Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2002, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2002
DV
Fréttir
Hópferðaakstur tekinn af Siglfirðingi og færður Skagfirðingi:
Ráðherra sagður bregðast
loforði um útboð
- samþingmaður Sturlu ósáttur við aðferðina
Óvissa
Hjónin Ásgeir Sölvason og Erla Gunnlaugsdóttir eru hér vió bifreiö sína. Þau
íhuga aö flytja frá Siglufiröi eftir að hafa búiö þar alla ævi.
„Því hafði verið lofað að verkið
yrði boðið út en síðan var okkur allt
í einu tilkynnt að öðrum hefði verið
úthlutað þessum akstri,“ segir Erla
Gunnlaugsdóttir, annar eigenda
Hópferða Ásgeirs Sölvasonar sem
frá því í nóvember önnuðust akstur
á milli Sauðárkróks og Siglufjarðar
í tengslum við flug. Ákveðið var að
leggja til áætlunarferðir frá Siglu-
flrði á Sauðárkrók í framhaldi þess
að Islandsflug hætti að fljúga áætl-
unarflug til Siglufjarðar. Þetta var
gert með styrk frá samgönguráðu-
neytinu.
Erla og maður hennar, Ásgeir
Sölvason, fengu aksturinn eftir að
þau höfðu átt lægsta tilboð í hann
þegar hann boðinn var út til fimm
mánaða en með ádrætti um að
samningur yrði framlengdur eftir
)ví hvemig flugmál Siglfirðinga
móuðust.
„Við keyptum
fólksflutningabif-
reið til að sinna
þessu verki. Út-
boðið var aðeins
til fimm mánaða
en okkur var sagt
að líklega yröi
samningm’inn
framlengdur sem
síðar varð raun-
in. Það var ekki
fyrr en í júli síðastliðnum að við
fengum bréf frá Vegagerðinni um aö
ákveðið hefði verið að úthluta Sér-
leyfishöfum sf. í Skagafirði verkinu.
Þama var ekkert útboð heldur fékk
viðkomandi þetta á silfurfati," segir
Erla.
Hún segir að í vor hafi komið upp
kvittur um að þetta gæti gerst en þá
hafi samgönguráðherra lýst því yfir
við Sigríði Ingvarsdóttur, alþingis-
mann og flokkssystur sína, að um
útboð yrði að ræða. Skömmu síðar
kom á daginn að það hafði ekki
staðist hjá ráðherranum sem þó
væri æðsti yfirmaður Vegagerðar-
innar.
„Okkur er látið blæða fyrir það
að vera i röngu kjördæmi. Sturlu
virðist vera sama um atkvæðin á
Siglufirði, enda erum við utan hans
kjördæmis. Sá sem fékk aksturinn
er aftur á móti í réttu kjördæmi,"
segir Erla og undrast að verkið
skuli falið aðila utan Siglufiarðar,
þar sem sé upphafsstöð akstursins
og lokastöð.
Hún segir að þau hjónin, sem
bæði em bamfæddir Siglfirðingar,
íhugi nú alvarlega að flyfia af staðn-
um ásamt fiórum bömum sínum á
aldrinum sjö ára til tvítugs.
„Þetta snýst um lifsafkomu okkar
og við verðum að geta unnið fyrir
fiölskyldunni. Þama er vegið aö bú-
setuskilyrðum okkar og okkur er
ekki annað fært en að íhuga vand-
lega hvort við getum verið hér
áfram,“ segir hún.
Bæjarstjóm Siglufiarðar er mjög
ósátt við þessa framvindu mála og
bæjarsfiórinn og Sigríður Ingvars-
dóttir alþingismaður gengu á fund
samgönguráðherra til að knýja á
um leiðréttingu mála en án árang-
urs. Samkvæmt heimildum DV ber
ráðherrann því við að Sérleyfishaf-
ar í Skagafirði eigi sérleyfi á akst-
ursleiðinni Varmahlíð-Sauðárkrók-
ur-Siglufiörður.
„Ég er mjög ósátt við að akstur-
inn skuli vera tekinn með handafli
af einum og færður öðmm. Ég
reiknaði með að það yrði útboð á
þessari leiö í haust sem hefði verið
sanngjöm leið,“ segir Sigríður Ingv-
arsdóttir alþingismaður.'
Slgriður
Ingvarsdóttir.
Sturla
Böövarsson.
Ekkert kjördæmapot
Þess má geta að
DV óskaði eftir
viðbrögðum
Sturlu Böðvars-
sonar samgöngu-
ráðherra en Jó-
hann Guðmunds-
son, skrifstofu-
stjóri samgöngu-
ráðuneytis, svar-
aði fyrir hans
hönd. Hann segir
að vissulega sé þessi niðurstaða leið-
inleg. Staðreyndin sé hins vegar sú að
samkvæmt nýjum lögum um sérleyfi
verði skylt að bjóða þau öll út árið
2005. Þangað til njóti núverandi sér-
leyfishafar forgangs á sínum leiðum.
Hann segir að Ásgeir Sölvason hafi
verið með tímabundinn samning um
aksturinn til og frá Siglufirði en ekki
sérleyfi. Það sérleyfi hafi verið í
höndum Sérleyfishafa sf. í Skagafirði
þó þeir hafi kannski ekki nýtt sér
aksturinn á þessari leið. Sá sérleyfis-
hafi hafi hins vegar í skjóli sérleyfis
frá Siglufirði til Reykjavíkur nýtt sér
akstur á hluta leiðarinnar, þ.e. frá
Skagafirði til Reykjavíkur. Það hafi
aftur á móti valdið núningi við sér-
leyfishafa á leiðinni Akur-
eyri-ReyKjavík. Ráðuneytið hafi í
ljósi þessa og breytinga sem fram
undan em ákveðið að svipta Sérleyf-
ishafa sf. í Skagafirði leyfi til að aka
á Siglufjarðarleyfinu alla leið til
Reykjavíkur. Því hafi viðkomandi
sérleyfishafi farið ffam á að fá að
halda sérleyfinu Varmahlíð-Sauðár-
krókur-Siglufjörður að fullu. Ráðu-
neytið hafi ekki talið sér stætt á því
að synja honum um það og því hafi
þetta orðið niðurstaðan. Að öðrum
kosti hefði farið fram útboð í haust á
leiðinni til Siglufjarðar. „Þetta hefur
ekkert með kjördæmapot að gera,“
segir Jóhann Guðmundsson.-rt/Hkr.
Keikó í „gönguferð"
„Við erum að fara meö Keikó í
„gönguferðir" á hverjum degi.
Hann er í mjög góðu formi, honum
líður vel og þannig séð getur þetta
vart verið betra,“ sagði Colin
Beard, þjáifari Keikós, í samtali
við DV en hann er staddur er í
Skálavíkurfirði í Noregi. Hann
segist telja að á næstu 10 dögum
verði væntanlega tekin ákvörðun
um hvar Keikó hafi vetursetu, það
er í hvaða firði í Noregi.
„Staðurinn yrði að vera þar sem
friður er og jafnvel gott dýpi en
slíkt getur verið erfitt. Við ætlum
ekki að hafa Keikó í kví eins og i
Vestmannaeyjum," sagði Baird.
Hann segir margar sveitarstjórnir
áhugasamar um að fá að hafa
Keikó i „sínum firði“, ekki síst
íbúar í Skálavíkurfirði sem mjög
gjarnan vilji halda háhyrningnum
áífram.
„Það kemur allt eins til greina
að færa Keikó utar í fjörðinn þar
sem aðstæður eru heppilegri fyrir
okkur og meiri möguleikar á að
aðrir háhyrningar fari um,“ sagði
Colin Beard. -Ótt
Engin hækkun enn
Félagsmálaráð Reykjavíkur hef-
ur enn ekki tekið afstöðu til
beiðni Félagsbústaða um hækkun
á leiguverði þeirra íbúða sem
heyra undir þá en á fundi ráðsins
í gær var málið ekki á dagskrá.
Björk Vilhelmsdóttir, formaður
Félagsmálaráðs, segir að niður-
stöðu í málinu sé ekki að vænta i
bráð. „Við erum að afla gagna, þ.
á m. kanna hvernig málum er
háttað í öðrum sveitarfélögum og
hvaða áhrif hækkun muni hafa á
leigjendur Félagsbústaða sem eru
meðal tekjulægstu íbúa borgar-
innar. En þau verðiun við að fá til
að geta tekið málefnalega ákvörð-
Akærð fyrir að bana
dóttur sinni
Hlíðarétt
Fé úr Lýtingsstaöahreppi rekiö í Hlíöarétt á dögunum en hrútarnir þrír eru af
þeim slóöum.
Útigangskindur heimtust í Stafnsrétt:
Þrír hrútar gengu úti
allan veturinn
Kona sem banaði dóttur sinni á
heimili í Breiðholti laugardaginn 27.
apríl síðastliðinn hefur verið ákærð
fyrir manndráp. Mál hennar var
þingfest fyrir héraðsdómi í gær en
réttarhöld yfir henni verða haldin
fyrir luktum dyrum, m.a. vegna and-
legs ástands konunnar. Ríkissak-
sóknari krefst þess að konunni verði
gerð hefðbundin refsing fyrir mann-
dráp þar sem oftast er dæmt 16 ára
fangelsi ef sakfellt er. Til vara hefur
ákæruvaldið hins vegar farið fram á
að dómarinn dæmi konuna til að
„Það mætti halda að umhverfis-
ráðuneytiö haldi að rjúpnaveiði-
menn séu allir hæstaréttarlögfræð-
ingar þegar gefnar eru út heimildir
til að veiða rjúpu. Það kemur hvergi
fram hjá ráöuneytinu að það er líka
háð samþykki landeigenda hvernig
skotveiðimenn haga sér;“ segir Ámi
G. Pétursson á Vatnsenda á Mel-
rakkasléttu.
„Af gefhu tilefni vil ég benda á að
rjúpnaveiöi í eignarlöndum jaröa á
Melrakkasléttu er algjörlega háð
ákvörðun landeigenda. Ég hef alfrið-
að rjúpu í mínu landi síðastliðið ár.
sæta öryggisgæslu á viöeigandi
stofnun. Er það í samræmi við
ákvæði 62. greinar hegningarlag-
anna sem heimilar dómstóli að
dæma þá sem eru andlega vanheilir
í öryggisgæslu. Umrædd kona hefur
verið í gæsluvarðhaldi eftir að
verknaðurinn var framinn. Hún hef-
ur mestan tímann verið vistuð í rétt-
argeðdeildinni á Sogni í ölfusi.
Konan er ákærð fýrir að hafa sest
klofvega ofan á dóttur sína, sem var
fædd árið 1993, og þrengt að hálsi
hennar þangað til hún lést. -Ótt
Á þriðjudaginn birtist það einnig í
Bændablaðinu að rjúpan er friðuð í
landi Oddstaða til foma, en Vatns-
endi er nýbýli út úr Oddstöðum.
Mér finnst aö umhverfisráðuneytið
verði að gera mönnum grein fýrir
hver ræður ferðinni á slíkum eign-
arlöndum,“ segir Ámi G. Pétursson.
Hann leggur til að búnaöarsam-
bönd og búnaðarfélög taki til athug-
unar tillögu Náttúrufræðistofnunar
íslands um að rjúpnaveiðar í eignar-
löndum jarða verði einungis heimil-
aðar í nóvembermánuði í samráði
við landeigendur. -HKr.
Þrír veturgamlir hrútar, sem geng-
ið höfðu úti í allan fyrravetur, komu
til Staftisréttar í Svartárdal í Austur-
Húnavatnssýslu á dögunum þegar fé
af Eyvindarstaðaheiði var rekið þar
til réttar. Tveir voru frá bænum Hóli
í Lýtingsstaðahreppi og var þar um að
ræða samstæða tvílembinga, að sögn
eigandans. Þeir vom fluttir nánast
beint í sláturhús. Þriðji hrúturinn var
frá bænum Villinganesi í sömu sveit
og var honum einnig slátraö. Raunar
er líklegt að einn veturgamall hrútur
til viðbótar hafi komið útigenginn í
Stafnsrétt. Hann var ómarkaöur og
það ásamt útlitinu benti til aö hann
hefði verið á fjöllum sL vetur.
Þá bar það einnig til tíöinda í
Stafnsrétt að þar komu fyrir ær og
lamb frá Stokkseyri í Ámessýslu. Hef-
ur sú kind verið búin að fara um lang-
an veg í sumar. Að sögn Sigurjóns
Stefánssonar, réttarstjóra í Stafnsrétt,
er afar fátítt að fé sunnan úr Árnes-
sýslu komi þar fyrir. Sigurjón taldi að
á fjórða þúsund fjár hefði komið til
réttar í Stafnsrétt að þessu sinni en
gangnamenn fengu fremur leiðinlegt
veður til leitar. Hann taldi að dilkar
væm frekar misjafhir að þessu sinni.
Þess má geta að sérstök aðgát er nú
viðhöfð gagnvart útigangskindum í
Húnavatnssýslum og vestanverðum
Skagafirði vegna útrýmingarherferð-
ar á kláða sem hófst í fyrravetur. Þá
var allt fé sprautað gegn kláða og hús
sótthreinsuð. Það fé sem gekk af vet-
urinn á fjöllum, sem menn vona að sé
fátt, hefur því ekki veriö sprautað. Því
verða allar útigangskindur á þessu
svæði teknar og settar í einangrun
svo fljótt sem til þeirra næst og þær
ýmist sprautaðar eða sendar í slátur-
hús. -ÖÞ
Sigurður Kristján Friðriksson,
framkvæmdastjóri Félagsbústaða,
segir að því lengur sem ákvörðun-
in dragist því bagalegra sé það
fyrir starfsemina. „Við eigum að
reka fyrirtækið án halla eða gróða
en þegar kostnaður hækkar, eins
og hann gerði þegar vextir af
stofnlánum frá íbúðalánasjóði
hækkuðu úr 1% í 3,5%, þurfum
við að fá tekjur á móti.“ -ÓSB
Kosinn í stjórn WHO
Davíð Á.
Gunnarsson,
ráðuneytisstjóri
í heilbrigðis- og
tryggingamála-
ráðuneytinu, var
í gær kosinn í
framkvæmda-
stjórn Alþjóða-
heilbrigðismála-
stofnunarinnar,
WHO, með mikl-
um yfirburðum. Fjörutíu af 43 full-
trúum haustþings greiddu Davíð
atkvæði sitt. Auk Davíðs voru full-
trúar frá Frakklandi og Tékklandi
kosnir í stjómina. Davíð mun sitja
í stjóm frá 2003 til 2006.
-aþ
Yfir sjötíu skjálftar
Síðan aðfaranótt mánudagsins 9.
september fram til hádegis í gær, 17.
september, mældust 73 jarðskjálftar
í Mýrdalsjökli. Flestir skjálftanna
voru í og undir vesturhlíðum Goöa-
bungu sem er í vesturbrún Kötlu-
öskjunnar. Nokkrir skjálftar hafa
mælst á þessu tímabili sem náð hafa
stærðargráðunni í kringum 3 á
Richter-kvarða.
-HKr.
Ráðherra upplýsi um rjúpnaveiðar:
Veiðar eru háðar sam-
þykki landeigenda
- segir bóndinn á Vatnsenda