Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Bretland Sígarettu- framleið- endum stefnt UNDIRRÉTTUR í Bretlandi hefur veitt leyfi til hópmálshöfðunar fyr- ir hönd fómarlamba krabbameins á hendur sígarettuframleiðendum. Þetta verður fyrsta málshöfðunin þessarar tegundar í Bretlandi, og segir fréttaskýrandi Intemational Herald Tríbune að hún gæti kom- ið af stað skriðu málaferla að bandarískum hætti á hendur evr- ópskum tóbaksfyrirtækjum. í síðasta mánuði náðist sam- komulag milli 40 ríkja í Banda- ríkjunum og allra stærstu tóbaks- fyrirtækjanna þar í landi um að fyrirtækin myndu greiða sem svarar 26 þúsund milljörðum ís- lenskra króna gegn því að ekki verði höfðuð skaðabótamál á hendur þeim. Þrýstingur á auglýsingabann Samkomulagið hefur aukið þrýsting á að algert bann verði lagt við tóbaksauglýsingum í að- ildarlöndum Evrópusambandsins, og yfirvöld í sumum héruðum Bretlands íhuguðu alvarlega að fara að dæmi nokkurra ríkja í Bandaríkjunum og höfða mál til þess að fá greiddar bætur vegna sjúkrakostnaðar sem hlotist hefur af reykingum fólks. Nú er ólíklegt að málaferli muni lama tóbaksiðnað í Bretlandi og Evrópu, að mati lögfróðra manna og þeirra sem hafa sérþekkingu á iðnaðinum. Evrópsk réttarhefð byggir ekki á hópsmálhöfðunum og dómstólar veita jafnan fremur lágar skaðabætur miðað við bandaríska dómstóla. Martyn Day er lögmaður 47 krabbameinssjúklinga sem höfða málið gegn tveim stærstu sígar- ettuframleiðendunum í Bretlandi. Farið er fram á um það bil 50 þúsund sterlingspund, eða um fimm milljónir íslenskra króna, fyrir hönd hvers sjúklings, eða alls um 2,3 milljónir punda. Eru þessar flárhæðir einungis brot af því sem þekkist í sambærilegum málaferlum í Bandaríkjunum. Lögmenn breska krabbameins- félagsins sögðu engu að síður að ákvörðun undirréttarins væri mik- ilvægt skref í baráttunni við reyk- ingar í Evrópu. Kim Jong-il Norður-Kóreumenn hætta að syrgja Kim Il-sung 800 þúsund börn undir fimm ára aldri vannærð N-Kóreumenn leggja blóm að minnisvarða Kim Il-sungs við lok sorgartíðar í tilefni þess að þá voru þijú ár liðin frá dauða hans. Syninum svarðir hollustueiðar flokksins en þó telja þeir, að hann muni bíða enn með það í nokkra mánuði. Það gæti talist óviðeigandi að flýta sér of mikið og auk þess er ekki víst, að Kim Jong-il kæri sig um að taka formlega við eins og ástandið er, efnahagslífið í rúst og hungursneyð í landinu. Park Sung-hoon, sérfræðingur í sameiningarráðuneytinu í Suður- Kóreu, segir, að Kim Jong-il sé eins og á milli steins og sleggju. Veruleg- ar umbætur séu óhjákvæmilegar til að bjarga efnahagslífinu en með þeim verði líka grafið undan alræði kommúnistaflokksins. Við athöfnina í gær lýstu yfir- menn í hernum hollustu sinni við Kim Jong-il og hétu að fylgja honum fram í rauðan dauðann. STJÓRNVÖLD í Norður-Kóreu til- kynntu í gær, að lokið væri þriggja ára sorgartíma vegna andláts „leið- togans mikla“, Kim Il-sungs. Ekkert var þó um það sagt hvenær sonur hans, Kim Jong-il, tæki formlega við völdunum. Kim Yong-nam, utanríkisráðherra N-Kóreu, tilkynnti við athöfn í Pyongyang, höfuðborg landsins, að sorgartíminn væri liðinn. Var Kim Jong-il viðstaddur athöfnina, sem var haldin við Kumsusan-forsetahöl- lina en hún er nú eingöngu helguð minningu Kim Il-sungs og þar hefur smurðu líki hans verið komið fyrir. Sérfræðingar í málefnum N- Kóreu segja, að nú sé fátt í vegi fyrir því, að Kim Jong-il taki við sem forseti . og leiðtogi kommúnista- írlandsmálaráð- herra sætir gagnrýni Belfast. Reuter. MO Mowlam, ráðherra írlandsmála í bresku ríkisstjóminni, sætti mikilli gagnrýni kaþólskra í gær, eftir að lekið var í fjölmiðla skjali ráðuneytis- ins frá 20. júní, þar sem fram kom að „skásti kosturinn í stöðunni" væri að leyfa göngu Óraníureglunn- ar í bænum Portadown síðastliðinn sunnudag. Kaþólskir stjórnmálamenn á Norður irlandi fullyrða að skjalið sýni fram á að bresk stjómvöld hafi verið búin að taka ákvörðun um að leyfa gönguna áður en samningavið- ræður um málið hófust. Haft var eftir Mitchel McLaughlin, formanni Sinn Fein, að Bretar hefðu gerst sekir um „dæmalausa tvöfeldni" og að um skipulögð svik hefði verið að ræða. Mowiam vísaði þessum ásökunum á bug í gær og sagði að í skjalinu væri aðeins fjallað um nokkra kosti sem öryggisráðgjafar hefðu lagt til. „Sé skjalið lesið gaumgæfilega er augljóst að í því ern settir fram margir möguleikar. Ég hefði helst kosið að komist hefði verið að sam- komulagi um málið, enda hefði að- eins verið hægt að koma í veg fyrir óeirðir helgarinnar með því móti.“ Ráðherrann viðurkenndi að það hefðu verið mistök að leyfa gönguna, en yfír 100 manns hafa slasast í óeirðunum síðan á sunnudag. Tvær göngur fyrirhugaðar Mowlam sagði að viðræður stæðu yfír við Óraníumenn vegna fyrirhug- aðrar göngu reglunnar um Lower Ormeau veg í Belfast næstkomandi laugardag. Kaþólskir íbúar við göt- una vilja ekki taka þátt í viðræð- unum vegna þess að ráðherranum tókst ekki að koma því til leiðar að ganga reglunnar síðastliðinn sunnu- dag færi ekki um hverfi kaþólskra. Lærlingareglan hyggst einnig halda göngu í Londonderry á laugardag og óttast er að til átaka komi milli mótmælenda og kaþólskra. Óeirðirnar I kjölfar göngu Óraníu- reglunnar á sunnudag héldu áfram í gær. Vopnaðir menn kveiktu í lest 70 kílómetrum suður af Belfast, en farþegar sluppu ómeiddir. Breska lögreglan gat ekki staðfest fregnir um að mennimir hefðu sagst vera meðlimir í írska lýðræðishernum. Sambandssinnar sýna klærnar Hópur vopnaðra sambandssinna kom fram í útsendingu sjónvarps- stöðvar í Ulster á Norður írlandi í gær og hét því að veija hverfí mót- mælenda fyrir árásum írska lýðveld- ishersins og óspektum kaþólskra ungmenna. Mótmælendur hafa ekki beitt sér í óeirðunum til þessa, en minntu með þessu á að í þeirra röð- um eru einnig skæruliðar sem tilbún- ir eru að beijast fyrir málstaðinn. Mennirnir sex, sem báru grímur og sjálfvirkar vélbyssur, sögðust hafa umboð til að tala fyrir hönd CLMC, regnhlífarsamtaka sam- bandssinnaðra skæruliðahópa á Norður írlandi. Samtökin lýstu yfir vopnahléi árið 1994, en lögreglan grunar meðlimi um að hafa staðið fyrir hryðjuverkum gegn írskum þjóðemissinnum síðan IRA batt endi á eigið vopnahlé í febrúar 1996. Albanía Kosning- arnar „við- unandi“ Varsjá. Reuter. EFTIRLITSMENN Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (OSE) sögðu í gær að fram- kvæmd kosninganna í Albaníu hafi verið viðunandi þótt því færi fjarri að þær hefðu verið fullkomnar. í skýrslu ÖSE var þó tekið fram að stjórnmálamenn lands- ins þyrftu að læra að virða lýð- ræðislegar leikreglur og reyna að ná sáttum, einkum þar sem 7.000 manna fjölþjóðiegar ör- yggissveitir undir forystu ítala myndu fara úr landinu 12. ág- úst. Án slíkra sátta væri ekki hægt að veita landinu alþjóð- lega fjárhagsaðstoð. Talningunni er ekki lokið en líklegt er að sósíalistar og bandamenn þeirra hafí fengið tvo þriðju þingsætanna. Fatos Nano, leiðtogi sósíalista og verðandi forsætisráðherra, kveðst vonast til þess að þingið komi saman ekki síðar en 20. júlí til að samþykkja nýja stjórn þótt úrslitin liggi þá ekki fyrir að fullu. Berlaymont aftur í gagnið árið 2000 FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins, ESB, tilkynnti í gær að hún myndi flytja aftur inn í og kaupa Berlaymont-bygginguna frægu í Bruss- el, sem 3.000 embættismenn neyddusttil að yfir- gefa árið 1992, þegar í ljós kom að byggingin var heilsuspillandi vegna asbestmengunar. Erkki Liikanen, sem fer með fjármál og innri stjórnunarmál ESB í framkvæmdastjórninni, greindi frá því á fréttamannafundi að flutning- arnir væru áætlaðir sumarið 2000, þegar viðgerð- um og endurbótum á húsinu væri lokið. Liikanen sagði að heildarkostnaður við að gera hið 30 ára gamla, 128.000 fermetra stóra skrifstofuhús upp yrði í kring um 30 milljarðar króna. Belgar borga í fyrstu Þessi kostnaður hefur fram að þessu verið að mestu greiddur af belgíska ríkinu og einkaeigna- raðilum byggingarinnar, tveimur belgískum bönkum. Liikanen sagði að framkvæmdastjórnin hygðist endurgreiða reikninginn á 27 árum, og að því loknu eignast bygginguna. Meðal helztu einkenna Berlaymont-byggingar- innar eftir endurbætur verður liturinn á henni. Ljósskermar, sem þekja munu bygginguna að utan og skýla starfsmönnum fyrir sólarljósi, verða hvítir á að líta, ólíkt hinu svarta gleri sem byggingin var áður þekkt af endemum fyrir. Myndin sýnir líkan af Berlaymont- byggingunni, eins og áætlað er að hún líti út eftir að hvítu plast-„umbúðunum“, sem hulið hefur húsið frá því viðgerðir hófust 1994, hefur verið sviptaf því. Framkvæmdastj órn ESB um stækkun Mælt með sex ríkjum Brussel. Reuter. Framkvæmda- stjóm Evrópu- sambandsins, ESB, hyggst í næstu viku mæla með því að við- ræður um aðild að sambandinu verði hafnar við fímm Austur-Evrópuríki og Kýpur. Þetta hafði Aeuíers-fréttastofan eftir ónafngreindum embættis- mönnum framkvæmdastjórnarinn- ar á mánudag. „Samkvæmt því mati sem fram- kvæmdastjórnin hefur lokið við fram að þessu bendir allt til að hún muni á grundvelli óhlutlægra skil- yrða mæla með því að viðræður verði hafnar við sex ríki,“ sagði embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið. Annar embættismaður tjáði fréttastofunni að mælt yrði með Póllandi, Tékk- landi og Ung- veijalandi, sem almennt hafa verið talin fremst í biðröð- inni, þegar framkvæmda- stjórnin kynnir mat sitt á aðildarhæfni tíu ríkja Mið- og Austur-Evrópu, sem sótt hafa um aðild að ESB, hinn 16. þessa mánaðar. Samkvæmt vinnuplaggi, sem framkvæmdastjórnarmeðlimirnir 20 hafa nú til nákvæmrar skoðun- ar, er einnig gefið til kynna að Eist- land og Slóvenía teljist reiðubúin til að ganga til liðs við Evrópusam- bandið. Þetta þýðir að Lettland, Litháen, Búlgaría, Rúmenía og Slóvakía, sem öll hafa líka sótt um ESB- aðild, neyðast til að sýna biðlund.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.