Morgunblaðið - 24.02.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 19
ERLENT
Umræða um varnarmál í Frakklandi
Tillögu um afnám
herskyldu misvel tekið
París. Reuter.
ÁFORM Jacques Chiracs Frakk-
landsforseta um að afnema her-
skyldu og koma þess í stað upp
atvinnuher hafa fallið í misjafnan
jarðveg í Frakklandi. Hafa stjórn-
málamenn jafnt til hægri sem
vinstri lýst því yfir að þeir telji
æskilegt að viðhalda herskyldu í
landinu.
Chirac átti í gær fund með fimm
hundruð yfirmönnum í hernum í
franska herháskólanum og hvatti
þá til að lýsa yfir eindregnum
stuðningi við þessa róttækustu
breytingu á franska hernum frá
því að Alsírstríðinu lauk árið 1962.
Hann sagði nauðsynlegt að
stokka hprinn upp á næstu sex
árum til að mynda „sannæfærandi
evrópskar varnir, sem gætu verið
jafnt hernaðarvængur Evrópu-
sambandsins sem Evrópustoð Átl-
antshafsbandalagsins."
Áformað er að fækka hermönn-
um í franska hernum úr 500 þús-
und í 350 þúsund og draga úr
kjarnorkuherafla Frakklands.
Kommúnistar
óánægðir
Margir hafa hins vegar orðið til
að gagnrýna áætlun forsetans allt
frá Robert Hue, leiðtoga kommún-
ista, til hægrimannsins Philippe
de Villiers.
Dagblað kommúnistaflokksins,
L’Humanité sa.gði í stórri fyrirsögn
á forsíðu: „Chirac afnemur varnir
þjóðarinnar". Stéttarfélagið CGT,
sem kommúnistar ráða, sagði í
yfirlýsingu að við þessar breyting-
ar myndi störfum í landinu fækka
um tugi þúsunda. Skoðanakönnun
fyrr í vikunni bendir hins vegar
til að 72% Frakka séu sammála
því að taka upp atvinnuher.
Lionel Jospin, leiðtogi sósíalista,
sagði nauðsynlegt að efna til mik-
illar og almennrar umræðu um
málið áður en herskylda yrði af-
numin og gagnrýndi Chirac fyrir
að hafa ekki minnst á nauðsyn
þess að hafa franskar sveitir sem
verðu landsvæði Frakklands.
Hann sagði forsetann einungis
hafa minnst á að kjarnorkuvopn
ættu að fæla frá því að gerð yrði
innrás í Frakkland í sjónvarpsvið-
tali á fimmtudag, þar sem hug-
myndirnar voru fyrst kynntar op-
inberlega. Hann hefði hins vegar
virst líta á hersveitir Frakka sem
einhveijar sveitir er ætti að senda
í leiðangra til annarra ríkja.
Þjóðernissinninn Jean-Marie Le
Pen, leiðtogi Þjóðarfylkingarinnar,
sagði Chirac hafa undirritað
„dauðadóm" fransks hergagnaiðn-
aðar og herafla. Það væri lýð-
skrum hjá Chirac að halda því
fram að þetta myndi spara fjár-
muni.
Hluti af franskri
menningu
Charles Pasqua, fyrrum innan-
ríkisráðherra og valdamaður í
RPR, flokki Chiracs, sagðist telja
æskilegt að viðhalda herskyldu að
hluta. Hún væri hluti af franskri
menningu og hefð og að þar væru
fulltrúar mismunandi stétta og
þjóðfélagshópa bræddir saman.
Paul Quiles, fyrrum vamar-
málaráðherra í ríkisstjórn sósíal-
ista, sagði forsetann hafa vanmet-
ið kostnaðinn við að þjálfa upp
menn í þijú ár í atvinnuher og
koma þeim út í þjóðfélagið á ný,
eftir að þeir hafi lokið störfum í
hernum.
Einnig hefur verið bent á að
það kunni að verða vandasamt að
fá ungmenni næstu árin til að
sætta sig við að vera þeir síðustu
er gegna herskyldu, en hún verður
við lýði í sex ár til viðbótar.
Helmut Kohl, kanslari Þýska-
lands, fagnaði þvi í yfirlýsingu
hversu mikinn stuðning Chirac
hefði sýnt Evrópusveitunum og
sagðist telja æskilegt að verulegur
fjöldi franskra hermanna yrði
áfram staðsettur í Þýskalandi á
næstu árum.
Reuter
CHIRAC Frakklandsforseti ræðir fyrirhugaðar breytingar í
varnarmálum við fréttamennina Anne Sinclair og Alain Duham-
el í Elysée-höll á fimmtudagskvöld.
Fahd tekur aftur við
völdum í Saudi-Arabíu
Dubai. Reuter.
FAHD, konungur Saudi-Arabíu, hef-
ur tekið aftur við stjórnartaumunum
en þeir hafa verið í höndum hálfbróð-
ur hans síðan hann fékk heilablóð-
fall í nóvember sl. Erlendir sendi-
menn telja þó líklegt, að Fahd, sem
er 74 ára að aldri, muni fela öðrum
á hendur sumar skyldur sínar.
Abdullah krónprins, hálfbróðír
Fahds og nokkru yngri en hann,
hefur stýrt ríkinu síðan í nóvember
og bjuggust fæstir við, að hann tæki
aftur við stjóminni.
Fahd konungur, sem er mjög
hlynntur vestrænum ríkjum, er einn-
ig forsætisráðherra en bræður hans
hafa stundum stýrt ríkisstjómar-
fundum, sem haldnir eru vikulega.
HAGKAUP
fyrir fjölskylduna
EUku/, hj\
ásti*v tuln/...
2 ao
i / t