Morgunblaðið - 22.02.1998, Blaðsíða 48
—48 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
Smáfólk
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Vanþakklátt
ríkisvald
Frá Guðvarði Jónssyni:
UM SÍÐUSTU áramót hækkuðu
almennir launataxtar um 4%.
Einnig elli- og örorkulífeyrir. En
vegna skattabreytinga hækkaði
útborgaður ellilífeyrir nánast ekk-
ert.
Útborgaður ellilífeyrir, sem var
kr. 28.507 í desember, hækkaði upp
í 30.159 í janúar, sem er hækkun
upp á kr. 1.652 á mánuði en vegna
skattabreytinga myndaðist stað-
greiðsluskattstofn sem gerir það
að verkum að útborgaður lífeyrir
varð ekki nema kr. 28.903. Útborg-
uð hækkun varð því ekki nema kr.
396 á mánuði.
Það er engin furða þótt okkar
ástkæri forsætisráðherra og einn
vinsælasti spaugari landsins sjái
dýrðarljóma velsældar og upp-
hrópunarverða kaupmáttaraukn-
ingu í þessari tölu.
Hvort sem það stafar af sjón-
depru eða öðrum ellihrumleika
virðast ellih'feyrisþegar ekki sjá
sömu gróskuna í lífskjörum sínum
vegna hækkunar hfeyris upp á eitt
molakaffi á mánuði, eins og forsæt-
isráðherra.
Mér hefur dottið í hug, hvort
ekki væri hægt að bæta aftan við
þessa tölu nokkrum kvótanúllum,
því þar ku vera auðvelt að finna
peninga, sem ekki eru frá neinum
teknir.
Þegar maður lítur 70-80 ár til
baka, á það þjóðfélag sem núver-
andi ellilífeyrisþegar fæddust inn í,
kemur upp í hugann eftirfarandi:
Ekkert rafmagn til almennings-
nota, sími aðeins á þjónustustöðv-
um P.S., hvorki útvarp né sjón-
varp, engin uppsagnarfrestur á
vinnu, engar atvinnuleysisbætur,
hvorki sjúkradagpeningar eða
slysabætur, ekkert fæðingarorlof,
engin námslán, engar flugsam-
göngur, vegakerfi landsins troðn-
ingar og kerruvegir og ár flestar
óbrúaðar, svo stiklað sé á stóru í
upptalningu á þvi sem ekki var til
fyrir 70-80 árum, en er talinn sjálf-
sagður hlutur í því tækniþróaða
þjóðféiagi sem ellihfeyriskynslóðin
hefur unnið að uppbyggingu á, í
þágu þjóðfélagsins.
Líti maður svo á 396 kr. lífeyris-
hækkun á mánuði, sem ekki nær
því að vera 10% upp í þær verð-
hækkanir sem urðu á vöru og þjón-
ustu upp úr áramótum, sýnist
manni að laun stjórnvalda séu
hreint og klárt vanþakklæti.
Það fólk, sem þetta bitnar harð-
ast á, eru þeir sem voru á lægstu
laununum, en skiluðu hærra hlut-
falli í verðmætasköpun til þjóðfé-
lagsins, heldur en þeir sem voru
hærra launaðir.
Alþingismenn hafa seilst eftir líf-
eyri úr ríkiskassanum til að fita
flokkana. Væri ekki rétt fyrir þá að
nota sínar eigin reiknikúnstir, sem
notaðar eru við útreikning á elli- og
örorkulífeyri, og reiknuðu tekjur
allra flokksmanna niður í elh- eða
örorkulífeyri, reiknuðu svo það
sem fram yfír væri, til reksturs
flokkanna og ríkið bætti svo við ef
á vantaði.
Eg held að fólki sé farið að finn-
ast, að alþingismenn séu ekki sjálf-
um sér samkvæmir þegar þeir
sækja peninga í ríkiskassann sjálf-
um sér til handa.
GUÐVARÐUR JÓNSSON,
Hamrabergi 5, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Longar ykkur oð vikko sjóndeildarhringinn og kynnast einhverju nýju?
„Það eru forréttindi að fó að kynnast ungu fólk fró ýmsum heimshornum, eignast það oð vinum, deilo með
því skoðunum og síðost en ekki síst, að þykja vænt um það." Honna Pólsdóllir fóslurmóðir.
Alþjóðleg ungmennaskipti
Hverlisgötu 8-10» 101 Reykjovík
aus@isholf.is • Sími/fax: 561 4617
AUS - ICYE
óskar eftir f jölskyldum til að
hýsa erlenda skiptinema til lengri
eða skemmri tíma.