Morgunblaðið - 30.07.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1993
21
Bandarísk fyrírtækí á
móti refsiaðgerðum
Ósló, Kaupmannahöfn. Frá Jan Gunnar Furuly og Sigrúnu Davíðsdóttur, frcttariturum Morgunblaðsins.
YFIR tuttugu af stærstu fyrir-
tækjum í hergagnaiðnaði í
Bandarikjunum hafa beðið Bill
Clinton forseta að fyrirskipa
ekki efnahagslegar refsiaðgerðir
gegn Norðmðnnum vegna
hrefnuveiðanna. Kemur þetta
fram í bréfi fyrirtækjanna til
viðskiptaráðherra Clintons fyrir
skömmu. „Þetta er óyggjandi
sönnun þess að ákafar tilraunir
norskra hagsmunaaðila til að
hafa áhrif á bandarísk stjórnvöld
og almenningsálit hafa borið
árangur," segir Ingvard Havnen,
fjölmiðlafulltrúi í norska utan-
ríkisráðuneytinu.
Hópur bandarískra þingmanna
lýsti nýlega yfir stuðningi við sjón-
armið Norðmanna og gagnrýndi
stjórn Qlintons fyrir að hundsa nið-
urstöður vísindamanna sem telja
hrefnustofnana þola veiðar.
Trond Bjorndal, prófessor við
verslunarháskóla Noregs, hefur á
vegum utanríkisráðuneytisins
kannað hvort hætta sé á því að
áróður hvalverndunarsinna geti
orðið til þess að erlendir viðskipta-
vinir hætti almennt að kaupa norsk-
ar vörur. Niðurstaða hans er sú að
það sé útilokað vegna þess að út-
flutningur Norðmanna sé aðeins að
litlu leyti vörur sem merktar eru
upprunalandinu í bak og fyrir.
„Hægðarleikur yrði að finna nýja
markaði fyrir hráefni á borð við
olíu, gas og físk verði þær hundsað-
ar einhvers staðar," segir Bjorndal.
Deilt um viðskiptatap
Að sögn norska útvarpsins hafa
færri en tíu norsk fyrirtæki orðið
fyrir umtalsverðu sölutapi vegna
aðgerða gegn hvalveiðum. Samtök
Grænfriðunga fullyrða á hinn bóg-
inn að tapið í sumar hafí verið um
3.000 milljónir ísl. króna í Bretlandi
einu, 700 milljónir í Bandaríkjunum
og 2.000 milljónir í Þýskalandi.
Sjötíu þingmenn breska Verka-
mannaflokksins og andstæðingar
hvalveiða hafa skrifað undir áskor-
un um að Lundúnabúar neiti að
taka við norsku jólatréi frá Ósló í
ár. Ósló hefur sent tré árlega frá
1947 og því hefur verið komið fyr-
ir á Trafalgartorgi, í hjarta borgar-
innar. Norsku sjómannasamtökin
hafa farið fram á það við systur-
samtökin á hinum Norðurlöndunum
að þau vinni saman að því að upp-
lýsa fólk um hvalveiðar til að hamla
áróðri hvalvemdunarsinna. Miðstöð
starfsins verður í Noregi.
Niðurstaðah í málinu gegn John Demjanjuk
Vitnisburður búða-
varða réð úrslitum
Jerúsalem. Reuter.
HÆSTIRÉTTUR í ísrael hnekkti í gær einróma dauðadómi undirrétt-
ar yfir John Demjanjuk sem sakaður var um stríðsglæpi í þágu
nasista í seinni heimsstyrjöld. Rétturinn taldi að umtalsverður vafi
hlyti að leika á því hvort Demjanjuk væri fangabúðavörðurinn „ívan
grimmi“ sem stjórnaði gasklefum í Treblinka-búðunum í Póllandi.
Demjanjuk
Demjanjuk,
sem er 73 ára
gamall, fluttist
til Bandaríkj-
anna skömmu
eftir stríð.
Hann var
sviptur banda-
rískum ríkis-
borgararétti
sínum 1986 og
framseldur ísraelum er sannað
þótti að hann hefði leynt því
við komu sína að hann hefði
starfað fyrir nasista. Hann er
Úkraínumaður að uppruna en
breytti fornafninu Ivan í John
vestra.
Demjanjuk hefur ávallt stað-
ið fast á því að honum sé ruglað
saman við annan mann og hafí
enga glæpi drýgt. Sum vitnin telja
að hann hafi unnið í öðrum útrým-
Reuter
Fátt til ráða
JOHN Major fær litlu tauti komið við þenn-
an unga snáða sem vill ekki vera með á
myndinni. Margir embættismenn ráða illa
við allar þær kröfur sem til þeirra eru gerð-
ar, og þá vill syrta í álinn.
setans sjálfs. Bill'Clinton kom til
Washington í því augnamiði að end-
urvekja þá dýrðartíma sem demó-
kratar áttu undir forsæti Kennedys.
En ríkisstjórnin hans Clintons er
fráleitt nokkur Valhöll; vinnubúðir
væri nær lagi. Mörg kosningalof-
orðin hans er ógerlegt að halda,
þannig að starfsfólkið er sífellt að
miðla málum og leita nýrra kosta.
Vinnur þetta 12-14 tíma á dag,
situr einsamalt að hádegisverði við
skrifborðin sín og pantar pítsur í
kvöldmatinn. Aldrei slakað á, engin
undankoma, og þegar syrtir svona
í álinn þá er ekkert gam-
an. Að sögn er mann-
skapurinn að niðurlotum
kominn. Og útlitið er
ekkert að skána.
Sálfræðingar margir
segjast halda að stjóm-
málamenn beggja vegna
Atlantsála séu fastir í
viðjum mistaka, þung-
lyndis og , heilsuleysis.
„Þegar fólki fínnst það
ekki standa sig nógu vel
þá beyglast í því sálin,“
segir Michael Barkham,
sálfræðingur við Sheffi-
eldháskóla. Hann lýsir
því hvernig hallar undan
fæti: „Maður fær ekki
jákvæð viðbrögð sem
eru manni nauðsynleg
til þess að geta unnið
vel. Svo maður leggur
harðar að sér til að halda
í horfinu. Maður einblín-
ir á eigin afkomu og
glatar allri yfirsýn."
Söngiir fuglanna
Daginn eftir að Fost-
er fargaði sér boðaði
Clinton starfsfólk Hvíta
hússins á sinn fund.
„Hann sagði að við
skyldum hlusta á fuglana syngja,
að við mættum aldrei gleyma því
"hvað íjölskyldan og vinirnir væru
mikils virði; að vinnan væri ekki
allt,“ sagði ónefndur starfsmaður.
„Það er ágætt út af fyrir sig, en
það væri betra ef forsetinn gengi á
undan með góðu fordæmi." Þegar
öllu er á botninn hvolft er forsetinn
fráleitt bamanna bestur; situr jafn-
an frameftir við vinnu á skrifstof-
unni sinni og dvelur flestar helgar
í Washington. Fer helst ekki í frí.
Hcimild: The Daily Telegraph.
ingarbúðum nasista, Sobibor, en
vitni, sem komust af í Treblinka,
þóttust samt þekkja kvalara sinn.
Síðar hefur komið í ljós að sak-
bending af þeirra hálfu var illa
skipulögð af yfírvöldum og Demj-
anjuk í óhag. Einnig hafa komið
fram í dagsljósið gögn sem benda
til að „Ivan grimmi" hafí verið
annar Úkraínumaður, ívan
Martsjenko, er hvarf í stríðslok.
Einn af dómurunum sagði að ékki
væri víst að sannleikurinn í málinu
kæmi nokkurn tíma í ljós, svo
langur tími væri liðinn frá um-
ræddum atburðum og vitnum
bæri ekki saman.
Nagandi efasemdir
Nær 900.000 manns voru myrt
í Treblinka, um 250.000 í Sobi-
bor. Eiðsvarinn vitnisburður 37
fyrrverandi varða í Treblinka get-
ur hafa skipt sköpum í málinu.
Verðirnir, sem eru búsettir í ríkj-
um Sovétríkjanna fyrrverandi,
telja að Martjsenko hafí verið sá
seki.
„Þegar við höfðum séð yfírlýs-
ingarnar byijaði efínn að naga
samvisku okkar sem dómara,"
segir í dómsniðurstöðunni. „Ef til
vill var sakborningurinn þrátt fyr-
ir allt ekki Ivan grimmi frá Tre-
blinka“.
Reuter
Samstarf
MORIHIRO
Hosokawa
(t.h.), nýr for-
sætisráðherra
Japans, brosir
hér breitt
ásamt Tsu-
tomu Hata,
formanni End-
urnýjunar-
flokksins.
Hata, sem
hafði verið
orðaður við
embætti for-
sætisráð-
herra, verður
væntanlega
aðstoðarráð-
herra Ho-
ksoSawas.
Alls standa
átta flokkar
að myndun
ríkissljórnar-
innar.
Hosokawa undirbýr
„þriðju byijunina“
Tókýó. Reuter.
MORIHIRO Hosokawa verður næsti forsætisráðherra Japans
og fetar þar í fótspor afa síns. Hosokawa er afkomandi her-
mannaaðalsfjölskyldu (samurai) frá miðöldum og fyrrverandi
fylkissljóri, sem hleypti af stokkunum nýjum flokki, Nýja
flokknum, fyrir tæpu ári og skar upp herör gegn spillingu í
stjórnmálum Japans. Óánægja kjósenda með flekkaða stjórn
Fijálslynda lýðræðisflokksins fleytti Nýja flokknum í oddaað-
stöðu eftir kosningarnar.
Hæglátur og fijálslyndur vill
Hosokawa opinskárri þingmála-
umræðu, aukin réttindi neytenda,
fjölbreyttara menntakerfí, minni
herútgjöld og meira fjármagn til
þróunaraðstoðar og umhverfís-
mála. Hann kallar stefnu sína
„þriðju byrjunina" í sögu landsins,
í kjölfar Meiji-endurreisnarinnar
árið 1868, þegar Japanir losnuðu
úr viðjum sjálfskipaðrar einangr-
unar, og hersetu Bandaríkjanna
1945.
Hosokawa fæddist 14. janúar
1938. Hann var í fimm ár blaða-
maður á stórblaðinu Asahi Shimb-
un. Auk þingsetu var hann í 12
ár fylkisstjóri í Kumamoto-fylki á
eyjunni Kyushu. Þar mátti hann
bíta í margt súrt miðstýringarepli
skrifræðisins. „Maður þarf skrif-
legt leyfí frá Tókýó til þess að
færa strætóstoppistöð í Kuma-
moto tíu metra,“ segir hann, og
fullyrðir að það séu forréttindin
sem skriffinnarnir njóta og við-
skiptasamningamir sem þeir
stýra sem séu þungamiðja spill-
ingarinnar í kostnaðarsömu
stjórnmálakerfí landsins.
Ætt og uppruni
Móðurafi Hosokawas, Fumim-
aro Konoe prins, var forsætisráð-
herra á árunum 1937-39 og
1940-41. Sagnfræðingar margir
telja Konoe hafa verið slappan og
óákveðinn leiðtoga sem hafi ekki
haft stjórn á stríðssinnum; hann
var í forsæti þegar stríðið við
Kínveija braust út og einnig þeg-
ar gengið var frá sáttmálanum
við þýsku nasistana. Hersetulið
Bandamanna ákærði hann fyrir
stríðsglæpi eftir síðari heimsstyij-
öld, en hann tók eitur 16. desem-
ber 1945, daginn sem átti að taka
hann höndum.
Eitt af því sem samstarfsmenn
Hosokawa í nýrri ríkisstjórn hafa
orðið ásáttir um, er að biðjast
opinberlega afsökunar á árásum
Japana á nágranna sína í Asíu á
stríðstímum.
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1984 -1 fl. 01.08.93-01.02.94 kr. 62.271,00
*)lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júlí 1993.
SEÐLABANKI ISLANDS