Morgunblaðið - 09.07.1996, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ1996 23
Kuldar í
S-Afríku
Jóhannesarborg. Reuter.
FIMM manns létust úr kulda í
Suður-Afríku um helgina en
þar hefur ekki verið jafn kalt
í veðri um áratugaskeið. Þá
köfnuðu þrír í kolareyk á heim-
ili sínu vegna ónógrar loftræst-
ingar.
Mestur var kuldinn í Kimber-
ley í Norður-Höfðahéraði, sjö
gráðu frost á celsíus, og sums
staðar í landinu eru mestar
snjóar í 60 ár. í Austur-Höfða-
héraði er þetta kaldasti vetur
frá 1981.
Vegurinn milli Jóhannesar-
borgar og strandar var lokaður
í gær vegna mikilla snjóa og í
einu fjallaskarðinu voru skafl-
arnir hálfur þriðji metri á dýpt.
Olli þetta ástand miklum vand-
ræðum enda er fátítt, að mikið
snjói í Suður-Afríku og yfirvöld
því ekki undir það búin hvað
varðar tækjakost og önnur við-
brögð. Búist var við því í gær,
að úr kuldunum drægi með
kvöldinu.
Mengun í
Kína ógn-
ar Asíu
Hong Kong. Reuter.
MIKIL og vaxandi mengun í Kína
verður hugsanlega orðin óviðráðan-
leg eftir tvo áratugi og þá um leið
farin að ógna lífríkinu í öllum nálæg-
um löndum. Kemur þetta fram í
nýrri bók eftir frammámann hjá
verðbréfafyrirtækinu Merrill Lynch
International.
„Vandinn er svo mikill, að líkiega
fær enginn neitt við hann ráðið,“
segir Randy Harris, höfundur bókar-
innar. „Iðnvæðingin í Kína, sem er
farin að teygja sig inn í landið, á
eftir að hafa gífurleg umhverfisáhrif
og þótt kínversk stjórnvöld vilji vel,
þá geta þau litlu um það breytt,"
segir Harris.
Harris segir, að útilokað sé að
hafa hemil á menguninni á sama tíma
og iðnvæðingin er jafn hröð og nú er
í Kína og þess muni ekki langt að
bíða, að hún fari að hafa veruleg
áhrif í Suður-Kóreu, Rússlandi, Jap-
an, Hong Kong og Tævan.
-----» ♦ ♦------
Rómanska Ameríka
60% barna
búa við
fátækt
Bogota. Reuter.
UM ÞAÐ BIL sextíu prósent barna
í Rómönsku Ameríku lifa við fá-
tækt, og hlutfallið eykst dag frá
degi, segir í skýrslu frá Alþjóða-
bankanum.
í skýrslunni segir, að börn yngri
en 15 ára séu 35%, eða 58 milljón-
ir, af þeim 165 milljónum manns
sem lifa við fátækt í Rómönsku
Ameríku og Karíbahafi. Há fæð-
ingatíðni veldur því, að fjöldi fá-
tækra eykst.
Skýrslan heitir Börn þeirra fá-
tæku og var gerð í tengslum við
ráðstefnu um þróun í Rómönsku
Ameríku og Karíbahafi, sem hófst
í Kólombíu í liðinni viku.
„Fátækt er arfgeng,“ segir í
skýrslunni. „Líkt og afbrigðilegt
gen erfist hún frá einni kynslóð til
annarrar. Besta leiðin til þess að
ijúfa þessa keðjuverkan er að veita
börnum, sem alast upp við skort,
tækifæri til að losna úr viðjum fá-
tæktar með því að afla sér mennt-
unar.“
Tugþúsundir manna hylla minningu „Leiðtogans mikla“ í Norður-Kóreu
Scoul. Reuter.
TUGIR þúsunda hermanna og
óbreyttra borgara hylltu í gær minn-
ingu „Leiðtogans mikla“ í Norður-
Kóreu, Kim Il-sungs, en tvö ár eru
liðin frá því hann lést.
Ekkert kom fram við athöfnina,
sem benti til hvenær sonur hans,
Kim Jong-il, tæki formlega við ríkis-
erfðum en líklegt er, að það verði
þegar formlegum þriggja ára sorgar-
tíma lýkur.
Kim Jong-il hefur ekki enn tekið
við sem forseti ríkisins og aðalritari
kommúnistaflokksins en við athöfn-
ina í Pyongyang í gær fylgdu norður-
kóresku sjónvarpsvélarnar honum
fast eftir þannig að fullvíst er talið,
að ríkiserfðirnar bíða hans. Höfðu
sumir spáð því, að hann tæki við af
Kím bíður enn
eftir krúnunni
föður sínum nú á tveggja
ára ártíð hans en í myrku
ljóði, sem biit var í síðustu
viku, virðist gefið í skyn, að
hann muni bíða út þriggja
ára sorgartímann.
Kim Jong-il hefur • verið
lýst sem ofdekruðum pabba-
dreng en erlendir stjórnarer-
indrekar telja, að hann hafi
Kim Jong-il
breyst verulega síðan faðir
hans féll frá. Viðbrögð
Norður-Kóreustjórnar virð-
ast ekki eins óútreiknanleg
og áður.
Hungur í landi
Þrátt fyrir mannfjöldann
var enginn sérstakur gleði-
bragur á samkomunni.
Suður-kóreskir sérfræðingar í mál-
efnum N-Kóreu geta sér til, að ekki
hafí þótt við hæfi að efna til krýning-
arathafnar nú þegar stór hluti þjóð-
arinnar sveltur heilu hungri og marg-
ir verða að leggja sér rætur og trjá-
börk til munns.
Kólerufaraldur hefur brotist út í
landinu og er vannæring sögð ástæða
hans. Hafa hundruð manna sýkst og
margir látist, bæði hermenn og al-
menningur, að sögn suður-kóresku
leyniþjónustunnar.
Talsmenn Rauða krossins og
Rauða hálfmánans segja að upp-
skerubrests vegna mikilla flóða gæti
enn. Ekki sé víst að hrísgijónaupp-
skeran nægi til að fæða nema um
4-5 milljónir manna en íbúar landsins
eru 23 milljónir.