Morgunblaðið - 11.05.1991, Page 14
öí
14
reer íam .ri rrjOAUHAOUAj qiqajhkuoíí.om
MORGUNBLAÐIÐ EAUGARDAGUR 11. MAI 1991
Enn uni uppsagnim-
ar í Þj óöleikhúsinu
eftirAtla Heimi
Sveinsson
Þann 24. apríl sl. ritaði Hjálmar
H. Ragnarsson, formaður Tón-
skáldafélags íslands og varaforseti
Bandalags íslenskra listamanna,
mér bréf, þar segir m.a.:
„Þakka þér greinina þína um
uppsagnirnar í Þjóðleikhúsinu seni
birtist í Mogganum í morgun. í
þessari annars ágætu grein ert þú
með harðar ásakanir í garð okkar
stjórnarmanna í Bandalagi ís-
lenskra listamanna í þá veru að við
höfum látið þessar uppsagnir fara
fram hjá okkur átölulaust og brugð-
ist þar með vinkonu okkar beggja
og forseta Bandalagsins, Brynju
Benediktsdóttur. í stuttu máli þá
eru þessar ásakanir þínar út í hött,
— fullkomlega tilhæfulausar."
Grein mín sem talað er um birt-
ist í Morgunblaðinu 24. apríl. Hún
er skrifuð þann 21. og afhent rit-
stjóra Morgunblaðsins þann 22.
apríl. Það er rétt að stjórn Banda-
lagsins sendi einhvers konar mót-
mæli til Stefáns Baldurssonar verð-
andi þjóðleikhússtjóra sem dagsett
eru 23. apríl. (Afrit voru send til
Þuríðar Pálsdóttur, formanns Þjóð-
leikhúsráðs, Svavars Gestssonar
menntamálaráðherra eftir dúk og
disk og til þeirra sem sagt var upp.)
Ég var því í góðri trú og fullum
rétti þegar ég fullyrti í grein minni:
„... Og enn hefur ekkert heyrst
í Bandalagi íslenskra listamanna
stjórn þess til háborinnar skamm-
ar...“
Það er því augljóst að ég hef
ekki farið með fleipur. En þetta er
þó ekki aðalatriðið. Þessi mótmæli
sem loks tókst að beija saman,
voru hvergi birt opinberlega. Og
hvernig gat ég, og aðrir sem láta
sig velferð og réttindi listamanna
nokkru varða, vitað af þeim? Það
var pukrast með þau. Hætt er við
að laumumótmæli verði vart tekin
alvarlega, enda bera þau keim sýnd-
armennsku.
Oft hafa forystumenn íslenskra
listamanna verið skeleggari en nú
og oft hefur samstaða listamanna
verið meiri. Hjálmari sárnar þetta
enda velviljaður og réttsýnn heið-
ursmaður. En við mig er ekki að
sakast. Það marðist naumur meiri-
hluti í stjórn Bandalagsins til stuðn-
ings mótmælum, sem ekki mátti
birta. Þessir skrifuðu undir mót-
mælin:
Hjálmar H. Ragnarsson formað-
ur Tónskáldafélags íslands, Einar
Kárason formaður Rithöfundasam-
bands íslands, Guðrún Alfreðsdóttir
formaður Félags íslenskra leikara,
Þór Vigfússon formaður Sambands
íslenskra myndlistarmanna, og Ei-
ríkur Thorsteinsson formaður Fé-
lags íslenskra kvikmyndagerðar-
manna.
Og þeir sem ekki skrifuðu undir
af einhverjum ástæðum voru þessir:
Nanna Ólafsdóttir formaður í
Félagi íslenskra listdansara, María
Kristjánsdóttir formaður Félags ís-
lenskra leikstjóra, Pétur Jónasson
fulltrúi Félags íslenskra tónlistar-
manna, og Sigurður Harðarson
formaður Arkitektafélags íslands.
Hvað veldur því að þessir lista-
menn eru óttaslegnir gagnvart
Þjóðleikhúsinu? Hvað er að gerast
þar, sem vekur mönnum þennan
undarlega ótta, og hver rýfur sam-
stöðu listamanna? Menn bregðast
samstarfsmönnum sínum, og reyna
að pota sjálfum sér áfram. Þetta
er umhugsunarefni fyrir Bandalag
íslenskra listamanna.
Ég hef fengið munnlega orðsend-
ingu um að Leikarafélagið hafi birt
mótmæli vegna uppsagnanna. Þau
mótmæli hafa ekki farið hátt, þar
eð ég og fjöldi annarra sem við
mig hafa talað, kannast ekki við
þau. Engu að síður ber að hafa það
sem sannara reynist. í grein minni
lýsti ég furðu minni á því að Leik-
arafélagið skyldi ekki láta í sér
heyra. Þetta er svipað pukur og hjá
Bandalagi íslenskra listamanna.
Bréfi Hjálmars lýkur svo: „... og
því úr lausu lofti gripið hjá þér að
stjórn Bandalagsins hafi látið upp-
sagnirnar afskiptalausar. Sem var-
aforseti Bandalagsins hlýt ég að
taka ásakanir þínar sérstaklega til
mín og mælist ég þess vegna til
þess við þig, að þú notir næsta
tækifæri sem þú hefur á opinberum
vettvangi til þess að draga þær til
baka.“
Atli Heimir Sveinsson
„Hætt er við að laumu-
mótmæli verði vart tek-
in alvarlega, enda bera
þau keim sýndar-
mennsku.“
Af framansögðu er augljóst að
ég stend við allt sem í grein minni
stóð, enda er hún sannleikanum
samkvæm, og rituð í góðri trú.
P.s. Ég birti hér með mótmæiin,
sem pukrast var með. Oft hefur
verið kveðið fastar að orði afminna
tilefni. Hvergi er minnst á ummæli
Stefáns Baidurssonar, sem höfð eru
eftir honum í blöðum, að „öryggið
sé listamönnum hættulegt," að „al-
gjört starfsöryggi sé hættulegt list-
sköpun
Hr. Stefán Baldursson, Þjóðleik-
hússtjóri
Frú Þuríður Pálsdóttir, formaður
Þjóðleikhúsráðs
Hr. Svavar Gestsson, mennta-
málaráðherra.
Reykjavík, 23. apríl 1991
Við undirritaðir stjórnarmenn í
Bandalagi íslenskra listamanna
mótmælum þeim aðferðum sem
beitt hefur verið við uppsagnir leik-
húslistafólks við Þjóðleikhúsið. Það
er eðlilegt að Þjóðleikhúsið hagi svo
stefnu sinni, að það eigi hveiju sinni
aðgang að sem breiðustum hópi
listafólks. Hins verður að gæta, að
öll fyrirtæki og stofnanir hafa
skyldum að gegna við starfsmenn
sína og það er ekki sæmandi að
láta nýjar stjómunaraðferðir birtast
í fyrirvaralausum brottrekstri fólks
sem sinnt hefur störfum sínum af
trúmennsku árum eða jafnvel ára-
tugum saman. Við teljum að Þjóð-
leikhúsið hafi brugðist þessu starfs-
fólki sínu og að starfsheiður þess
hafi verið fyrir borð borinn.
Virðingarfyllst
Hjálmar H. Ragnarsson, varafor-
seti og formaður Tónskáldafélags
íslands, Einar Kárason, ritari og
foimaður Rithöfundasambands ís-
lands, Guðrún Alfreðsdóttir, gjald-
keri og formaður Félags íslenskra
leikara, Þór Vigfússon, formaður
Sambands íslenskra myndlistar-
manna, Eiríkur Thorsteinsson,
formaður Félags kvikmyndagerðar-
manna.
Afrit send: Eddu Þórarinsdóttur,
Hákoni Waage, Helgu Jónsdóttur,
Jóni Símoni Gunnarssyni, Lilju Þór-
isdóttur, Þórunni Magneu Magnús-
dóttur, Benedikt Árnasyni, Brynju
Benediktsdóttur og Agnesi Löve.
Höfundur er tónskáld.
Gleymdar styijaldir
eftir Önnu Þrúði
Þorkelsdóttur
Undanfarið hefur athygli heims-
ins beinst nær óskipt að þeim hörm-
ungum sem gengið hafa yfir minni-
hlutahópa í Irak í kjölfar stríðsins
um Kúveit. Aðrir atburðir hafa fall-
ið í skuggann. Þau 36 stríð sem
enn geisa á ýmsum stöðum í veröld-
inni þykja ekki jafn fréttnæm og
nýjasta stríðið. Þær fréttir sem ber-
ast af ömurlegu hlutskipti Kúrda
vekja djúpa samúð, undrun og hryll-
ing. Þetta ógæfusama fólk er dæmi
um þau örlög sem milljónir manna
mega búa við, Kúrdar eru fjarri því
eina þjóðin sem þjáist vegna hern-
aðarátaka.
Rauði krossinn og Rauði hálf-
máninn eru nú að koma upp vernd-
uðum flóttamannabúðum í skjóli
bandaríska hersins. Flóttamanna-
búðir geta aldrei orðið annað en
bráðabirgðalausn. Líf þessa fólks
hefur verið lagt í rúst um langa
framtíð en flóttafólkið í fjallahéruð-
um íraks, Tyrklands og írans er
aðeins hluti af miklu stærri hóp
manna sem þjáist vegna afleiðinga
styijalda. Nefna má t.d. þjóð sem
búið hefur við ótrúlegar stríðshörm-
ungar í sama heimshluta og Kúrd-
ar, en þar er átt við þær milljónir
manna sem þjáðst hafa vegna
stríðsins í Afganistan. Styijöld hef-
ur geisað í Afganistan frá árinu
1978 og stendur enn, enda þótt
Sovétmenn hafi dregið her sinn til
baka. Skæruliðar og hermenn
stjórnarinnar eiga í hörðum hemað-
arátökum, og flugskeyta- og fall-
byssuárásum á þorp og bæi hefur
farið fjölgandi í seinni tíð, einkum
í nágrenni Kabúl. Frá upphafí
stríðsins í Afganistan hefur hátt á
aðra milljón manns látið lífið í bein-
um stríðsátökum, um 90 af hundr-
aði óbreyttir borgarar, konur og
börn. Að auki hefur stríðið gert
álíka fjölda fólks líkamlega fatlað
og jafnvel örkumla, stór hluti þeirra
eru börn.
Af tæplega 20 milljónum íbúa í
SÓL ÚR
SORTA
Alheimsátak
til hjálpar stríðshrjáðum
Afganistan hafa um 10 milljónir
orðið bein eða óbein fórnarlömb
átakanna. Hátt í sex milljónir flúðu
land, flestir til Pakistan, um 2 millj-
ónir flosnuðu upp frá heimili sínu
og eru á vergangi innanlands við
enn verri kjör en flóttafólkið í Pak-
istan. Þá eru ekki taldar aðrar þær
hörmungar sem stríðið hefur haft
í för með sér, hungur, vosbúð, sjúk-
dóma, andlega og líkamlega. Rauða
kross félög í yfir hundrað löndum
gangast nú fyrir því að vekja at-
hygli heimsins á þessum staðreynd-
um og safna fé til þess að rétta
fórnarlömbum styijalda hjálpar-
hönd. Á íslandi hefur átakið fengið
nafnið „Sól úr sorta“.
Hinn 12. maí nk. munu sjálfboða-
liðar á vegum Rauða kross íslands
leita eftir framlögum til hjálpar
stríðshijáðum: Söfnunarfénu verð-
ur varið á tvennan hátt: í fyrsta
Anna Þrúður Þorkelsdóttir
lagi stuðningur við nýja stoðtækja-
verksmiðju í Kabúl í Afganistan
sem gefa mun fjölda þeirra sem
fatlast af völdum stríðsins mögu-
leika á betra lífi. I öðru lagi aðstoð
við Kúrda sem að hörmungar und-
anfarinna vikna og reyndar ára
hafa ekki látið samvisku nokkurs
manns ósnortna. Ein af afleiðingum
stríðs eru limlestingar og dauði
fólks sem stígur á jarðsprengju, en
stór svæði í Afganistan og við land-
amæri íraks eru lögð jarðsprengj-
um. Börn og unglingar kunna síst
að varast þessa hættu að bíða þess
aldrei bætur.
Síðustu tvö árin hefur Rauði
krossinn rekið lítið gervilimaverk-
stæði í Kabúl. Þar hafa um 70 afg-
anskir lærlingar lært nýjustu að-
ferðir við smíði gervilima úr þeim
bestu efnum sem tiltæk eru. Þar
er nú 2.700 á biðlista. Þörfin er
átakanlega mikil. Nýja stoðtækja-
verksmiðjan sem ætlunin er að opna
í sumai- mun gjörbreyta allri að-
stöðu. í sjónmáli er að unnt verði
að fullngæja eftirspurn eftir stoð-
tækjum til ómælanlegra hagsbóta
fyrir það fólk sem t.d. hefur misst
hendur eða fætur og á sér enga von
um betra líf án gervilima. Aðstoð-
inni við Kúrda verður einkum varið
til þess að lina þjáningar flóttafólks-
ins og munu þá konur, börn, gamal-
menni, sjúkir, fatlaðir og almennt
hrjáðir Kúrdar njóta góðs af fram-
lagi okkar Islendinga sem verður
varið í samráði við önnur félög
Rauða krossins og Rauða hálfmán-
ans. Þetta eru þau verkefni sem
þú, lesandi góður, og aðrir íslend-
ingar eru beðnir að styrkja í söfnun-
inni 12. maí.
Mannkynið hefur ekki enn lært
af reynslunni, þeirri reynslu að stríð
getur í raun enginn unnið en svo
ótalmargir tapað og þeir sem síst
skyldu átt um sárt að binda.
Góðir íslendingar, leggjum dæg-
urþras til hliðar og þökkum forsjón-
inni fyrir hversu lítill vandi okkar
daglega lífs er miðað við svo marga
aðra. Sýnum samhug og hjálpsemi
í verki. Þitt framlag hversu smátt
sem er mun nýtast til góðra verka.
Höfundur er forstöðumuður
félagsstarfs Reykja víkurborgar
og varaformaður Rauða kross
Islands.
Flóttamenn frá Irak búa við miklar þrengingar. Helmingur söfnunarfjár í landssöfnun Rauða krossins
12. maí rennur til flóttamanna frá Kúrdistan. Hinn helmingurinn rennur til þróunarverkefnis I Afganistan.