Morgunblaðið - 11.05.1991, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1991
59
KNATTSPYRNA/ U-16ARA LANDSLIÐIÐ
Guðmundur
fráíátta
til tólf
mánuði
Guðmundur Benediktsson úr
Þór frá Akureyri leikur
ekki knattspyrnu næstu mán-
uði. Hann meiddist í leiknum
gegn Júgóslövum og í ljós kom
að krossbönd í hné voru slitin.
Guðmundur fór með föður
sínum til Ekeren í Belgíu í fyrra-
dag og einn þekktasti skurð-
læknir Belga, sem hefur m.a.
skorið upp Ruud Gullit og Arnór
Guðjohnsen, fær hann til með-
ferðar á mánudag. Sveinn
Sveinsson, fararstjóri íslenska
liðsins, sagði eftir læknum ytra
að aðeins hefði verið tímaspurs-
mál hvenær krossböndin færu.
Hann sagði einnig að Stuttg-
art og Ekeren hefðu verið tilbú-
in að gera samning við Guð-
mund, en af því yrði ekki. Eker-
en hefði hins vegar boðist til að
aðstoða Guðmund án allra
skuldbindinga.
ÚRSLIT
Knattspyrna
REYKJAVÍKURMÓTIÐ
Leikur um 7. sætið:
Fram - Ármann..............7:1
Jön Erling Ragnarsson 3, Baldur Bjama-
son, Steinar Guðgeirsson, Rikharður Daða-
son, Pétur Arnþórsson - Stefán Stefánsson.
Undanúrslit:
Víkingur - Valur...........1:2
AUi Helgason - Jón Grétar Jónsson 2.
Körfubolti
nba-deildin
Urslitakeppni, þrjá sigra þarf til að komast
áfram:
Golden State - LA Lakers.........125:124
(Staðan er jöfn, 1:1)
Boston Celtics - Detroit Pistons..109:103
(Staðan er jöfn, 1:1)
Portland - Utah Jazz.............118:116
(Portland er yfir 2-0)
FELAGSLIF
Valur 80 ára
Valsmenn halda upp á 80 ára
afmæli Knattspyrnufélagsins
Vals að Hlíðarenda í dag. Þeir bjóða
öllum félagsmönnum og velunurum
á félagssvæði sitt, en Sögu- og
minjarsýning verður opnuð í félags-
heimilinu kl. 15 og kl. 15.30 verður
afmæliskaffi. Jóhannes Bergsteins-
son verður þá útnefndur heiðursfé-
lagi Vals. Valsmenn hafa samþykkt
nýtt glæsilegt skipulag á félags-
svæði sínu og geta félagsmenn séð
framtíðarsvæði félagsins á sögu-
sýningunni.
Amælishátíð Vals verður síðan f
kvöld á Hótel Sögu.
Sjá nánar á bls. 20
Spánvevjamir
vom of sterkir
ÍSLENSKA drengjalandsliðið
náði ekki að fylgja 2:1 sigri
gegn jaf nöldrunum frá Júgó-
slavíu eftir og tapaði 2:1 fyrir
spænska liðinu í úrslitakeppni
Evrópumótsins í gær.
Spánveijar sóttu stíft í fyrri
hálfleik og skoruðu á 35.
mínútu eftir aukaspymu. Á síðustu
mínútu hálfleiksins fengu íslend-
ingar eina markfæri sitt, en gott
skot Jóhanns Steinarssonar smaug
rétt framhjá stöng.
íslendingar komust meira inn í
—
Árni G. Arason hefur leikið vel í
markinu. Þau mistök urðu að mynda-
brengl var hér á síðunni á fimmtudag-
inn. Hér er rétt mynd, en á fimmtudag-
inn var mynd af Jóhanni Steinarssyni.
Gengið hefur verið frá niðurröð-
un leikja í B-keppninni í Aust-
urríki 19. til 29. mars á næsta ári.
Leikir A-riðils, sem ísland er í, fara
fram í Linz og mætir ísland fyrst
HoIIandi, en síðan Belgíu og loks
Noregi.
ísland og Holland leika fimmtu-
daginn 19. mars. Laugardaginn 21.
mars verður spilað við Belgíu og
daginn eftir við Noreg.
leikinn eftir hlé, en sköpuðu sér
engin umtalsverð færi. Það gerðu
Spánveijar hins vegar og þeir skor-
uðu annað laglegt mark á 57.
mínútu.
Á 72. fékk Þorvaldur Ásgeirsson
að líta rauða spjaldið. Hann lenti í
samstuði við mótheija og íslending-
um var dæmdur boltinn, en Þorvald-
ur sætti sig ekki við málalok og
brást ekki rétt við að sögn Sveins
Sveinssonar, fararstjóra. Hann
hafði fengið gula spjaldið fyrr í
leiknum.
—
Sigurbjörn Hreiðarsson úr Val
skoraði mark íslenska liðsins gegn
Spánveijum.
Þijú efstu liðin fara áfram í milli-
riðil með þremur efstu liðum úr
B-riðli, en þar leika Danmörk,
Pólland, ísrael og Afríkuþjóð. Leik-
irnir fara fram í Innsbruck þriðju-
daginn 24. mars, fimmtudaginn 26.
mars og föstudaginn 27. mars.
Leikir um sæti verða síðan í Vín
og Bad Vöslau sunnudaginn 29.
mars.
Sigurbjörn Hreiðarsson, sem
kom inná sem varamaður og var
yngsti maður vallarins, minnkaði
muninn á 80. mínútu, sótti upp
hægri kantinn og skoraði laglega
framhjá markverðinum í hornið
nær.
Sveinn sagði að Árni Arason,
markvörður, hefði verið besti maður
íslenska liðsins. Einar Árnason stóð
sig vel í miðvarðarstöðunni og
Hrafnkell Kristjánsson var góður á
miðjunni.
Sovétmenn unnu Júgóslava 3:1
eftir að hafa verið 1:0 undir og
bendir því allt til að Spánverjar fari
í fjögurra liða úrslit. Sveinn taldi
reyndar að þeir myndu fara alla
leið, því þeir hefðu mjög sterku liði
á að skipa enda ieikmennirnir á
samningi hjá þekktum spænskum
liðum.
Tveir í banni
ísland mætir Sovétríkjunum á
morgun og verða tveir menn í
banni. Orri Þórðarson fékk gult
spjald í gær og hafði fengið annað
í forkeppninni og _Þorvaldur Ás-
geirsson tekur út bann vegna rauða
spjaldsins. Þá er Guðmundur Bene-
diktsson farinn, þannig að vara-
mennirnir verða aðeins tveir og
annar á við meiðsl að stríða.
HANDBOLTI
EMJieyrnarlausra:
ísland
leikur um
gullið
EVRÓPUMEISTARAMÓT
heyrnarlausra íhandknattleik
stendur nú yfir í Lúbeck í
Þýskalandi. íslenska liðinu hef-
ur gengið mjög vel, sigraði alla
mótherjana ■ riðlakeppninni og
leikur gegn Þjóðverjum um
Evrópumeistaratitlinn i dag.
jr
Íslendingar byijuðu á því að vinna
heims- og Evrópumeistara Svía
17:11 eftir að hafa verið 9:3 yfir í
hálfleik. Næst var leikið gegn Rúm-
enum og unnu íslendingar 21:16
(9:6). í gær tryggðu þeir sér síðan
keppni um guliið með 20:17 sigri
gegn ítölum.
Islensku strákarnir hafa staðið
sig mjög vel og sérstaklega hefur
Trausti Jóhannesson verið traustur,
varði m.a. 20 skot gegn Svíum og
17 skot gegn Rúmenum.
HANDKNATTLEIKUR
B-keppnin íAusturríki:
Fyrst leikid gegn
Hollendingum
KNATTSPYRNA
HM undir þaki 1994?
ÞRJÁR borgir, sem hafa sent
inn umsóknir um að leikir í
heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu íBandaríkjunum
1994, ætla að láta leika innan-
húss, eða á völlum sem eru
yfirbyggðir. Borgirnar eru
Houston, New Orleans og
Detroit. Ef FIFA samþykkir
þetta verður það í fyrsta
skipti í sögunni sem knatt-
spyrnumenn leika listir sínar
undirþakiíHM.
Orðrómurinn um að allt sé svo
stórt í Taxes sannast þarna,
þv( að Houston er í Taxes. Höllin
þar, Astrodome, tekur 62.000
áhorfendur í sæti, Superdome í
New Orleans tekur 69.000 og
Pontiac Silverdom tekur 80.000
áhorfendur í sæti.
Allir þessir vellir hafa gervi-
gras, en Bandaríkjamenn telja
ekkert vandamál að tyrfa vellina.
Spurningin er aðeins hvað lengi
er hægt að halda grasinu lifandi
innanhúss.
Þijár borgir hafa sóst eftir að
sjá um úrslitaleikinn í HM. Það
eru Miami með Joe Robbie-leik-
völlinn, sem tekur 76.000 áhorf-
endur, Los Angeles með Memorial
Coliseum, sem tekur 92.000
áhorfendur og Pasadena með
Rosa Bowl, sem tekur 104.000
áhorfendur, en þar fór fram úr-
slitaleikurinn í knattspymu á
Ólympíuleikunum 1984.
Nú er spurningin; Fer heims-
meistarakeppnin í knattspyrnu
1994 undir þak?
Mm
FOLX
■ RUUD Gullit meiddist enn einu
sinni og þarf að gangast undir
fjórða uppskurðinn á liðlega tveim-
ur árum á sama hnénu. Hollenski
landsliðsmaðurinn meiddist fyrst í
leik AC Milan gegn Real Madríd
í undanúrslitum Evrópukeppninnar
vorið 1989.
■ MÖRG belgísk knattspyrnufé-
lög verða að leika fyrir luktum dyr-
um í haust, fari þau ekki eftir fyrir-
mælum og geri ráðstafanir varð* —■
andi öryggi á leikvöngunum fyrir
lok september.
■ ROMARIOvar með þrennu fyr-
ir PSV Eindhoven í 3:3 jafntefli
gegn Maastricht á fimmtudag.
Ajax er aðeins tveimur stigum á
eftir PSV í hollensku deildinni og
á leik til góða.
■ HUGO Sanchez er ekki lengur
á leikmannalista Real Madríd.
Hann var tekinn af honum, svo lið-
ið gæti teflt fram argentíska leik-
manninum Juan Esnaider,
spænsk lið mega aðeins vera með
þijá erlenda leikmenn. Fyrir eru
Spasic og Hagi.
■ NÆR allir dómarar í 1. og 2.
deild 'aSpáni verða í verkfalli um
helgina vegna þess að einn þeirra
var dæmdur í sex vikna bann fyrir
að neita að dæma leik hjá Atletícó
Madríd. Jesus Gil, formaður Atlét-
ícó, fann dómurum allt til foráttu,
sagði þá dæma með Real Madríd
og Barcelona og dómarar sættu
sig ekki við þessi ummæli.
■ JOHAN Cruyff hvetur Spán-
verja tii að hætta að reykja í ný-
gerðri sjónvarpsauglýsingu. „Ég er
Johan Cruyff. í lífinu hef ég fall-
ið fyrir tvennu, reykingum ogr-~
knattspyrnu. Knattspyrnan hef-
ur gefið mér allt, en reykingarn-
ar voru að taka allt frá mér,“
segir þjálfari Barcelona í auglýs-
ingunni og sparkar síðan sígarettu-
pakka í burtu. Hann sagði að lækn-
ar hefðu sagt sér að héldi hann
áfram að reykja ætti hann skammt
eftir. Cruyff sagðist hafa reykt til
að róa taugarnar, en reykingarnar
hefðu í raun ekki breytt neinu.
■ RANDY Barnes, heimsmethafi
í kúluvarpi (23,12m), hefur gert
samning við bandaríska ruðnings-
liðið San Francisco 49ers. Barnes
féll á lyfjaprófi í fyrra og var dæmd-
ur í tveggja ára bann af alþjóða
fijálsiþróttasambandinu. •*
■ MARK Spitz gengur illa að
endurheimta forna frægð í sundinu.
Spitz, sem er 41 árs og vann til
sjö gullverðlauna á Óiympíuleik-
unum í Miinchen 1972, hefur ekki
náð að sigra á þremur mótum, sem
hann hefur tekið þátt í að undanf-
örnu, og varð síðastur í 100 m flug-
sundi á fimmtudag, synti á 58,77,
nær fjórum sekúndum á eftir sigur-
vegaranum. Hann verður að vera
undir 55.59 sek. til að fá að taka
þátt í úrtökumóti fyrir næstu
Ólympíuleika. m
FELAGSLIF
Afmælishátíð Týs
Knattspyrnufélagið Týr f Vest-
mannaeyjum heldur upp á 70 ára
afmæli félagsins í nýja íþróttahús-
inu í kvöld. Húsið verður opnað
klukkan 19, en borðhald hefst
klukkan 20.