Morgunblaðið - 24.02.1996, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 45
FRÉTTIR
Nýtt skátaheimili vígt
Litunar-
keppni í
Borgarkjall-
aranum
LITUNARKEPPNI ’96 verður
haldin í Borgarkjallaranum (áður
Amma Lú) sunnudaginn 25.
febrúar. Húsið verður opnað kl.
14 og keppnin hefst kl. 15. Tæp-
lega 60 aðilar taka þátt í keppn-
inni sem er þvíþætt. Annars veg-
ar er frjáls aðferð þar sem fag-
manninum er allt leyfilegt í
klippingu og litun. Hins vegar
er keppt í útfærslu á lit- og form-
gerðum hártískunnar í dag.
Tískusýning fata og skart-
gripa verður kl. 17. Þar mun
samspil hárs, fata og förðunar
njóta sín. Litunarmeistari ’96
fær í verðlaun bikar og ferð á
heimsmeistarakeppni í hár-
greiðslu og hárskurði í Washing-
ton í ágúst.
Hárgreiðslumeistarafélag ís-
lands stendur fyrir keppninni en
fagfélögin Félag meistara og
sveina í fataiðn, Félag íslenskra
gullsmiða og Félag íslenskra
snyrtifræðinga taka þátt í henni:
Opið hús hjá
Okuskólanum í
Mjódd
OPIÐ hús verður hjá Ökuskólanum
í Mjódd laugardaginn 24. febrúar frá
kl. 13-17 í tilefni af evrópsku ári
símenntunar 1996. Auk þess að al-
mennt starf skólans verður kynnt
mun sérstök áhersla verðá lögð á að
kynna aukin ökuréttindi þ.e. réttindi
til aksturs hóp-, vöru- og leigubif-
reiða ásamt réttindum til bifhjóla-
aksturs.
Kennarar skólans munu einnig
kynna námskeiðin sem haldin eru
fyrir B-ökuréttindi eða almennt bif-
reiðastjórapróf. Sérstök athygli er
vakin á kynningu á bifhjólanámskeið-
um kl. 16.30. Kynningarmappa skól-
ans mun liggja frammi.
Fyrirlestur um
gæðahúsið
FYRIRLESTUR um gæðahúsið verð-
ur haldinn, á vegum Sjávarútvegs-
hóps Gæðastjórnunarfélags íslands,
þriðjudaginn 27. febrúar kl. 8.15-
9.30, hjá Verkfræðistofu Stefáns Ól-
afssonar, VSÓ, Borgartúni 20,
Reykjavík.
NÝTT skátaheimili Skátafé-
lagsins eina í Reykjavík verð-
ur vígt í dag í Arnarbakka 2
en Skátasambandið keypti
húsnæðið af Pósti og síma í
ágúst 1992. Kostnaður við
heimilið nemúr nú um sex og
hálfri milljón króna.
Skátafélagið eina var stofn-
að árið 1988. í Eina starfa
sjötíu skátar og hafa þeir lagt
nótt við dag undanfarið til að
allt verði tilbúið fyrir vígsl-
una. Auk skátanna hafa félag-
ar í Kiwanisklúbbnum Viðey
lagt hönd á plóginn svo og
ýmsir velviljaðir einstakling-
ar.
Nýja skátaheimilið er 160
fermetrar.
Að sögn Jóns Ingvars Har-
aldssonar félagsforingja eru
þetta merk tímamót fyrir fé-
lagið. Hann sagði krakkana
hafa unnið af krafti og dugn-
aði við nýja heimilið og mikill
hugur væri í þeim að takast
á við starfið og ný verkefni.
Fyrirlesari verður Haraldur
Hjaltason, VSÓ, og mun hann kynna
hvemig hægt er að nota gæðahúsið
til að skilgreina væntingar viðskipta-
vina. Fundurinn er öllum opinn.
Listaverkasala
Sjálfsbjargar
SJÁLFSBJÖRG, félag fatlaðra í
Reykjavík og nágrenni, opnar sölu-
sýningu á listaverkum í Ráðhúsi
Reykjavíkur í dag, laugardaginn 24.
febrúar, og stendur hún til 4. mars
nk.
Verkin á sýningunni eru gefin af
listafólkinu og verður ágóðanum
varið til uppbyggingar á Sólbakka
við Vatnsenda. Landinu var gefið
nafn ti! minningar um Sigurð Guð-
mundsson, ljósmyndara, sem var
farsæll formaður þess um árabil, en
hús Sigurðar í Laugamesinu hét
Sólbakki.
■ BÚSETI á höfuðborgursvæð-
inu heldur kynningu á félaginu í
Kópavogi sunnudaginn 25. febrúar
kl. 14 til 18. Búnaðarbankinn kynn-
ir nýjan búspamaðarreikning og
myndir og teikningar af íbúðum fé-
lagsins verða til sýnis. Búseti rekur
um 300 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu
og era félagsmenn á þriðja þúsund
talsins.
Norræn bænaráð-
stefna í Færeyjum
NORRÆN bænaráðstefna verður
haldin í Þórshöfn í Færeyjum dag-
ana 19.-21. apríl nk. Bænaráð-
stefnan er opin öllum kristnum,
sama hvaða trúfélagi þeir tilheyra,
til að sameinast í bæn fyrir Norð-
urlöndunum.
í fréttatilkynningu frá mótsnefnd
segir: „Hugmyndin kviknaði þegar
safnaðarhirðar frá Færeyjum og
íslandi ræddu um stöðu kristinnar
í ljósi þess að einungis þrjú þessara
landa hafa enn ekki samþykkt hjú-
skaparlöggjöf fyrir samkynhneigða
(Finnland, Færeyjar og ísland). Hin
fjögur löndin hafa samþykkt löggjöf
sem er í andstöðu við tilskipun Guðs
þar sem aðeins karl og kona geta
myndað sameiginlegt hjónaband og
er sú hjónabandsmynd sett upp sem
útskýring á sambandi Krists og
safnaðarins (kirkjunnar).
Bænaráðstefnan hefst föstudags-
kvöldið 19. apríl og lýkur á sunnu-
dagskvöldinu með lofsöng og hátíð
fyrir augliti Drottins. Ráðstefnan
samansténdur af fræðsluerindum
og bæn. Erindi verða flutt af Kjell
Sjöberg frá Svíþjóð, Kurt Christ-
iansen frá Danmörku og Friðriki
Schram frá íslandi. Þeir aðilar sem
standa fyrir þessari ráðstefnu eru:
Fíladelfía, Hjálpræðisherinn, Imm-
anuel og Hoyvíkur-söfnuðurinn.
Allir sem hafa áhuga á þátttöku
geta fengið frekari upplýsingar í
síma: 00 298 14828 eða 00 298
14067 í Færeyjum. Skriflegar upp-
lýsingar er hægt að fá frá Fíladelf-
íu, Landavegi 22, Fr-100 Tórshavn.
Ferðahópar næstu daga
Ferðafélag íslands
SKÍÐAGÖNGUFERÐ Ferðafélags
íslands frá Stíflisdal að Skógarhól-
um í Þingvallasveit fer fram sunnu-
daginn 25. febrúar kl. 10.30 (geng-
ið í um 5 klst.).
Kl. 13 sama dag verður vetr-
arferð á Þingvelli. Gönguferð um
Almannagjá og Bláskógaheiði eftir
því sem tíminn leyfir. Kl. 13 á
sunnudag verður einnig skíðaganga
Fyrirlestur á
vegum ís-
lenska mál-
fræðifélagsins
DR. MATTHEW Whelpton, rektor
í ensku við Háskóla Islands, flytur
opinberan fyrirlestur á vegum ís-
lenska málfræðifélagsins í stofu 423
í Árnagarði þriðjudaginn 27. febr-
úar nk. kl. 17.15. Fyrirlesturinn
nefnist: „Heading for an Argument:
Purpose Clauses and Predication in
English“.
Dr. Matthew Whelpton lauk
Master of Philosophy prófi frá Uni-
versity of Oxford 1993 og doktors-
prófi frá sama skóla 1995. Doktors-
ritgerð hans nefnist: „The Syntax
and Semantics of Infinitives of Res-
ult in English."
á Mosfellsheiði (gengið í um 3 klst.).
Komið verður til baka úr þessum
ferðum kl. 18.
Útivist
ÚTÍVIST stendur fyrir léttri
göngu um Álftanes á sunnudag.
Farið er af stað frá Umferðarmið-
stöðinni kl. 10.30 en einnig er hægt
að koma í ferðina við Bessastaði
kl. 10.45. Gengið verður um Bessa-
staðanés og komið við í Skansinum.
Síðan verður gengið með Sellunni
og ströndum suður með Skógtjörn.
Ferðin kostar 800/700 en 200
fyrir þá sem koma við á Bessastöð-
um.
Hafnargönguhópurinn
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
fer í næstu viku í kvöldgöngu sinni
með allri ströndinni eins og kostur
er frá Fossvogslækjarósi út á Suður-
nes og Snoppu og áfram inn með
Sundum að Korpúlfsstaðaárósum
(Blikastaðakró).
Raðgangan hefst við Fossvogs-
lækjarósinn (skammt utan við Nesti
í Fossvogi) á mánudaginn 26. febr-
úar kl. 19.30, síðan gengið með
ströndinni út á Bakkavör á Seltjam-
arnesi þar sem fyrsta áfanga lýkur.
Hægt verður að koma í gönguna
við Skeljanes hjá birgðastöð Skelj-
ungs kl. 20. Val um að ganga til
baka eða taka SVR.
Á þriðjudag verður gengið kl. 20
frá Bakkavör, húsi Björgunarsveit-
arinnar Alberts, með ströndinni nið-
ur á Miðbakka að Hafnarhúsinu.
DAGUR
SÍMENNTUNAR
Opið hús
Laugardaginn 24. febrúar verður opiS hús í nýjum húsakynnum í
Húsi iðnaðarins, Hallveigarstíg 1, kl. 13:00 - 17:00
Lifandi módel, klædd, greidd og snyrt.
Nýjungar í Ijósmyndatækni.
Internetió, FreeHand, Photoshop,
Word og QuarkXPress.
Prentun og bókband.
Gull, silfur og eóalsteinar.
Ur og klukkur.
Rör í rör.
Tennur, brýr og gómar.
Mólmar, renndir, skornir og beygöir.
íslenskur bakstur, m.a. konudagskaka.
Sjá tímasetningar á dagskrá { opnuauglýsingu annars staðar í blaSinu.
Fulltrúar endurmenntunarstofnana iönaöarins kynna:
Námsefni og námsleiðir í iðnnámi.
Símenntun í iðnaði.
Féiags- og
Fræðslumiðstöð
Iðnaðarins
Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík • Sími 562 0775 • Fax 562 0758 • Netfang prent@centrum.is
Félag íslenskra gullsmiSa • iSnaöarmannafélagiS í Reykjavík • Félag meistara og sveina í fataiSn
Félag pipulagningameistara í Reykjavík • FræSsluráS málmiSna&arins • HárgreiSslumeistarafélag íslands
Landssamband bakarameistara • Ljósmyndarafélag íslands • Prenttæknistofnun • Samband íslenskra tannsmíöaverkstæða
Sammennt (Samstarfsnefnd atvinnulífs og skóla) • Úrsmiðafélag íslands
Fræðsluráð byggingaríðnaðarins og Félag íslenskra snyrtifræðinga taka þátt í opnu húsi FFI