Morgunblaðið - 09.07.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1996 39
Ekki má gleyma ferðinni til
Glasgow þar sem tekið ver eftir
stórum hóp kvenna sem skartaði
sínu fínasta pússi, allar með fína
hatta og skemmtu sér konung-
lega. Þá kom það vel í ljós að ald-
ur er huglægur og enginn er eldri
en hann vill vera.
Guðný er einstaklega gestrisin
og gjafmild kona og hluti af henn-
ar lífsviðhorfi var að sælla er að
gefa en þiggja. Þetta sýndi hún
svo oft og eitt skipti tók hún á
móti sölukonum úr Kolaportinu
með góðum veitingum eftir að
hafa verið að selja fyrir deildina
ýmsan varning, þ.á m. laufabrauð
sem slysavarnakonur skáru út og
steiktu.
Þetta var dásamlegt kvöld og
gott innlegg í sjóð minninga, þann
dýrmæta sjóð sem við geymum í
hjarta okkar og við vitum það,
vinkona, að við eigum oft eftir að
líta þann sjóð og rifja upp gamlar
og góðar minningar frá skemmti-
legum stundum og ferðalögum
okkar bæði innanlands og utan.
Þær eru horfnar yfir móðuna
miklu með svo stuttu millibili,
Guðný og dæturnar Jóna og Solla.
Blessuð sé minning þeirra.
Birna Björnsdóttir og
Helga Haraldsdóttir.
Faðir vor,
þú, sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn,
tilkomi þitt ríki,
verði þinn vilji,
svo á jörðu sem á himnum.
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Og fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum
vorum skuldunautum.
Eigi leið þú oss í freistni,
heldur frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið,
mátturinn og dýrðin að eilífu. Amen.
Elsku amma mín.
Það er svo sárt að missa þig.
Við höfum alltaf verið mjög góðar
vinkonur þrátt fyrir aldursmuninn
og ég var nú ekki há í loftinu
þegar ég kom í strætó á Skúlagöt-
una eða fór að fara með þér í
Skúlatúnið. Þá snerist lífið og til-
veran um Skúlagötuna, um ömmu
og afa og öll frændsystkinin sem
hópuðust þangað. Og þó að árin
hafi Iiðið hefur þetta lítið breyst.
Alltaf safnast saman á Skúló og
oft var nú þröng á þingi. Ég hef
oft hugsað til þess þegar þið afí
voruð nú þarna með allan barna-
hópinn og oft næturgesti líka.
Ótrúlegt hvað þessi tveggja her-
bergja íbúð gat rúmað marga. En
brátt verður hún tóm og engin
amma.
Minningarnar eru margar og
góðar og þær tekur enginn, það
er svo stutt síðan við vorum sam-
an á Spáni sl. haust þegar mamma
varð fimmtug. Þá fýrst tók ég al-
mennilega eftir því að þú varst
nú enginn unglingur lengur. En
samt varst þú aldrei neitt gamal-
menni. Alltaf amma á Skúló sem
alltaf var til í allt. Að skella sér
til Newcastle eða til Spánar, ekk-
ert mál fyrir Guðnýju Jóakims,
bara drifið sig í bingó og reyna
að freista gæfunnar, og oft varstu
nú heppin.
Það var svo gaman þegar fjöl-
skyldan með hjálp frá slysavarna-
konum fékk að halda upp á 80
ára afmælið þitt. Þú varst ákveðin
í að vera að heiman en lést svo
undan og endirinn var frábær af-
mælisdagur sem seint gleymist.
Þú leist svo vel út og lékst á als
oddi. Og allir þínu góðu eiginleikar
sem þú hafðir til að bera. Ég var
ekki nema þriggja ára þegar þú
kenndir mér að biðja Faðir vorið.
Stundvísi var líka eitt. Tilbúin á
mínútunni og beiðst niðri í gangi
til að ekki þyrfti að bíða eftir þér.
Stundum fannst mér nóg um.
Elsku amma mín.
Þá er komið að kveðjustund.
Ég er þakklát fyrir þau rúm þrjá-
tíu ár sem ég fékk að hafa þig
hjá mér en það er svo erfitt að
kveðja þig. Ég veit að þú ert
mmŒwmm
Þann 14. september býður Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar beint leiguflug til
hinnar fomfrægu og fallegu borgar Prag. Heimflug til íslands er síðan þann 21.
september. Fjöldi hagstæðra ferðamöguleika er í boði, meðal annars getum við boðið
flug og hótel í eina viku í Prag frá 48.420,- krónum á mann og er þá innifalinn
flugvallarakstur, morgunverður, flugvallarskattur og íslensk fararstjóm.
Einnig getum við boðið flug og bíl frá krónum 28.260,- miðað við 4 fullorðna í bll
og gefst þá kostur á að skoða ýmsa staði sem ekki er hægt að heimsækja á bílum,
sem leigðir eru á vestlægari slóðum.
Leitið nánari upplýsinga hjá utanlandsdeild okkar.
i
Ferðaskrifstola
GUDMUNDAfí JÓNSSONAR HF.
Borgartúni 34, sfmi 511 1515
MINNINGAR
umvafín ástvinum okkar þarna
hinum megin hjá afa, Jónu, Sollu
og Lilla heitnum sem þú talaðir
svo oft um.
Guð varðveiti þig elsku amma
mín.
Ástarþakkir fyrir allt.
Þín, ♦
Hulda.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt. •
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Elsku amma á Skúló.
Nú ert þú komin til Guðs og
ekki veik lengur. Við skiljum ekki
dauðann alveg en vitum að við
deyjum öll einhvem tímann.
Það var gaman hjá okkur á
Spáni í fyrra og við eigum eftir
að sakna þín mikið. Guð veri með
þér, elsku amma okkar.
Þín langömmubörn,
Gúndi og Ottar.
Minmngargreinar
og aðrar greinar
FRA áramótum tii 15. febrúar sl.
birti Morgunblaðið 890 minning-
argreinar um 235 einstaklinga.
Ef miðað er við síðufjölda var hér
um að ræða 155 síður í blaðinu á
þessum tíma. í janúar sl. var papp-
írskostnaður Morgunblaðsins
rúmlega 50% hærri en á sama
tíma á árinu 1995. Er þetta í sam-
ræmi við gífurlega hækkun á dag-
blaðapappír um allan heim á und-
anförnum misserum. Dagblöð víða
um lönd hafa brugðizt við miklum
verðhækkunum á pappír með
ýmsu móti m.a. með því að stytta
texta, minnka spássíur o.fl.
Af þessum sökum og vegna
mikillar fjölgunar aðsendra greina
og minningargreina er óhjá-
kvæmilegt fyrir Morgunblaðið að
takmarka nokkuð það rými í blað-
inu, sem gengur til birtingar bæði
á minningargreinum og almenn-
um aðsendum greinum. Ritstjórn
Morgunblaðsins væntir þess, að
Iesendur sýni þessu skilning enda
er um hófsama takmörkun á lengd
greina að ræða.
Framvegis verður við það mið-
að, að um látinn einstakling birt-
ist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd en lengd annarra greina um
sama einstakling er miðuð við
2.200 tölvuslög eða um 25 dálks-
entimetra í blaðinu.
í mörgum tilvikum er samráð
milli aðstandenda um skrif minn-
ingargreina og væntir Morgun-
blaðið þess, að þeir sjái sér fært
að haga því samráði á þann veg,
að blaðinu berist einungis ein
megingrein um hinn látna.
Jafnframt verður hámarks-
lengd almennra aðsendra greina
6.000 tölvuslög en hingað til hefur
verið miðað við 8.000 slög.
Hverfisgötu
eru opin
Bílahúsin Traðarkot og Vitatorg
eru OPIN þrátt fyrir
framkvæmdir við götuna.
Aðkoma að
bílahúsinu Traðarkoti
er niður Smiðjustíg
eða upp Klapparstíg.
Amarhóll
Gfsli B. 4 SKÓP