Morgunblaðið - 24.04.1993, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.04.1993, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 1993 Hugmynd um breytta réttarstöðu Pósts og síma kynnt félögum starfsfólks Ýmsir endar lausir varð- andi starfsmannamálin Hræðsla og öryggisleysi FORMAÐUR Félags símamanna segist finna fyrir hræðslu og öryggisleysi hjá starfsfólki Pósts og síma vegna einkavæðingar- áforma. HUGMYNDIR um breytta réttarstöðu Pósts og síma hafa enn ekki verið ræddar á almennum félagafundum í fjórum starfsmannafélög- um fyrirtækisins. Þær hafa hins vegar verið kynntar fyrir talsmönnum félag- anna og sýnist sitt hverjum um ágæti þeirra. Þannig er Ragnhildur Guðmunds- dóttir, formaður Félags ís- lenskra símamanna, stærsta starfsmannafé- lagsins, á móti fyrirhuguð- um áformum en Guðjón Jónsson, formaður Félags háskólamenntaðra starfs- manna Pósts og sima, seg- ist í aðalatriðum hlynntur breytingunni. Þá kemur fram, í samtölum við full- trúana, að ýmsir endar virðist lausir varðandi starfsmannamál, t.d. kjara- samninga. Ómótuð heildarafstaða Guðjón Jónsson, formaður Fé- lags háskólamenntaðra starfs- manna Pósts og síma, segir að félagið hafi ekki sem heild mótað afstöðu sína til einkavæðingar fyr- irtækisins. Hins vegar hafí stjóm þess ákveðna skoðun á málinu. „Hún er á þá leið að við emm í aðalatriðum hlynntir þessum til- lögum. Við teljum að með þeim verði hið nýja fyrirtæki hæfara í samkeppni og á það fyrst og fremst við um EES. Þar em ýms- ar leikreglur sem kæmu til með að gilda um okkur eins og aðra í svona starfsemi. Hins vegar er margt að því sem lítur að starfs- mannamálum, kjarasamningum og öðm slíku, frekar óljóst enda má segja að þeir hafi viðurkennt, á fundi með starfsmannafélögun- um, að þeir þættir væm ekki full- mótaðir en þar em líka góðir punktar eins og að gert er ráð fyrir að starfsmönnum verði boðn- ar sambærilegar stöður og þeir gegndu áður og starfsmenn geta haldið áfram að greiða í lífeyris- sjóð rikisstarfsmanna," sagði Guð- jón. Hann sagði að stefnt væri að því að halda fljótlega félagsfund um málið. Ekki á móti hugmyndinni Erlingur Tómasson, talsmaður starfsmanna Pósts og síma í Raf- iðnaðarsambandinu, sagði að þessi hópur gæti í sjálfu sér alveg hugs- að sér breytt rekstrarform fyrir- tækisins svo fremi sem félaga- frelsi starfsmanna yrði virt og engar breytingar yrðu gerðar sem skertu kjör og atvinnuöryggi starfsmanna. „Okkur finnast hins vegar rök ráðherra fyrir breyting- unni ekki fullnægjandi. Hann hef- ur aðallega talað um tvennt, að þetta muni flýta ákvarðanatöku og eins að þetta muni gera Póst og síma hæfari í samkeppni. Við sjáum í raun og veru ekki annað en að hægt sé að leysa þessar hugmyndir við núverandi skipu- lag. Við sjáum líka ýmsa galla á þessum drögum t.d. er í 16. grein þess talað um að ráðherra hafi í raun og veru sjálfdæmi um hvetj- ir eigi að vinna í vinnudeilu. Það er hlutur sem auðvitað gengur ekki upp. í öðru lagi er ekkert fjallað um kjarasamningagerð í þessum drögum þannig að þau eru mjög ófullkomin," sagði Erlingur og bætti við að hann liti svo á að aðeins væri um frumdrög að ræða sem ættu eftir að taka miklum breytingum. Hann sagði að hugmyndir fé- lagsmannanna sem eru í ASí yrðu kynntar á aðalfundi þeirra 3. maí. Starfsmenn kvíðnir Lea Þórarinsdóttir, formaður Póstmannafélagsins, sagði að af- staða þess yrði mótuð á félags- fundi á þriðjudag. Sjálf sagðist hún vera gagnrýnin á ýmsa þætti eftir að hafa skoðað drögin. „En við viljum vera með í umræðunni og komum til með að óska eftir fundum um frekar útfærslu hug- myndanna. Annars sé ég ekki, Halldór sagðist vera hlynntur breytingum á rekstri stofnunar- innar. Breytingar væru nauðsyn- legar ef Póstur og sími ætti að geta brugðist við aðstæðum á markaði og aukinni þjónustu. „Stofnunin þarf að vera frjálsari um sinn rekstur," sagði hann. „Ég tel öryggið meira í starfseminni og í takt við tímann ef hægt er að bregðast fljótt við og taka ákvarðanir. Ég þykist vita að ákvörðun um verðlagningu hafí til dæmis oft verið tekin af stjórn- málamönnum í stundarpólitík en ekki með hagsmuni fyrirtækisins í huga.“ Sala ákveðin síðar Nefndin leggur meðal annars til að félagið Póstur og sími hf. taki til starfa um mitt ár 1994 og að eftir þijú ár eða síðar taki eins og er, tilganginn með þessu. Ég sé t.d. ekki að starfsöryggi sé betur borgið á almenna markaðin- um heldur eins og skipulagið er núna. Engu að síður erum við opin fyrir hugmyndum sem leiða til góðs, bæði fyrir þjónustuna og starfsfólkið," sagði Lea. Hún sagðist hafa fengið tals- verð viðbrögð frá félagsmönnum eftir fundinn á miðvikudaginn. „Þar kom fram að starfsmenn væru ansi kvíðnir fyrir þessum breytingum og að þeir óttuðumst um sinn hag. Og mér finnst auðvit- að númer eitt að starfsmenn missi í engu af sínum rétti, hvorki launa- eða réttindalega séð. En það hefur Alþingi um það sérstaka ákvörðun hvort og þá hvenær hlutabréf fé- lagsins verði seld. Gert er ráð fyr- ir að ríkisvaldið setji félaginu al- mennar skorður, einkum að því ér varðar eignarrétt og sam- keppni. Starfsemi Pósts og síma hf., verði yfírleitt háð ákvæðum laga um hlutafélög með nokkrum undantekningum. Félagið greiði skatta eftir almennum reglum um slík félög og arð til hluthafa á hliðstæðan hátt ogtíðkast hjá alm- enum atvinnufyrirtækjum. Félagið hafi einkaleyfi Lagt er til að ráðherra veiti félaginu einkaleyfi á tilteknum sviðum til þeirra starfsemi sem af verkefnum þess leiðir, saman- ber fjarskiptalög.’ Félaginu verði óheimilt að nota hagnað af við- skiptum sem það hefur einkaleyfi sýnt sig erlendis að reynslan af þessu er misjöfn og ekki alltaf mjög góð.“ Fátítt meðal þróaðra rílga Ragnhildur Guðmundsdóttir, formaður Félags íslenskra síma- manna, sagðist ekki vera búin að kynna drög að frumvarpinu fyrir starfsmönnum í félaginu en hún fyndi fyrir hræðslu og óöryggi gagnvart því meðal þeirra. Hún sagði að breytingar af þessu tagi hefðu. á sér margar hliðar og vísaði í máli sínu til fyrir- lestrar ritara alþjóða símasamtak- anna á íslandi síðastliðið vor. Hefði þar m.a. vakið athygli að einkavæðing símaþjónustu væri fremur fátíð meðal hinna þróaðri ríkja en algengari í vanþróuðum ríkjum. Ragnhildur vék að hugmynda- fræði einkavæðingar og tók fram að ólíkt viðskiptum með hluti væri hér verið að möndla við slagæð þjóðarinnar og þeir einu sem högn- uðust yrðu hluthafar og yfirmenn í fyrirtækinu. Hins vegar myndu gjöld almennings hækka og eflaust kæmi í hans hlut að greiða í ríkissjóð þann mismun sem hlyt- ist af því að Póstur og sími yrði einkavæddur og greiðslur fyrir- tækisins í sjóðinn minnkuðu. Enn- fremur hefði einkavæðing í för með sér atvinnuleysi. Síðast en ekki síst sagði Ragn- hildur að starfsmenn fyrirtækisins myndu missa ýmis kjaraleg rétt- indi og ekki væri hægt að ganga að því vísu að launin hækkuðu. Aðspurð sagði Ragnhildur að fyr- irtækið væri afar vel rekið og hefði alla burði til að standast samkeppni vegna EES samnings- ins. á til þess að greiða niður verð á þeim tækjum og þjónustu sem það selur í samkeppni við aðra. Félag- inu verði skylt að halda uppi ör- yggisþjónustu og að starfsmönn- um sem annast hana verður óheimilt að taka þátt í verkföllum» Þá segir að stjórn félagsins ákveði gjaldskrá þess en verðlagn- ing á póst- og símaþjónustu innan- lands, sem háð. er einkaleyfi, sé háð samþykki ráðherra. Fastráðn- um starfsmönnum verður boðið að gegna áfram störfum eða hlið- stæðum hjá félaginu og þeim gefst kostur á að greiða áfram í Lífeyris- sjóð starfsmanna ríkisins, ef þeir kjósa svo. Greinargerðin kynnt Greinargerðin hefur verið kynnt alþingismönnum og starfsmönn- um stofnunarinnar og hefur Félag íslenskra símamanna þegar lýst sig andvígt tillögum nefndarinnar. Þrjú önnur félög starfa innan stofnunarinnar, Félag háskóla- menntaðra starfsmanna Pósts og síma og er stjórn félagsins hlynnt brej'tingu í hlutafélag. Póst- mannafélagið sem er fjölmennast og F’élag rafeindavirkja hafa ekki látið skoðun sína í ljós. Breytingar á réttarstöðu Pósts og síma Hlutafélag taki til starfa árið 1994 GREINARGERÐ um breytingar á réttarstöðu Pósts og síma hefur verið kynnt í ríkisstjórninni en þar hefur ekki verið tekin efnislega afstaða til hennar enn sem komið er. Lagt er til að hlutafélag í eigu ríkisins verði stofnað um rekstur Pósts og síma. Halldór Blöndal sam- gönguráðherra gerir ráð fyrir að næsta skref verði að stjórnarflokkarnir skipi samstarfsnefnd er móti tillögur um framhaldið en gert er ráð fyrir að fyrirtækið taki til starfa á miðju ári 1994. Tónleikar í tilefni ald- arafmælis Þórðar Kristleifs- sonar Hvannatúni í Andakíl. TÓNLISTARFÉLAG Borg- arfjarðar hélt nýlega afmæl- isdagskrá í Borgarneskirkju til heiðurs Þórði Kristleifs- syni sem var 100 ára 31. mars sl. Karlakórinn Söngbræður undir stjórn Sigurðar Guðmundssonar og við undirleiks Ingibjargar Þor- steinsdóttur söng lög sem öll voru á einhvem hátt tengd Þórði og Davíð Magnússon og Margrét Guð- jónsdóttir lásu samantekt Þor- steins Þorsteinssonar um hann milli söngatriða. Þessi lestur var einkar fróður og tengdi saman æviatriði Þórðar og sönglög. Ingi- björg lék einnig undir við söng Theodóru Þorsteinsdóttur, sópran, og stjórnaði Kveldúlfskórnum í Borgamesi. Þakklátir áheyrendur Kirkjan var þéttskipuð þakklát- um áheyrendum og bar öllum sam- an um að dagskráin hafi að öllu leyti tekist vel og skilað sér vel í nýuppgerðri kirkjunni. Tónleikarnir verða endurteknir í Bústaðakirkju í dag, laugardag- inn 24. apríl, kl. 16.00. D.J. Björn Guðmundsson Björn Guð- mundsson kaupmað- ur látinn LÁTINN er í Reykjavík Björn Guðmundsson, kaup- maður í versluninni Brynju á Laugavegi 29, 80 ára að aldri. HANN var fæddur að Neðra-Núpi í Miðfírði 22. nóv. 1912. Bjöm flutt- ist til Reykjavíkur í kringum 1920 og byijaði snemma að vinna í Brynju, fyrst sem sendisveinn. Seinna varð hann meðeigandi að versluninni en keypti hana einn 1954 og starfaði þar til dauðadags. Bjöm vann mikið að félagsmái- um og var m.a. í Oddfellowregl- unni, Gideonfélaginu og Kaup- mannasamtökum Islands, þar sem hann var formaður búsáhalda- og jámvömkaupmanna um árabil. Þá starfaði Björn einnig í hverfasam- tökum Sjálfstæðisflokksins. Björn Guðmundsson kvæntist Guðrúnu Úlfarsdóttur en þau skildu. Hann lætur eftir sig tvö uppkomin böm.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.