Eimreiðin - 01.09.1905, Page 9
169
frá sér. Fl’ví miður er meðfylgjandi mynd af vélinni ekki sem
greinilegust, en betra var ekki til að dreifa. Ég sá vél þessa við
vinnu í sumar og leizt vel á hana, en þar eð hún er vart fullgjör
ennþá, sleppi ég að lýsa henni nánar.
Að svo stöddu er ekki hægt að skera úr því með neinni vissu,
hvaða móvinnuaðferð verði hentugust heima; til þess er mór og
mómýrar og annað, er lýtur að móiðnaði þar, alt of lítið rann-
sakað, og vísast er, að ein aðferðin eigi bezt við á einum stað og
önnur á hinum. Mikil líkindi eru samt til þess, að voteltan reynist
21. mynd.
yfir höfuð að tala hentugri, að minsta kosti upp til sveita, þar
sem varla er hægt að búast við móiðnaði í stórum stíl. Voteltan
hefur þá góðu kosti, að hún er ódýr og hægt að hafa hana um-
fangsmikla eða umfangslitla eftir vild, án þess að breyta vinnu-
aðferðinni í nokkru verulegu. Ennfremur eru vélarnar og annar
útbúnaður svo fábrotið, og sjálfsagt má smíða meiri partinn af þvi
heima. Votelta með vélum getur vel borgað sig, þótt ekki séu
búnar til nema svo sem 50—100 smálestir af mó á ári, eða jafn-
vel minna, og fyrir svo mikinn mó ætti að geta skapast markað-
ur í mörgum sveitum. Kostnaðurinn við hestamóvélarnar (sjá