Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ1997 23 AÐSENDAR GREINAR Aðeins 26,1% mjög hlynnt veiðigjaldi Bjarni Hafþór Helgason í NÝLEGRI skoð- anakönnun, sem Mark- aðssamskipti ehf. unnu fyrir Stöð 2, koma fram athyglisverðar niðurstöður um af- stöðu fólks til veiði- gjalds. í vetur hefur því verið haldið fram að mikill meirihluti landsmanna sé fylgj- andi veiðigjaldi og þá vitnað til skoðana- könnunar sem birt var í Morgunblaðinu sl. haust með fyrirsögn sem var eitthvað á þessa leið: „75% lands- manna styðja veiði- gjald“. í ljósi þess að einstaka fjölm- iðlar hafa haldið uppi skeíjalausum áróðri fyrir þessum auðlindaskatti vekja mesta eftirtekt svörin við tveimur spumingum í þessari nýju könnun Stöðvar 2. Spurningamar eru þessar: „Ertu mjög hlynntur Kannski er skýringin á fallandi fylgi veiðigjalds einfaldlega sú, segir Bjarni Hafþór Helga- son, að fólk er búið að fá hundleið á þessari fáfengilegu umræðu um nýjan skatt. veiðigjaldi?" og „Ertu frekar hlynntur veiðigja!di?“. í mínum huga er verulegur munur á þessum tveimur spurningum. Sá sem neitar því að vera „mjög hlynntur" veiði- gjaldi en játar að vera „frekar hlynntur" því er ekki eindreginn stuðningsmaður veiðigjalds. Þeir sem hafa með áróðri barist fyrir þessum nýja auðlindaskatti geta ekki fullyrt að þessi maður sé klár stuðningsmaður veiðigjalds. Hann er aðeins „frekar hlynntur“ því. Þeir sem segjast „mjög hlynntir" veiðigjaldi styðja hins vegar hug- myndina heilshugar. Aðeins 25,1% „vill kannski" í þessari könnun Stöðvar 2 voru 896 einstaklingar spurðir hvort þeir væm „mjög hlynntir" veiðigjaldi og svömðu 234 spurningunni játandi. Þetta jafngildir aðeins 26,1%. Þeir sem sögðust „frekar hlynntir“ gjaldinu vom 225 eða 25,1%. Sam- tals eru því 51,2% sem svara þess: um tveimur spurningum játandi. í könnuninni neituðu 15,5% að svara þessum spurningum og lýstu þann- ig ekki yfir stuðningi við þessa nýju skatthugmynd í þessari könn- un. Þessum 15,5% geta veiðigjalds- sinnar ekki eignað sér hlut í, því þeir hafa í sóknarhug sett fram þessa nýju skatthug- mynd og geta ekki sagt þeir eigi fylgjendurna fyrr en þeir játa. Hvað stendur þá eftir? Má kannski segja sem svo að raunvemlegir tals- menn veiðigjalds séu aðeins 26,1% en þeir sem ekki lýsa yfir ein- dregnum stuðningi við hugmyndina, eða eru henni andvígir, séu 73,9%? Gæti fyrirsögn- in í Morgunblaðinu þá kannski orðið: „Um 75% landsmanna lýsa ekki yfir skil- yrðislausum stuðningi við veiði- gjald“ eða „Aðeins um 25% lands- manna lýsa yfír skilyrðislausum stuðningi við veiðigjald“? Minnihluti í báðum stjórnarflokkum Það er athyglisvert að skoða fylg- ið við þessa skatthugmynd innan núverandi stjórnarflokka. Eðlilegt er að gefa sér sem forsendu, að þeir sem neituðu að svara skiptist á stjórnmálaflokka í sömu hlutföll- um og þeir sem veittu svör. Fram- sóknarmenn sem yfirlýsa sig annað- hvort mjög eða frekar hlynnta gjaldinu em 39,2% og sjálfstæðis- menn 51,7%. Út frá gögnum könn- unarinnar eru því þeir framsóknar- menn sem eru „mjög hlynntir" gjaldinu 20,0% og sjálfstæðismenn sem eru því „mjög hlynntir" eru 26,4%. Þetta eru eindregnir stuðn- ingsmenn gjaldsins innan þessara flokka ef marka má könnunina. Áróðursmenn veiðigjalds hafa ekki náð vilja sínum fram gagnvart þeim sem segjast „frekar hlynntir“ gjald- inu og neita um leið að þeir séu „mjög hlynntir“ því. Ekki síst þegar fylgið við hugmyndina er fallandi. Fólkið spyr spurninga Skýringar á fallandi gengi veiði- gjalds eru vafalaust margar en eft- ir því sem umræðunni vindur fram verður fólk upplýstara. Kannski er almenningur í huga sér að leita svara við einhveijum eftirtalinna spurninga: Hvað ætli yrði fyrst skorið niður hjá fyrirtækjunum til að mæta þessum nýja skatti? Hvað verður um þessar tekjur í ríkiskass- anum? Yrðu 80% af tekjunum notuð á höfuðborgarsvæðinu þó 90% þeirra kæmu af landsbyggðinni? Hefur nýr skattur nokkurn tímann lækkað aðra skatta? Á landsbyggð- in einhverja aðra framtíð en arð- bæran rekstur fyrirtækjanna sem þar starfa? Falla hlutabréfin mín í verði? Á að fella gengið og hækka þannig verð á öllum innflutningi? Eru auðlindaskattar besta framtíð- arsýn þessarar eyþjóðar sem ætlar að lifa á sjávarútvegi, orku fall- vatna og ferðaþjónustu? Til hvers að búa til verðmiða á þessar at- vinnugreinar og láta stjórnmála- menn framtíðarinnar leika sér með þá frá ári til árs? Hver er að leggja þetta til og hvers vegna? Veiðigjald er lúin hugmynd Kannski er skýringin á fallandi fylgi veiðigjalds einfaldlega sú að fólk er búið að fá hundleið á þess- ari fáfengilegu umræðu um nýjan skatt. Þessari umræðu er hrint af stað á sama tíma og þjóðir hins vestræna heims leita leiða til að draga úr ríkisumsvifum, lækka skatta og hvetja atvinnulífið til frekari dáða. Öll samkeppni er að verða alþjóðleg og fer sífellt harðn- andi og þessi skattur yrði beinlínis skaðlegur fyrir samkeppnisstöðu sjávarútvegsins á erlendum vett- vangi. Veiðigjald á íslandi er mjög lúin hugmynd um landsbyggðar- skatt. Höfundur er framkvæmdastjóri Útvegsmannafélags Norðurlands. VINNUPALLANET Þrælsterkt vinnupallanet á mjög hagstæöu verði. Rúllur 3x50 metrar á 14.950 m/vsk. Verð pr. fm. 99/60 m/vsk. Hellas Suðuriandsbraut 22 Sími 568 8988, 551 5328 og 8521570 llEIF—EIT £imaen SÍÐUMÚLi 4 - SÍMi 553 8775 HAFNARSTRÆTI 21 - SÍMI 551 3336 UNDIR- FATALÍNA Kringlunni S. 553 7355 — ^ . STEINAR WAAGE S KOVE RS Domus Medica og Kringlunni k J : ■■ L „ hí 'y ' í %. Á <, %■? '■ ,4 ■ Teg. Korsar Teg. Topy Reykjavík: Byggt og Búiö Kringlunni. Vesturland: MálningarþjónustanAkranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni E.Hallgrímsson, Grundarfiröi. Vestflrölr:. Geirseyrarbúöin, Patreksfiröi. Rafverk.Bolungarvík. Straumur.ísafiröi. Noröurland: Kf.Steingrímsfjarðar, Hólmavík. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúö, Sauöárkróki. KEA, byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urö, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstöðum. Verslunin Vík, Neskaupsstaö. Kf. Fáskrúösfiröinga, Fáskrúösfirði. KASK, Höfn Suöurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergsson, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík. Ný, lítib létt og afar nett ryksuga frá Rosso ryksugc aori tosku sem hefur gan kemur í vandaori tösku margvíslegt notagildi orkusparnaburl 14.900,- stgr. Öko Vampyr Rosso Fjórföld ryksíun Stillanlegur sogkraftur Stillanlegt Sogrör Fylgihlutageymsla Tveir auka sogstútar B • Inndraganlea snúra • Rykpoki 4,0 lítrar • 750wött (Nýtt sparar 30% orku skilar sama sogk rafti og 1400w mótor) Umbo&smenn um allt land

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.