Morgunblaðið - 24.02.1996, Qupperneq 1
80 SIÐUR B/LESBOK/D
46. TBL. 84. ARG.
LAUGARDAGUR 24. FEBRUAR 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fyrsta HM
gull Tombas
ÍTALINN Alberto Tomba sigraði
í gær I stórsvigi á heimsmeistara-
mótinu í alpagreinum skíða-
íþrótta, en mótið fer fram í Si-
erra Nevada á Spáni. Þar með
fékk hann gullpening sem hann
hefur lengi beðið eftir því þótt
hann sé sigursælasti alpagreina-
maður í sögu Ólympíuleikanna
hefur honum aldrei tekist að
sigra á heimsmeistaramóti fyrr
en í gær. Eins og sjá má á mynd-
inni var hann ánægður, enda laut
hann niður og kyssti snjóinn í
Nevada.
■ Einn erfiðasti sigurinn / B1
Reuter
Ættingjar myrða
Kamel-bræður
Bagdad, Nikósíu, London. Reuter.
TVEIR tengdasynir Saddams Huss-
eins íraksforseta, Hussein og Sadd-
am Kamel, sem á þriðjudag sneru
aftur til íraks eftir að hafa flúið til
Jórdaníu á síðasta ári, voru myrtir
af ættingjum í gær. Greindi Shehib-
sjónvarpsstöðin frá þessu í gær-
kvöldi, en hún er í eigu Uday, elsta
sonar Saddams.
Sjónvarpið sagði að talsmaður
innanríkisráðuneytisins hefði greint
frá því að hópur ungmenna úr al-
Majeed-fjölskyldunni hefði ráðist
að húsi þar sem Hussein Kamel
dvaldist eftir að hann kom frá Jórd-
aníu. Hefði Hussein fallið í skotbar-
daga ásamt bræðrum sínum Sadd-
am og Hakeem og föður þeirra
Kamel Hassan. Tveir árásarmann-
anna létu einnig lífið, sem og þrír
nágrannar. Sjónvarpsstöðin sagði
yfirvöld vera að hefja rannsókn á
málinu.
Þulur stöðvarinnar las upp bréf
frá al-Majeed-fjölskyldunni, sem
Kamel-bræður voru hluti af, þar
sem sagði að hún hefði orðið að
ráða þá af dögum til að hreinsa
orðstír fjölskyldunnar er hefði beðið
hnekki með „landráðum" bræðr-
anna.
Vonsviknir landráðamenn
Fyrr um daginn hafði íraska
fréttastofan INA greint frá því að
dætur Saddams Husseins hygðust
skilja við eiginmenn sína vegna
„föðurlandssvika" þeirra, einungis
tveimur dögum eftir þau komu aft-
ur til íraks frá Jórdaníu.
Fréttastofan sagði að þær Ragh-
ad Saddam, eiginkona Husseins
Kamels Hassans og Rana Saddam,
eiginkona Saddams Kamels Hass-
ans, hefðu lagt fram beiðni um
skilnað á fimmtudag og hefði þegar
í stað verið orðið við þeim.
„Þær neita að vera giftar mönn-
um sem hafa svikið föðurland sitt
og traust og hinar miklu hugsjónir
hinna göfugu fjölskyldna þeirra og
ættingja,“ sagði INA.
íraska fréttastofan sagði bræð-
urna vera „vonsvikna landráða-
menn“ og að dætur Saddams hefðu
viljað halda heim um leið og þær
gerðu sér grein fyrir ástæðum þess,
að bræðurnir hefðu flúið til Jórdan-
íu.
Leiðtogar íraskra útlaga sögðu
það ekki hafa komið á óvart q.ð
Hussein Kamel og bróðir hans
hefðu verið myrtir. „Við áttum von
á því að þeir yrðu drepnir. Svona
tekur Saddam á andstöðu óháð fjöl-
skyldutengslum," sagði Hamid al-
Bayati í London.
Madeleine Albright, sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð-
unum, sagði þetta vera til marks
um að grimmd Saddams væru eng-
in takmörk sett.
Borís Jeltsín Rússlandsforseti hefur kosningabaráttu í stefnuræðu
Dagar stjómar taldir
nema kiör verði bætt
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
hélt í gær stefnuræðu í rússneska
þinginu og sagði að dagar ríkis-
stjórnarinnar væru taldir ef ekki
tækist að draga úr áhrifum efna-
hagslegra umbóta í landinu á kjör
almennings. Síðar gaf Jeltsín út til-
skipun um að látið yrði af viðskipta-
þvingunum gegn Bosníu-Serbum,
en Atlantshafsbandalagið lýsti yfir
því að yfirmaður fjölþjóða herliðsins
í Bosníu hefði ákveðið að mæla
Öll Sarajevoborg í höndum Bosníustjórnar
Flestir Serbar farnir
Vogosca. Reuter.
NYR borgarstjóri í Vogosca, hverfi
Serba í Sarajevo, fullvissaði þá um
það í gær, að þeim væri engin
hætta búin undir yfirráðum sam-
bandsríkis múslima og Króata.
Hann talaði þó fyrir daufum eyrum
þvi á sama tíma voru þeir Serbar,
sem eftir eru í borginni, saman-
komnir við ráðhúsið til að krefjast
flutnings burt. Carl Bildt, sátta-
semjari Evrópusambandsins, sagði,
að flótti Serba frá Sarajevo væri
mikill „harmleikur".
Lögregla sambandsríkisins, 30
manns, tók við gæslu í Vogosca í
gærmorgun en fyrsta verk nýja
borgarstjórans, Muhameds
Kozadra, var að draga upp bláhvíta
Bosníufánann í stað þess serb-
neska. Við það tækifæri skoraði
hann á Serba að vera um kyrrt en
í gær voru 14.500 af 17.000 íbúum
í Vogosca famir burt.
Reuter
FRANSKUR hermaður í friðargæsluliði NATO við vöru-
skemmu, sem Serbar lögðu eld að áður eu þeir fóru frá Sarajevo.
Nokkuð hefur verið um, að
Serbar hafi kveikt í húsum til að
þau kæmu ekki múslimum og Kró-
ötum að notum en miklu minna
er um það en ætla hefur mátt af
fréttum.
gegn því að þvingunun-
um yrði aflétt. Gennadíj
Zjúganov, leiðtogi
kommúnista, sakaði
Jeltsín um að hafa stol-
ið hugmyndum sínum
frá Kommúnistaflokkn-
um og kenna öllum um
það, sem farið hefur
úrskeiðis, nema sjálfum
sér.
„Annaðhvort mun
stjórnin gera skyldu
sína og verja félagsleg
og efnahagsleg réttindi
almennings, eða önnur
stjórn mun taka það að
sér,“ sagði Jeltsín í
ræðu, sem litið er á sem
upphaf kosningabaráttu hans fyrir
forsetakosningarnar 16. júní.
„Stjórnin hefur einblínt á efnahags-
legt jafnvægi og gleymt launafóiki
og lífeyrisþegum."
„Síðasta tækifærið"
Jeltsín sagði að yrði ekki tekið
tillit til fólksins gæti „pólitískur
óstöðugleiki hafist, allt gæti glatast
og við myndum kastast aftur á
bak“ og nú gæti verið „síðasta
tækifærið til að brjótast út úr víta-
hringnum og tryggja að Rússlandi
verði ekki snúið af brautinni til lýð-
ræðis og eðlilegs, happadrjúgs lífs“.
Zjúganov gekk með nokkur þús-
und kommúnistum, sem héldu á
myndum af Lenín og Stalín, um
götur Moskvu eftir ræðu Jeltsíns í
gær til að minnast dags varðsveita
Reuter
BORÍS Jeltsín.
föðurlandsins, sem eitt
sinn var kenndur við
Rauða herinn.
Zjúganov sagði
göngumönnum að
ræða Jeltsíns hefði
verið „hjálparvana og
veikburða“ og skoraði
á kommúnista að snúa
bökum saman í kosn-
ingunum.
Aður sagði Zjúg-
anov við blaðamenn
að Jeltsín hefði stolið
hugmyndum flokks
síns í stefnuræðunni
og notað til þess gögn,
sem kommúnistar
undirbjuggu fyrir
tveimur árum um félagsmál og ut-
anríkismál.
„Kennir öllum um
nema sjálfum sér“
„Hann kennir öllum um nema
sjálfum sér,“ sagði Zjúganov. „Það
vottaði ekki fyrir viðurkenningu á
eigin ábyrgð á pólitík undanfarinna
ára.“
Zjúganov bætti við að fyrst hefði
Jeltsín losað sig við frjálslynda
menn úr stjórninni og nú hótaði
hann að láta stjórnina fara.
Jeltsín talaði einnig um Tsjetsjn-
íu í stefnuræðu sinni og sagði að
hugmyndir um að þrengja að Rúss-
landi með stækkun NATO væru
mikilvægasta utanríkismálið.
■ Heilsa Jeltsíns/20