Morgunblaðið - 09.07.1996, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Queen Elizabeth II vakti mikla athygli á ytri höfninni í gær
Morgunblaðið/RAX
Um 1.100 farþegar
lögðu land undir fót
MIKIÐ var um að vera við Sæ-
braut og á Miðbakka í gærdag
þegar skemmtiferðaskipið Queen
Elizabeth lá við akkeri á ytri höfn-
inni í Reykjavík. Skipið kom til
landsins snemma í gærmorgun og
um klukkan tíu var byrjað að ferja
um ellefu hundruð farþega til og
frá borði. Koma skipsins vakti
mikla athygli vegfarenda, sem
lögðu bílum sínum meðfram Sæ-
brautinni og virtu skipið fyrir sér.
Margir voru með sjónauka og má
segja að stöðugur straumur bíla
hafi legið meðfram grjótgarðinum
þar til skipið lét úr höfn.
Gunnar Rafn Birgisson, starfs-
maður Samvinnuferða-Landsýn-
ar, hafði umsjón með ferðum gest-
anna á Miðbakka í gær og sagði
hann að tíu rútur hefðu flutt far-
þega að skoða Gullfoss og Geysi,
átta í Bláa lónið og fjórar um
borgina. Flestir farþeganna eru
breskir og bandarískir, þótt
nokkrir íbúar meginlandsins séu
innan um, að Gunnars sögn. Þegar
rúturnar komu til baka um þijú-
leytið færðu hafnfirskir álfar
þeim íslenskt súkkulaði í vegar-
nesi og gengu gestirnir jafnframt
um borð í lóðsinn við harmoníku-
undirleik.
John og Evelyn Buchan voru
meðal þeirra sem komu til lands-
ins með Concorde-þotu í gær og
hugðust sigla til Noregs. „Við vor-
um sótt út á flugvöll og því næst
var farið með okkur í skoðunar-
ferð um Reykjanes. Þetta hefur
verið mjög skemmtilegt," segja
Buchan-hjónin. Þau hafa aldrei
komið til Islands áður og höfðu á
orði að það hefði virst framandi
við fyrstu kynni. „Þegar vélin lenti
var engu líkara en að við væru
lent á Tenerife, að hitanum undan-
skildum, auðvitað. Landslagið þar
er líka eins og á tunglinu," segir
John.
John og Evelyn eru í tíu daga
ferð og halda til Southampton að
Noregsferðinni lokinni. Að því
búnu stíga þau um borð í Austur-
landa-hraðlestina sem flytur þau
á leiðarenda; Viktoríu-stöð í Lund-
únum. „Núna erum við á leið um
borð. Vonandi verður okkur boðið
í hanastél hjá skipherranum í
kvöld,“ segja þau að lokum, skelli-
hlæjandi.
Næst á vegi verða Partap og
Padma Lalvani frá Indlandi, sem
búsett eru í Lundúnum. Þau sigldu
með skipinu frá Southampton með
viðkomu í Liverpool og Greenock
í Skotlandi. Lalvani-hjónin skoð-
uðu Gullfoss og Geysi og að því
búnu keyrðu þau um borgina.
Kváðust þau meðal annars hafa
séð Alþingishúsið og Höfða „þar
sem Reagan og Gorbatjsov hitt-
ust“ og voru alsæl yfir veðurblíð-
unni. „Við pökkuðum góða veðr-
inu með okkur,“ bætir Partap við,
kankvíslega.
Það sem kemur þeim mest á
óvart eftir fimm tíma skoðunar-
ferð er tijáleysið því ekki finnst
þeim skorta á landflæmið undir
tré. „Þetta er mjög fallegt land,
sem ég ætla að mæla með við alla
mína vini,“ segir Padma. Finnst
henni loftið tært og borgin snyrti-
Ieg og hrein. Undir það tekur
Partap og bætir við að íslendingar
séu vingjarnlegir, hjálpsamir og
mælskir á erlendar tungur.
Fjórða siglingin
Elsie og Ken Hinshalwood, sem
búa skammt frá frá Glasgow, voru
nýkomin úr ferð til Gullfoss og
Geysis og þótti mikið til hversins
koma. Að því búnu var haldið nið-
ur í miðbæ. „Við hefðum viljað sjá
meira af miðborginni því þetta er
í fyrsta skipti sem við komum til
íslands," segja þau. Hinshalwood-
hjónin stigu um borð í Greenock
og voru hæstánægð með að sigla
eftir ánni Clyde á leið sinni út á
rúmsjó. Er þetta fjórða sigling
þeirra með Queen Elizabeth.
„Mér finnst ísland ekki ósvipað
heiðum Norður-Skotlar.ds. Landið
er miklu grænna. Eg bjóst við
tómu hrauni. Veðrið er líka miklu
betra en við áttum von á. Leiðang-
ursstjórinn hafði sagt okkur að
búast við kulda og regni svo við
erum hæstánægð með daginn i
dag. Okkur finnst Reykjavík og
nágrenni mjög tilkomumikið og
þykir leitt að geta ekki stoppað
Iengur,“ segja Elsie og Ken loks.
JOHN og Evelyn Buchan.
KEN og Elsie Hinshalwood.
PARTAP og Padma Lalvani.
Stolið úr
bænum
á Stöng
BROTIST var inn í söguald-
arbæinn Stöng í Þjórsárdal
aðfaranótt iaugardagsins og
höfðu þjófarnir um 50 þús-
und krónur í reiðufé á brott
með sér. Þeir skildu hins
vegar eftir greiðslukortanót-
ur og ávísan:", sem gefnar
eru út af ferðaskrifstofum
til að tryggja ferðamönnum
aðgang að bænum.
Lögreglunni á Selfossi var
tilkynnt um innbrotið á laug-
ardagsmorgun. Þjófarnir
höfðu tekið útihurð bæjarins
af hjörum og komist þannig
inn.
Peningakassi, sem venju-
lega er fjarlægður að kvöldi
þegar bænum er lokað, hafði
gleymst þennan dag og því
höfðu þjófarnir um fimmtíu
þúsund krónur upp úr krafs-
inu.
Þjófarnir voru ófundnir
síðdegis í gær.
Skemmdir í
austurborg
ÞRÁTT fyrir að óvenju rólegt
væri í umdæmi lögreglunnar
í Reykjavík um helgina voru
þó ekki allir til friðs. Þannig
var nokkuð um skemmdar-
verk.
Einkum voru skemmdar-
verkin framin í austurhluta
borgarinnar. Þar voru til
dæmis brotnar rúður og
grindverk skemmd.
Þrír menn voru handteknir
eftir að hafa brotið rúður í
Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti aðfaranótt laugardags-
ins.
Barði
KApur
Bjargtangar
Hafís fyrir
Vestfjörðum
5. júlí 1996
Hafís
óvenju ná-
lægt landi
HAFÍS hefur nú nálgast
landið frá Grænlandssundi.
Þór Jakobsson veðurfræð-
ingur hjá Veðurstofu íslands
segir að ísjaðarinn sé óvenju-
nálægt landinu miðað við
árstíma vegna langvarandi
norðvestlægrar áttar. Búist
er við að ísinn hörfí vegna
hagstæðrar austanáttar sem
á að haldast út vikuna og
ekki er útlit fyrir að ísinn
reki inn á siglingaleiðir.