Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1991, Side 2
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1991.
8
2
Fréttir
Eiður Guðnason umhverfisráðherra:
Vil ekki hafa sáðmann og
sauðkind í sömu skúff u
Mönnum er tíðrætt um heiðurs-
mannasamkomulag Davíðs Odds-
sonar og Jóns Baldvins Hannibals-
sonar í Viðey um flutning Land-
græðslu og Skógræktar frá land-
búnaðarráðuneyti til umhverfis-
ráðuneytis. Gerir þú enn kröfu til
að fá þessa starfsemi undir þitt
ráðuneyti?
Samkvæmt reglugerð um verk-
svið umhverfisráðuneytisins fer
það með mál er varða náttúru-
vemd, friðunar- og uppgræðsluað-
gerðir á sviði gróður- og skóg-
vemdar að fengnum tillögum Nátt-
úravemdarráðs og í samráði við
landbúnaðarráðherra. Þetta er
nokkuð skýrt en það þarf að skil-
greina verkefnaskiptinguna milli
ráðuneytanna frekar. Það er eðlis-
lægt í stofnunum eins og ráðuneyt-
um að þau vilja ekki sjá af verkefn-
um sem þau hafa haft. Mér finnst
eðlilegt að skógrækt sem búgrein
verði áfram í landbúnaðarráðu-
neytinu og þau mál er varða skóg-
arbændur. Hin almenna skógrækt,
gróðurvemd og uppgræðsla lands
á eðli máls samkvæmt heima í
umhverfisráðuneytinu. Þama þarf
að setja skýrari reglur og um það
verður áreiðanlega samkomulag í
fyllingu tímans.
Hefúr umhverfisráðuneytið ekki
nóg af vandamálum að takast á
við? Þarf það fleiri verkefni?
Umhverfisráðuneytið hefur
vissulega nóg af verkefnum en mér
finnst eðlilegt og skynsamlegt að
gróðurvemdar- og landgræðslumál
hafi sitt heimilsfang í umhverfis-
ráðuneytinu. Þaö er ekki skynsam-
legt að sauðkindin og sáðmaðurinn
séu í sömu stjómarráðsskúffunni.
Við seljum afurðir okkar erlendis
sem hreinar og ómengaðar? Finnst
þér raunveruleikinn styðja við þá
hreinleikaímynd sem við auglýs-
um?
Aö mestu leyti en við höfum alls
ekki hreinan skjöld í þessum efn-
um, til dæmis hvað varðar frá-
rennslismál þéttbýhsstaða og ýmsa
aðra umgengni við landið. Við
sjáum hvemig umhorfs er í fjörun-
um. Við þurfum að taka okkur á
en í öhum meginatriðum stöndum
við undir nafni. Það kostar peninga
að taka sér tak og það tekur tíma.
Hvernig munt þú beita þér við að
taka á mikilli skolpmengun við
strendur landsins?
Þetta er mjög dýrt mál og þaö
kemur áreiðanlega að því að viö
verðum ekki aðeins að hafa dælu-
stöðvar heldur einnig hreinsistöðv-
ar fyrir skolp svo það renni ekki
óhreinsað út í sjó. Þetta er verk sem
við verðum að byija á og kostar
gífurlegt fjármagn en verður áreið-
anlega ekki að fullu komið til fram-
kvæmda fyrr en eftir aldamót.
Hver á að borga?
Við verðum að tileinka okkur
svokallaða mengimarbótareglu
sem á ensku kallast PPP-reglan,
„polluter pays principle". Það þýð-
ir að sá sem veldur mengun borgar
hreinsun. Við verðum sjálf að
borga þetta en hvemig það skiptist
milli sveitarfélaga og annarra aðila
get ég ekki sagt um á þessari
stundu. Gundvaharreglan á að
vera að upphafsmaður mengunar
borgi kostnaö við hreinsun eða
eyðingu svo ekki hljótist frekara
tjón af. Það er verið að vinna að
því að þessi regla gildi sem víðast
en hún verður kannski ekki lö-
gleidd í eitt skipti fyrir öh.
Samkvæmt skýrslu frá umhverfis-.
ráðuneytinu eru flestir sorphaugar
landsins í ófullnægjandi ástandi.
Hvernig munt þú beita þér fyrir
umbótum þar á og hver á að borga?
Stórkostlegt átak hefur verið gert
á höfuðborgarsvæðinu. Svipað
átak þarf víðar þar sem stofna þarf
byggðasamlög. Þar sem slikt hent-
ar þurfa sveitarfélög aö taka saman
höndum um lausnir. Sums staðar
erú þessi mál í góðu lagi, eins og á
Akranesi, en víða í vondu standi.
íbúamir verða að borga brúsann,
þaö borgar enginn fyrir okkur.
Er sorpböggun rétta leiðin?
Aðstæður á hverium stað verða
að skera úr um það. Heppilegasta
Yfirheyrsla
Haukur L. Hauksson
leiðin er háð sérfræðimati en ekki
póhtísku mati.
Munt þú beita þér fyrir aukinni
notkun á endurunnum pappir hjá
hinu opinbera og hvernig stendur
umhverfisráðuneytið sig í þeim
málum?
Við notum endurunninn pappír,
í vaxandi mæh. Enduranninn
pappír hefur vissar takmarkanir
en við eigum að stefna að því að
nota hann þar sem því verður við
komið.
Lausaganga búfjár hefur þótt skað-
leg viðkvæmum gróðri landsins.
Verður lausaganga búfjár tak-
mörkuð eða bönnuð á kjörtímabil-
inu?
Ég hef sagt að við eigum að stefna
að því í áfóngum að lausaganga
búfjár verði úr sögunni og nefnt
aldamótin í því sambandi. Það þarf
aðlögunartíma en sum sveitarfélög
hafa þegar bannað lausagöngu
hrossa. Sumir bændur era sjálfsagt
ekki sáttir við þett° en það þarf að
vinna málinu skilning og koma því
í framkvæmd.
Hver eru viðhorf þín til áframhald-
lindi hvalveiða íslendinga og hvern-
ig htur þú á aðgerðir umhverfis-
vemdarsamtaka vegna þeirra?
Við eigum að halda áfram aö
veiða hval. Hvalir eru nytjastofn
og við eigum að nýta sjávarspendýr
að þvi tilskildu að stofnamir séu
ekki í útrýmingarhættu. Mér er
ljóst að við ramman reip er að
draga þar sem almenningsáhtið í
heiminum er í andstöðu viö okkar
sjónarmið. Við höfum ekki gert
nægilega mikið að því að kynna
okkar málstað. Það er mikið af
öfagasinnum meðal náttúrvemd-
armanna en líka fólk sem fellst á
okkar rök. Við eigum aö halda sam-
bandi við það fólk og kynna því
okkar sjónarmið.
Hver eru viðhorf þín til umferðar
kjarnorkuknúinna farartækja eða
þeirra er bera kjarnorku í islenskri
lögsögu?
Ég held að öllum okkar grann-
þjóðum og samstarfsþjóðum séu
fyllilega ljósar yfirlýsingar ís-
lenskra stjórnvalda um að við vilj-
um ekki að hér sé kjamorkuvopn.
Ég trúi því aö þessi tilmæli okkar
séu virt. Kjamorkuknúnir kaf-
bátar fara um öll heimsins höf og
við höfum því miður séð dæmi um
kafbátaslys ekki langt frá okkur.
Utanríkisráðherra hefur átt at-
hyglisvert framkvæði varðandi af-
vopnun í höfunum og viðæigum að
stefna að því að þessi umferð kjarn-
orknúinna skipa verði í algjöru lág-
marki eða henni hnm.
Er fullrannsakað hvort hreinsibún-
aður væntanlegs álvers sé nægilega
góður og hver eru þín viðhorf til
vothreinsibúnaðar?
Það er enn verið að vinna að
starfsleyfi fyrir væntanlegt álver
og verður fundur um það í Þýska-
landi 1 lok mánaðarins. Þar er
unnnið mjög vandað verk og gerðar
strangar kröfur. Ég er ekki sann-
færður um að vothreinsibúnaður
skili okkur betri árangri en þær
aðferðir sem fyrirhugað er að beita
á Keihsnesi, að nota kolaskaut sem
í er mjög lítill brennisteinn og fuh-
komnustu mengunarvamir sem
völ er á.
Er skilagjald á bíla annað en auka-
skattur og hvernig skilar hann til-
ætluðum árangri?
Menn verða að bera ábyrgð á sínu
eigin rasli og borga fyrir förgun á
því. Það er hægt að leggja þannig
út af þessu að skilagjald hækki
verð bíls þegar hann er greiddur
en það greiðist til baka þegar hræ-
inu er skilaö með einhveijum
hætti.
Ferðamenn eru taldir miklir meng-
unarvaldar og ágangur ferða-
manna við náttúruperlur landsins
er verulegur. Hvernig ætlar þú að
taka á því máli?
Við þurfum aö temja okkur al-
mennar reglur um samskipti
manns og lands á miðhálendinu.
Viðkvæmir feröamannastaðir þola
ekki endalausan ágang en ég hef
engar töfralausnir á þvi vanda-
máh. í niðurstöðum skoðanakönn-
unar Félagsvísindastofnunar töldu
86 prósent aðspurðra umhverfis-
máhn skipta mestu máh. Ef sá
skilningur er fyrir hendi hjá þorra-
þjóðarinnar held ég að boð og bönn
geti veriö í lágmarki. Þó þarf
strangara eftirlit með innlendum
og erlendum ferðamönnum sem
fara um hálendið á eigin farartækj-
um.
Hvað finnst þér um störf forvera
þíns í ráðuneytinu?
Hann hefur sjálfsagt gert sumt
vel og annað miður. Ég ætla ekki
að segja meira um það.
Er jeppinn þinn umhverfsivænni
eða visthæfari en ,jeppi Júhusar“
sem seldur var i fyrradag?
Minn jeppi er búinn öðruvísi vél,
dísilvél. Eg fór með hann í skoöun
í vor og þá var ekki gerð nein at-
hugasemd. Samanburöarmæhngar
á útblæstri hafa hins vegar ekki átt
sér stað.