Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Hita- og vatnsveitan kaupir nýjar varmadælur Heildarverð um 25 milljónir króna HITA- og vatnsveita Akureyrar hef- ur fest kaup á tveimur nýjum varma- dælum fyrir veituna. Varmadælurn- ar eru keyptar af Kværner-fiski- tækni í Reykjavík en fyrirtækið bauð dælur frá Gram A/S í Danmörku og kosta þær um 25 milljónir króna, komnar á staðinn. Dælurnar koma til landsins í nóvember og verða gangsettar í desember nk. HVA leitaði eftir verðtilboðum í nýjar varmadælur er féllu betur að núverandi forsendum, svo sem vatnshita, vatnsmagni, að þær not- uðu ammoníak sem kælimiðil og að hávaði frá þeim yrði innan eðlilegra marka. Auk þess óskaði HVA eftir tilboðum sem gerðu ráð fyrir að raf- mótarar af núverandi varmadælum gætu nýst á hinar nýju. A endanum bárust tvö tilboð, annað frá Frosti hf. sem bauð tvær dæiur frá Sabro með samanlögð hitaafköst 1918 kw við 308,2 kw raforkunotkun. Heildarverð hljóðaði upp á rúmar 35,7 milljónir króna en ekki var gert ráð fyrir að rafmót- arar af eldri vélum yrðu notaðir. í tilboði Kværner-fiskitækni voru boðnar tvær dælur með samanlögð hitaafköst samtals 3740 kw við 809 kw raforkunotkun. Heildarverð hljóðaði upp á 25 milljónir króna og gert var ráð fyrir að rafmótarar af núverandi búnaði yrðu nýttir. Mat á tilboðunum sýndi að orku- framleiðsla yrði miklu meiri á af- skriftartíma og jafnframt ódýrari miðað við gefnar forsendur í varma- dælum þeim er Kvæmer bauð. Þær þóttu auk þess ekki síður tæknilega fullnægjandi en hinar sem í boði voru. Þá er orkuframleiðsla í nýju dælunum ódýrari en í þeim sem nú era í notkun. Café Menning á Dalvík Þórarinn Eldjárn og sonur FEÐGARNIR Þórarinn Eldjárn skáld og sonur hans Kristján Eld- járn verða með uppákomu á Café Menningu á Dalvík í kvöld kl. 21.30. Þórarinn les eigin ljóð við undirleik Kristjáns sonar síns og er þetta til- raun að þeirra hálfu. Aðgangur er ókeypis. A morgun, fimmtudagskvöld, flytja Anna Sigríður Helgadóttir söngkona og Þórhildur Björnsdóttir undirleikari þekkt lög úr söngleikj- um og kvikmyndum. Þær eru á tónleikaferðalagi um Norðurland þessa helgi og ætla að hefja leikinn á Dalvík. Aðgangseyrir er kr. 500. Reinald Jónsson opnar málverka- sýningu á Café Menningu í dag. Morgunblaðið/Björn Gíslason KÍKT í SUÐUR Sameining þriggja sveitarfélaga við Eyjafjörð Stefnt að því að ganga til kosninga í haust STEFNT er að kosningu um sam- einingu þriggja sveitarfélaga við Eyjafjörð á hausti komanda, Dal- víkur, Svarfaðardals- og Árskógs- hrepps. íbúar þessara þriggja sveit- arfélaga samþykktu sameiningu í kosningu um sameingu íjögurra sveitarfélaga við fjörðinn í júní en Hríseyingar felldu tillöguna. Bæjarstjórn Dalvíkur og sveitar- stjórnir Svarfaðardals- og Árskógs- hrepps hafa samþykkt að vinna áfram að sameiningu sveitarfélag- anna þriggja. Kristján Ólafsson, bæjarfulltrúi á Dalvík og formaður sameiningamefndar segir stefnt að kosningu í haust. Með Kristjáni í sameiningamefnd eru Atli Frið- björnsson, oddviti Svarfaðardals- hrepps og Kristján Snorrason, odd- viti Árskógshrepps. Áhugi Dalvíkinga vaxið „Okkur finnst full ástæða til þess að láta reyna á vilja íbúa sveit- arfélaganna þriggja til sameining- ar, þrátt fyrir að Hríseyingar hafi fellt tillöguna í vor,“ sagði Kristján. Þrátt fyrir að sameiningartillag- an hafi verið samþykkt á Dalvík í vor, var áhugi íbúanna lítill. Kjör- sókn á Dalvík var rétt um 54%, 275 sögðu já en 265 sögðu nei. Kristján vonast til að kjörsókn á Dalvík verði betri í haust og að hans mati hefur áhugi heimamanna fyrir sameiningu farið vaxandi. Ekki áhugi á stærri sameiningu Atli Friðbjörnsson segist á þess- ari stundu ekki sjá fyrir möguleika á stærri sameiningu en sveitarfé- laganna þriggja og að áður hafi verið rætt við Siglfirðinga og Ól- afsfirðinga um það mál. „Og við vitum að í Arnarneshreppi er ekki áhugi nema þá fyrir stærri samein- ingu.“ Ibúar Svarfaðardalshrepps voru hvað áhugasamastir um samein- ingu sveitarfélaganna fjögurra í síðasta mánuði. Kjörsókn var um 73%, 92 sögðu já en 31 nei. í Ár- skógshreppi var kjörsókn tæp 58%, 76 sögðu já en 43 nei. Gagnfræðaskóli Ólafsfjarðar Framhaldsdeild ekki starfrækt í vetur Kór Glerárkirkju Vel heppnuð söngför KÓR Glerárkirkju kemur til landsins í dag eftir vel heppn- aða söngför til Portúgals. Kór- inn hélt erlendis fyrir hálfum mánuði og hefur á tímabilinu haldið tónleika vítt og breitt um Portúgal. Jóhann Baldvinsson, stjórn- andi kórsins sagði viðtökur hafi verið mjög góðar og að ferðin hafi verið vel skipulögð og heppnast vel í alla staði. Alls tóku 37 kórfélagar og 10 makar þátt í ferðinni og not- aði hópurinn síðustu dagana til þess að sóla sig á ströndinni. NÚ þykir ljóst að ekki verði starf- rækt framhaldsdeild við Gagn- fræðaskóla Ólafsfjarðar næsta skólaár. Ólafsfirðingar hafa til fjölda ára átt þess kost að ljúka fyrsta bekk í framhaldsskóla á heimavelli og hefur Menntaskólinn á Akureyri verið móðurskóli deild- arinnar í Ólafsfirði síðustu árin. Anna María Elíasdóttir, formað- ur skólanefndar segir að nemenda- íjöldi nái ekki settu lágmarki, auk þess sem ríkisvaldið veiti ekki fjár- magn til deildarinnar lengur. „Við höfum verið að þrjóskast við að halda deildinni úti en það hefur verið miðað við að nemenda- fjöldinn væri ekki undir 12-15 manns. í þeim árgangi sem nú er að heíja nám í framhaldsskóla eru ekki nema 9 krakkar. Það var því orðið nokkuð ljóst að þetta yrði erfiður róður.“ Þýðir aukin útgjöld Um 15-20 ungmenni voru við nám í framhaldsdeildinni sl. vetur, auk þess var alltaf eitthvað um að fullorðið fólk sækti þar nám. Hægt var að velja um nám við 3-4 braut- ir. Anna María segir mjög bagalegt að geta ekki haldið deildinni og það þýði m.a. aukin útgjöld fyrir fjöl- skyldur, sem þurfa að senda börn sín að heiman í skóla ári fyrr en hingað til. Aðspurð u n hvernig gengi að fá kennara til ^tarfa í Ólafsfirði, sagði Anna María ástandið nokkuð gott í Barnask jianum og að helst vantaði kr.nnara í myndmennta- og hand- .nenntagreinar. Hins vegar vantaði raungreinakennara við Gagnfræða- skólann og hafi reynst nokkuð erfitt að fá stærðfræðikennara. Kaup á heitu vatni í Eyjafjarðarsveit Undan- þágur af- numdar TILLAGA frá Áka Áskelssyni, full- trúa U-listans í sveitarstjórn Eyja- fjarðarsveitar, um að allir íbúar sveitarfélagsins sem kaupa vatn af hitaveitu Eyjafjarðarsveitar sitji við sama borð hvað varðar verðlag og allar undanþágur verði afnumd- ar hið bráðasta, var samþykkt með atkvæði Áka. Þrír fulltrúar í sveitarstjóm sátu hjá við afgreiðslu málsins og tveir fulltrúar tóku ekki þátt í afgreiðsl- unni vegna tengsla við málið Áki sagði í samtali við Morgun- blaðið að tveir aðilar í sveitinni hafi haft sérsamninga við kaup á heitu vatni á lægra verði en aðrir. „Þessir aðilar eru á Grísará og í Vín og þeir hafa greitt 60% af því gjaldi sem aðrir notendur hitaveitu í sveitinni greiða.“ Áki segir að komið hafi fram óánægja í sveitinni með þá mis- munun sem verið hefur í gangi og hann telur að afgreiðsla sveitar- stjórnar tillögu sinni sé í raun við- urkenning á að svo hafi verið. „Ég tel að þarna hafi verið um að ræða pólitíska fyrirgreiðslu frá fyrri tíð,“ sagði Áki. ♦ ♦ ♦---- Þorvaldsdalsskokk- ið um síðustu helgi Jón Ivar setti met FJÓRÐA Þorvaldsdalsskokkið fór fram um helgina við ágætar að- stæður. Þátttakendur voru í færra lagi eða rétt um 20 og vakti at- hygli að engar konur mættu til leiks. Sífellt er verið að bæta metið í skokkinu og um helgina bætti Jón ívar Rafnsson á Akureyri met Finns Friðrikssonar um 6 mínútur og 13 sekúndur og var tími hans 2,07,37 klst. Þorvaldsdalsskokkið er ætlað hlaupurum, skokkurum og göngumönnum og fer hver á þeim hraða sem honum hentar best og velur þá leið sem honum sýnist hagkvæmust. Elsti þátttakandinn var Arnór Haraldsson, 67 ára Akureyringur og fór hann vegalengdina á 5,26,00 klst. Jón Ivar sigraði í flokki 16-39 ára, Ólafur H. Bald- vinsson á Akureyri í flokki 40-49 ára, á 2,43,20 klst. Sigurður Bjark- lind á Akureyri sigraði í flokki 50-59 ára og náði hann jafnframt næstbesta tíma allra keppenda. Sigurður fór vegalengdina á 2,09,03 klst. Arnór sigraði svo í flokki 60-69 ára. ------♦ ♦ ♦ Baugaselsmót í skák SKÁKMÓT verður haldið á eyði- býlinu Baugaseli í Barkárdal laugardaginn 12. júlí og er öllum heimil þátttaka. Baugaselsmótið var fyrst haldið í fyrra og er það í minningu Stein- bergs heitins Friðfinnssonar, bónda í Spónsgerði en hann var fæddur og uppalinn í Baugaseli. Á mótinu er keppt um veglegan far- andbikar sem Jón Björgvinsson vann í fyrra. Þátttaka tilkynnist til Þórs Val- týssonar í síma 462-3635. ) l I ( > > l l i \ I I I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.