Norðurljósið - 01.01.1986, Blaðsíða 157
NORÐURLJÓSIÐ
157
við ræðu sína og sagði: „Hér stendur dómsforseti New York
fylkis og segir að ef ég kalli fram iðrandi syndara hér í kvöld,
þá komi hann að iðrunarbekknum líka, og nú kalla ég fram
alla iðrandi menn sem vilja snúa sér til Drottins." Dómarinn
kom og kraup að fótum frelsarans. Þetta hafði svo mikil
áhrif, að flestir lögfræðingar bæjarins leituðu Krists. Og það
er fullyrt að á tólf mánuðum hafi 100.000 manns tekið
sinnaskipti í Rochester og nærliggjandi sveitum.
„Sannlega, sannlega segi ég yður, nema þér takið sinna-
skipti og verðið eins og börn, munuð þér ekki koma í
himnaríki.“ (Matt. 18. 3.).
Gyðingastúlkan
Stúlka nokkur, gáfuð og vel menntuð, af Gyðingaætt, sneri
sér til Krists. Hún var ritari við stóra verksmiðju í Ameríku,
og tók undir eins að starfa og vitna um meistara sinn. Sumum
féll þetta miður og klöguðu hana loks fyrir forstöðumanni
verksmiðjunnar sem kallaði hana fyrir sig og sagði: „Mér er
sagt að þú talir við hvern mann um Jesúm Krist.“ „Já, það er
satt,“ svaraði hún. „Jæja,“ sagði hann, „vér getum ekki leyft
þess konar hér inni.“ „Gott og vel, herra!“ sagði hún, „þá
verð ég að yfirgefa þessa stöðu, því ég vil hvergi vera sem ég
fæ ekki að tala um frelsara minn.“ En þess má geta að stúlka
þessi átti móður sem hún þurfti að annast. „Við tölumst við
síðar,“ sagði þá forstöðumaðurinn. Hún gekk svo burt og
bjóst við þá og þegar að henni yrði sagt upp stöðunni.
Nokkrum dögum síðar fékk hún bréf og bjóst við að það væri
uppsögnin, en í stað þess stóð þar ritað: „Vér höfum hærri
stöðu lausa, og vér teljum yður færasta til að taka hana.“
Hvern sem mér þjónar mun faðirinn heiðra, “ segir Kristur.
(Jóh. 12, 26).