Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1918, Blaðsíða 149
Hið íslenska fræðafjelag í Kaupmannahöfn
149
svo framarlega sem ritið fær svo marga kaupendur á íslandi,
að fjelagið fái 3/í af kostnaðinum endurgoldinn þaðan, verður
það framvegis fyrst eftir útkomu hvers árgangs selt þar á
hálfvirði öllum þeim, sem gerast kaupendur þess nú þegar.
Lýsing Vestm annaeyja sóknar eftir Brynjólf
Jónsson, prest í Vestmannaeyjum, ásamt 2 myndum og
ágætum uppdrætti eftir herforingjaráðið danska. Verð 5 kr,
Fáein eintök á mjög vönduðum og sterkum pappír 8 kr.
Fræðafjelagið gerir sjer far um að vanda allan frágang á
bókum sínum, og vonar að það hafi góð áhrif á íslenska
bókagerð.
Fræðafjelagið vill efla greið viðskifti.
Brjef og æíisaga Bjarna amtmanns Thorarensens.
Af því að það hefur komið til orða, að Fræðafjelagið gefi út
brjef og drög til æfisögu Bjarna Thorarensens, leyfi jeg mjer
hjer með vinsamlega að biðja þá menn, sem eiga brjef frá
Bjarna Thorarensen eða vita af einhverju brjefi eða brjefum
frá honum, að gjöra svo vel að láta mig vita af því, svo að
hægt verði fyrir mig að fá þau til láns eða láta skrifa þau
upp.
Bogi Th. Melsteð,
Ole Suhrsgade 18, Kaupmannahöfn, K.
Leiðrjettingar. í Ársritinu 2.ári bls. 88, síðast ( 4. línu
a. n. hefur »af« fallið niður í prentuninni og sömuleiðis nokkrir
stafirneðst á bls. 97 í orðunum »Þjóðverjar fóður-« (skipunum).
Á kápunni á Jarðabókinni stendur að L ý s i n g V e s t-
mannaeyja kosti 4 kr. og 6 kr. en það á að vera 5 kr.
og 8 kr. Prentunin hefur orðið svo dýr, að eigi er hægt að
selja bók þessa fyrir minna en 5 og 8 kr.
í Skírni í ár, bls. 183 segir hr. L. H. B., að litdómarnir í Ársritinu
imunu hafa verið ritaðir að undirlagi bókaverslana þeirra, er gefið hafa
út bækurnar«. Fetta er tilbúningur hr. Þ. H. B. og með öllu ósatt. Engin
þeirra hefur lagt svo undir, heldur hefur ritstjórn Ársritsins tekið upp á
því til leiðbeiningar og fróðleiks fyrir lesendur þess. Pykir mörgum hinum
bestu mentamönnum til sveita vænt um það, því að lítið er nú gert að
því í íslenskum ritum, að fræða menn um bestu frððleiksbækur, sem út
koma á meðal frændþjóða vorra.