Norðurljósið - 01.01.1986, Blaðsíða 34
34
NORÐURI.JÓSIÐ
vegna þeirra mörgu gerva sem hann hefur hæfileika til að
klæðast í. En hann og heimurinn eru eitt. Hann hefur mikil
völd í heiminum og hann notfærir sér þessi völd út í ystu
æsar. Hann er meistari í táldrægni. Orðatiltæki segir eitthvað
á þessa leið: „Heimurinn vill láta dragast á tálar og hann
verður táldreginn“. Sorglegt að hugleiða hve margur hefur
leiðst í gildruna þegar Satan hefur kallað.
Kunnasta vélræði Satans er e.t.v. tilboðið um frægð í
heiminum. I allri hreinskilni munu flest öll okkar játa, í
meira eða minna mæli, að geti nokkur freisting náð tangar-
haldi á okkur, þá er það einmitt tilboðið um frægð. Sorglegt
er að hugsa sér hve margir hafa jafnvel selt sálu sína fyrir
frægðina. Hve margur er ekki hæfileikamaðurinn, sem Jesús
Kristur gat notað til starfa fyrir sig, sem hefur leiðst út á
framabrautina, einungis til þess að sóa lífinu í leit að frægð
og ánægju og þannig verið veiddur í net freistarans. Mörgum
hefur reynst erfitt að losna aftur úr prísundinni. Seinna meir,
þegar augu manna opnast, getur þeim reynst erfitt og sárt að
bæta ráð sitt, því að framhaldið af táldrægni Satans er
miskunnarlaust vonleysi öllum þeim til handa sem gefast
honum á vald.
Satan er samt ekki alvaldur. Jesús Kristur á allt vald á
himni og á jörðu. Þess vegna er von í augsýn og tilboðið: sem
hann segir, og þegar hann segir „allir“ er átt við alla, hvort
sem menn álíta sjálfa sig vera einum of synduga til að nálgast
hann, eða hina sem álíta sig svo góða, að þeir finna enga þörf
fyrir fyrirgefningu.
Margir vilja bara ekki trúa sannleikanum, þess vegna
verða þeir að taka við afleiðingum vantrúar sinnar.
„Komið til mín, allir. .En, segir þú, hvernig er það
hægt, þegar Hann er á himnum og ég er hér á jörðu? Að
koma til hans er einfaldlega að trúa Honum. Og það að trúa
Honum er, í öllum einfaldleik að koma til hans. Hér er ekki
um líkamlega hluti að ræða, heldur andlega. En það gildir að
koma, hver með sína byrði. Margar eru byrðarnar og þungar.
Það er ekki alltaf það sem hefur mikla vigt sem er þyngst að
bera. Hver okkar kannast ekki við byrðar eins og sálarangist,
slæma samvisku, hræðslu við dóm og dauða. Allt þetta er