Morgunblaðið - 24.02.1996, Page 4
4 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heilbrigðisráðherra um fullyrðingar apótekara vegna lyfjabúðareksturs sjúkrahúsanna
Kannað hvað
hæft er í fullyrð-
ingum apótekara
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
ætlar að láta athuga hvað sé hæft
í fullyrðingum Apótekarafélags
íslands um að Sjúkrahús Reykja-
víkur og Ríkisspítalarnir brjóti
lyfjalög í lyíjabúðarekstri að því
er fram kemur í samtali við Ingi-
björgu Pálmadóttur heilbrigðis-
ráðherra. Þorvaldur Veigar Guð-
mundsson, yfirlæknir Ríkisspítal-
anna, og Jóhannes Pálmason, for-
stjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur,
játa að dæmi séu um að starfsfólk
spítalanna fái afgreiðslu í lyfja-
búðum sjúkrahúsanna. Apótekar-
afélag íslands hefur kært lyfja-
búðarekstur sjúkrahúsanna til
RLR. Apótekarar leggja áherslu á
að ólöglegt sé að afgreiða aðra í
lyljabúðum sjúkrahúsanna en
sjúklinga, sem eru að útskrifast
af sjúkrahúsunum, og göngudeild-
arsjúklinga.
Mikilvæg þjónusta
Ingibjörg Pálmadóttir, heil-
brigðisráðherra, sagði að með
lyfjaafgreiðslu á sjúkrahúsunum
væri verið að veita afar mikilvæga
þjónustu. „Með sjúkrahúsapótek-
unum er verið að veita göngudeild-
arsjúklingum og sjúklingum, sem
eru að útskrifast, þjónustu til hag-
ræðingar fyrir þá,“ sagði hún og
nefndi að ýmis lyf væru aðeins
notuð í tengslum við sjúkrahúsin.
Ingibjörg sagði að ráðuneytinu
væri ekki kunnugt um hvort
starfsmenn fengju afgreiðslu í
apótekunum. „Og þó svo einhver
starfsmaður hafí einhvem tíma
fengið afgreitt þarna resept getur
það varla verið stórmál. Ekki er
ætlunin að fólk utan af götu fái
afgreiðslu í sjúkrahúsapótekunum
en ég þekki ekki hvort það gæti
hafa gerst,“ sagði hún og tók fram
að ráðuneytið myndi að sjálfsögðu
athuga hvað þama væri á ferðinni.
Kannast ekki við
kaupendur af götunni
Þorvaldur Veigar Guðmunds-
son, yfirlæknir Ríkisspítalanna,
sagði að framkvæmdastjórn spít-
alans hefði ekki komið saman til
að fjalla um kæm apótekara. „Ég
get hins vegar sagt að nauðsyn-
legt er að hafa lyfjaafgreiðslu til
að afgreiða sjúklinga á hveijum
spítala. Hér hafa starfsmenn haft
sama aðgang að lyfjaafgreiðslunni
enda felst í því ákveðið hagræði.
Mér skilst að apótekarar hafi gert
áthugasemd við þennan aðgang
starfsmanna og ef hann reynist
ólöglegur verðum við væntanlega
að hlýta þeim lögum. Mér skilst
að því til viðbótar hafi því verið
haldið fram að hægt væri að
ganga inn af götunni og kaupa lyf
í lyfjaafgreiðslum sjúkrahúsanna
en ég kannast alls ekki við að sá
möguleiki sé fyrir hendi,“ sagði
hann.
Lög ekki brotin
Jóhannes Pálmason, forstjóri
Sjúkrahúss Reykjavíkur, sagðist
ekki kannast við að lög hefðu ver-
ið brotin með rekstri lyfjabúða á
sjúkrahúsinu. „Ég veit ekki betur
en öll þau lyf sem afgreidd eru í
okkar apóteki séu afgreidd gegn
lyfseðlum frá læknum sjúkrahúss-
ins eins og reglugerðir kveða á
um. Ef starfsfólkið er sjúklingar
spítalans er það afgreitt enda get-
ur starfsfólkið verið sjúklingar
eins og hver annar, t.d. geta allir
gengið inn á slysadeild og fengið
þjónustu. Lög kveða skýrt á um
að ekki megi afgreiða aðra lyf-
seðla en lyfseðla sjúkrahússins og
læknar sjúkrahússins hafi gefið
lyfseðlana út. Eftir því er farið.
Að öðru leyti get ég ekki tjáð mig
um efni kærunnar enda hef ég
ekki séð hana og ekki heyrt neitt
frá RLR,“ sagði hann.
Áréttað við yfirmenn
Engu að síður sagði hann að
vegna frétta um kæruna hefði
verið áréttað við yfirmenn lyfja-
búðanna að gæta settra reglna um
reksturinn, „og ég hef enga
ástæðu til að ætla annað en að
farið sé eftir lögum og reglugerð-
um um þetta mál,“ sagði Jóhannes
og tók fram að málið tengdist áliti
Samkeppnisráðs um að nauðsyn-
legt væri að rekstur apótekanna
væri að fullu skilinn frá rekstri
sjúkrahúsanna. „Við höfum unnið
að því og því er úrskurðurinn að-
eins í samræmi við það sem við
höfum verið að vinna eftir.“
Rifist um
Ragnar
Reykás
Á FUNDI bæjarráðs Hafnarfjarðar á
fimmtudag var fjallað um samkomu-
lag Hafnarfjarðarbæjar og Miðbæjar
Hafnarfjarðar hf. um lúkningu fram-
kvæmda í Miðbæ. Var bæjarfulltrúum"
heitt í hamsi og líkti hver öðrum við
Ragnar Reykás, þekkta persónu, sem
fyrst kom fram á sjónarsviðið í sjón-
varpsþáttum Spaugstofunnar.
Magnús Jón Ámason, Alþýðu-
bandalagi, lýsti megnri óánægju sinn
með samkomulagið og sagði þá papp-
íra, sem fyrir lægju, ekkert tryggja
nema áframhaldandi vandræðagang.
Meirihluti bæjarráðs óskaði þá bókað,
að úrræðaleysi, aðgerðarleysi og geð-
illska bæjarfulltrúa Alþýðubandalags-
ins birtist enn á ný í bókun hans um
samkomulagið. „Frumkvæði eða til-
lögur hafa ekki sést, enda yfirlýst að
Magnúsi Jóni Ámasyni hafi ekki dott-
ið í hug að gera nokkum skapaðan
hlut. Allur rökstuðningur hans í mál-
inu minnir á þekkta íslenska persónu,
Ragnar Reykás og verður ekki betur
lýst.“ Magnús Jón svaraði að bragði
með eftirfarandi bókun: „Ekki leiðist
mér líkingin við hina þjóðfrægu per-
sónu Ragnar Reykás. Eg veit þó ekki
hvort Ragnari er gerður greiði með
því að líkja honum við mig. Hans
vegna er rétt að taka fram að Ragn-
ar segir eitt í dag og annað á morg-
un. Slíkur málflutningur hefur ein--
kennt aðra en mig í miðbæjarmálinu.
Auk þess tel ég rétt að benda á að
Ragnar er rauðhærður, svo líklega
svipar honum meira til annarra bæjar-
fulltrúa en mín.“
Hugmyndir úm að breyta eða stækka Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir allt að milljarði króna
Aðeins hluti kostnað-
ar vegna Schengen
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra kynnti í ríkisstjóm í gær
frumathugun á kostnaði við breyt-
ingar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar,
sem yrðu nauðsynlegar ef ísland
gerðist aðili að evrópska vegabréfa-
samstarfinu, Schengen-samkomu-
laginu svokallaða. Utanríkisráðherra
segir að taka verði tillit til þess að
aðstaða í flugstöðinni sé nú hvort
sem er orðin ófullnægjandi vegna
fjölgunar farþega og því sé beinn
kostnaður vegna Schengen-aðildar
aðeins hluti af þeim kostnaði, sem
þurfi að ráðast í.
Utanríkisráðuneytið hefur beitt
sér fyrir frumathugun á þeim breyt-
ingum, sem nauðsynlegar eru í Flug-
stöð leifs Eiríkssonar vegna hugsan-
legrar aðildar íslands að Schengen-
samkomulaginu. Annars vegar var
embætti Húsameistara ríkisins beðið
að athuga hvað kostaði að breyta
flugstöðinni og hins vegar var Leifur
Benediktsson verkfræðingur feng-
inn til að gera framhaldsathugun.
Bæði Schengen-aðild
og aukin umferð
Halldór Ásgrímsson lagði áherzlu
á það á ráðstefnu um ísland og
Schengen, sem haldin var í Keflavík
í gær, að athuganir þessar beindust
ekki eingöngu að kostnaði vegna
þátttöku í Schengen-samkomulag-
inu, heldur væri aukin umferð um
Keflavíkurflugvöll einnig tekin með
í reikninginn.
Þannig ganga athuganirnar út frá
þremur forsendum. í fyrsta lagi að
breyta þurfi flugstöðinni vegna
hugsanlegrar aðildar íslands að
Schengen. í öðru lagi hafi þörf fyrir
verzlunar-, þjónustu- og biðsalar-
rými aukizt vegna aukinnar umferð-
ar um Keflavíkurflugvöll. í þriðja
lagi sé þörf á fjölgun flugvélastæða
og landganga vegna aukinnar um-
ferðar um völlinn.
Þá voru þær forsendur gefnar í
þessum athugunum að engar tafír
eða röskun yrði á áætlunum þeirra
flugfélaga, sem hafa viðdvöl á Kefla-
víkurflugvelli, en Flugleiðir hafa
haft miklar áhyggjur af hugsanleg-
um töfum vegna herts eftirlits með
flugi inn og út af Schengen-svæð-
inu, komi til aðildar Islands að evr-
ópska vegabréfasamstarfinu.
Viðbygging fyrir milljarð
Niðurstaða Húsameistara ríkisins
er að bezta leiðin til að tryggja
umferðarstraum farþega og nauð-
synlegan aðskilnað þeirra vegna
Schengen-aðildar sé að reisa 3.800
fermetra viðbyggingu við flugstöð-
ina. Þessi viðbygging myndi rísa við
enda núverandi landgöngurana og
verða á tveimur hæðum. Auk þess
yrði hluta af núverandi landgangi
breytt í tveggja hæða landgang.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er í þessum hugmyndum
gert ráð fyrir stækkun flughlaðsins
og að tvær til þijár landgöngubrýr
bættust við, þannig að unnt yrði að
anna þjónustu við fleiri flugvélar í
einu. Viðbyggingin myndi einkum
þjóna því hlutverki að hýsa og þjón-
usta farþega, sem hafa viðdvöl hér
á landi á leiðinni til eða frá Banda-
ríkjunum og Kanada.
Kostnaður við þennan kost er
áætlaður um einn milljarður króna.
Það er hins vegar aðeins gróf frum-
áætlun. Að sögn utanríkisráðherra
hefðu íslendingar um fimm ár til
að ganga frá þessum breytingum.
Halldór segir að þessi kostur væri
lausn á vanda flugstöðvarinnar til
lengri tíma.
Nýir biðsalir eða
endurinnrétting
í athugun Leifs Benediktssonar
er hins vegar bent á tvær aðrar leið-
ir. Annars vegar er sú hugmynd að
flugstöðinni sjálfri verði fyrst í stað
ekki breytt, heldur verði byggðir
biðsalir út frá landgöngurananum,
við núverandi landgöngubrýr. Þar
gæti farið fram vegabréfa- og hand-
farangurseftirlit við komu og brott-
för farþega. Þessi lausn yrði bráða-
birgðalausn til nokkurra ára, en
myndi kalla á frekari framkvæmdir
í framtíðinni til að uppfylla skilyrði
Schengen um aðskilnað farþega.
Kostnaður við þetta er áætlaður 365
milljónir króna.
Hins vegar er sú hugmynd að
önnur hæð núverandi flugstöðvar
verði endurinnréttuð, þannig að hún
uppfylli öll skilyrði Schengen-sam-
komulagsins um fullkominn aðskiln-
að farþega eftir því hvort þeir eru
að ferðast innan Schengen-svæðis-
ins eða ekki. Með þessu yrði annarri
hæðinni skipt í tvennt og landgöng-
urananum sömuleiðis, með glervegg.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur þessi lausn ýmsa
ókosti í för með sér, þar sem aðeins
yrði hægt að hafa flugvélar í flugi
innan Schengen öðrum megin við
Iandgönguranann, en flug utan
Schengen hinum megin og fengist
því ekki bezta nýting á landgöngu-
brúm flugstöðvarinnar. Kostnaður
við þessa útfærslu er áætlaður um
685 milljónir króna.
í þessum tölum er ekki gert ráð
fyrir kostnaði við allar þær land-
göngubrýr, sem bæta þyrfti við í
flugstöðinni vegna aukinnar umferð-
ar og ekki heldur vegna fjölgunar
flugvélastæða. Utanríkisráðherra
sagði að fjögur stæði gætu kostað
allt að 800 milljónir.
Viljum við rjúfa norræna
vegabréfasambandið?
Halldór lagði mikla áherzlu á að
ekki mætti eingöngu horfa í kostn-
aðinn, þegar menn væru að vega
og meta kosti og galla við aðild að
Schengen. „Ef við lítum á málið
pólitískt, þá höfum við tekið þátt í
þessum viðræðum og samstarfi með
það í huga að geta tekið þátt í
Schengen-samstarfinu til þess að
ijúfa ekki norræna vegabréfasam-
bandið. Þá vaknar í mínum huga
fyrst og fremst þessi spurning: Hvað
er það, sem réttlætir að hafna því?
Þetta er mjög stór og mikilvæg
ákvörðun, sem getur varðað lengri
framtíð mjög miklu,“ sagði Halldór.
Hann sagði að helztu ásteytingar-
steinarnir gætu verið óhæfilegur
kostnaður eða þá að ferðakerfi Flug-
leiða myndi að einhveiju leyti bresta
vegna tafa á afgreiðslu í Leifsstöð.
„Þess vegna er mikilvægt að spyija
hvað kostar að breyta flugstöðinni.
Það vill hins vegar svo vel til, að
það er mikil aukning í komu farþega
til landsins og við vonum að á næstu
árum verði ferðaþjónustan vaxandi
atvinnugrein í landinu," sagði Hall-
dór. Hann sagði að tekið væri við
langflestum ferðamönnum til lands-
ins í gegnum Leifsstöð. Þess vegna
yrði að auka pláss þar og um leið
væri hægt að leysa þau vandamál,
sem sköpuðust vegna Schengen-
aðildarinnar. Þess vegna væri ekki
ijóst nákvæmlega hvaða kostnaður
félli til vegna Schengen og hvað
vegna framkvæmda, sem yrði að
ráðast í hvort sem væri.
„Það verður nú farið í að kanna
ódýrustu lausnina, sem verði þó jafn-
framt til frambúðar," sagði utanrík-
isráðherra. „Það er fyrst og fremst
nauðsynlegt til þess að þetta mál
verði dæmt á réttum forsendum. Það
væri mikið slys ef við gengjum til
dæmis út frá því að kostnaður við
flugstöðina vegna Schengen væri
einn milljarður, en svo yrði að byggja
þar á næstu fimm árum fyrir sjö eða
átta hundruð milljónir hvort eð væri,
vegna aukningar umferðar.“
Flugstöðin fái hlutdeild í
auknum tekjum
Ráðherra sagði að um varanlegan
aukakostnað yrði að ræða vegna
breytinga í flugstöðinni, en á móti
kæmu líka varanlegar tekjur, fyrir
utan jákvæð pólitísk áhrif af Scheng-
en-aðild.
„Það verður ekki hjá því komizt
að flugstöðin fái aukna hlutdeild í
auknum tekjum, sem hún hefur
ekki fengið hingað til. Farþegum
er að fjölga og þessar auknu tekjur
verða að geta runnið til þessara
mála, eigi breytingarnar að geta
staðið undir sér,“ sagði Halldór.
„Það var aldrei gengið frá tekjuhlið-
inni er flugstöðin var byggð. Við
verðum að ganga frá því, sem ekki
hefur verið gert í tíu ár, sem er fjór-
ir milljarðar í skuldir. Þetta kemur
inn í spurninguna líka.“
>
i
i
[
I
I
i
i
i
s
i
I
i
1
«
4
f
■
i
i
i