Morgunblaðið - 24.02.1996, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ULFAR starfaði sem augnlæknir í herstöðinni á Miðnesheiði í 40 ár og
hér er hann með bandarískum aðstoðarmönnum og sjúklingi.
læknastofu í Reykjavík, fyrst í
Kirkjuhvoli, en síðan í Lækjar-
götunni. Auk þess var hann um árabii
svæðisaugnlæknir iyrir Norðurland,
utan Akureyrar, og flaug þá stundum
sjálfur á staðinn, en hann hafði lært
að fljúga í Bretlandi á árunum fyrir
stríð. Og í fjörutíu ár annaðist hann
augniækningar fyrir bandaríska her-
inn á Miðnesheiði.
MiMar framfarir
Á meðan hann skoðar mig á nýju
stofunni í Mjóddinni ræðum við um
framfarir í faginu:
„Pegar ég var í Þýskalandi voru
Þjóðverjar og Austurríkismenn taldir
mjög framarlega í augnlækningum og
meira að segja Ameríkanarnir leituðu
þangað. Þá höfðu nýorðið miklar
framfarir í augnlækningum og farið
að nota nýja tegund af augnspeglum
til að skoða augnbotninn, sem voru
mjög fullkomnir á þeirra tíma mæli-
kvarða. Það var von Helmholtz sem
fann hann upp. Svíarnir voru þá
komnir með mjög gott tæki,
Guldstrand-lampann, og grundvall-
aratriðin í honum eru enn uppistaðan
í þeim smásjám sem rtú eru notaðar.
Aðgerðir voru þá tiltölulega frum-
stæðar en von Grefe, sem var
prófessor í Berlín, var þá að koma
fram með nýjar aðferðir við
skurðaðgerðir við gláku. Við hann er
sá hnífur kenndur sem notaður var
við þessar aðgerðir, en hann er nú
löngu horfinn og komnir nýir hnífar
og leiser-geislar og þess háttar.
Eftir stríðið urðu miklar framfarir
á öllum sviðum. Við vorum einangr-
aðir hér í stríðinu, en strax í stríðslok
fór ég til London til að kynna mér
nýjungar í faginu. Þá sá ég í fyrsta
skipti svæfingarlækni og það þótti
mér miklar framfarir. Þjóðverjarnir,
sem ég hafði verið samtíma í Berlín,
buðu mér svo til Þýskalands til að
vera við opnun fyrstu nýju augn-
læknadeildarinnar í Bonn 1950. Svo
fór ég til Bandaríkjanna 1952 og sá
þar marga merkilega hluti, en þá
voru allar þessar nýjungar að velta
fram. Svo uppgötvaði Meyer-
Schwickerath, sem starfaði í Bonn og
ég þekkti vel, að menn gátu brennst í
augnbotninum við að horfa í sól-
myrkva og var frumkvöðull að því að
nota þetta sama ljós til að gera
aðgerðir inni í augnbotninum.
Skömmu seinna komu Pólverjar
með þá nýjung að í staðinn fyrir að
nota tengur inni í auganu til að gera
aðgerðir við drerasýki, sem er
ákveðin tegund af blindu, þá náðu
þeir augnsteininum úr auganu með
þvi að frysta hann við nál og draga
hann þannig út með miklu minni
áhættu heldur en áður. Við fengum
fljótiega svona tæki til ísiands, sem
smíðuð voru í Suður-Afríku. Ég fékk
fyrsta tækið og á það enn og geymi
vel. Ein helsta breytingin í seinni tíð
er það að setja tæran og nýjan augn-
stein úr plasti í stað hins sjúka og
gagnslausa.“
Lennan í stað
ChurchiHs
Ulfar segir mér ýmislegt fleira um
framfarir í augnlækningum sem ekki
eru tök á að fara nánar út í hér. En að
lokinni skoðun skrifar hann
sjónprófsgreiningu, og með hliðsjón
af sjóndepurð vinstra augans og
minnugur hins fornkveðna, að „betur
sjái augu en auga“ fer ég sem leið
liggur á hæðina fyrir neðan, til
Péturs Christiansens og Kjartans
Iíiistjánssonar gleraugnafræðinga í
Gleraugnaversluninni í Mjódd og
panta mér gleraugu.
Ég verð þó að viðurkenna að ég fór
aðeins á skjön við ráðleggingar
Ulfars varðandi umgjörð gleraug-
nanna, því í stað þess að fá mér lauf-
léttan hálfmána að hætti Churchills
notaði ég tækifærið, lét gamlan
draum rætast og fékk mér kringlótt
gleraugu í anda Lennons.
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 27
Setja peninga í níu rauð umslög.
Fela
salernis-
skálina.
% 'y4,
Smíða nýjan stiga.
EF MARKA má forn-kínversku vísindin feng shui
gétur niðurröðun hluta í umhverfinu veitt manni
gott brautargengi, eða staðið fyrir þrifum. Það
mun vera afar vinsælt í Bandaríkjunum um þessar
mundir að leita á náðir sérfræðinga til þess að rétta ör-
lögunum hjálparhönd til hins betra, einkum meðal
leikara og verðbréfasala. Einnig er sagt að athafna-
maðm-inn Donald Trump hafi umturnað öllu í byggingu
sinni á Manhattan samkvæmt fyrrgreindum lögmálum.
Gene Stone greinahöfundur tímaritsins Esquire
fékk einn helsta sérfræðing Bandaríkjanna í feng shui,
Steven Post, heim til
sín og greinir frá heim-
sókninni í mars hefti
útgáfunnar.
Kenningin er sú að
orkusvið jarðarinnar,
chi, leiki um mann-
eskjuna öllum stund-
um og talsvert ríði á að
koma hlutum þannig
fyi-ir að þeir hindri ekki eðlilegt flæði.'Slíkt geti ráðið
úrslitum um velgengni.
„Post virðist afskaplega venjulegur maður og ber
gott skynbragð á orkuflæði jarðar eftir 25 ára legu yfir
fræðunum. „Fólk leitar til mín eftir ráðleggingum í
fjármálum, eða vegna samskipta við hitt kynið,“ segir
hann. I kynningarbæklingi fyrir starfsemi sína lofar
hann auknu fjárflæði, fleiri tækifærum og betri af-
komu. Þetta virðist draga nokkurn dám af liðnum
áratug, en ég læt blekkjast," segir Stone í grein sinni.
Lsegra hús, glatað tseMfæri
„Við byrjum á því að skoða húsið að utan. I ljós kem-
ur að það er minna en hin, sem ekki veit á gott; tæki-
færi sem aldrei koma aftur. Auk þess er það brúnt á lit,
sem ekki er betra. Mér er því sagt að hressa upp á það
með rauðu og grænu. Verst að jólin skulu vera liðin.
Þá er komið að innganginum. Ekki tekur betra við
þar. Hurðirnar eru of margar og anddyrið aðþi-engt,
sem endurspeglar sundurlyndi íbúanna. Mér ber að
bregðast við þessu, til dæmis með því að hengja upp 30
tommu margstrendan kristal í níföldu, rauðu bandi.
Ekki skánar það þegar lengra er haldið. Tröppurnai-
eru of nálægt dyrunum, sem hindrar fjárílæði, og stiga-
pallarnir eru ekki sem skyldi. Þar þarf að koma fyrir
plöntum til að laða að góða anda. Þegar inn í mína íbúð
er komið kastar fyrst tólfunum. Hún er of dimm.
Hurðirnar í ganginum eru of margar. Fjöldi brennara í
eldavélinni er ekki réttur og það þarf að setja spegla
fyrir ofan arininn til þess að auka á ríkidæmi mitt. Mér
er ráðlagt að kaupa afskorin blóm þriðja hvern dag í
mánuð til þess að örva orkuflæðið og leysa hnúta sem
verið hafa þrándur í götu um langa hríð. Jafnframt þarf
ég tylft ki-istalla til að
mýkja flæðið.
Baðherbergið er
ekki á réttum stað og
klósettskálin á ekki að
vera svona áberandi.
Mér líður eins og
versta nirfii. Svefn-
herbergið er iðandi af
slæmum straumum.
Post spyi- hvort ég þekki einhvern Lewis, og virðist í
vandræðum með að átta sig. Hann ráðleggur mér að
fylla herbergið af blómum og speglum. Ekki er allt
upptalið. Ég þarf líka að festa höfuðgaflinn betur á
rúmið til þess að auka á stöðugleika í einkalíímu. Svo
þarf ég hengiplöntu, kringlóttan sþegil fyrir ofan rúmið
og bambusflautu beggja vegna.
Hlgðinn en Mnclarlegur
Loks bendir hann mér á að taka öllum tilboðum sem
kunni að berast á næstunni og vill að ég setji það sem
ég skulda honum fyrir þjónustuna í níu rauð umslög.
Hann tekur umslögin, hneigir sig og setur peningana á
höfuðið. Virðist það gert í þakklætisskyni.
Næstu daga fer ég að ráðum hans í einu og öllu,
nokkuð kindarlegur. Ný blóm varpa ljóma á dauílegar
vistarverur, anddyrið er fullt af óróum og alls kyns
kristal og speglar hvert sem litið er. Skömmu síðar ber-
ast mér tvö bestu tilboð starfsævinnar. Aður fyrr hefði
ég þakkað umboðsmanninum, gráti nær, í dag lofa ég
vísindi orkusviðsins. Jafnframt velti ég því fyrir mér að
festa upp hundruð spegla."
VISA korthafar íferðahugleiðingum eru í góðum málum.
PORTUGAL, ALGARVE
5.000 kr
MAJORCA, 54 COMA
afsláttur á mann afsláttur á mann
Takmarkað sætaframboð.
Einstök kjör á ferðum til Algarve í Portúgal og Sa Coma á Majorca.
Kynnið ykkur brottfarardaga og skilmála.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM kl.: 10-14
V/SA
Faxafeni 5 108 Reykjavík Sími: 568 2277. Fax: 568 2274
FERÐIR