Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2002, Page 9
FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2002
9
Gefðu gjöf
sem gleöur og göfgar
Viðskipti
Umsjón: Viöskiptablaöið
Árshlutauppgjör OZ:
Hverfandi tekjur
en minnkandi tap
Árshlutauppgjör OZ Communi-
cations fyrir annan ársfjóröung 2002
sýnir að rekstur félagsins er enn
erfiður. Tap OZ á tímabilinu nam
um 2,2 milljónum dollara, eða nærri
200 miiljónum króna. Það er þó
heldur minna tap en á sama tíma
árið áður en þá varð 3,8 milljóna
dollara tap af rekstrinum.
Helsta áhyggjuefnið er þó að tekj-
ur OZ á tímabilinu eru hverfandi,
eða aðeins um 160 þúsund dollarar.
Það er mikil breyting frá fyrra ári
en á öðrum ársfjórðungi 2001 námu
tekjur félagsins um 2,4 milljónum
dollara. Þetta þarf þó ekki að koma
á óvart í ljósi þess að á milli tíma-
bila hefur orðið sú breyting að sam-
starfi OZ við Ericsson lauk en Erics-
son var langstærsti viðskiptavinur
OZ. Samstarfsslitunum fylgdi enn
fremur lokauppgjör á milli félag-
anna sem skilaði félaginu veruleg-
um tekjum á fyrsta ársfjórðungi.
Þannig eru heildartekjur OZ fyrstu
sex mánuði ársins um 8,5 milljónir
dollara og hagnaður er af rekstrin-
um upp á um 2,4 milljónir dollara.
Þá er handbært fé í lok júní um 2,4
milljónir dollara.
í kjölfar samstarfsslitanna voru
gerðar viðamiklar breytingar á
rekstri OZ og starfsemin skorin
verulega niður. Þar á meðal voru
höfuðstöðvar fyrirtækisins fluttar
til Kanada og á íslandi er nú ein-
ungis eftir lágmarksstarfsemi. Aðal-
fundur OZ vegna ársins 2001 var
haldinn i Kanada í gær.
Áskrift að tímaritum Fróða er gjöf sem gleður í langan tíma.
Hafðu samband við áskriftardeild Fróða í síma 515 5555
Ert þú aö leita aö ...
• tækifærisgjöf ?
• afmælisgjöf ?
• brúökaupsgjöf ?
• fermingargjöf ?
• irmflutnirigsgjöf ?
sængurgjöf ?
• konudagsgjöf ?
• jólagjöf ?
i gæsargjöf ?
• steggjargjöf ?
eöa ....
BLEoar&eunrr
HÚS
UÍI-fSffl
MAh
DV
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 9.089 m.kr.
Hlutabréf 6.168 m.kr.
Húsbréf 1.596 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
Q íslandsbanki 3.758 m.kr.
^ Straumur 1.972 m.kr.
Q Samherji MESTA HÆKKUN 87 m.kr.
0 Íslandssími 2,9%
0 Eimskip 1,9%
0 Búnaöarbankinn 1,1%
MESTA LÆKKUN
Q Síldarvinnslan 5,5%
Q Kaupþing 1,6%
0 SÍF 1,3%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.298
- Breyting 0,07%
OPEC:
Búist við óbreyttri
framleiðslu
Þrýstingur á OPEC-ríkin að auka
framleiðslu sína minnkaði í gær þeg-
ar írakar samþykktu að hleypa vopna-
eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna
inn í landið. Fundur OPEC hófst í dag
I Japan. Talið er að meirihluti aðiid-
arríkja OPEC sé á móti því að auka
framleiðslu en mest óvissa ríkir um
afstöðu Sádi-Arabíu. Olíuverð breytt-
ist lítið við fréttir gærdagsins og ekki
er búist við lækkun á næstunni. Al-
mennt vex eftirspurn á 4. ársfjórðungi
þegar vetur gengur í garð á norður-
hveli og þá er búist við að áhyggjur af
átökum í Mið-Austurlöndum leiði til
tregðu við að ganga á olíubirgðir.
Stóru kortafyrir-
tækin kærð
Hagsmunasamtök verslunarinnar
beggja vegna Atlantshafsins, í Banda-
ríkjunum og í Evrópu, hafa kært mis-
notkun á markaðsráðandi stöðu stóru
kortafyrirtækjanna. Samkeppnisyfir-
völd Evrópusambandsins hafa ákveð-
ið, að beiðni EuroCommerce, að
kanna hvort kortarisinn Visa beiti
verslanir og neytendur óréttlátri
gjaldtöku, að því er kemur fram í
fréttabréfi SVÞ. í Bandaríkjunum er
áætlað að málaferli hagsmunasam-
taka verslunarinnar gegn Visa og
MasterCard hefjist í apríl á næsta ári.
EuroCommerce, sem SVÞ eiga aðild
að, hafa kært Visa fyrir að þvinga
verslanir til að veita þeim sem nota
kort betri kjör en hinum sem kjósa
annan greiðslumáta. Einnig er korta-
fyrirtækið kært fyrir innheimtu
skiptigjalds, s.k. „multi-interchange
fee“, sem innheimt er af verslunum.
„Málaferlin í Bandaríkjunum eru m.a.
til að koma í veg fyrir að kortafyrir-
tækin geti sett verslunum þá afarkosti
að þær verði að taka við öllum kort-
um sem kortafyrirtækin gefa út. Þetta
eykur útgjöld söluaðila vestra vegna
debetkorta," segir í fréttabréfi SVÞ.
Vaki-DNG og Peocon:
Hlutafé aukið
um 50 milljónir
Vaki-DNG vinnur þessa dagana að
nýjum sölusamningum á talningar-
hugbúnaði sínum sem m.a. hefur ver-
ið notaður með ágætum árangri til að
taka saman fjölda viðskiptavina í
Smáralind, að því er fram kom í Við-
skiptablaðinu er kom út i gær. Er fyr-
irtækið í viðræðum við nokkra aðila
hér innanlands vegna þessa og jafh-
framt þeim viðræðum er verið að
vinna að 50 milljóna króna hlutafjár-
aukningu í Peocon, en það félag var
stofnað utan um rekstur hugbúnaðar-
ins. Að sögn Hermanns Kristjánsson-
ar, framkvæmdastjóra Vaka-DNG og
stjórnarformanns Peocon, er í dag
verið að vinna að vali á hentugum
samstarfsaðila tO að koma að fjár-
mögnuninni en niðurstaða ætti að
verða komin í það mál eftir tvær eða
þrjár vikur. Um leið væri verið að
klára nokkra sölusamninga sem ættu
að ganga i gegn á allra næstu dögum.
Hermann vildi þó að svo stöddu
hvorki gefa upp hvaða aðilar kæmu
þar til greina sem fjármögnunaraðilar
né heldur hvaða aðilar ættu í viðræð-
um við Peocon vegna kaupanna.