Norðurljósið - 01.01.1986, Blaðsíða 33
NORÐURIJÓSIÐ
33
hafna Jesú Kristi. Það finnast menn sem hreykja sér af
vantrú sinni, sem segjast eingöngu treysta á mátt sinn og
megin. Slíkum er vorkunn. Að hugsa sér, maður sem lifir hér
fáein ár í veikleika, sem ræður ekki einu sinni sjálfur hve
mörg ár hann dvelur hér á jörðu, ætlast til að ráða því sjálfur
hvar hann vill dvelja um alla eilífð. Hverju á að svara slíku?
„Fásinna“ segir skynsemin. Biblían kallar slíkt beinlínis
„heimsku“, Sálm. 14.1.
Lof sé Guði fyrir það að allir menn eru ekki kærulausir,
hugdeigir eða heimskir. Það finnast milljónir manna í dag og
hafa fundist um aldir, sem einfaldlega treystu Drottni Jesú
Kristi.
Sæll er sá maður sem treystir Honum sem hefur allt vald á
himni og á jörðu, honum, sem hefur lykla dauðans og Heljar.
Honum, sem er hinn eini meðalgöngumaður meðal Guðs og
manna. Hann er sá eini í öllum himingeimnum, sem getur
staðið sem sáttasemjari, milli Guðs og manna, milli hins
heilaga Guðs og syndugra manna.
Hvernig er það með þig, vinur, snertir sagan um Jesúm
Krist þig alls ekki? Boðskapurinn um Hann, sem varð að
yfirgefa himininn vegna þín og mín. Er hann þér ekki að
skapi?
Snertir sannleikurinn um Hann þig ekki, Hann sem dó
fórnardauða fyrir þig? Já, Hann dó til þess að frelsa okkur frá
valdi syndarinnar og Satans og býr nú öllum þeim sem veita
honum viðtöku, stað á himnum.. .
Hann hefur margsannað kærleika sinn til okkar. En hverju
svarar þú?
Hann hefur elskað okkur og elskar okkur enn í dag með
óendanlegum kærleika, þess vegna er okkur óhætt að treysta
Honum. Honum er vissulega treystandi.
Þegar Hann býður: „Komið til mín, allir“, meinar hann
það. Fyrir hinn unga og óreynda hefur hann marjj á boð-
stólum. En heimurinn getur eingöngu veitt hamingju hér í
lífinu, hann á ekkert að bjóða manninum eftir þetta líf,
þannig að uppskeran getur þess vegna verið nokkuð dýru
verði keypt.
Satan kallar líka „kom“. Hann er ekki alltaf auðþekktur,