Morgunblaðið - 11.05.1991, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1991
Davíð Oddsson forsætisráðherra:
Enginn ágreiningnr
um verkaskiptingu
I mínum flokki heitir þetta heiðurs-
mannasamkomulag, segir Jón Baldvin
Hannibalsson
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra segir engan ágreining
vera milli stjórnarflokkanna
um verkaskiptingu ráðuneyta.
„í stjórnarmyndunarviðræðun-
um vorum við Jón Baldvin sam-
mála því að treysta bæri stöðu
umhverfisráðuneytisins,“ sagði
Davíð í samtali við Morgunblað-
ið í gær. „í mínum flokki er
samkomulag af þessu tagi kall-
að heiðursmannasamkomulag,"
sagði Jón Baldvin Hannibals-
son, þegar Morgunblaðið spurði
hann hvort ekkert heiðurs-
mannasamkomulag hefði verið
gert á milli formanna stjórnar-
flokkanna um að færa Skóg-
rækt ríkisins og Landgræðslu
frá landbúnaðarráðuneyti til
umhverfisráðuneytis.
Forsætisráðherra kvað formann
Alþýðuflokksins hafa nefnt nokkra
þætti í því sambandi, „en ég sagði
þá að ég gæti ekki samþykkt slíka
hluti á því stigi“, sagði Davíð.
Forsætisráðherra sagði að hægt
væri að treysta stöðu umhverfis-
ráðuneytisins með margvíslegum
hætti og flytja til þess verkefni,
ekki bara frá landbúnaðarráðu-
neytinu, heldur einnig frá öðrum
ráðuneytum.
Jón Baldvin sagði: „Eins og
fram kemur af fréttatilkynningu
forsætisráðherra, vorum við sam-
mála um nauðsyn þess að styrkja
umhverfisráðuneytið. Við ræddum
það, hvemig það skyldi gert. Það
kallar á lagabreytingu sem ekki
getur komið til kasta þings fyrr
en í haust. Útfærsla á því bíður
nánari umfjöllunar.“
Forsætisráðherra sendi í gær
frá sér eftirfarandi fréttatilkynn-
ingu: „í þeim viðræðum, sem for-
menn stjómarflokkanna áttu, og
Sigur hjá
Jóhanni
JÓHANN Hjartarson sigraði
Júgóslavann Ljubojevic í 7. um-
ferð stórmeistaramótsins í Hol-
landi í gær. Jóhann hafði svart
og varð skákin 42 leikir.
Önnur úrslit urðu þau að Kasp-
arov vann Korchnoi, Salov vann
Van der Wiel, Karpov vann Timman
og Gurevic og Short gerðu jafntefli.
Salov og Short eru efstir og jafn-
ir með 5 vinninga, Karpov hefur
4,5 vinninga og Kasparov hefur 4
vinninga. Jóhann er í 6. sæti með
3 vinninga.
leiddu til myndunar ríkisstjórnar,
urðu þeir ásáttir um að styrkja
bæri_ stöðu umhverfisráðuneytis-
ins. í því sambandi hljóta verka-
skipti milli einstakra ráðuneyta að
koma til álita þótt frá einstökum
atriðum hafi ekki verið gengið.
Þessir þættir verða ræddir á
milli stjórnarflokka um leið og
lagabreyting á haustþingi er und-
irbúin.“
Lagthaldá
hass og stolið
greiðslukort
Fíkniefnadeild lögreglunnar
lagði hald á um 25 grömm af'
hassi við leit í húsi í Reykjavík
og tveimur bifreiðum á þriðju-
dagskvöld.
Einnig var lagt hald á stolið
greiðslukort.
Sjö aðilar voru handteknir vegna
rannsóknarinnar en var sleppt að
loknum yfírheyrslum og telst málið
upplýst.
Morgunblaðið/Þorkell
Vorverkin að hefjast
Á vorin er að mörgu að hyggja í garðinum, til að tryggt verði að gróðurinn verði sem ræktarlegastur.
Ljósmyndarinn rakst á þau Asbjörgu Benediktsdóttur, Svanhildi Sigfúsdóttur, Samson B. Harðarson og
Berglindi Guðmundsdóttur, þar sem þau voru að störfum í Ræktunarstöðinni í Laugardal í gær.
Ekki ágreiningTir imi 2,56%
hækkun launataxta 1. júní
Launþegar krefjast einnig hlutdeildar í viðskiptakjarabata
LAUN hækka að öllum líkindum um 2,56% um næstu mánaðamót,
2% samkvæmt ákvæðum kjarasamninga og 0,56% vegna hækkunar
framfærsluvísitölu umfram viðmiðunarmörk, svokölluð rauð strik,
samninganna. Ljóst er að fulltrúar launþega í launanefndunum munu
gera kröfur um viðbótarhækkanir vegna þess að viðskiptakjör virð-
ast hafa batnað meira á samningstimanum en gert var ráð fyrir.
Samkvæmt tölum fyrir febrúar hafa viðskiptakjörin batnað 7% meira
en miðað var við í samningunum og gæti það samsvarað l'/j til 2%
launahækkun til viðbótar þeim 2,56% sem ekki virðist ágreiningur
um. Framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands íslands segir að ekki
sé ágreiningur um að launafólk njóti þessa viðskiptakjarabata en
horfa verði fram á endurnýjun kjarasamninga í haust og ekki megi
kasta á glæ þeim stöðugleika sem náðst hafi.
Framfærsluvísitalan sem reiknuð
er út frá verðlagi í byijun maímánað-
ar hækkaði um 1,2% frá aprílvísitölu
og er það 0,56% umfram viðmiðun-
armörk kjarasamninga. Af 1,2%
hækkuninni stafar 'h% af árshækk-
un iðgjalda bifreiðatrygginga, verð-
hækkun matvöru olli um 0,2% og
verðhækkun ýmissa vöru- og þjón-
ustuliða olli um 0,5% hækkun vísi-
tölunnar.
Hækkun vísitölunnar að þessu
sinni jafngildir 15,3% verðbólgu á
Halldór Þorsteinsson fékk vegabréfsárítun:
Neitunin byggð á lögum
sem fallin voru úr gildi
HALLDÓR Þorsteinsson, eigandi Málaskóla Halldórs, fékk óvænt
boð um að hitta ræðismann bandaríska sendiráðsins í gær, þar
sem honum var veitt vegabréfsáritun til Bandaríkjanna. Eins og
Morgunblaðið greindi frá um siðustu helgi hafði Halldóri áður
verið neitað um áritun af þeirri ástæðu, að hann hefði vikið sér
undan herkvaðningu á námsárum sínum í Bandarikjunum í síðari
heimsstyijöldinni. Ástæða þessara sinnaskipta var sú, að sögn
Halldórs, að í ljós kom að lög þau sem sendiráðið byggði neitun
sína á voru numin úr gildi árið 1950.
Halldór sagði að Hjálmar Bandaríkjunum og væri því kunn-
Finnsson, fyrrum skólabróðir
sinn, hefði haft samband við sig
eftir að hafa lesið frétt Morgun-
blaðsins af málinu og tjáð sér að
hann hefði lent í samskonar vand-
ræðum eftir námsdvöl sína í
ugt um að umrædd lög hefðu
verið afnumin fyrir fjörutíu árum.
Vakti Hjálmar einnig athygli
sendiráðsins á þessu sem veitti
Halldóri þegar í stað umbeðna
vegabréfsáritun.
ári. Vísitalan hefur hækkað um 5,8%
undanfama tólf mánuði og hækkun
hennar undanfarna þijá mánuði
samsvarar 7,7% verðbólgu á heilu
ári.
Almenn laun á vinnumarkaði
hækka um 2% þann 1. júní næstkom-
andi. Launanefndir launþega og
vinnuveitenda eiga að fjalla um
hækkun framfærsluvísitölunnar um-
fram rauð strik í samningunum og
komast að samkomulagi fyrir 20.
maí. Ef ekki næst samkomulag hafa
fulltrúar launþega oddaatkvæði í
nefndunum og geta því ákveðið allt
að 0,56% hækkun, en á móti hafa
vinnuveitendur rétt til að segja
samningunum lausum ef þeir sætta
sig ekki við niðurstöðuna. Ekki virð-
ist vera ágreiningur um að laun
hækki um 0,56%. Þórarinn V. Þórar-
insson, framkvæmdastjóri Vinnu-
veitendasambands íslands, sagðist í
gær reikna með að samkomulag
næðist um að bregðast við þessari
umframhækkun vísitölunnar, sem
væri að vísu minni en reiknað var
með, með því að hækka launin sem
þessu nemur.
Launanefndimar fjalla einnig um
hugsanlegar launabreytingar vegna
meiri bata viðskiptakjara en reiknað
var með í kjarasamningunum. Á
borði þeirra eru nú tölur frá Hag-
stofu íslands og Þjóðhagsstofnun
sem benda til að viðskiptakjörin
hafí batnað um 11% frájanúar 1990
til febrúar síðastliðinn en í forsend-
um kjarasamninganna var reiknað
með 4% bata. Mun þá vera búið að
taka tillit til greiðslna í verðjöfnunar-
sjóð sjávarútvegsins. Óvissuþættir
eru í þessum samanburði og hefur
verið óskað eftir samanburði miðað
við marsmánuð og er verið að und-
irbúa þær í Hagstofu íslands. Búist
er við að þær upplýsingar liggi fyrir
síðari hluta næstu viku og þá verða
þær teknar til meðferðar hjá launa-
nefndunum. Hugsanlegt að tímatak-
mörkunum á samkomulagi, sem
miðaðst við 20. maí, verði hnikað
til um 1-2 daga vegna þess hversu
seint þessar upplýsingar berast.
Ekki verða hækkanir á forsendu við-
skiptakjarabata nema samkomulag
náist um það á milli vinnuveitenda
og launþega.
Fulltrúar í fjórum launanefndum,
það er ASÍ, BSRB, Kennarasam-
bands íslands og Sambands
íslenskra bankamanna, hittust í gær
til að bera saman bækur sínar.
Ari Skúlason, hagfræðingur ASÍ,
sagði ljóst að sambandið teldi tilefni
til launahækkana vegna viðskiptakj-
arabatans, en spumingin væri hve
mikil hækkunin ætti að vera. Nauð-
synlegt væri að bíða nýrra talna um
viðskiptakjör. Ögmundur Jónasson,
formaður BSRB, sagði að launafólk
ætti kröfu til hluta viðskiptakjara-
batans og myndi BSRB gera þá
kröfu. BSRB fékk 0,3% launahækk-
un vegna viðskiptakjarabata við
vinnu launanefnda þeirra og ríkisins
í febrúar. Var sú aðgerð gagnrýnd
m.a. af forystumönnum VSI. Óg-
mundur sagði fagnaðarefni að þetta
mat þeirra og ríkisins hefði reynst
rétt í febrúar og reyndar gott betur.
Þórarinn V. Þórarinsson sagðist
horfa með ánægju til þess að kaup-
máttur launa desember til maí væri
0,72% meiri að meðaltali en gengið
hefði verið útfrá við gerð kjarasamn-
inganna. Viðskiptakjarabatinn kæmi
meðal annars fram í þessu. Sagði
Þórarinn að nauðsynlegt væri að
horfa fram á haustið, kjarasamning-
arnir rynnu út 15. september. Verði
að miða aðgerðir í launamálum nú
við það að stöðugleiki haldist en
honum ekki kastað á glæ 1. júní.
Vinnuveitendur samþykktu ekkert
sem eyðilegði möguleikana á áfram-
haldandi stöðugleika. Ljóst væri að
miklar launahækkanir umfram það
sem þegar væri ákveðið og fyrirsjá-
anlegt myndu setja launaþróunina
hér í annan farveg en í helstu sam-
keppnislöndum. Sagði hann að
vinnuveitendur fögnuðu því að kom-
ið væri fram efni til að spila úr í
næstu kjarasamningum enda væru
komnar óskir um ýmislegt sem taka
þyrfti á þá og því fylgdi kostnaður.
Nú væri eitthvað til að ávísa á, en
ekki yrði ávísað tvisvar eða þrisvar
á sömu peningana.
Leit í Akrafjalli:
Svaf á sitt
grænaeyra
Björgunarsveitin Hjálpin
og Újálparsveit skáta á Akra-
nesi voru kallaðar út í fyrra-
kvöld til að leita að manni
sem varð viðskila við félaga
sína í fjallgöngu í Akrafjalli.
Leit var hins vegar hætt þeg-
ar maðurinn fannst sofandi
í rúminu heima á Akranesi
klukkan þijú um nóttina.
Fjórir Akurnesingar gengu á
Akrafjall í fyrrakvöld, tveir og
tveir saman. Einn maðurinn
varð viðskila við félaga sinn í
þokuslæðingi. Félaginn leitaði
að honum en fór síðan niður á
veg og lét lögreglu vita. Voru
björgunarsveitirnar kallaðar út.
Veður var leiðinlegt og var far-
ið að óttast um afdrif týnda
mannsins. Eftir að hann varð
viðskila við félaga sinn fór hann
niður á veg og fékk far heim
á Akranes, sofnaði á sitt græna
eyra og varð ekki var við neitt
fyrr en hann fannst klukkan
þijú um nóttina.