Morgunblaðið - 23.03.1989, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.03.1989, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989 9 HUGVEKJA Páskarnir boða sigur lífsins efltir SR. HJALTA GUÐMUNDSSON Páskadagur er sigurdagur. Þá fagnar öll veröldin upprisnum frelsara sínum, sem hefur brotið niður vald dauðans og boðar nú öllum mönnum eilíft líf í dýrð Guðs, þeim sem vilja þiggja og við því taka. Boðskapur páskanna er boð- skapur lífsins. Þar eru táknræn orð englanna eins og Lúkas guð- spjallamaður skráir þau: „Hví leit- ið þér hins lifanda meðal dauðra?" Allt sem snertir líf og starf Jesú Krists, einkennist af lífí. Hann læknaði sjúka og vakti upp dauða. Hann vakti menn til meðvitundar um hið raunverulega líf í Guði, þar sem menn standa ekki lengur einir uppi, heldur eiga stuðning og styrk skaparans. Frelsarinn kenndi mönnum að óttast ekki og missa ekki kjark- inn, þótt á móti blési, heldur treysta Guði og leggja allt í hans hönd, því að til hans ættum við að steftia með lffí okkar og starfí, þar sem hið raunverulega líf væri, það líf, sem lifað væri í fullkomnu samræmi við kærleika Guðs og vilja hans. Jesús Kristur kenndi okkur, að þessi tilvera, sem við þekkjum og sjáum í kringum okkur, er aðeins ófullkomin byijun, eins og reik- andi spor ómálga bams og að við þörfnumst leiðbeiningar og stuðn- ings til að komast á réttan áfangastað, sem er Guðsríki. Þá leiðsögn getur frelsarinn einn veitt, og það hefur hann gert með lífí sínu, dauða og upp- risu. Hann er leiðtogi mannanna. og honum ber okkur að fylgja. Hann hefur brotið niður þá hindr- un, sem dauðinn var okkur, en eftir upprisuna göngum við í fót- spor hans inn til eilífa lífsins. Þess vegna einkennist kristin trú af bjartsýni og gleði. Hún á gleðiboðskap og hún á frelsara. Kristnir menn þurfa ekki að standa frammi fyrir því óviðráð- anlega verkefni að ávinna sér sjálfír eilíft líf, en það gæti engum manni tekist af sjálfsdáðum. Eilíft líf er gjöf Guðs til mann- anna. Sú gjöf kemur að vísu ekki sjálfkrafa, heldur þurfum við mennimir að taka á móti, þiggja í þakklæti og auðmýkt þá gjöf, sem Guð gefur og viðurkenna fyrir sjálfum okkur og honum, að án hans erum við ekkert og getum ekkert. Kristin trú er trú gleðinnar, og mesti gleðidagur hennar er í dag, páskadag. Kristin trú gerir okkur bjartsýn á lífið, þrátt fyrir alla erfíðleika þess, því að þetta er trú lífsins, og lífið hefur sigrað. Þetta er trú Biblíunnar og er því reist á þeim sterka grunni, sem Guðs orð er. Hún biður ekki heim- inn afsökunar á tilveru sinni. Hún kom reyndar inn í þennan heim án þess að mikið bæri á eða nokk- ur háreysti væri gjörð. Hún hefur verið ofsótt á öllum öldum og er enn. Hún hefur jafnvel verið dæmd til dauða eins og höfundur hennar, en hún hefur alltaf lifað sterk og heil og jafnvel sterkust, þegar andstaðan var mest. Þegar menn þurfa að beijast fyrir trú sinni, þá kemur best í ljós, hvað þeir eiga í sál sinni, því að trúin er sterkari en beittustu vopn manna. Kristin trú hefur oft orðið fyrir háði og níði, að ekki sé nú talað um þjóna hennar á öllum öldum. Henni hefur verið sýnd megnasta fyrirlitning, og sennilega er ekki hægt að nefna það vopn, sem óvinir kristinnar trúar hafa ekki notað í baráttu sinni gegn henni, og enn lifír hún. Það gæti verið, að óvinir trúar- innar hefðu verið að leita hennar meðal hinna dauðu og ekki áttað sig á því, að hún er lifandi trú, eilíf. Hún er Guðs verk og verður því aldrei að velli lögð. Fylgjendum hennar kann að fækka, og það hefur reyndar gerst á þessari öld, en það munu menn sjá, að er öllum til tjóns, bæði einstaklingunum og þeim þjóðum, sem hlut eiga að máli. Við þekkjum það af okkar eigin þjóð, að kristin trú hefur verið hennar mesta og sterkasta stoð i baráttunni fyrir lífi sínu á liðnum öldum. Ég held, að þjóðin hefði oft misst kjarkinn og gefíst upp, ef hún hefði ekki getað varpað oki sínu á frelsara sinn. Við verðum líka að gæta þess, að menning þjóðarinnar er kristin menning. Við höfum reynt að til- einka okkur kenningar kristinnar trúar í þessari þjóðfélagsbygg- ingu, sem við höfum reist í þessu landi. Þar sem okkur hefur mis- tekist, er ekki við kristna trú að sakast, heldur okkur sjálf. Þar höfum við brugðist, en ekki Guð. Þó að land okkar sé nú nefnt velferðarríki, þá er enn margt, sem við vildum betur gera, svo að öllum mætti líða vel, bæði and- lega og líkamlega, enda er það í anda Jesú Krists. Hann lét sér annt um bæði andlega og líkam- lega heill meðbræðra sinna. Hve- nær sem hann sá neyð, var hann kominn til hjálpar. Þann hugsun- arhátt þurfum við að tileinka okk- ur. Slík kærleikstilfinning þarf að verða rótgróin 1 hjörtum okkar, og þá getur ísland orðið raun- verulegt velferðarríki, þegar allir þegnar þess bera bróðurlega um- hyggju hver fyrir öðrum í anda Jesú Krists. En það hefst ekki með því að beijast á móti kristinni trú eða láta hana afskiptalausa. Þar þarf að koma til bein þátttaka allra landsmanna, sem fínna sig knúna af kærleika Krists og fínna til í hjarta sínu, þegar neyð vesals bróður ber fyrir augu eða eyru og leggja líf sitt í hönd frelsar- ans, sem svo miklu fómaði í okk- ar þágu. Við þurfum að standa trúan vörð um kristna menningu þjóðar- innar. Ef sú menning hættir að vera kristin, þá er um leið horfínn sá þáttur, sem hefur gefið henni gildi, og þá erum við smátt og smátt horfin niður á svið myrkurs heiðninnar, þar sem kalt miskunn- arleysið og sjálfshyggjan ráða ríkjum. Við skulum beina huga og hjarta að krossi Jesú Krists. Það- an er allt það besta sprottið í þessu lifí. Fegurð lífsins hófst í óeigingjamri fór. í óeigingjamri þjónustu mun lífíð blómgast feg- urst og bera ávöxt í trú og kær- leika. í upprisunni sjáum við sigur fómar og kærleika, sem mun leiða okkur inn á lönd eilífðarinnar. Þangað fylgjum við hinum kross- festa og upprisna frelsara í full- komnu trausti og trú. Guð gefí öllum gleðilega páska- hátíð. íbúasamtök Vesturbæjar: Gamli Stýrimannaskólinn verði menningarmiðstöð ÍBÚASAMTÖK Vesturbæjar héldu aðalfund sinn nýlega. Meg- inviðfangseftii samtakanna á liðnu ári var að vinna að þvi að gamli Stýrimannaskólinn gæti tekið við hlutverki menningar- og félagsmiðstöðvar í hverfinu en menntamálaráðherra hefur skipað nefiid til að vinna að til- lögum um framtíðarnýtingu hússins. í ársskýrslu samtakanna segir meðal annars: „Nefnd menntamálaráðherra heftir athugað ýmsa möguleika á nýtingu hússins eins og henni var falið og bæði átt viðræður við þá FÉLAG JARWIÐNAÐARMANNA STARFSSVÆDI: LÖOSAQNABUMOÆMI REYKJAVlKUR, KÓPAVOGSKAUPSTADAR, HAFNARFJARÐAR. KAUPSTADAR, KJÓSARSÝ8LU. 8VO 00 BESSASTADAHREPPUR 00 QARDABÆR Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 29. mars 1989 kl. 20.00 á Suður- landsbraut 30, 4. hæð. Dagskrá: 1. Félagsmál. 2. Kjaramál og atvinnumál. 3. Fræðslumál. 4. Orlofsmál. 5. Önnur mál. Mætið vel og stundvíslega. Stjórn Félags járniðnaðarmanna. sem áhuga höfðu á að fá þar inni og einnig forystumenn úr hópi sjó- mannasamtaka og útgerðarmanna. Sú tillaga, sem komnin er frá stjóm íbúasamtaka Vesturbæjar, um að útibú Borgarbókasafnsins í Vest- urbæ fái inni á fyrstu hæð hefur fengið mjög jákvaéð viðbrögð, m.a. frá borgarbókaverði, en ekki liggur fyrir samþykki borgarstjómar. Til- laga um að nýta efri hæð til nám- skeiða, felagsstarfa og menningar- viðburða ýmissa nýtur einnig fylgis og hefur í umræðum verið reynt að finna á hvem máta væri unnt að koma slíku við, bæði hvað varð- ar rekstur starfseminnar og rekstur hússins. Á efstu hæð hefur helst verið talað um húsvarðaríbúð og litla skrifstofuaðstöðu. Þá er áhugi á að gera húsið að utan upp eins og það var í upphafi, koma fyrir mastri, tímaknetti og skyggni yfír anddyri út að Stýrimannastíg. For- svarsmann sjómanna og útgerðar hafa látið í Ijósi áhuga á að taka þátt í slíku ataki." Á aðalfundinum lét Anna Krist- jánsdóttir af formennsku í íbúasam- tökum Vesturbæjar og vom henni þökkuð vel unnin störf. Nýr formað- ur var kjörinn Einar Öm Stefánsson og aðrir í stjóm Guðrún Magnús- dóttir, Baldur Möller, Loftur Ágústsson og Inga Jóna Bachman. Varamenn em Anna Kristjánsdóttir og Kristján Ingi Einarsson. I m íl fr- ro lO 00 Bladid sem þú vaknar við! Einslakllngar - Félagasamtök Hver man ekki eftir hinu glæsilega sumarhúsi á Norðlingabraut? EYÞÓR Á. EIRÍKSSOIM byggingameistari Sími 623106 og 621288 á kvöldin. Borgartúni 29, 105 Reykjavík. Nú er rétti tíminn að huga að húsi fyrir sumarið. ★ Stærð og gerð eftir óskum hvers og eins. ★ Fjöldi tilbúinna teikninga. ★ Nýja línan. ★ Flutningurhvertálandsemer. ★ Möguleikar á grillhorni, sól- krók eða garðstofu. ★ Við ábyrgjumst okkar vinnu. ★ Hefsumarbústaðalóðir, aðganguraðveiðivatni. Uppiýsingar á skrifstof u í dag og næstu daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.