Norðurljósið - 01.01.1986, Blaðsíða 59
NORÐURIJÓSIÐ
59
ykkur að mæta mér þar. Þar mæti ég ykkur í anda. Þaðan
treysti ég, að ég muni stökkva fagnandi í úthaf eilífðarinnar
og sameinast þar hinum þjónandi öndum sem þjóna erf-
ingjum hjálpræðisins. Verði mér ekki lengur leyft að þjóna
ykkur á landi lifenda, þá fagna ég yfir þeirri hugsun, að mér
verði ef til vill leyft að fylgja englunum sem (ef þið haldið
áfram í trúnni,) verður falið að flytja sálir ykkar í faðm
Abrahams.
Ég vona að sjá ykkur aftur í þessu lífi, en indælasta og
bjartasta von er sú, að mæta ykkur þar sem enginn aðskiln-
aður er af höfum eða fjöllum, engir sjúkdómar, enginn
dauði, enginn ótti við að elska of mikið, engin blygðun fyrir
að elska of lítið.“
Ferðir hans voru mjög hættulegar. Snjór fyllti fjallaskörð-
in og oftar en einu sinni fékk hann óþægilega reynslu af því
að velta um og verða að bíða í nístandi frosti, svo veikur sem
hann var, þangað til vagninn hafði verið grafinn upp og
réttur við.
Jóhannes Fletcher spáði frönsku stjórnarbyltingunni og
hruni páfaveldisins, á ferðum sínum yfir Frakkland. „Páfa-
veldið mun vissulega hrynja í Frakklandi á þessari eða næstu
öld.“
Vaxandi vantrú í Frakklandi hafði svo mikil áhrif á hann
að hann mælti þessi lofsyrði um England: „Ó! Bretar, sem
njóta svo mikillar hylli! Sælir mundu þeir verða ef þeir
þekktu forréttindi fagnaðarerindisins! Ættingjar mínir í
Adam eru mjög góðir við mig, en andlegu systkinin sem Guð
hefir gefið mér í Englandi gnæfa yfir þá.“
Hér er kafli úr hjartnæmu bréfi sem hann skrifaði bróður
sínum: „Ég get ekki annað en alið þá von að Guð vilji heyra
bænir mínar, að hann vilji taka eitthvert tillit til táranna, sem
ég væti með þennan pappír og að meðan þú ert að lesa þessar
línur vilji náð hans verka á hjarta þitt. Ef þú þekktir hve mikil
gleði mundi verða í himninum yfir afturhvarfi þínu. Ef þú
aðeins vissir hve yfirfljótanlegt þakklæti mundi þá streyma
um hjarta þitt og mitt, þú mundir vissulega, án andartaks
hiks, beygja þig undir náð frelsarans sem er, jafnvel nú, að
tala í hjarta þínu.