Morgunblaðið - 22.11.1996, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MÓÐIR þurra dagsins, Ingibjörg Johnsen, getur verið stolt, dagurinn skipar þegar
fastan sess í þjóðlífinu . . .
Bætur fyrir fingurmissi
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt ís-
lenska ríkið til að greiða ungum
manni rúmar 2,2 milljónir króna,
auk vaxta frá 23. janúar 1991,
vegna slyss sem hann varð fyrir
17 ára í smíðatíma í Verkmennta-
skólanum á Akureyri. Pilturinn
missti framan af tveimur fíngrum
þegar hann rak höndina í sög, en
Hæstiréttur segir að stilling á ör-
yggishlíf á söginni hafi ráðið úrslit-
um um að hann meiddist.
í umræddum smiðatíma voru
nemendur að saga til spónlagða
plötu í hjólsög og kom fram í dómi
Hæstaréttar að kennari hefði leið-
beint fyrstu nemendunum og staðið
yfir nokkrum hinna við sögina, en
var farinn frá til að leiðbeina við
límingu þegar pilturinn, sem hafði
komið of seint í kennslustundina,
tók til við verkefnið.
I málinu kom fram, að pilturinn
hefði staðið hægra megin við sleða
á hjólsöginni, en eðlilegra væri að
standa vinstra megin, þannig að
auðveldara væri að halda efninu,
sem unnið væri með, upp að land-
inu. Piitinum fannst platan vera að
færast og beitti hægri hönd til að
þrýsta henni að landinu, en rak
höndina í sagarblaðið og missti
framan af tveimur fingrum.
Ber sjálfur hluta ábyrgðar
„Telja verður ljóst að honum
hefði síður orðið nauðsyn á þessari
hreyfingu, ef hann hefði staðið
vinstra megin við sögina. Er nægi-
lega í ljós leitt, að þau vinnubrögð
hafi verið réttari og kennari hans
-ætlast til, að þeim yrði beitt,“ segir
Hæstiréttur, sem telur á hinn bóg-
inn hafa verið leitt í ljós, að stilling
á kleyfi aftan sagarblaðs og örygg-
ishlíf hafi ráðið úrslitum um að
hann meiddist.
Hæstiréttur telur eðlilegt að pilt-
urinn beri sjálfur þriðjung skaða-
bótaábyrgðar, en íslenska ríkið
greiði honum alls rúmar 2,2 milljón-
ir. Þá er ríkinu gert að greiða hon-
um 600 þúsund krónur í málskostn-
að í héraði og fyrir Hæstarétti.
AMERÍSK RÚM OG DÝIUUR
KIIGSDOWN
Gefðu "gormur á gorm" kerfinu gaum. Það þýðir að
gormastellið í undirdýnunni er eins og hið vandaða stell í
yfirdýnunni. í raun sefur þú á tveimur dýnum og hryggsúlan
er bein í svefninum. Þetta er ekki neitt smáatriöi, því
undirdýnan vinnur raunverulega 60% af hlutverki dýnanna.
Offt&tælt
<evt...
án árangun
DESIGNSÍift^
Frábært úrval af
tré- og járnrúmum
SUÐURLANDSBRAUT 22
S.: 553 6011 & 553 7100
Bindindisdagur fjölskyldunnar er í dag
Markmið
- vímulaus
fjölskylda
Mjöll Matthíasdóttir
► Mjöll Matthíasdóttir er fædd
18. maí 1965 á Akureyri. Hún
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1985
og prófi frá Kennaraháskóla
íslands árið 1989. Hún hefur
kennt m.a. á Akureyri og í Mið-
firði. Nú er Mjöll kennari við
grunnskólann í Neskaupstað.
Hún á einnig sæti í fram- _
kvæmdanefnd Stórstúku Is-
lands, IOGT. Mjöll er gift Þor-
grími Daníelssyni, sóknarpresti
i Neskaupstað, og eiga þau tvo
syni.
orðið fólk virðist sjálft varla gera
sér grein fyrir að bjór sé áfengi,
það hefur hann hiklaust um hönd
jafnvel þar sem áfengi er bannað
og svo furðar það sig á unglinga-
drykkjunni. Ég tel nauðsynlegt að
foreldrar og uppalendur taki skýra
afstöðu í áfengismálum og átti sig
á hvernig umhverfi þeir vilja búa
börnum sínum meðan þau eru að
alast upp. Sjálf hef ég tekið mína
ákvörðun, ég neyti ekki áfengis
og ég hvet fölk til þess að notfæra
sér bindindisdaginn til þess að
hugsa um hvaða ieið það vill velja.
Hvað um forvarnastarf í skðlum?
- Min skoðun er sú að það eigi
að byija mun fyrr á forvarnastarfi
í skólum en gert er í dag. Börn
eru búin að mynda sér skoðun á
áfengi tíu ára gömul. Ef við ætlum
að hafa áhrif á þá skoðanamyndun
þarf að byija snemma að tala við
börnin og leiða þeim fyrir sjónir
hve áfengi er hættulegt. Nógur
er áróðurinn í samfélaginu með
áfengisneyslu. Mjög oft er dregin
upp jákvæð ímynd af áfengis-
neyslu í fjölmiðlum og í kvikmynd-
um, jafnvel í teiknimyndum.
Er fleira á dagskrá í tilefni bind-
indisdagsins
- Já, það er fjölskylduskemmt-
un á morgun klukkan fimmtán í
Vinabæ, eða gamla Tónabíói, Skip-
holti 33 í Reykjavík. Þar
_ er aðgangur ókeypis,
Afengislaus bæði fyrir fullorðna og
dagur - allra börn. Mókollur er kynnir
hagur °g fluttir verða leik-
þættir, töframaður
skemmtir og fleira efni
Mjöll Matthíasdóttir
er ein þeirra sem
standa að Bind-
indisdegi fjölskyldunnar.
Hún var einnig í hópi þeirra
sem fyrst stóðu að því að
helga einn dag baráttunni
fyrir bindindi árið 1991. Í
ár er á bindindisdegi þeirra
minnst sem látið hafa lífið
vegna ofneyslu áfengis og
annarra vímuefna. Hvernig
verður þessa minnst?
- Á margvíslegan hátt,
t.d. verður farin blysför frá
Hlemmi klukkan 17.30 í
dag og gengið niður á Ing-
ólfstorg. Þar mun Helgi
Seljan, fyrrverandi alþing-
ismaður, flytja stutt ávarp.
Hópar fermingarbarna af
höfuðborgarsvæðinu og
víðar ætla að taka þátt í
þessari blysför.
Gerir þetta gagn?
- Ef einhver umræða um áfeng-
ismál vekur fólk til umhugsunar
þá er gagn að því. Með þessu fram-
taki í ár er ætlunin að vekja at-
hygli foreldra á þeirri staðreynd
að fordæmi þeirra skiptir máli og
ábyrgð þeirra er mikil. Það gengur
ekki að fólk segi unglingunum sín-
um að smakka ekki áfengi en
drekki svo sjálft.
Telur þú engu betra að fólk drekki
áfengi í hófi hvað fordæmið snert-
ir?
- Ég segi nei, mér finnst það
ekki betra. Sumir uppalendur ætla
að kenna börnum á unglingsaldri
að fara vel með áfengi og kaupa
því fyrir þau áfengi eða bjóða þeim
það í heimahúsum. Með þessu er
fólk að gefa tvöföld skilaboð,
áfengisneysla er bönnuð fólki und-
ir tvítugu og með því að kaupa
áfengi eða veita bami áfengi er
foreldri í raun að samþykkja neysl-
una. Við þessi tækifæri segir fólk
gjarnan: „Ég vil ekki að þú drekk-
ir en mér finnst betra að vita hvað
þú ert að drekka og þess vegna
geri ég þetta.“ Fólk lýsir þar með
yfir að það vilji ekki að börnin
drekki en samþykkir samt neysl-
una, það eru tvöföld skilaboð.
Hvert er markmiðið með Bindind-
isdegi fjölskyldunnar?
- Markmiðið er að sem flestar
fjölskyldur láti vímuefnanotkun
vera þennan dag og helst alla aðra
daga. Þetta hafði Ingibjörg Jo-
hnsen í huga þegar hún stakk upp
á að efnt yrði til sérstaks bindindis-
dags. Kjörorð dagsins í dag er:
„Áfengislaus dagur - allra hag-
ur.“ Nú hafa menn sett sér það
markmið að grunnskólinn verði
vímuefnalaus má þá ekki spyija
hvort ekki sé líka ráð að fjölskyld-
ur bama og unglinga verði vímu-
efnalausar? Verið er að tala um
að fólk láti vera að drekka á heim-
ili í návist barna og unglinga með-
an þau eru að vaxa upp. Við verð-
um með einhveiju móti að kenna
börnum að það sé hægt að
skemmta sér án áfengis og foreldr-
ar em þar sterkasta fyrirmyndin.
Finnst þér að áfengisneysla fari
vaxandi á heimilum?
- Ég hef grun um að
á seinni árum, ef til vill
með tilkomu bjórsins,
hafí meðferð fólks á
áfengi orðið frjálslegri á
heimilum. Mér virðast
böm innan við fermingu almennt
ekki gera sér grein fyrir að bjór
sé áfengi. Hann er oft geymdur í
ísskápnum innan um gosið og þau
halda að hann sé svipaður drykk-
ur. Þetta veldur andvaraleysi. Full-
verður á boðstólum. Einnig hefur
verið renyt að vekja umræðu um
þessi mál með blaðaskrifum og
útvarpsviðtölum. Það þarf að halda
þessari umræðu vakandi, fólk má
ekki sofna á verðinum.