Morgunblaðið - 23.03.1989, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 23.03.1989, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MARZ 1989 ÁVALDI VALDSINS Morgunblaðið/Ámi Sæberg Leikarar EGG-leikhússins að þessu sinni eru: F.v. Þór Tuliníus, Viðar Eggertsson, Kristján Franklín Leiklist Friðrika Benónýs Sál mín er hirðflfl í kvöld: Escurial Höfundur Michel de Gheld- erode Þýðandi Sigurður Pálsson Afsakið hlé Höfundur Árni Ibsen Leikstjóri og búningar Stein- unn Þórarinsdóttir Lýsing Árni J. Baldvinsson Egg-leikhúsið 1989 Það ríkir miðaldastemmning í kjallara Hlaðvarpans þegar áhorf- endur ber að garði. Kertaljós og svartklæddir hettumunkar á sveimi í rökkrinu. Gijót og flauel ríkjandi á sviðinu. Óhugnaðurinn smýgur undir hörundið og leikur- inn hefst. Konungur í kreppu, dauðinn á stjái, grimmd hundanna fyrirboði þess sem koma skal. Escurial heitir í höfuðið á höll nokkurri á Spáni sem aldrei tókst að byggja til fulls. En verk Gheld: erodes er fullkláruð bygging. í því birtast okkur í hnotskum mannkjmssagan, bókmenntasag- an og sálfræðin; barátta mannsins við sjálfan sig og hina. Grimmd valdsins sem byggist á ótta vald- hafanna við lífíð sjálft, ástina og gleðina. Tilvitnanir í bókmenntir allt frá „maður er manni úlfur“ til „allir drepa yndið sitt“ skjóta upp kolli í huga áhorfandans svo og hin eilífa spuming um hlutverk okkar í lífínu, hlutverkin sem við leikum hvert og eitt, en væm jafn vel eða betur komin í höndum einhvers annars. Hirðfífl eða kon- ungur, hveiju skiptir það og hver er munurinn? Sálin er hirðfífl líka- mans, hvata og langana, en þó fyrst og fremst óttans. Óttans sem er grundvöllur grimmdarinnar. Viðar Eggertsson og Þór Tulin- íus leika konunginn og hirðfíflið og em samtaka í því að sýna okkur manninn í sínum lítilmót- legasta ham. Konungur Viðars rambar á barmi vitfírringar og fíflið sem á líf sitt undir geðþótta hans er hæfilega sleikjulegt og auðmjúkt í túlkun Þórs, þótt hat- rið kraumi undir niðri. Báðir skapa eftirminnilegar persónur sem fylgja manni lengi eftir að sýningu lýkur. Kristján Franklín Magnússon og Ingrid Jónsdóttir em í örsmáum hlutverkum munksins og böðulsins og komast vel frá sínu. Úr myrkri miðaldanna í kjallara Hlaðvarpans er haldið yfír í Ný- höfn þar sem skjannahvítir vegg- ir, stál, leður og marmari bjóða okkur velkomin til „siðmenning- ar“ nútímans; Þar er flutt Afsak- ið hlé eftir Ama Ibsen, tilbrigði við sama stef og Escurial byggir á, tilgangsleysi og yfírborðsleik valdsins en í stað konungs og hirðfífls em komin forstjórinn og einkaritarinn í fallít fyrirtæki í Reylqavík í dag. Skemmtilegur farsi með grafalvarlegan undirtón og persónur sem við öll könnumst við. Allt er þetta leikur, yfirborðið allt sem þarf, tilfínningar bann- Magnús og Ingrid Jónsdóttir. vara: ástin á ekki heima í þessari höll. Manneskjan engu meira met- in en á miðöldum, sá sem valdið hefur getur reist fólk úr öskustó og hmndið því þangað aftur með einni handahreyfingu. Kristján Franklín Magnús og Ingrid Jónsdóttir leika forstjórann Ævar Eið og einkaritarann Lísu á ýktan hátt eins og farsa hæfír, en ná þó að gera þau lifandi og lyfta þeim upp úr klisjunni. Viðar Eggertsson og Þór Tuliníus em undirtyllumar Bragi og Sölvi holdi klæddar, einkum á Þór óborgan- lega spretti í hlutverki töffarans Sölva. Mannskepnan í fortíð og samtíð hefur nú birst áhorfendum og efa- semdir vaknað um það hvort nokkuð sé til í því að mennimir breytist með tímunum. En liðs- menn Egg-leikhússins láta ekki hér staðar numið. Aftur er haldið yfír í Hlaðvarpa þar sem Escurial er endurfluttur og nú staðsettur í óræðum tíma sem nærtækast er, eftir það sem á undan er geng- ið, að álíta framtíðina. Leikmátinn er nú allur annar, fáránleikinn í fyrirrúmi, sviðsmynd engin og áhorfendur dregnir inn í leikinn. Þór Tuliníus og Viðar Eggertsson hafa nú skipt um hlutverk. Kon- ungurinn er enn yfírborðslegri og dyntóttari í túlkun Þórs eins og hæfír breyttu andrúmi og Viðar gerir fíflið aumkunarverðara og minna í sér en áður var. Báðir gera vel og það er einmitt þessi fjölbreytni í leikmáta, nálgun og túlkun sem gerir sýningu Egg- leikhússins á Sál mín er hirðfífl í kvöld eins sérstæða upplifun og raun ber vitni. Þetta er lifandi leikhús og á leikstjórinn Sveinn Einarsson þakkir skildar fyrir að færa okkur á einu bretti musmun- andi sýnishom af því hvað hægt er að fara mismunandi leiðir í uppfærslu og túlkun góðra leik- verka, án þess að ganga á rétt þeirra. Leikmynd og búningar Stein- unnar Þórarinsdóttur eru einföld og stílhrein og í anda verkanna, ekkert óþarfa pijál eða punt. Raunar skapa andstæður stað- anna tveggja sem sýnt er á sterk- ustu áhrifin og lýsing Áma J. Baldvinssonar magnar enn þessar andstæður. Sem sagt leiksýning sem býður upp á allt í senn; andlegt fóður, skemmtun og nýja reynslu af leik- húsi. EgillJónsson og Þórdís Gunnars- dóttir—Kveðjuorð í dag, miðvikudaginn 22. mars, kveð ég hinstu kveðju afa minn Egil og Þórdísi ömmu með orðum Kahlils Gibran: „Þið fæddust sam- an og saman skuluð þig verða að eilífu. Saman skuluð þið verða, þegar hvítir vængir dauðans leggj- ast yfír daga ykkar. Já, saman skuluð þið verða jafnvel í þögulli minningu Guðs.“ Hvíli þau í friði. Friður Guðs blessi þau, með þökk fyrir allt og allt. Þórdís Eygló Hin langa þraut er liðin, j, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt. nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. (Vald. Bnem). ' Mig langar í örfáum orðum að minnast þessara hjóna. Þau Þórdís Gunnarsdóttir og Egill Jónsson voru foreldrar tengdamóður minnar, Huldu R. Egilsdóttur, fædd 10. júní 1927, dáin 12. febr- úar 1981. Þórdísi kynntist ég gmjög lítið vegna veikinda henn- ar, en Jóhannes, eiginmaður minn, dvaldist flest sumur æskuáranna - hjá þeim. Kem ég fyrst til Reyðar- fjarðar ásamt Qölskyldu minni sumarið 1986, var Þórdís komin á sjúkrahús fyrir nokkru, fórum við með afa í heimsókn til Þórdísar og sá ég þá hve samrýnd þau hjón voru. Egill saknaði hennar mikið heima og heimsótti hana eins oft og hann gat við komið, seinna dvaldi hann líka á sama sjúkra- húsi og var mjög natinn við að sitja við rúm hennar eins og þrek Fæddur 15. febrúar 1938 Dáinn 22. febrúar 1989 En þá dauðans dulda hönd drepur högg á þil svo falla sterkir stofnar fljótt sem stráin foldar til. (ók. höf.) Þessar ljóðlínur komu í huga minn er mér var færð sú harma- fregn að Gunnar frændi minn hefði orðið bráðkvaddur. Gunnar fæddist að Fjalli í Kol- beinsdal 15. febrúar 1938. For- eldrar hans voru Guðný Jónsdótt- ir, dóttir Jóns Klemenssonar frá Höfnum á Skaga og Haraldar Bjömssonar frá Fagradal á Skarðsströnd. Dauði, mikill er máttur þinn, oftast miskunnsamur þeim er þú heimsækir, en fyrir okkur er þú sviptir ástvinum er það helsárt og þungt og við hrópum í orðvana skelfíngu hversvegna, hversvegna. En hvað ert þú dauði annað en fæðing inn í annað líf og eins og við skiljum eftir gamla flík sem er orðin ónothæf. Þess vegna ætt- um við ekki að syrgja, en við erum bara mannleg og viljum hafa þá hjá okkur sem við unnum. Þegar ég sá elsku frænda minn síðast kom hann til mfn og við röbbuðum saman um stund um sameiginleg áhugamál. Hann tal- aði um hvað hann væri þreyttur og ætlaði því að fara heim. Um leið og hann fór kvaddi hann eins og hann var vanur: „Vertu bles- suð, ég kem fljótlega aftur.“ Þeg- ar hann var farinn sló niður í huga minn að ég hefði átt að kveðja Gunnar betur. Því miður lét ég ekki eftir þeirri hugdettu. Hvað er það sem ýtir við okkur á svona stundu. Eitthvað sem við skiljum ekki. Þama var Gunnar að kveðja í síðasta sinn. Mér hefði veirð mikils virði ef ég á þessari stundu hefði kvatt elskulegan frænda minn betur en vanalega, þó ég hefði ekki skilið þá örlagastund fyrr en seinna. Ég sendi því yfír móðuna miklu ástarkveðju og hjartans dýpstu þökk fyrir allt sem hann var mér frá því er hann leit dagsins ljós að Fjalli sem lítill sól- argeisli. FVændi minn var háþroskað valmenni. Það er sárt að sjá á eftir slíkum mönnum á miðjum aldri, en ég veit að hann hefur verið kallaður til æðri starfa. Ég sendi Láru og sonum og öllum syrgjendum samúðarkveðjur og bið ykkur blessunar Guðs. Nú hefur kæri frændi minn farið í gegnum „sólarlagsins eld“. Nú bið ég, leiði hann drottins ljúfa hönd, langt inn í morgunroðans lönd. Margrét Jónsdóttir frá Fjalli Okkur langar að minnast látins vinar og frænda í örfáum orðum. Gunnar var tíður gestur á heimili okkar og á heimili ömmu. Það spunnust ávallt fjörugar og djúpar umræður þegar hann kom og oft leyfði. Dáist ég enn að ást hans og umhyggju. Eg og bömin kynnt- umst yndislegum afa og ég gleymi aldrei kveðjustundinni á tröppum Þingholts, þá fannst mér fjarlægð- in frá Reyðarfirði til Tálknafjarðar óralöng og þessi góði afí svona langt í burtu. Kveð ég ykkur höfð- ingshjón í hinsta sinni, forlög hygg ég föst oss banni, framar sjást í þessum ranni. Nú héðan lík skal heíja, ei hér má lengur tefla í dauðans dimmum val. Úr inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (Vald. Briem) Kristín Ólafsdóttir var setið fram á nótt og reynt að ráða lífsgátuna. Þegar við systkin- in urðum eldri og kynntumst Gunnari af eigin raun varð hann ekki síður félagi okkar og vinur eins og foreldranna. Kjmslóðabilið var ekki til nálægt honum. Sér- staklega eru minnisstæðar þær stundir þegar Gunnar sat með kaffíbolla og reyndi að ráða f framtíðina með því að rýna í þau tákn sem þurrir kaffídropar mynda í hliðum bollans. Þá er einnig mjög minnisstæður sá áhugi sem Gunnar hafði á útvarpi og sjónvaipi, hvort sem um var að ræða viðtækin sjálf eða það sem úr þeim heyrðist eða sást. Gunnar gat setið tímunum sam- an og spilað við ömmu og spjall- að. Hann var henni ómetanlegur stuðningur, sérstaklega eftir að hún fluttist á Sauðárkrók fyrir u.þ.b. þremur árum. Það skarð sem hann skilur eftir sig verður vandfyllt. Lára, Jón og Kristján og aðrir aðstandendur, við sendum okkar samúðarkveðjur. Fyrir hönd okkar systkinanna Sólborg Alda Pétursdóttir og Ragnar Pétur Pétursson Jón Gunnar Ragnars- son - Minningarorð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.