Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚU 1997 MORGUNBLAÐIÐ Stórframkvæmdir að hefjast á Sultartanga 4,2 milljónir rúmmetra j ar ð- vegs fjarlægðar 3,4 km löng aðrennslisgöng, 7,2 km frá- rennslisskurður og bygging stöðvarhúss eru meðal verkþátta á Sultartanga MIKLAR framkvæmdir eru að hefj- ast við Sultartangavirkjun í þessum mánuði. Þar verða gerð aðrennslis- göng gegnum Sandafell og að magni til verður sú framkvæmd stærri en gerð jarðganga undir Hvalfjörð. Einnig verður gerður 7,2 km langur frárennslisskurður frá stöðvarhúsinu að Þjórsá og við það verk verða þijár milljónir rúmmetra jarðvegs fluttar. Þetta er stærsta framkvæmd á þessu sviði sem Landsvirkjun hefur ráðist í. Samtals verða fluttar 4,2 milljónir rúmmetra af jarðvegi við fram- kvæmdirnar. Loks hefst uppsteypa á sjálfu stöðvarhúsinu í september. Samtals fara 42 þúsund rúmmetrar af steypu í allt verkið, þ.e. stöðvar- hús og annað hús sem því tilheyrir og aðkomugöngin. Þessa dagana er verið að grafa fyrir stöðvarhúsinu og er það stærsta framkvæmdin núna. Gerður var verksamningur við ístak hf. í marsmánuði um að grafa fyrir hús- inu og var áætlað að því verki lyki um síðustu mánaðamót. Þá var gerð- ur samningur við Fossvirki-Sultar- tanga sf., sem eru sömu aðilar og vinna að gerð Hvalfjarðarganga, þ.e. ístak, Skaanska og Pihl & Son, um að ljúka greftrinum og byggja stöðvarhúsið. Einnig fólst í samn- ingnum að Fossvirki byggði að- rennslisgöng frá Sultartangavirkjun að stöðvarhúsinu. Landsvirkjun gerði einnig samn- ing við Suðurverk hf. og Amarfell ehf. um að grafa frárennslisskurð virkjunarinnar, sem er mikið mann- virki, 7,2 km langur. Loks samdi Landsvirkjun í lok júní við Sulzer Hydro í Þýskalandi og ESB Intemat- ional í írlandi um kaup á vél- og rafbúnaði fyrir virkjunina. Mestu efnisflutningar í sögu verklegra framkvæmda? Fyrsta verksamningnum, greftri fyrir stöðvarhús, er nú að ljúka og er nú annar verkhlutinn að hefjast, þ.e. að ljúka greftrinum og byggja húsið. Bygging stöðvarhússins hefst í september. Jafnframt hefur Foss- virki hafíð undirbúning að jarð- gangagerðinni. Suðurverk og Arnar- fell hefja gerð frárennslisskurðarins í lok þessa mánaðar. Fjarlægja þarf þijár milljónir rúmmetra af jarðefnum úr frá- rennslisskurðinum og eru það mestu efnisflutningar sem Landsvirkjun hefur ráðist í og líklega þeir mestu í sögu verklegra framkvæmda á landinu. Þá þarf að flytja 500 þúsund rúm- metra úr aðrennslisgöngunum, sem eru 3,4 km löng, sem er 100 þúsund rúmmetrum meira en fjarlægt er úr Hvalfjarðargöngum. Þau eru 5,7 km löng. Ráðgert er að fyrsta vél virkjunar- innar fari í gang 15. nóvember 1999 og næsta vél 20. janúar árið 2000. Samtals verða framleidd 120 mega- vött í virkjuninni. Sömu tæki notuð og í Hvalfjarðargöngum Grétar Halldórsson, staðarverk- fræðingur Fossvirkis í Sultartanga- virkjun, segir að gera þurfi um 100 metra langan skurð frá lóninu að sjálfum aðrennslisgöngunum og þar þurfí að flytja um 100 þúsund rúm- metra af jarðvegi. Til þess að gera aðrennslisgöngin verða notuð á milli 700 og 800 tonn af sprengiefni og fjarlægja þarf 500 þúsund rúmmetra af jarðvegi úr þeim. Fossvirki leigir borvagn frá Svíþjóð til þess að bora aðkomugöngin og hefst sú vinna í september. Við sjálf aðrennslisgöng- in í haust verða notuð sömu tæki og nú eru í notkun í Hvalfjarðar- göngunum. Borvagninn sem er leigður er heldur minni en sá sem notaður er í Hvalfjarðargöngunum og hentar betur við gerð aðkomu- ganganna. Byijað verður á gerð ganganna sunnanmegin í haust og einnig hefst þá undirbúningur að því að hefja borun norðanmegin. Sú framkvæmd hefst svo næsta vor. Göngin verða 15 metrar á hæð og verða boruð í tveimur áföngum. í fyrri áfanganum verður hæðin 8-10 metrar og f seinni áfanganum verða þau dýpkuð um 5-7 metra. Grétar segir að göngin séu höfð svo stór til þess að vatnshraðinn FRÉTTIR Suítartangalón Búöarháls 114 d, 297,5 m.y.s •, Sanðafé|l\ ;;; Skurbur, 100 m Sultar- 'tanqi Yfirfall Tungnaá f-py Vaðalda // Sultartangavirkjun Stöövarhús-w* Frárennslis- skurbur 7,É km—ré Abrennslisskurbur- Gangainntak-, Þversniö löfnunarþró Stöbvarhús 3jarnalón 245 m.y.s. Búrfellsstífla verði ekki of mikill. Það er gert til þess að vatnsstraumurinn rífi ekki með sér gijót úr gangaveggjum. Grétar segir að mikil reynsla hafi fengist af gerð jarðganganna á Vest- fjörðum og Hvalfjarðargöngum. ís- lenskir starfsmenn hafi verið þjál- faðir til þessara starfa en þjálfaðir, íslenskir starfsmenn á þessu sviði hafi ekki fyrirfundist í landinu fyrir nokkrum árum. Grétar segir að óhemjumikið magn af steypu fari í þessar fram- kvæmdir, það er byggingu húsa og aðkomuganga, eða um 42 þúsund rúmmetrar. Fossvirki flytur inn sér- staka, tölvustýrða steypustöð sem verður sett upp á staðnum. Stöðin kemur frá Þýskalandi og verður með stærri steypustöðvum á landinu. Stærsta verkefnið Dofri Eysteinsson, framkvæmda- stjóri Suðurverks, segir að gerð frá- veituskurðarins, frá stöðvarhúsinu út í Þjórsá, sé stærsta verkefnið sem fyrirtækið hefur ráðist í. Verkið er unnið saman af Suðurverki og Am- arfelli. 1,4 milljónir rúmmetra af lausum jarðvegi verður fjarlægður og sprengja þarf 1,7 milljónir rúm- metra. Áætlað er að notuð verði allt að 800 tonn af sprengiefni við gerð skurðarins. Fyrirtækið fjárfestir í átta stórum tækjum vegna framkvæmdanna. Dofri segir að fjárfest verði fyrir á bilinu 220-250 milljónir króna vegna skurðarins. Suðurverk hefur m.a. pantað tvo borvagna, fimm 37 tonna Caterpillar flutningabíla og eina Caterpillar 375 gröfu sem vegur 87 tonn. Þetta verður stærsta grafan á landinu. Einnig verða notuð fjölmörg önnur tæki við verkið, þ.á m. jarðýt- ur og 55 tonna Caterpillar D-10 grafa, sem Suðurverk notaði í Há- göngumiðlun og var hún þá stærsta grafan á landinu. Dofri segir að skurðurinn verði dýpstur 34 metrar og 12 metra breiður í botni. Skurðarveggurinn verður allur steypusprautaður og er áætlað að í það verk fari um þijú þúsund rúmmetrar af steypu. Steyp- an verður löguð í steypustöð á staðn- um sem er í eigu Arnarfells. Starfs- mannafjöldi er áætlaður 60-70 manns. Undirbúningur fyr- ir Argentínuför Islenska Olympíuliðið í stærðfræði Morgunblaðið/Amaldur STEFÁN Freyr Guðmundsson, Kári Ragnarsson, Pétur Runólfsson, Marteinn Þór Harðarson, Stef- án Ingi Valdimarsson og Hannes Helgason, keppendur á Ólympíuleikunum í stærðfræði, ásamt einum þjálfara sinna, Áskeli Harðarsyni. ÓLYMPÍULIÐ íslands í stærðfræði undirbýr sig af fullum krafti fyrir Ólympíuleikana í stærðfræði sem haldnir verða í Argentínu 24. og 25. júlí. Þátttakendur verða frá um átta- tíu löndum og koma sex keppendur frá hveiju landi. íslenska liðið hóf undirbúning sinn í byijun júní og mun æfa látlaust fram að keppn- inni. Æft er fimm daga vikunnar auk þess sem keppendur fá heima- verkefni til úrlausnar og einu sinni i viku er haldin fjögurra og hálfs tíma keppni. Á haustin eru haldnar stærðfræði- keppnir sem sjö til átta hundruð nemendur framhaldsskóla taka þátt í. Úrslitakeppni er haldin í framhaldi af því og tlu efstu taka þátt I Nor- rænni keppni í apríl á hveiju ári. Úr þeim hópi eru sex valdir til að taka þátt í Ólympíuleikunum. Að þessu sinni keppa fyrir hönd íslands þeir; Stefán Freyr Guð- mundsson, Marteinn Þór Harðarson og Hannes Helgason, allir úr Flens- borgarskóla, Kári Ragnarsson, úr Menntaskólanum við Hamrahlíð, Pétur Runólfsson, Fjölbrautaskóla Suðurlands, og Stefán Ingi Valdi- marsson, Menntaskólanum í Reykja- vík. Fjórir keppendanna tóku einnig þátt í keppninni í fyrra og fóru þá til IndlandS. Þeir sögðu að hitinn hefði verið óþægilegur og maturinn vondur en hlakka engu að síður til að fara til Argentínu þar sem svalt er í veðri á þessum árstíma. Þeir segja það vera gaman að taka þátt I keppninni en mikill lærdómur fylgi. „Stærðfræðikeppnir hjá okkur byrja miklu seinna en gerist annars staðar, börnin byija yfirleitt yngri. Okkar keppendur hafa því minni reynslu," sagði Áskell Harðarson, stærðfræðikennari í Flensborgar- skóla, einn af leiðbeinendum kepp- enda. Fram til þessa hafa íslending- ar unnið til bronsverðlauna í ein- staklingskeppni en Ólympíuliðið hef- ur aldrei lent í verðlaunasæti. Lagt verður af stað frá íslandi 18. júlí og í för með keppendum verða þeir Áskell Harðarson og Lár- us Bjarnason, aðstoðarskólameistari í Borgarholtsskóla. Undirbúningi lýkur ekki með brottför því Áskell heldur áfram kennslu að nokkru leyti í ferðinni, en Lárus fer á undan og sér um að snúa verkefnum í keppn- inni á íslensku. Meðal þátttökuskilyrða á Ólymp- íuleikunum er að keppendur séu ekki orðnir tvítugir seinni keppnis- daginn og séu ekki í háskólanámi. I I I I > i > i \ t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.