Norðurljósið - 01.01.1986, Blaðsíða 106
106
NORÐURIJÓSIÐ
Samkvæmt eðli okkar hötum við hann jafnvel, og þess vegna
er það, að við treystum honum ekki. Það væri mjög sorglegt,
að hitta fyrir ungan mann, sem segði, ef þú værir að hrósa
föður hans við hann: „Ég ber ekki traust til föður míns.“ Ef
þú héldir áfram og segðir: „En faðir þinn er framúrskarandi
heiðarlegur maður,“ væri þá ekki sárt að heyra hann svara:
„Ég get ekki treyst honurn." „Ó, en faðir þinn er gæskan
sjálf,“ gætir þú bætt við. Ef drengurinn segði þá: „Ég heyri,
hvað þú segir, en ég trúi því ekki, ég get ekki treyst honum,“
þá mundir þú vita, að einhverjar heimilisdeilur, einhverjar
mjög hryggilegar ástæður, hafi leitt huga unglingsins afvega,
svo að hann elskar ekki föður sinn og þar af leiðandi treystir
honum ekki. Setjum svo, að faðir hans væri öllum kunnur að
heiðarleik og mannkostum. Þá mundir þú síst af öllu búast
við því, að sonur hans segði: „Ég get ekki trúað honum.“ En,
viðvíkjandi Guði, hver á meðal vor vill guðlasta með því að
segja, að hann hafi nokkru sinni reynst ótrúr? Samt segja
menn það og sýnist ekki verða bilt við það, sem þeir hafa
sagt. Þótt skrifað standi: „Sá, sem ekki trúir Guði, hefur gert
hann að lygara,“ þá segja menn rólega við okkur, eins og það
væri afsakanlegur veikleiki fremur en synd: „Ég get ekki
trúað Kristi, ég get ekki trúað Guði.“ Það er þá af því, að þeir
eru fráskildir honum, af því, að þeir elska hann ekki. þeir eru
fráskildir honum, af því, að þeir elska hann ekki. Þeir eiga að
harma þetta, játa það fyrir Guði, og þegar náð hans hefur
endurnýjað hjörtu þeirra, þá kemur trúin af sjálfri sér.
Önnur ástæða fyrir þessu „ef“ er sú, að við erum skurð-
goðadýrkendur að eðli til.
„Nei, nei,“ segið þið, „við erum ekki skurðgoðadýrkend-
ur.“ Ég segi, við erum skurðgoðadýrkendur að eðli til —
sérhver okkar, því að hver er skurðgoðadýrkandi, ef það er
ekki sá maður, sem vill hafa skurðgoð eða eitthvað, sem hann
getur séð og treyst á og sem á að vera honum tákn hins
ósýnilega? Hinn kaþólski verður skurðgoðadýrkandi, þegar
hann setur upp krossmarkið frammi fyrir sér eða dýrlinga-
myndir. En þú getur líka orðið skurðgoðadýrkandi án þess
að sýnast svo hjátrúarfullur, ef þú, til dæmis, getur ekki treyst
forsjón Guðs að sjá fyrir þér, ef þú þarft, áður en þú treystir