Morgunblaðið - 30.07.1993, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1993
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1993
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1368 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Uppsögn Zukofskys
Mörgum tónlistarmanninum
hnykkti við, þegar þær
fréttir spurðust, að meirihluti
stjómar Sinfóníuhljómsveitar
æskunnar hefði sagt aðalstjórn-
anda hennar, Paul Zukofsky, upp
störfum. Viðbrögðin eru skiljan-
leg, því Zukofsky hefur verið
umsvifamikill frumkvöðull í ís-
lenzku tónlistarlífi um langt skeið
og telst reyndar stofnandi hljóm-
sveitarinnar.
Framlag Pauls Zukofskys til
íslenzks tónlistarlífs hófst árið
1977 með námskeiðum, sem við
hann voru kennd. Þau voru sótt
af ungum tónlistarmönnum frá
tónlistarskólum um land allt. í lok
námskeiðanna var efnt til tón-
leikahalds, yfirleitt með mjög
metnaðarfullu verkefnavali.
Einn megintilgangur Zuk-
ofskys var að þjálfa ungt tónlistar-
fólk í sinfónískum hljómsveitar-
leik, enda tækifæri engin til þess
í tónlistarskólum landsins. Hann
beitti sér svo fyrir því í tilefni af
ári æskunnar, að stofnuð yrði sin-
fóníuhljómsveit ungs fólks og tók
hún formlega til starfa 1. janúar
1985. Zukofsky hefur frá upphafi
verið aðalhljómsveitarstjóri henn-
ar og listrænn leiðbeinandi.
Hljómsveitin nýtur stuðnings frá
ríki og borg, svo og frá fjölmörg-
um einstaklingum og fyrirtækj-
um.
Paul Zukofsky gerir miklar
kröfur til nemenda sinna og þeir
þurfa að sýna hæfni í hljóðfæra-
leik, vera mjög áhugasamir og
sýna mikla ástundun. Ungu tón-
listarfólki hefur þótt mjög eftir-
sóknarvert að sækja námskeið
Zukofskys og mikill heiður að fá
þar aðgang. Ungir íslenzkir tón-
listarmenn, sem farið hafa til
framhaldsnáms eða starfa erlend-
is, hafa látið svo um mælt, að það
hafi verið þeim ómetanlegt að
njóta leiðsagnar og kennslu Zuk-
ofskys og jafnvel að það hafi ráð-
ið úrslitum um, að þeir hafi verið
gjaldgengir við tónlistarstörf er-
lendis.
Verkefnaval Zukofskys fyrir
Sinfóníuhljómsveit æskunnar hef-
ur verið nokkuð umdeilt, fyrst og
fremst af hálfu tónlistarkennara,
sem hefur þótt hann ætlast til of
mikils af nemendunum. Hann hef-
ur ekki viljað slaka á kröfum sín-
um eða falla frá því að æfð væru
verk, sem sjaldan eru flutt, enda
hefur hljómsveitin iðulega frum-
flutt merk tónverk hér á landi.
Hann kom inn á þetta í viðtali,
sem Morgunblaðið birti við hann
í aprílmánuði 1992, þegar Sinfón-
íuhljómsveit æskunnar flutti 6.
sinfóníu Bruckners. Þar segir
hann aðspurður um áherzluna á
frumflutning:
„Það eru margar ástæður fyrir
því; til að mynda er engin ástæða
til þess að fást við það, sem mað-
ur þekkir þegar. Það er nóg af
fólki, sem fæst alltaf við það sama
aftur og aftur. Nú og svo sé ég
bara enga ástæðu til þess að gera
hiuti sem aðrir eru að gera. Það
er líka örvandi fyrir tónlistarfólkið
að spila verk, sem það veit að
ekki hafa verið spiluð áður. Með
því móti finnst þeim, að þau séu
að leggja eitthvað af mörkum.
Eg veit svo sem, að þeir eru til
sem segja, að maður eigi að spila
það, sem er vinsælt og fólkið vill
heyra, en hvernig á almenningur
að geta dæmt um eitthvað, sem
hann hefur ekki heyrt? Nú, og svo
held ég að það hljóti að vera auð-
velt að útjaska verkum með því
að spila þau æ ofan í æ. Að mínu
mati er leti aðalástæða þess, að
fólkr spilar frekar verk sem það
þekkir frekar en að takast á við
eitthvað nýtt.“
Þessum skoðunum sínum hefur
Paul Zukofsky verið trúr og er
frumflutningur Sinfóníuhljóm-
sveitar æskunnar vorið 1991 á
verki Jóns Leifs, Baldri, með
merkari tónlistarviðburðum hér á
landi. Hann ráðgerði að halda
áfram á sömu braut og hafði
ákveðið, að næstu verkefni hljóm-
sveitarinnar yrðu stórverk Wagn-
ers, Parsifal, svo og Sögusinfónía
Jóns Leifs, sem flutt yrði á Lista-
hátíð.
Áður en stofnandi Sinfóníu-
hljómsveitar æskunnar gæti hrint
þessum áætlunum sínum í fram-
kvæmd barst honum uppsagnar-
og þakkarbréf meirihluta stjórnar
hljómsveitarinnar, fulltrúum tón-
listarskóla og Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands. Hvorki fulltrúi foreldra
í stjórninni né nemenda sátu þenn-
an stjómarfund, sem þó eiga ekki
sízt mikið undir því, að metnaðar-
fullri og listrænni stefnu Zuk-
ofskys verði haldið áfram.
Hér í blaðinu hafa birst skýr-
ingar framkvæmdastjóra og
stjórnarmanna hljómsveitarinnar
á ástæðum uppsagnarinnar. Þar
er ekki að fínna fullnægjandi rök
fyrir uppsögn svo virts tónlistar-
frömuðar og Pauls Zukofskys.
Nauðsynlegt er, að stjórn hljóm-
sveitarinnar skýri mál sitt betur.
Sú gagnrýni hefur beinzt að
Paul Zukofsky, að hann sé einráð-
ur og ósveigjanlegur og krefjist
of mikils af nemendum. Um það
skal ekki dæmt, en varla teljast
það gild rök fyrir brottvísun úr
starfí. Litríkir og skapheitir lista-
menn hafa löngum auðgað tónlist-
arheiminn. Deilur um lengd ráðn-
ingarsamnings eða önnur kjör eru
heldur ekki fullnægjandi rök fyrir
uppsögn manns eins og Zuk-
ofskys. Leiðir hljóta að finnast til
að leysa slík deilumál með samn-
ingum.
Paul Zukofsky sagði í viðtali
við Morgunblaðið eftir að honum
barst uppsagnarbréfið, að hann
vonaði, að augljóst væri, hversu
vænt honum hafí þótt um að
starfa á íslandi. Aðrar kröfur geri
hann ekki en að fá að starfa við
sömu skilyrði og áður.
Þessi ummæli benda til þess,
að enn sé unnt að ná samkomu-
lagi og því er eðlilegt, -að stjóm
Sinfóníuhljómsveitar æskunnar
endurskoði fyrri afstöðu og vinni
að því að ná sáttum.
Rannsókn á skipsflakinu
við Flatey lokið í sumar
LEIÐANGURSMENN í Flatey hafa lokið í sumar rann-
sókn sinni á hollenska kaupfarinu sem sökk 1659 og
mikil úrvinnsla á gögnum bíður til hausts. Þeir hafa nú
snúið sér að öðrum verkefnum, Bjarni F. Einarsson forn-
leifafræðingur að uppgreftri í Aðalstrætinu í Reykjavík
og kafararnir tveir sem fundu flakið, Sævar Arnason
og Erlendur Guðmundsson, eru farnir á nýjar slóðir að
leita að neðansjávarfornminjum.
Hreinsuð var upp átta
metra löng og fjögurra metra
breið ræma þvert yfír skipið
og allir hlutir teknir þaðan
eins og áður hefur komið
fram í Morgunblaðinu. Ræm-
unni var skipt upp í fermetra-
stóra hluta og tók Erlendur
Guðmundsson myndir af öll-
um hlutum ræmunnar til að
hægt yrði að sjá hvernig hún
leit út áður en hún var hreins-
uð. Á myndunum má m.a.
sjá hvernig ýmsir leirmunir,
aðallega diskar, lágu á víð
og dreif á botninum áður en
þeir voru teknir.
Fallegir
diskar
BJARNI F.
Einarsson
fornleifa-
fræðingur
heldur á heil-
legum diski
sem fannst í
flakinu.
Ljósmynd/Tryggvi Þormóðsson
Ljósmynd/Erlendur Guðmundsson
Á víð og dreif í 300 ár
MIKIÐ af leirmunum fannst við flakið í Flatey og voru um 30 kg af
því flutt til Reykjavíkur til frekari rannsókna. Hér sést hvernig mun-
irnir lágu dreifðir um botninn.
Eftir hreinsun
KJÖLURINN var samansettur af ytri byrðingi og innri byrðingi með
böndum á milli og ef vel er að gáð sjást á myndinni níu slík bönd, sem
liggja frá miðju myndarinnar og til vinstri.
Reykvíkingar greiða rúma 25 milljarða króna í opinber gjöld í ár
Flugleiðir og Þorvaldur
Guðmundsson greiða mest
ÁLAGNINGARSKRÁ skattstjórans í Reykjavík
verður lögð fram í dag. Álögð opinber gjöld
eru alls u.þ.b. 25 milljarðar og 360 milljónir
króna (ekki 26 milljarðar og 638 milljónir eins
og fram kemur í fréttatilkynningu skattstjóra-
embættisins). Þar af greiða einstaklingar rúma
16 milljarða og fyrirtæki rúma níu milljarða.
Það fyrirtæki, sem gert er að greiða hæst opin-
ber gjöld, er Flugleiðir hf., sem borga tæpar
217 milljónir. Skatthæsti einstaklingurinn er
hins vegar Þorvaldur Guðmundsson, forstjóri í
Síld og fiski, sem greiðir 39 milljónir í skatta.
Skattskráin mun liggja frammi á Skattstofu
Reykjavíkur 30. júlí til 12. ágúst.
Einstaklingar á skattskrá eru 79.413. Heildar-
álagning opinberra gjalda á einstaklinga eru 20,025
milljarðar króna. Þar af eru 11,6 milljarðar tekju-
skattur, sem 39.507 manns greiða, útsvar er 6,1
milljarður og greitt af 75.955 einstaklingum, eign-
arskattur einn milljarður og greiddur af 22.700
manns, aðstöðugjald 328 milljónir og greitt af 8.003
manns og tryggingagjald 495 milljónir, greitt af
7.159 skattgreiðendum. Auk þessa er lagt á útflutn-
ingsráðsgjald, 4,2 milljónir, iðnlána- og iðnaðar-
málagjald, 17,6 milljónir, skattur af skrifstofu- og
verzlunarhúsnæði, 69,1 milljón, sérstakur eignar-
skattur, 90 milljónir, slysatryggingagjald vegna
heimilisstarfa, 9,6 milljónir, kirkjugarðsgjald, 4,9
milljónir og gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, 165,3
milljónir.
Einstaklingar greiða 16,3 milljarða
Samtals er þetta eins og áður segir 20,025 millj-
arðar. Til frádráttar kemur skattafsláttur til
greiðslu útsvars, eignarskatts og sérstaks eignar-
skatts, barnabótaauki, vaxtabætur, húsnæðisbæt-
ur, niðurfelling aðstöðugjalds og gjaldfærður tekju-
skattur fyrir 1. ágúst, samtals 3,7 milljarðar. End-
anleg álagning á einstaklinga er því 16,3 milljarðar
króna. Auk þess er nú lagður á í fyrsta sinn sér-
stakur tekjuskattur, svokallaður hátekjuskattur, en
hann er ekki reiknaður með í álagningu þessa árs,
þar sem hann er fyrirframgreíddur. Það lendir á
3.491 skattgreiðanda að inna þennan skatt af hendi,
samtals 237,8 milljónir króna.
Þorvaldur greiðir 39 milljónir
Eftirtaldir eru gjaldahæstu skattgreiðendur í
Reykjavík í ár: Þorvaldur Guðmundsson 39.004.714
Háuhlíð 12 Guðmundur Kristinsson 19.361.463
Brekkuseli 31 Skúli Þorvaldsson 18.802.886
Bergstaðastræti 77 Skúli Jóhannsson 17.688.566
Bankastræti 11 Jón I. Júlíusson 17.553.629
Austurgerði 12 Ingimundur Ingimundarson 15.128.563
Eikjuvogi 6 Gunnlaugur Guðmundsson 14.235.532
Haðalandi 17 ívar Daníelsson 12.377.406
Alftamýri 1 Andrés Guðmundsson 12.153.614
Hlyngerði 11
Ólafur R. Magnússon 10.851.439
Grenimel 43
Fyrirtæki borga níu milljarða
Heildarálagning á fyrirtæki er 11,261 milljarðar.
króna, og eru samstals 6.680 fyrirtæki á skatt-
skránni. í tekjuskatt greiða 1.845 fyrirtæki 2,3
milljarða, í eignarskatt greiða 2.302 fyrirtæki 718
milljónir og í tryggingagjald borga 3.225 fyrirtæki
5,4 milljarða. Aðstöðugjald er reiknað 4,1 milljarð-
ar, en samkvæmt ákvörðun ríkisstjómarinnar er
það fellt niður í ár. Auk þessara gjalda greiða fyrir-
tæki útflutningsráðsgjald, 22,8 milljónir, iðnlána-
og iðnaðarmáiagjaid, 103,753 milljónir, skatt af
skrifstofu- og verzlunarhúsnæði, 307,7 milljónir,
sérstakan eignarskatt, 149,6 milljónir og kirkju-
garðsgjald, 34,2 milljónir. Að frádregnu aðstöðu-
gjaldinu er endanleg álagning á fyrirtæki 9,03
milljarðar króna.
Flugleiðir, Eimskip og Landsbankinn
skattahæst
Eftirtalin fyrirtæki greiða hæst opinber gjöld:
Fiugleiðir hf. 216.964.455
Eimskipafélag íslands hf. 176.557.211
Landsbanki Íslands 171.888.603
Hagkaup hf. 150.852.680
Sjóvá-Almennar trygg. hf. 137.053.993
Fiskveiðasjóður íslands 137.019.976
Olíufélagið hf. 136.585.697
Oddi, prentsmiðja hf. 105.226.020
Búnaðarbanki íslands 105.676.613
íslandsbanki hf. höfuðst. 101.601.425
Orri Vigfússon og Alþjóða kvótakaupanefndin semja við grænlenska fiskimenn
Fá 80 milljómr kr. fyrir að
veiða ekki lax í sjó í tvö ár
ALÞJÓÐA kvótakaupanefndin, sem Orri Vigfússon veitir forstöðu hefur
gengið frá samningi við Grænlendinga um kaup á úthafsveiðikvóta Græn-
lendinga á laxi næstu fimm árin. Greidd verður 1,1 milljón Bandaríkja-
dala, u.þ.b. 80 milljónir króna, fyrir kvótann næstu tvö ár, að sögn Orra
Vigfússonar, og munu ýmsir aðilar frá fjölmörgum löndum standa straum
af kostnaði. Undir forystu Orra hefur Alþjóða kvótakaupanefndin nú
keypt upp allan úthafsveiðikvóta á Atlantshafslaxi á undanförnum fjórum
árum, auk þess sem samningar standa yfir við bresk og írsk stjómvöld
um að binda á næstu ámm enda á reknetaveiðar á villtum Atlantshafs-
laxi innan landhelgi ríkjanna tveggja.
Að sögn Orra Vigfússonar hafa
Grænlendingar á liðnum árum veitt
allt að 2.700 tonn af göngulaxi í net
en síðustu ár hafa þeir hins vegar átt
í basli með að veiða upp í 840 tonna
kvóta sinn. í síðasta mánuði féllust
Grænlendingar á ákvörðun NASCO
um að lækka kvóta þeirra í 230 tonn
og þann kvóta hafa þeir nú selt Al-
þjóða kvótakaupanefndinni undir for-
ystu Orra.
Stærsti samningur til þessa
Samningurinn við Grænlendinga er
sá stærsti sem gerður hefur verið til
þessa og hefur átt rúmlega þriggja
ára aðdraganda. Hann gildir til fímm
ára eins og fyrr segir en tímabilið
skiptist að sögn Orra Vigfússonar í
tvo hluta þannig að stöðvun veiðanna
næstu tvö ár er tryggð gegn fyrr-
greindri greiðslu. Kveðst Orri vonast
til þess að þetta verði til þess að tug-
þúsundir laxa geti snúið til heimkynna
sinna í ám í Kanada, á íslandi, í
Bandaríkjunum, Stóra Bretlandi, á
írlandi og meginlandi Evrópu til þess
að hrygna og byggja upp stofna sem
hættulega lítið er orðið eftir af. Um
framkvæmd samningsins árin 1995
til 1997 verður hins vegar samið á
árinu 1995.
Að sögn Orra hefur fjármögnun
þeirrar 1,1 milljónar dala sem greidd
verður fýrstu tvö árin þegar verið
tryggð að mestu leyti með framlögum
hópa og einstaklinga víða um- lönd.
Orri giskaði á að hlutur íslendinga
yrði um það bil 4 milljónir króna sem
ýmis samtök veiðiréttarhafa og stang-
veiðimanna legðu fram. Á svipaðan
hátt er staðið að fjármögnun ytra en
vestanhafs hefur mál þetta hlotið at-
hygli umhverfísverndarhópa og
stjórnvalda, sem telja sér til tekna að
hafa stuðlað að gerð samningsins og
munu kynna þarlendum ijölmiðlum
samninginn næstu daga.
Áhrif strax næsta ár
„Friðunin er mikilvægasta einstaka
skrefið sem tekið hefur verið til að
efla stofna Norður-Atlantshafslax-
ins,“ sagði hann og sagðist sannfærð-
ur um að áhrif friðunarinnar kæmu
fram í aukinni veiði í laxveiðiám og
bættum heimtum í hafbeitarstöðvum
strax í næstu göngum.
Umferðardeild lögreglunnar hvetur ferðamenn að flýta sér hægt um helgina
Tímaleysið
slysavaldur
AÐ MATI lögreglunnar í Reylqavík einkennir
það umferð mestu ferðahelgar ársins að fólk
gefur sér allt of lítinn tíma til að komast á
milli staða. „Við höfum veitt tímaleysi ferða-
fólks sérstaka athygli síðustu verslunarmanna-
helgar en það eykur líkur á slysum verulega.“
segir Hjálmar Björgvinsson aðstoðarvarðstjóri
umferðardeildar. Hann segir að upp úr klukk-
an sex í kvöld og snemma í fyrramálið verði
umferð mjög þung á þjóðvegum landsins. Hann
minnir ökumenn á að taka góða skapið með
sér og gæta ýtrustu varúðar í umferðinni.
Það eru tveir hópar ökumanna, sem verða að
sýna sérstaka tillitssemi við aðra vegfarendur að
mati Hjálmars. „Annars vegar eru það þeir, sem
hafa engan tíma og verða að sýna þolinmæði.
Aftur á móti valda þeir, sem telja sig hafa allan
Morgunblaðið/Sverrir
Þolinmóð í umferðinni
HJÁLMAR Björgvinsson aðstoðarvarðstjóri
brýnir fyrir fólki að flýta sér hægt.
tíma og fara sér hægt eftir því, jafnmiklum erfíð-
leikum í umferðinni. Þeir verða að huga að öðrum
ökumönnum og aka við hámarkshraðamörk."
„Þeir, sem ekki treysta sér út í mikla umferð
á þjóðvegunum, geta reynt að sneiða hjá mesta
annatímunum en gera má ráð fyrir að þúsundir
bíla streymi út á vegina upp úr klukkan 18 í dag
og aftur í fyrramálið,“ segir hann.
Framúrakstur og lausamöl
Það er margt að mati Hjálmars, sem ökumenn
verða gefa sérstakan gaum. Eitt er að gæta ýtrustu
varúðar þegar tekið er fram úr bifreiðum og í
annan stað bendir hann ökumönnum sérstaklega
á að fara varlega þegar ekið er í lausamöl. Þá
megi ekki gleyma rollunum, sem fyrirvaralaust
kunna að hlaupa inn á vegi og þeirri aðstöðu þeg-
ar bifreiðar mætast á þröngum brúm. Loks verði
að fara með sérstakri gát yfir bæði ár og vötn.
Hjálmar minnir á að leiðbeiningar um akstur við
slíkar aðstæður megi finna í nýútkomnum Ferðafé-
laga, sem lögreglan dreifí í dag á vegum úti.
„Við minnum ennfremur alla ökumenn að
gleyma ekki góða skapinu. Fólk verður að sýna
hvert öðru tillitssemi og ef fólk heldur jöfnum og
góðum hraða við hámarkshraðamörkin þá má full-
víst telja að umferðin gangi vel fyrir sig,“ segir
Hjálmar. Hann minnir á að Iögreglan muni hnippa
í alla þá ökumenn, sem ekki fari eftir settum regl-
um. Síðast en ekki síst verða ökumenn, sem eru
til fyrirmyndar í umferðinni, verðlaunaðir.
Hörður Karlsson, 29 ára.
Björgvin Þór Ríkharðsson, 27 ára.
Hans Ernir Viðarsson, 18 ára.
Þrír fangar struku saman frá fangelsinu á Litla-Hrauni í fyrrinótt
Sögnðu sundur rim með sög
af verkstæði fangelsisins
ÞRÍR fangar struku frá fangelsinu á Litla-Hrauni um miðnætti í fyrri-
nótt með því að saga í sundur rim fyrir glugga í klefa eins þeirra og
klifra yfir girðingu fangelsisins þar sem bíll beið þeirra. Tveir fang-
anna voru að afplána refsidóma fyrir innbrot, fjársvik og fíkniefnamis-
ferli en sá þriðji er gæslufangi sem nýlega var dæmdur í 10 ára fang-
elsi fyrir nauðganir og árásir. Jón Sigurðsson staðgengill forstöðu-
manns Litla-Hrauns segir að eftirlit hafi brugðist, það sé ástæða þess
að mennirnir hafi komist á brott. Hann telur að undirbúningur stroks-
ins hafi tekið mennina u.þ.b. viku og ljóst sé að þeir hafi átt vitorðs-
mann í hópi fanga sem læsti klefum þeirra að utan.
Litla-Hrauni með því að spenna upp
rimla. Sá var á þeirri deild fangelsis-
ins þar sem minna eftirlit er með
föngum.
Jón sagði að miðað við mat héraðs-
dómara sem nýlega hefðu dæmt einn
þremenninganna, Björgvin Þór Rík-
harðsson, í 10 ára fangelsi, fyrir
nauðganir og árásir, virtist ljóst að
telja bæri hann hættulegan um-
hverfi sínu en hinir tveir hefðu ekki
gerst sekir um brot sem réttlætt
gætu slíkt mat, þeir væru að afplána
dóma fyrir innbrot, fjársvik og fíkni-
efnamisferli.
Jón sagðist telja víst að aðferðir
við eftirlit í fangelsinu yrðu nú tekn-.
ar til endurskoðunar og endurmats.
Strokin nú og í síðasta mánuði sýndu
að fyllsta tilefni væri til þess.
Um miðnætti í fyrrinótt barst
fangavörðum á Litla-Hrauni vís-
bending um að sést hefði til þriggja
manna klifra yfír girðinguna um-
hverfis fangelsið og setjast upp í
rauðan Suzuki fólksbíl sem beið
þeirra fyrir utan og ók í átt að Sel-
fossi. Við fyrsta eftirlit fangavarða
kom ekki í ljós að neinna fanga
væri saknað, enda voru allir klefar
læstir að utan. Um það bil hálf
klukkustund leið áður en í ljós kom
að rim fyrir glugga í klefa eins fang-
anna hafði verið söguð í sundur og
þriggja fanga var saknað.
Víðtæk leit var gerð að föngunum
í fyrrinótt og í gær. Síðdegis í gær
sendi lögreglan í Reykjavík fjölmiðl-
um myndir af föngunum með ósk
um að þær yrðu birtar. Um miðjan
dag í gær bárust vísbendingar um
að til mannanna hefði sést í strætis-
vagni, einn hefði farið úr í Blesu-
gróf en tveir haldið áfram upp í
Breiðholt. Víðtæk leit á grundvelli
ábendingarinnar bar ekki árangur.
Fleiri vísbendingar bárust í gær-
kvöldi eftir að myndir af mönnunum
komu fyrst fyrir almenningssjónir
og var lögregla að kanna þær í
gærkvöldi.
Járnsög hvarf af verkstæði
Að sögn Jóns Sigurðssonar stað-
gengils forstöðumanns virðist sem
mennirnir hafí komist yfír járnsög á
járnsmíðaverkstæði fangelsins en
enginn þremenninganna var þó þar
við vinnu. Jón sagði ljóst að eftirliti
með verkfærum á verkstæðum fang-
elsisins væri ábótavant, því ljóst
væri að strokið hefði verið undirbúið
í um það bil viku og hefðu mennirn-
ir notið aðstoðar einhverra úr hópi
samfanga sinna. Um það bil mánuð-
ur er síðan fangi strauk síðast af
Johann á enn von
Biel. Frá Áskeli Erni Kárasyni, fréttaritara Morgunbiaðsins.
JOHANN Hjartarson vann þýska
stórmeistarann Eric Lobron ör-
ugglega í 12. og næstsíðustu
umferð millisvæðamótsins hér í
Biel í gær.
Jóhann hefur þá unnið tvær skák-
ir í röð og eygir enn von um að
komast í hóp hinna tíu efstu, sem
haida áfram á næsta þrep heims-
meistarakeppninnar, áskorenda-
mótið. Til þess þarf hann að vinna
skák sína í síðustu umferð og önnur
úrslit að verða honum hagstæð.
Staðan fyrir síðustu umferð er
sú að Gelfand hefur 8V2 vinning.
Van der Sterren, Salov, Kramnik,
Kamsky, Adams, Khalifman og Jud-
asin hafa 8 vinninga. í 9.-11. sæti
eru Lautier, Anand og Episin 7‘/2.
Jóhann Hjartarson er ásamt 13
öðrum í 12.-25. sæti með 7 vinn-
inga. Þeir eru: Shirov, I. Sokolov,
ívantsjúk, M. Gurevich, Drejev,
Barejev, Svestnikov, Portisch, J.
Polgar, Lputian, Xu Jun, Piket og
Abramovic. Óhætt""ér að gera ráð
fyrir að í þeim sjö viðureignum þar
sem þessir skákmenn mætast í loka-
umferðinni á morgun verður hart
barist; jafntefli þýðir tap, en sigur
gefur möguleika á sæti í áskorenda-
keppninni.