Morgunblaðið - 24.02.1996, Page 18
18 LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERIIMU
Vélstjóri vinnur mál fyrir héraðsdómi vegna kvótakaupa
Ahöfn skal tryggt hæsta
GUNNSTEINN A. Jakobsson, vél-
stjóri, vann mál sem hann höfðaði
fyrir Héraðsdómi Reykjaness gegn
Oskari Ingibergssyni, útgerðarmanni
Alberts Ólafssonar KE, vegna kvóta-
kaupa. Þar er tekið mið af kjarasamn-
ingi Sjómannasambands íslands við
LIÚ þar sem segir að útgerðarmaður
skuli hafa með höndum sölu á afla
skips, og skuli skipverjum tryggt
hæsta gangverð fyrir fiskinn, en þó
aldrei lægra en útgerðarmaður fær.
Útgerð væntanlega skyld til
sektargreiðslu til stéttarfélags
Tildrög málsins voru þau að
Gunnsteinn taldi brotið á sér vegna
þess að hluti af aflaverðmætum var
dreginn undan hlutaskiptum af út-
gerð Alberts Ólafssonar KE. Einnig
var aflinn seldur óunninn á fisk-
markaði á mun hærra verði eða
allt að 50% hærra.
Það er álit dómsins að það fasta
verð, sem ákveðið hafi verið í fjöl-
skyldusamningi milli Óskars og
tveggja sona hans sem standa að
útgerð Alberts og fiskverkunar
stefnda sé langt frá því að vera
hæsta gangverð.
Samningurinn hafi aldrei verið
borinn undir áhöfnina til samþykkt-
ar og verði að telja stefnanda
óbundinn af honum. Dómurinn iítur
svo á að þama sé um brot á kjara-
samningi sjómanna og útgerðar-
manna að ræða sem hafi væntan-
lega í för með sér skyldu útgerðar
til sektargreiðslu til Vélstjórafélags
íslands.
Óskar var dæmdur til að greiða
Gunnsteini 538.372 krónur auk
dráttarvaxta og 135 þúsund króna
í málskostnað auk virðisaukaskatts.
Dómurinn hefur nokkuð mikla
almenna þýðingu og er leyst úr
mörgum athygliverðum álitaefnum
er varða svokölluð kvótakaup, að
mati Jóhanns Halldórssonar hdl.
Hann nefnir að í fyrsta lagi telji
dómurinn að útgerðaraðila sé
óheimilt að semja um fiskverð nema
í samráði við sjómenn. í öðru lagi
líti dómurinn svo á að sjómenn eign-
ist beinar eignarheimildir í veiddum
afla um leið og hann komi inn fyr-
ir borðstokk á skipi. í þriðja lagi
telji dómurinn að ávallt skuli miða
við raunverulegt söluverðmæti fisks
óháð því hvaða verð var lagt til
grundvallar.
í fjórða og síðasta lagi sé ljóst
að dómurinn líti svo á að umrædd
háttsemi feli í sér brot á kjarasamn-
ingi sjómanna og útgerðarmanna
sem væntanlega hafi í för með sér
skyldu útgerðar til sektargreiðslna
til stéttarfélags.
Morgunblaðið/Alfons
Ævintýraleg aflabrögð
KRÓKALEYFISBÁTAR sem róa
með línu hafa verið að fá mjög
góðan afla að undanförnu. Hafa
sumir bátanna verið að fá allt að
400 kíló á bala og er stutt sótt.
Þeir frændur Arnar Ragnarsson
og Frímann Guðmundsson, sem róa
á Ragnari S. Reynissyni SH hafa
verið að mokfiska. Þeir lönduðu í
vikunni 3,4 tonna afla, sem þeir
fengu á 12 bala og voru að sjálf-
sögðu ánægðir með árangurinn.
Amar sagði í samtali við verið að
hann hefði aldrei séð eins mikið af
fiski á grunnslóð og nú. Það væri
eins og stjórnvöid vildu hreinlega
ekki fá að vita, að það væri nóg
af fiski í sjónum og settu fáranleg-
ar reglur á þá, sem minna mættu
sín og var óhress með banndaga-
kerfið, sem trillukarla búa við.
Morgunblaðið/Þorkell
SIGURÐUR L. Hall, matreiðslumeistari, kynnir saltfiskinn
í verzlun Hagkaupa í Skeifunni.
fátt sé betra en saltfiskur steikt-
ur að hætti Spánverja. Hann var
fyrir nokkru í Barcelóna á Spáni
til að kynna sér þessa matreiðslu
og segir að ekkert fari betur
með saltfiski en hvítlaukur og
ólífur, en annars séu tilbrigðin
við eldamennskuna nánast ótelj-
andi.
Þorbergur Aðalsteinsson,
markaðsstjóri innan landsdeild-
ar, segir að tími hafi verið kom-
inn til að bjóða íslendingum upp
á steikingarsaltfiskinn. Fiskur-
inn verði kynntur víða um þessar
mundir, og hafi fyrstu viðbrögð
verið mjög góð og fiskurinn rok-
ið út. Mikill erill er því við pökk-
un á fiski í neytendapakkningar
hjá Vinnslustöðinni.
Saltfiskur
kynntur
VINNSLUSTÖÐIN í Vestmanna-
eyjum er nú að kynna sérstakan
saltfisk til steikingar í verzlunum
Hagkaupa, en hann er einnig
seldur í verzlunum Nóatúns og
11-11 búðunum. Þetta er sér-
staklega útvatnaður, beinlaus og
roðlaus saltfiskur, sem hentar
mjög vel til steikingar, en slíkur
fiskur hefur ekki verið fáanlegur
í neytendaumbúðum hér til þessa.
Fiskurinn er seldur undir vöru-
merkinu 200 mílur, en Vinnslu-
stöðin framleiðir ýmsar fiskteg-
undir í neytendapakkningum auk
saltfisksins, bæði til sölu innan
lands og utan.
Það er Sigúrður L. Hall, mat-
reiðslumeistari, sem kynnir salt-
fiskinn og hefur hann einnig
gert fjórar uppskriftir, sem
fylgja fiskinum. Sigurður segir
að þetta sé úrvals saltfiskur, en
FRÉTTIR: EVRÓPA
Reuter
KREPPA hefur ríkt í tyrkneskum stjórnmálum frá því að Tansu
Ciller, forsætisráðherra, sem hér ræðir við flokksbræður sína,
beið lægri hlut í atkvæðagreiðslu á þingi í nóvember.
Tollabandalag ESB og Tyrklands
Endurskoðunar
krafist í stjórn-
arviðræðum
Ankara. Reuter.
FLOKKUR múhameðstrúarmanna
í Tyrklandi telur tollabandalag það
sem gert hefur verið við Evrópu-
sambandið óásættanlegt með öllu
og krefst þess að málið verði tekið
upp verði af myndun samsteypu-
stjórnar með hægri mönnum.
Necmettin Erbakan, leiðtogi Vel-
ferðarflokksins, sagði á fimmtudag
að meta þyrfti tollabandalagið á ný.
„í stjórnarsamstarfi getur tiltekinn
flokkur ekki þröngvað fram vilja
sínum en með sama hætti geta
menn ekki hafnað grunnþáttum
eigin stefnu. Við höfum ekki
breyst,“ sagði Erbakan en hann
hafði áður fordæmt þennan gjörn-
ing með mun afdráttarlausari hætti.
Tollabandalagið gekk í gildi þann
1. janúar og fögnuðu hægri menn
og fijálslyndir í tyrkneskum stjórn-
málum því ákaft. Nú ríkir hins veg-
ar stjórnarkreppa í Tyrklandi því
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur
ekki tekist að mynda starfhæfa rík-
isstjórn eftir kosningarnar sem
fram fóru í lok desember.
Múhameðstrúarmenn, sem hafa
íjölmennasta þingflokkinn, eiga nú
í viðræðum við hinn hægri sinnaða
Föðurlandsflokk. Sá flokkur hefur
rekið ákafa Evrópustefnu og það
var undir forystu hans sem Tyrkir
sóttu um aðild að ESB árið 1987.
Forystumenn Föðurlandsflokks-
ins höfðu hafnað öllu samstarfi við
Velferðarflokk Erbakans en sæta
ný þrýstingi um að verja þá stefnu
sem Tyrkir hafa fylgt og grundvöll-
uð hefur verið á umburðarlyndi í
trúmálum, samstarfi við Vesturlönd
og aðild að Atlantshafsbandalaginu
(NATO). Komist múhameðstrúar-
menn til vaida í Tyrklandi mun það
því valda ákveðnum þátttaskilum í
sögu NATO og eru ýmsir uggandi
um þá framvindu mála.
Tyrkir hafa litið á tollabandalag-
ið sem mikilvægt skref í átt til fullr-
ar aðildar að ESB. Samkomulagið
við ESB var því talið sérlega mikil-
vægt en nú kunna vatnaskil að
vera í vændum í sögu Tyrklands
fari svo að leiðtogi flokks múham-
eðstrúarmana verði forsætisráð-
herra í fyrsta skipti frá 1923 er
tyrkneska lýðveldið reis upp af
rústum veldis Ottomanna.
Lögfræðiráðgjafi sendiráðs ESB
Minni trúverðugleiki
EFTA-stofnana
ROAR Julsen, lögfræðilegur ráð-
gjafi sendiráðs Evrópusambandsins
í Ósló, segir að stofnanakerfi EFTA
hafi veikst mjög eftir að þijú fjöl-
mennustu EFTA-ríkin gengu í Evr-
ópusambandið. Þess vegna geti t.d.
trúverðugleiki EFTA-dómstólsins
verið í hættu.
Julsen sagði á fundi Evrópusam-
takanna fyrr í vikunni að EFTA-
dómstóllinn gæti komist í erfiða
aðstöðu, þyrfti hann að dæma í
deilumáli EFTA-ríkis og Evrópu-
sambandsins.
„Ef dómstóllinn kemst að nið-
urstöðu, sem er ekki EFTA-ríkinu
í hag, getur það auðvitað sakað
hann um að draga um of taum
Evrópusambandsins og draga dám
af túlkun þess á EES-samningn-
um,“ sagði Julsen.
„Ef dómstóllinn kemst hins vegar
að gagnstæðri niðurstöðu getur
Evrópusambandið sagt sem svo að
hér sé í raun norsk-ísienskur dóm-
stóll, sem sé að dæma í málum Sem
snerti Noreg og ísland og sé því
ekki hlutlægur. Á þessu var ekki
sama hætta á meðan fleiri ríki voru
í EFTA.“
EES afgangsstærð
Julsen sagði að EES-samningur-
inn væri afgangsstærð hjá Evrópu-
sambandinu vegna ýmissa brýnni
verkefna, sem sambandið stæði
frammi fyrir. Hann sagði að EFTA-
ríkin þyrftu því varla að hafa
áhyggjur af að sambandið vildi
breyta samningnum. Hins vegar
yrðu EFTA-ríkin að gæta sín að
„rugga bátnum ekki um of‘ með
því að neita að taka við einhveijum
lögum og reglum Evrópusambands-
ins, sem taka ætti upp í samning-
inn. „ísland og Noregur geta ekki
valið og hafnað," sagði Julsen.
i
I
i
)
)
I
)
)
i
i
i
i
I
i
i
I
i
i
I
i
i
i
i