Morgunblaðið - 18.01.1989, Side 42
42
„QEGUNBUjjB iÞRánm^^^
JAJNUAK 19»9
qiQ/r "•
mx-
ÍÞRÖmR
FOLK
■ ALAN Ball var látinn fara frá
Portsmouth í gær eftir að hafa
verið nærri fímm ár við stjórnvöl-
inn. Undir hans stjóm komst
Portsmouth í 1. deild 1987, en
féll strax aftur og er nú í 13. sæti
í 2. deild — hefur tapað fímm af
sex síðustu leikjum. John Gregory
tók við af Ball.
■ RAYMOND Goethals, þjálf-
ari hjá Anderlecht í Belgiu, hafn-
aði í gær tilboði um að gerast þjálf-
•'ari Bordeaux í Frakklandi. Goet-
hals verður því áfram með Arnór
Guðjohnsen og félaga.
■ ABERDEEN hefur gert
tveggja og hálfs árs samning við
Willem van der Ark, miðheija
hollenska 1. deildar liðsins Willem
11. Hollendingurinn hefur skorað
13 mörk á tímabilinu og greiddi
Aberdeen um 25 milljónir íslenskra
króna fyrir kappann.
■ NEWCASTLE og Watford
gerðu markalaust jafntefli í þriðju
umferð ensku bikarkeppninnar.
Þetta var annar aukaleikur liðanna,
en sigurvegarinn á heimaleik gegn
Derby í 4. umferð.
■ KÍNVERSKIR íþróttamenn
unnu til fimm gullverðlauna á
Ólympíuleikunum í Seoul, en í Los
Angeles 1984 var uppskeran 14
gull. Kínverjar em óánægðir með
frammistöðu íþróttamanna sinna
og í gær var ákveðið að gera átak
til að gera betur með því að ráða
nýja þjálfara í hinum ýmsu grein-
um. Þá hefur verið skipt um íþrótta-
málaráðherra.
■ BOB Gansler var í gær ráðinn
yfirþjálfari landsliðs Bandaríkja-
manna í knattspyrnu. Gansler tek-
•*tir við af Lothar Osiander. Gansl-
er, sem er af ungverskum ættum,
var fyrirliði ólympíuliðs Banda-
ríkjanna 1964 og 1968, en hefur
verið þjálfari hjá knattspymusam-
bandi Bandarikjanna í 17 ár.
I REAL Madrid ráðgerir að
gera upp Bernabeu-völlinn og er
áætlaður kostnaður um 850 milljón-
ir íslenskra króna. „Völlurinn hefur
forgang fyrir leikmannakaupum,"
sagði Ramon Mendoza, formaður
félagsins, í gær og er því ljóst að
Hollendingurinn Ronald Koeman
fer ekki til Real, en Leo Been-
hakker, þjálfari liðsins, hafði
áhuga á því.
HANDKNATTLEIKUR / V-ÞYSKALAND
Lemgo vill
fáHéðin
Gilsson
„Ég tek enga ákvörðun um hvað
ég geri fyrr en eftir þetta keppn-
istfmabil,41 segir Héðinn
HEÐINN Gilsson, landsliðs-
maður í handknattleik úr FH,
hefur heldur betur slegið í gegn
með landsliðinu að undan-
förnu. Fljótt flýgur fiskisaga og
hafa nokkur félög íV-Þýska-
landi augastað á honum. Eitt
félag hefur þegar haft sam-
band við Héðin. Það er Lemgo,
sem Sigurður Sveinsson lék
með.
LANDSLIÐIÐ
Níu æfingar
áviku
Lokaundirbúriingur lands-
liðsins í handknattleik er
nú hafínn og má segja að haldið
sé áfram sem frá var horfið -
fyrir Ólympíuleikana í Seoul.
Landsliðsmennimir æfa níu
sinnum í viku fram að B-keppn-
inni - þrisvar í hádeginu og sex
sinnum á kvöldin.
Leiknir verðan fjórir lands-
leikir fyrir B-keppnina. Tékkar
koma hingað til lands og leika
tvo leiki - 27. og 28. janúar og
síðan koma Norðmenn og leika
tvo leiki í byijun febrúar. Lands-
liðið heldur til Frakklands 13.
febrúar, en B-keppnin hefst 15.
febrúar.
,ekki
hepP0*
Sala getraunaseöla lokar kl. 14:45 á
laugardögum.
3. LEIKVIKA - 21, JANUAR 1989
Leikur 1
Arsenal
Sheff. Wed.
Leikur 2 Coventry
Wimbledon
Leikur 3 Liverpool - Southampton
Leikur 4
Luton
- Everton
Leikur 5
Middlesbro - Tottenham
Leikur 6 Newcastle
Charlton
Leikur 7 Nott. For.
Aston Villa
Leikur 8 Q.P.R.
Derby
Leikur 9 West Ham - Man. Utd.
Leikur 10
Blackburn - Chelsea
Leikur 11 Cr. Palace - Swindon
Leikur 12
Oxford
- Leeds
Símsvari hjá getraunum eftir kl. 17:15
á laugardögum er 91-84590 og -84464.
Munið hópleikinn
Það er rétt. Lemgo hefur haft
samband við mig, en eins og
málin standa nú þá tek ég enga
ákvörðun hvað ég geri fyrr en eftir
þetta keppnistímabil. Lemgo hefur
aftur samband við mig og þá fæ
ég að sjá hvað félagið hefur upp á
að bjóða," sagði Héðinn í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Héðinn sagði að hann stefni að
því að fara til V-Þýskalands. „Ég
hef ekkert ákveðið hvort það verði
næsta vetur eða þá seinna. Ég ætla
ekki að ana að neinu, heldur hugsa
málið vel áður en ég tek ákvörðun.
Satt best að segja þá hef ég ekki
mikinn áhuga á að fara til Lemgo,“
sagði Héðinn.
FIMLEIKAR
HóAinn Gllsson, landsliðsmaður í handknattleik.
Fimleikamenn
frá Búlgaríu
til íslands
Hillir undir stærsta fimleikamótið hérlendis
ALL margar þjóðir hafa boðað
þátttöku sína á alþjóðlegt fim-
leikamót sem haldið verður hér
á landi í aprfl næst komandi.
Þegar er Ijóst að þetta verður
stærsta og sterkasta mót
sinnar tegundar sem haldið
hefur verið hér á landi. Ekki er
ólíklegt að eitthvað af sterk-
asta fimleikafólki heims verði
meðal þátttakenda.
Þeir sterkustu sem þegar hafa
boðað þátttöku sína eru Búlg-
arir sem eiga marga frábæra fim-
leikamenn. Vel er hugsanlegt að
einhveijar Austantjaldsþjóðir aðrar
verði með, þær hafa tekið því
líklega, en hafa ekki gefið endan-
legt svar. Þá eru Kanadamenn volg-
ir. Norðurlandaþjóðimar allar verða
með, Skotar, írar, Belgíumenn og
Lúxemborgarar hafa skráð sig og
reiknað er með fleiri þátttakendum
á næstunni.
Að sögn Margrétar Bjarnadóttur
formanns Fimleikasambands ís-
lands þá er unnið að móti þessu af
krafti, enda mikið verkefni. Væri
það á góðum rekspöl. Greint var
frá fyrstu þreifingunum að þessu
móti í Morgvnblaðinu síðast liðið
haust. Var þá frá því greint, að það
myndi verða höfuðverkur að halda
svo stórt mót þar eð tól og tæki til
þess em ekki til í Laugardalshöll-
inni. Sagði Margrét að unnið væri
af krafti að því máli og legði sam-
bandið allt sitt traust á góðar undir-
tektir Reykjavíkurborgar. „Eftir
viðræður við embættismenn borgar-
innar erum við bjartsýnar á að úr
rætist," sagði Margrét Bjarnadóttir.
Alþjóðlegir dóm-
arar væntanlegir
Fimleikasamband íslands tek-
ur á móti tveimur alþjóðleg-
um fimleikadómurum á næstunni
og munú þeir halda alþjóðleg dóm-
aranámskeið meðan á dvöl þeirra
stendur. Að sögn Margrétar
Bjamadóttur formanns Fimleika-
sambands íslands er mikill fengur
að þessum gestum með hliðsjón
af stöðunni í dómaramálum á ís-
landi þessa stundina.
Fyrst kemur Þjóðveijinn Eben-
hard Gienger, nánar tiltekið 26.
janúar og mun hann halda al-
þjóðlegt dómaranámskeið fyrir
karla. Honum til aðstoðar verður
Jónas Tryggvason. Daganna 16.
til 20. mars verður síðan stödd
hér á landi Jacki Fie, sem er
bandarísk að þjóðemi. Hún er
varaformaður tækninefndar al-
þjóðlegu fijáls íþróttasamtak-
anna. Hún mun halda námskeið
fyrir kvendómara.
IttífrmR
FOLK
■ SEBASTIAO Lazarone var í
gær ráðinn landsliðsþjálfari Bras-
ilíu í knattspymu og Richardo
Teixeira, tengdasonur Havelange,
formanns alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, er nýkjörinn formaður
knattspyrnusambands Brasilíu.
I HA VELANGE sagði í samtali
við LEquipe í gær að úrslitakeppni
HM 1998 yrði sennilega í Frakk-
landi, en Brasilía, Marokkó og
Sviss hafa einnig sótt um að halda
keppnina. Havelange sagði að nær
allar aðstæður væm fyrir hendi í
Frakklandi, en til að fá keppnina
þyrfti a.m.k. 12 velli með sæti fyrir
40.000 áhorfendur og byggja þyrfti
stóran völl fyrir opnunina og úr-
slitaleikinn. Chirac, borgarstjóri
Parísar, sagði að völlur með sætum
fyrir 80.000 áhorfendur yrði byggð-
ur í borginni. „Það væri gaman að
sjá keppnina í Frakklandi, þar
sem hún var síðast haldin fyrir
60 árum eða 1938,“ sagði borgar-
stjórinn.
■ RINAT Dassajev hefur átt
erfitt uppdráttar á Spáni. Sevilla
var í 3. sæti, er hann hóf að leika
með liðinu, en er nú í 9. sæti og
hefur Dassajev fengið ellefu mörk
á sig í síðustu sjö leikjum. Um helg-
ina kórónaði hann óheppnina, skor-
aði sjálfsmark og fékk einkuninna
0, sem er harla óvenjulegt.
■ RACINGJetr sem er í 2. deild
í Belgíu, rak í gær þijá erlenda
leikmenn vegna slakrar frammi-
stöðu þeirra. Leikmennirnir, sem
eru Rúmeninn Ladislaw Boloni
og Tékkarnir Peter Janecka og
Josef Barmos, hafa kvartað við
belgíska knattspyrnusambandið.
NBA-úrslit:
Mánudagur:
New York - San Antonio.... 116:106
Charlotte - Philadelphia 127:122
Altanta - Washington 117:106
126:110
Denver - Sacramento 116:110
L.A. Lakers - Houston 124:113
Detroit Pistons - Boston 96:87
Golden State - Seattle 146:117