Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.07.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1997 19 V íkingafyrirlestur í Norræna húsinu • FYRIRLESTRAR verða haldnir í Norræna húsinu í tengslum við Vík- ingahátíðina í Hafnarfirði og fjalla þeir allir um handverk frá tímum víkinga. Miðvikudaginn 9. júlí kl. 20 verða fluttir tveir fyrirlestrar: Nanna Paal- gard Pape lektor frá Osló talar um víkingatímann og seiðkonur og nefn- ir fyrirlesturinn „Vikingetid í et sja- manistisk kvinneperspektiv“. Rann- ver Hólmsteinn Hannesson for- vörslufræðingur talar í fyrirlestri sínum um íslenskt bókfell, verkun og endingu. Fyrirlesturinn er fluttur á dönsku og ber heitið íslandske pergamenter; fremstillingsmetode og holdbarhed. Þriðji fyrirlesturinn sem auglýstur var þetta kvöld, fyrirlestur Thue Christensen frá Grænlandi, fellur niður að óviðráðanlegum ástæðum. Fimmtudaginn 10. júlí kl. 20 verða þrír fyrirlestrar í Opnu húsi Norræna hússins. Amy Lightfoot, mannfræðingur og líffræðingur nefnir fyrirlestur sinn: „Fra Lyng- heia til Kirketak - en historie om et ullseil:" Hún er sérfræðingur í ullarvinnslu með fornum aðferðum. Jochem Komber fornleifafræðingur talar um „Vikingetidens byggeskikk rundt Nordatlanteren - sammenheng og variasjon". Jochen er einn af fremstu fræðimönnum á Norður- löndum í fornri byggingarlist. Fyrir- lestrarnir eru báðir fluttir á norsku. Þriðji fyrirlesari kvöldsins er Eric Zehmake fornleifafræðingur. Hann nefnir fyrirlesturinn „Sko i vik- ingetid og tidlig middelalder i det sydvestlige Ostersoomráde", og tal- ar hann á dönsku. Eric Zehmke er sérfræðingur í handverki víkinga- tímans, sérstaklega leðurvinnslu. Aðgangur er ókeypis. Umhverfisverkið Vaxtarbroddar Vaxtarbroddar Morgunblaðið/Árni Sæberg Saga MK komin út NÝLEGA kom út saga Menntaskól- ans í Kópavogi, MK, eftir Ingólf A. Þorkelsson fyrrverandi skólameist- ara, í tveim bindum. Af því tilefni fóru Ingólfur og Jón Kristinn Snæ- hólm, formaður skólanefndar MK, á fund Ólafs G. Einarsson, fyrrverandi menntamálaráðherra, og afhentu honum eintak af sögunni í þakklæt- isskyni fyrir það að Ólafur veitti Ingólfi styrk til að skrifa söguna á öndverðu ári 1994 þegar hann var menntamálaráðherra. Sagan er heimildarit um stofnun og starf MK í 20 ár en auk þess fjallar hún um stúdentauppreisnir erlendis og andófið í framhaldsskól- unum hérlendis í kjölfarið og kenn- araverkföllin á níunda áratugnum. Margrét Bára Sigmunds- dóttir sýnir á Hótel Geysi Myndlistasýning á verkum Margrétar Báru Sigmundsdóttur er á Hótel Geysi í Bisk- upstungum. Margrét Bára er fædd á Selfossi 4. júlí 1952. Hún hefur starfað meira og minna við myndlist sl. 20 ár og haldið fjölda sýn- inga um land allt. 53 vatnslita- og olíumynd- ir eru á sýningunni sem unnar eru á sl. tveimur árum. Myndefnið er fjölbreytt, m.a. hlutir sem minna á gamla bændasamfélagið, hús- kofar, bílar, verkfæri no* fl Sýningin stendur frá MARGRÉT Bára Sigmundsdóttir með eitt 9. júlí til 1. september. verka sinna. Tríóið ÓHM í Sölvasal TRÍÓIÐ ÓHM leikur í Sölvasal Sól- ons íslandus í kvöld, miðvikudag. Meðlimir tríósins eru Óskar Guðjóns- son saxófónleikari, Hilmar Jensson gítarleikari og Matthías M.D. Hemstock trommuleikari en sérstak- ur gestur kvöldsins verður Þórður Högnason kontrabassaleikari. Er þetta annað af þremur þema- kvöldum tríósins en viðfangsefni kvöldsins verða ballöður og banda- rísk sveiflu- og söngleikjalög. Öll lögin eiga það sameiginlegt að vera sjaldan flutt hér á landi, að því er segir í kynningu. Tónleikarnir hefjast klukkan 22. ITILEFNI af 50 ára afmæli Egilsstaðabæjar var Finna B. Steinsson fengin til að gera umhverf- isverk í kaupstaðnum. Hún ákvað að tengja verkið leiðunum sem liggja til Egilsstaða úr fjórum átt- um. Hún málaði græna þríhyrninga á aðalgötuna í bænum, Fagradalsbrautina, og inngönguleiðirnar fjórar. Þeir vísa í átt til bæjarins og mætast á miðri Fagradalsbraut. Verkið heitir Vaxtarbrodd- ar og tengist m.a. vexti Egilsstaða á undanförnum 50 árum og „lífæðunum“ sem liggja þangað. Utsalan hefst á morgun láttur Útsölutilboð: Drusa blússa 990 Stinne peysa -4&KT 1.290 Guess dragt ,5^90 1.590 Belly Buxur -&29tf 1.590 i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.