Norðurljósið - 01.01.1986, Blaðsíða 44
44
NORÐURLJÓSTÐ
kvöldi, boðaði hann þeim glaður hið þóknanlega ár Drottins,
hvort sem það var í kirkju, á einkaheimili eða undir beru
lofti.
Líkur árvökrum hirði, kynnti hann sér daglega ástand
fólksins síns. Ötull vakti hann yfir sumum fjölskyldum og
með iðni kenndi hann þeim og fór frá einu heimili til annars.
Hann mat engan mann of auðvirðilegan, né fáfróðan eða of
guðlausan til að verðskulda athygli hans. Hann lítillækkaði
sig fyrir hina lægstu og óverðugustu í flokki hans, glaður að
vera þjónn allra til að geta áunnið því fleiri.
1 sumum af þessum heilögu heimsóknum, hefir hann með
einlægni og á sannfærandi hátt, mælt með guðrækninni og
strax brætt niður heila fjölskyldu í einu. Gamlir og ungir
grétu í sameiningu og ákváðu fyrir alvöru að snúa sér auð-
mjúklega til Guðs síns.
Það voru í sannleika sagt þó nokkrar fjölskyldur í hinni
fjölmennu sókn hans, sem hann hafði engan aðgang að,
menn sem elskuðu myrkrið meira en ljósið og komu sér
saman um að veita honum ekki viðtöku, til þess að verk
þeirra yrðu ekki átalin. í slíkum tilvikum þegar vandlæti
hans fyrir hjálpræði einstaklinganna gat ekki með neinu
móti náð til þeirra, ákvað hann að ganga aldrei framhjá
dyrum andstæðinga sinna án þess að biðja einlæglega um að
dyrum miskunnarinnar yrði aldrei lokað fyrir þeim.
Að því er snertir þjónustuna við hina sjúku, var hann alveg
fyrirmynd og óþreytandi. Það var verk, sagði herra Wesley,
„sem hann var alltaf reiðubúinn að sinna. Ef hann heyrði
knúið dyra á kaldri vetrarnótt var glugginn hans opnaður á
andartaki og er hann skildi að það væri einhver sem hlotið
hefði meiðsli í kolanámunni, eða að það væri nágranni sem
lá fyrir dauðanum, þá var hann ekki að hugsa um nætur-
myrkrið eða hörku veðursins. Svar hans var alltaf: „Ég skal
koma með þér þegar í stað.“
Það var algegnt í sókn hans að ungt fólk af báðum kynjum
kæmi saman á tilsettum tíma til að skemmta sér. Þessi
skemmtun stóð venjulega frá kvöldi til morguns. Hún var
vanalega fólgin í dansi, svalli, drykkjuskap og klámi. Þessar
ólifnaðarsamkomur áleit hann hreinustu smán fyrir kristið