Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997 45 I > I 1 > I I i I I I J I I 1 I I I 4 í MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP MYNDIN „Men in Black“ er átoppnum í Bandaríkjunum. Ymiskonar skepnur koma við sögu í myndinni. Svartklæddir á toppnum EINS OG búist hafði verið við tröll- reið kvikmyndin „Men in Black“ kvikmyndahúsum vestra þegar hún var frumsýnd um helgina. Aðsókn var gífurleg, enda hafði umtalið verið mikið vikurnar fyrir frumsýn- inguna. Aðeins framhaldsmyndir hafa hlotið meiri aðsókn fyrstu helgina og aldrei áður hefur mynd náð jafn góðum árangri yfír þjóðhá- tíðarhelgina. Fyrra þjóðhátíðarmet- ið átti „Independence Day“ sem náði inn 50 milljónum dollara fyrir ári. Gamanmyndin „Out to Sea“ með Jack Lemmon og Walter Matthau í aðalhlutverkum náði aðeins sjötta sæti frumsýningarhelgina. Við fýrstu sýn virðist það lakur árang- ur, en þegar nánar er að gáð kem- ur í ljós að þeir félagar geta vel við unað. Tekjur myndarinnar (tæp- lega 6 milljónir dollara) eru ekki miklu minni en tekjur fýrri mynda þeirra sem slógu í gegn, „Grumpy Old Men“ (7,5 m.$) og „Grumpier Old Men“ (7,8 m.$). Báðar enduðu þær í 70-80 milljónum. Aðdráttar- afl Matthaus og Lemmons virðist því lítið fara dvínandi. AÐSÓKN laríkjunutn BÍÓAÐSÓKN í Bandaríkjunum BÍÓAÐSÓKN í Bandaríkjunum I BI0AÐ5 í Bandarí Titm Síðasta vika Alls lil. (-■) MeninBlack 3.574,9 m.kr. 51,1 m.$ 84,1 m.$ 2.(1.) Face/Off 1.124,9 mkr. 16,1 m.$ 51,5 m.$ 13. (2.) Hercules 853,3 m.kr. 12,2 m.$ 50,0 m.$ 4. (4.) My Best Friend's Wedding 757,4 m.kr. 10,8 m.$ 69,3 m.$ 15. (3.) Batman&Robin 562,1 m.kr. 8,0 m.$ 90,7 m.$ 6. (-.) Out to Sea 412,3 m.kr. 5,9 m.$ 7,7 m.$ 7. (5.) ConAir 265,3 m.kr. 3,8 m.$ 85,1 m.$ 8- (6) The Lost World: Jurassic Park 182m.kr. 2,6 m.$ 218,3 m.$ 9. (-.) WildAmerica 126,7 m.kr. 1,8 m.$ 2,9 m.$ 10. (7) Sneed 2: Cruise Control 106,4 m.kr. 1,5 m.$ 41,1 m.$ Vika í París 16. og 23. júlí frá kr. 29.900 Heimsferðir hafa nú fengið örfá viðbótarsæti til Parísar 16. og 23. júlí og bjóða nú einstakt tilboð á Beaugency hótelinu í bjarta Parísar. Öll herbergi með sér baði, sjón- varpi, síma og morgunverður innifalinn. Þú getur valið um að kaupa aðeins flugsæti, flug og gist- ingu eða flug og bíl og tryggt þér viku í París á einstöku verði í þessari óviðjafnanlegu borg. Verð kr. 21.272 Verðkr. 29.900 Vcrð pr. mann m.v. hjón með 2 börn, Vikuferð, flug og hótel, Hotel Beaugency, flugsæti til Parísar fram og til baka í júlí. 16- °6 23- júlí- Skattar innifaldir. Austurstræti 17,2. hæð • Sími 562 4600 Að lifa á leiknum - NAVEEN Andrews var skólafé- lagi Ewan McGregor og David Thewlis í Guildhall School of Music and Drama og margir telja hann jafn hæfileikaríkan, en samt er nafn hans ekki eins þekkt. Andrews segir vandamálið vera að þegar hann sæki um vinnu þá sjái framleiðendurnir ekki leikara held- ur þeldökkan mann af indverskum uppruna. Andrews hefur þó ekki verið atvinnulaus leikari. Hann hefur t.d. leikið í verkum fyrir BBC, og mynd Hanif Kureishi „London Kills Me“. Sumum hlutverkum sem hann hef- ur tekið að sér vill hann helst gleyma eins og hlutverki pakist- anska sveitasöngvarans í gaman- myndinni „Wild West“. Ánægðast- ur er Andrews með frammistöðu sína í sjónvarpsþáttunum „The Buddha of Suburbia" og hlutverki sprengjusérfræðingsins Kip í „The English Patient" enda hafa þessi hlutverk breytt móttökunum hjá framleiðendum nokkuð. Nýjasta mynd Andrews er NAVEEN Andrews hefur náð athygli Hollywood- framleiðanda. „Kama Sutra“ sem Mira Nair leik- stýrir. Þar leikur hann aðalkarl- hlutverkið, 16. aldar prins sem lendir í ástarþríhyrningi með eigin- konu sinni og æskuvinkonu henn- ar, sem er þjónustustúlka. Andrews var mjög ánægður að fá tækifæri til þess að vinna með Nair en hann hefur verið aðdáandi hennar síðan hann sá „Salaam Bombay“. Næsta verkefni Andrews er bandarísk endurgerð á „Mighty Joe Young“. Tökur eru að heíjast á Hawaii undir stjóm Ron Und- erwood en aðalkvenhlutverkið er í höndum Charlize Theron. Upp- runalega myndin frá 1949 segir frá risavöxnum apa sem gerir allt vitlaust í Los Angeles. „Ég reyni að forðast „stereótýp- ur“, en er samt praktískur. Ef mér eru boðnir miklir peningar fyrir að þvælast um í frumskógi þá segi ég ekki nei. Ef ég á að vera alveg heiðarlegur þá verð ég að viður- kenna að eftir því sem ég verð eldri er ég frekar tilbúinn að taka að mér hlutverk eingöngu vegna launaávísunarinnar," sagði Andrews nýlega í viðtali í Premi- ere. a morgun afsláttur 4 i í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.