið Bandaríkjamenn sem hófu
framleiðslu á efnavopnum á ný
eftir langt hlé þegar samkomulag
á Genfarráðstefnunni um bann
við framleiðslu efnavopna hafí
loks verið í augsýn. Bertram við-
urkennir þó að viðbrögð vestur-
þýsku stjómarinnar við ásökun-
um um hlutdeild þýskra fyrir-
tækja í líbýskri efnavopnafram-
leiðslu séu ámælisverð. Það var
ekki fyrr en föstudaginn. 6. jan-
úar, löngu eftir að grunsemdir
vöknuðu, sem rannsókn hófst á
hlut tveggja fyrirtækja í uppsetn-
ingu verksmiðjunnar.
Auschwitz á sér enga
hliðstæðu
Rudolf Augstein, útgefandi
Der Spiegel, tekur annan pól í
hæðina varðandi skrif Safíres.
Hann segir að í hugum Þjóðveija
standi hugtakið Auschwitz fyrir
einstæðan hugmyndafræðilegan
og ómanneskjulegan glæp. „Við,
og það gildir líka um þá sem
fæddust eftir 1945, munum aldr-
ei bera [Auschwitz] saman við
aðra glæpi, aldrei reyna að finna
því sem gerðist eðlilegar skýring-
ar né gleyma því hvað átti sér
stað. Fyrir okkur er Auschwitz
hinn stærsti glæpur." (Þessi af-
staða Þjóðveija er einmitt skýr-
ingin á því að Philipp Jenninger,
forseti vestur-þýska þingsins,
varð að segja af sér vegna ræðu
sinnar 10. nóvember þegar Krist-
alsnæturinnar var minnst). Aug-
stein segir að í þessu viðhorfi
felist að vissar kröfur séu gerðar
til „kjaftforra samheija" og þar
á hann sérstaklega við dálkahöf-
undinn William Safíre. Ekki megi
nota orðið „Auschwitz" í hálf-
kæringi né sá því meðal fólks
með trúðsstafnum. Augstein spyr
hvort Þjóðveijar eigi skilda þá
ósvífni sem Safire sýni með því
að halda því fram að Hans-
Dietrich Genscher, utanríkisráð-
herra Vestur-Þýskalands, setji
útflutninginn ofar öllu og með
því að spyija hvort Helmut Kohl
Wie man Auschwitz instmmentalisleit
Rudolf Augstein, útgefandi Der
Spiegel, og William Safire
dálkahöfundur fyrir New York
Times, skiptast á skotum vegna
meintrar aðstoðar Vestur-
Þjóðveija við efiiavopnafi’am-
leiðslu Gaddafis.
kanslari telji það löglegt og sið-
legt að Þjóðveijar notfæri sér sín
rómuðu viðskiptasambönd til
þess að stuðla að hryðjuverkum.
„Hveijir voru það sem hvöttu
Vestur-Þjóðveija til að vera ekki
með neina smásmygli þegar
hagsmunir Vesturlanda væru
annars vegar?" spyr Augstein og
heldur áfram: „Hver hefur gert
Þjóðveija ónæma fyrir mætti
gereyðingarvopna? Hefur herra
Safíre aldrei heyrt þess getið að
landar hans geyma efnavopn á
þýskri grundu þar sem enginn
vill nokkuð með þau hafa?“
Augstein svíður þó greinilega
sárast að Safire skuli leyfa sér
að gefa í skyn að Þjóðveijar loki
augunum fyrir þátttökunni í
áformum Gaddafis um að útrýma
gyðingum. Þar fyrjr utan sé ólík-
legt að Gaddafi beiti efnavopnum
gegn ísrael því þá bitni það óhjá-
kvæmilega á aröbum sem þar
búa.
Sú spuming vaknar hvort
hægt sé að kljás( við Gaddafi
eins og tiltölulega skynsaman
andstæðing sem er samkvæmur
sjálfum sér. Bandarísk stjómvöld
vilja hafa allan varann á og hafa
jafnvel hugleitt fyrirbyggjandi
árás á efnaverksmiðjuna í Rabta.
Mikilvægasta forvamarstarfið
sem Vesturlönd geta beitt sér
fyrir er agi í eigin röðum. Ríkis-
stjómir á Vesturlöndum sem nú
hugsa með hryllingi til þess að
skjólstæðingar Gaddafis fremji
sín hryðjuverk með eiturgasi hafa
margar hveijar lokað augunum
fyrir og jafnvel staðið í hinum
ábatasömu alþjóðavopnaviðskipt-
um og þar með grafíð undan öllu
siðferði á þessu sviði. En það er
einmitt meðferð drápstóla sem
krefst hvað mestrar ábyrgðar af
mannskepnunni, eflaust meiri en
hún rís undir.