Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forsvarsmenn Domus Medica og Skátabúðarinnar Sáttir við ákvörð- un um bensíndælu Morgunblaðið/Kristján Maack SVEINBJÖRN Björnsson háskólarektor undirritar samninginn um aðild íslands að Norræna stjörnusjónaukanum. Honum á vinstri hönd situr Johannes Andersen stjörnufræðingur og stjórnarformaður norrænnar samstarfsnefndar sem fer með málefni sjónaukans og til hægri handar honum Björn Bjarnason menntamálaráðherra. Aftan við þá eru frá hægri Þorsteinn Sæmundsson sljörnufræðingur og stjarneðlisfræðingarnir Einar H. Guðmundsson og Gunnlaugur Björnsson. Lyftistöng fyrir stjamvísindi á Islandi FORSVARSMENN Domus Medica við Egilsgötu og Skátabúðarinnar við Snorrabraut eru sáttir við þá ákvörðun borgaryfirvalda að heim- ila Olís að setja upp bensíndælu og ganga frá lóðinni á gatnamótum Snorrabrautar og Egilsgötu, þrátt fyrir að borgarverkfræðingur gagn- rýni innakstur að bensíndælunni frá Snorrabraut. Einar Páll Svavarsson, fram- kvæmdastjóri Domus Medica, sagð- ist vera mjög sáttur við þessa lausn. „Segja má að óskir okkar og ann- arra hér í kring hafí verið að þarna yrði gróður og bílastæði en sú lausn var ekki í boði,“ sagði hann. „Mein- ingin var að reisa hér stórt íbúðar- hús, sem við vorum mjög ósáttir við og vildum þess í stað að gengið yrði frá lóðinni. Það hefði átt að gera fyrir 20-30 árum. Þegar þessi tillaga kemur upp, sem felur í sér frágang á lóðinni með gróðri, erum við mjög hressir með hana jafnvel þótt hún kosti litla bensíndælu. Við erum fylgjandi því að lóðinni verði komið í það horf, sem er viðunandi fyrir allt nágrennið og við teljum að þetta sé langbesta lausin sem komið hefur fram til þessa. Við erum að vísu óhressir með að lokað er fyrir akstur af Egilsgötu niður á planið hjá okkur, en við verðum að sætta okkur við það. Við erum sáttir við heildarlausnina en hún er kannski ekki óskalausn íbúanna, okkar eða Reykjavíkurborgar, en viðunandi fyrir alla aðila.“ Gengið frá svæðinu Halldór Hreinsson, verslunar- stjóri Skátabúðarinnar, sagðist fyrst og fremst hafa samþykkt til- lögn um bensíndælu á lóðinni til að ýta við að gengið yrði frá svæð- inu. Þetta væri sennilega eina ófrá- gengna svæðið á höfuðborgarsvæð- inu vestan Kringlumýrarbrautar. Sagði hann að aðkoman að bakhlið Skátabúðarinnar breytist ekki nema þá til batnaðar frá Snorra- braut. Benti hann á að svæðið væri yfírleitt hálffullt af sendibílum og leigubílum og að hann teldi að inn- keyrsla frá Snorrabraut um ljós yrði til bóta fyrir umferðaröryggið og myndi draga úr árekstrum og slysum á svæðinu. „Aukin umferð er jákvæð að okkar mati,“ sagði hann. „Þegar ein stærsta áfengisútsala borgar- innar var hér við Snorrabraut var mun meiri umferð. Ég held að þetta sé ekkert sem menn þurfi að ótt- ast, hvorki nágrannar, íbúar eða aðrir. Ef ekki verður sett þarna bensíndæla kæmi eitthvað annað, sem væri plássfrekara og kallaði á fleiri bílastæði." Góð samvinna „Loksins er almennilega gengið frá þessu horni og í góðri samvinnu við alla aðila,“ sagði Þorvaldur S. Þorvaldsson, forstöðumaður borgarskipulagsins. Sagði hann að íbúarnir væru afar hressir með nið- urstöðuna. Það eina sem þeir hafi sett sig upp á móti var innakstur á lóðina frá Egilsgötu en eftir að aðkoman var flutt hafi viðhorfið breyst. Um afstöðu borgarverkfræð- ings, sem gagnrýnt hefur aðkomu að bensíndælunni um Snorrabraut, sagði Þorvaldur að hún væri einka- mál borgarverkfræðings. „Hann er að gagnrýna innakstur á lóð en það er ekki verið að aka inn á lóð heldur inn á heilan byggingareit," sagði hann „Þetta verða því venju- leg ljósastýrð gatnamót og ljósa- stýrð gatnamót eru alltaf þannig að ekið er í fjórar áttir. Það er miklu skynsamlegra að fara inn á stóran þjónustureit frá svona tengibraut um ljósastýrð gatnamót en að aka inn um erfið gatnamót í húsagötu.“ Þorvaldur sagðist telja þetta góða lausn, sem yrði til þess að frekar yrði ekið um nýju gatnamót- in en um Egilsgötu auk þess sem innra flæði á reitnum yrði betra. „Við lítum svo á hér á Borgarskipu- lagi að við séum að laga aðstæður á reitnum og að svona sjálfsaf- greiðslubensínstöð eigi heima inni í borginni," sagði hann. „Hún er betri lausn en stórar bensínstöðv- ar.“ Sæmileg sátt Guðrún Zoéga, borgarfulltrúi Sjálfstæðsiflokks í skipulags- og umferðarnefnd, sagði að íbúar í grennd við bensínafgreiðsluna hafi í byijun óttast aukna umferð en svo virtist sem sæmileg sátt væri kom- in á við þá. Lóðin væri búin að vera ófrágengin lengi og því mikils- vert að gengið yrði frá svæðinu. „Svo virtist sem það væri gert í samvinnu við íbúana en auðvitað hugaði maður að gagnrýni borgar- verkfræðings en hitt varð ofaná,“ sagði hún. „Niðurstaðan varð sú eftir breytingar að okkur fannst ekki ástæða til að gera frekari at- hugasemdir þrátt fyrir athugsemdir borgarverkfræðings. “ REKTOR Háskóla íslands, Svein- björn Björnsson, hefur undirritað samning um aðiid Islendinga að Norræna stjörnusjónaukanum. Með aðildinni hefur íslenskum vís- indamönnum verið tryggður að- gangur að háþróuðu rannsókn- artæki á einum besta stað sem völ er á til stjörnuathugana, á Kanarí- eyjum. Norræni stjörnusjónaukinn er spegilsjónauki og er spegillinn 2,56 metrar í þvermál. Þykir hann mikil völundarsmíð og talinn einn hinna bestu í heiminum vegna skerpu og myndgæða sinna. Hann var tekinn í notkun árið 1989 og með honum hafa verið gerðar margar athuganir á stjörnum og stjarnþyrpingum sem og fjarlæg- | um vetrarbrautum og dulstirnum. í frétt frá Stjarnvísindafélagi íslands segir aðvart þurfi að ef- ast um að aðild Islendinga að þessu norræna samstarfsverkefni verði mikil lyftistöng fyrir stjarn- vísindi á Islandi og fyrirhugað sé að Islendingar verði virkir þátt- takendur í rannsóknum með sjón- aukanum strax á þessu ári. Olíuhreinsunarstöð á Austurlandi Spennandi verk- efni og áhugavert SKÚLAGATA Rúmgóð 4 herb. íbúð með parketi á gólfum. Suðursvalir. Stórt leiksvæði á baklóð. Stutt i bæinn. Verð 6,2 millj. DVERGABAKKI Góð ca 104 fm íbúð_á 2. hæð. íbúðin er mikið endurnýj- uð. Áhv. ca 2,7 millj. Verð 7,3 millj. 3ja herb. SÓLHEIMAR - LYFTUHÚS 3ja herb. íbúð á 11. hæð I lyftublokk við Sólheima. Húsvörður. Gott útsýni. Skipti á húsi með tveimur (búðum í Reykjavík. Verð 6 millj. HRAUNBÆR Mjög góð ca 82 fm íbúð á 2. hæð. l'búðin er mikið endurnýj- uð. Blokkin er klædd að utan. Parket á gólfum. Áhv. ca 2,8 millj. Verð 6,4 millj. FLYÐRUGRANDI Mjög góð 3ja herb. íb. á 2. hæð við Flyðrugranda. Áhv. góð langtímalán ca 4,0 millj. Laus strax. 2ja herb. SUÐURHLÍÐAR KÓP. Góð ca 60 fm íbúð á jarðhæð við Digranesheiöi. Möguleiki á að taka bíl upp í kaupverð. Áhv. ca 3,2 millj. Verð 5,5 millj BOLLAGATA Til sölu ca 65 fm íbúð í kjallara. Ekkert áhv. íbúðin snýr út i suð- urgarð. Verð 4,8 millj. Nýbyggingar LAUFRIMI - TILB. UND- jR.TRÉVERK Góð 3ja - 4ra herb. íbúð með sér inngangi á 2. hæö. Rúmgóð og björt. Verð 6,7 millj. Netfang: kjr@centrum.is Einbýli - raðhús Hæðir BORGARTÚN Prýðileg 229 fm íbúð á tveimur hæðum. Parket á gólfum að hluta. Fallegt eldhús. jb. sem býður upp á mikla möguleika. Áhv. langtíma- lán 4,7 mlllj. Verð 8,5 mlllj. 4ra - 6 herb. FLÉTTURIMI - STÓRGÓÐ Björt 4ra herb. íbúð á 2. hæð í fallegu fjölb. m. bílsk. Pvottaherb. í íbúðinni. Ibúðin er öll nýyfirfarin og til fyrirmyndar. 3 stór svefnherb. Lyklar á skrifstofu. Verð 8,7 millj. Kjartan Ragnars hrl. Löggiltur fasteignasali. Opið virka daga frá kl. 9-18 LJÁRSKÓGAR Gott einbýlishús sem er ca 263 fm. Glæsilegur garður, 4-5 svefnherb. Verð 15,9 millj. SEFGARÐAR stórgott einbýlishús á einni hæð, tvöfaldur bílskúr með upphit- uðu plani. Arinn f stofu, fjögur svefnherb. Heitur pottur. Eignin er öll nýstandsett, bæði utan og innan. Áhv. ca 6,2 millj. Verð 17,4 millj. HELGUBRAUT KÓP. Gott ca 160 fm endaraöhús á tveimur hæðum. Góðar innr. Arinn (stofu. Skipti möguleg á annarri eign. Áhv. ca 4,4 millj. Verð 12,2 millj. LANGHOLTSVEGUR tii söiu einbýlishús, sem í eru tvær samþ. íb. Mjög góð suðurlóö. ‘Húsið er endurnýjað að hluta. Áhv. ca 4,5 millj. Verð 13,4 millj. FORMAÐUR bæjarráðs á Seyðisfírði segir að hugsanleg olíuhreinsunar- stöð á Seyðisfírði sé spennandi verk- efni og heillandi. Oddviti Reyð- arfjarðarhrepps segir áhugavert að fá slíka stöð í Reyðarfjörð og að þar sé nægt landrými. „Mér finnst það hið besta mál,“ segir Jónas Hallgrímsson, formaður bæjarráðs á Seyðisfírði, um hug- myndir um byggingu olíuhreinsunar- stöðvar í bænum eða annars staðar á Austfjörðum. Tekur hann fram að mengunarvarnir verði að vera örugg- ar, standa verði rétt að öryggi og eftirliti með náttúruvernd og sigling- um olíuskipa. „Þetta yrði efnahagsleg gusa hér inn á Austurland. Mér skilst að það kosti 35-40 milljarða að byggja svona stöð og hundruð manna fengju vinnu. Þá myndi þetta flýta framför- um í samgöngumálum um ár eða jafnvel áratugi," segir Jónas og vísar þar til jarðgangagerðar sem hann segir forsendu þess að hægt verði að reisa verksmiðjuna á Seyðisfirði. Hann segir að Mið-Austurland verði aldrei heildstæð eining nema með jarðgöngum og það skipti engu máli á hvaða göngum verði byijað og hvar endað, ef fyrir liggi heildar- áætlun um framkvæmdimar. Ömurlegt að horfa upp á stöðnun „Ég fæ ekki betur séð en áhuga- vert væri að fá svona stöð til Reyðar- fjarðar, og raunar kannski hvaða nýja atvinnustarfsemi sem er, því mér fínnst ömurlegt að horfa uppá öfugþróun og stöðnun í atvinnumál- um. Hér býr enn álíka margt fólk og gerði fyrir 25-30 árum,“ segir Þorvaldur Aðalsteinsson, oddviti Reyðarfjarðarhrepps. Þorvaldur segir að sveitarfélögin hér þurfa að taka saman á atvinnu- málunum. „Við horfum náttúrlega til jarðgangagerðar, til dæmis að opna milli Miðíjarðanna, þ.e. Eskifjarðar, Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar og Stöðvaríjarðar og Neskaupstaðar. Við höfum tékið á móti fjölmörgum aðil- um sem hafa kynnt sér aðstæður og síðan ákveðið að þeim kæmi betur að vera nær þéttbýlinu. Það er erfitt fyrir einhvem aðila á einhverjum fírði að segja; hún á að risa hjá okkur,“ segir Þorvaldur ennfremur. „Annars finnst mér að menn eigi að íhuga hvort jarðgangagerð sé ein- hver allsheijarlausn. Er betra að eyða milljörðum í jarðgöng í stað þess að veija álíka upphæðum í at- vinnuuppbyggingu? Það verður að veita íjármagni í uppbyggingu til að halda í fólkið. En ég er viss um að svona starfsemi hér yrði þjóðinni í heild til framdráttar," segir hann. Oddvitinn segir í bígerð, í sam- vinnu við stjórnvöld, að vinna skipu- lag á nokkrum stöðum til að flýta fyrir hugsanlegri uppbyggingu. „Það er alltaf verið að skoða eitthvað en niðurstaðan hefur ekki orðið okkur hagstæð ennþá,“ sagði Þorvaldur Aðalsteinsson að lokum. BERGSTAÐASTRÆTI Vorum að fá í sölu 4ra herb. íbúð á efri hæð i þríbýlishúsi (steinhús) á vinsælum stað í borginni. 3 svefnherb., sérhiti. Snyrtileg og góð eign. Laus 5. sept. nk. EIGNASALAN, Ingólfsstræti 12, símar551 9540 og 551 9191. ) I I I >

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.