Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 31.01.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 31. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ trúa bæjarins væri ólögmætur og brot á jafnréttislögum. Mál var höfðað fyrir Héraðsdómi Norður- lands eystra þar sem fram kemur í dómi í byrjun nóvember 1999 að jafnréttislög hafi verið brotin. Ak- ureyrarbær áfrýjaði málinu til Hæstaréttar sem staðfesti dóm hérðaðsdóms í maí 2000. Lögmaður Ragnhildar sendi bænum í kjölfar dómsins kröfu upp á rúmlega 3,2 milljónir króna auk dráttarvaxta. Akureyrarbær greiddi rúmlega 1,5 milljónir króna, en málshöfðun in miðaði að því að fylgja eftir eftirstöðvum kröfunnar, um 1,7 milljónir króna. AKUREYRARBÆR var í Héraðs- dómi Norðurlands eystra sýknaður af kröfum Ragnhildar Vigfúsdótt- ur, fyrrverandi jafnréttis- og fræðslufulltrúa Akureyrarbæjar, en dómur féll í málinu í gær. Ragnhildur gerði þær kröfur að Akureyrarbær greiddi sér tæplega 1,7 milljónir króna auk dráttar- vaxta. Málavöxtum var lýst á þann veg að krafa Ragnhildar væri tilkomin vegna vangreiddra launa er hún gegndi starfi jafnréttis- og fræðslufulltrúa frá byrjun septem- ber 1995 til loka apríl árið 1998. Byggist krafan á dómi Hæstarétt- ar frá því í maí 2000. Um það leyti sem Ragnhildur hóf störf hjá Akureyrarbæ fór fram vinna við starfsmat nokkurra háttsettra embættismanna bæjar- ins og leiddi það í ljós launamis- rétti sem hún gerði kröfu um að fá leiðrétt. Kærunefnd jafnréttismála komst að þeirri niðurstöðu að munur á launum jafnréttis- og fræðslufulltrúa og atvinnumálafull- Raunverulegur launamunur 1,5 milljónir króna Lögmaður Akureyrarbæjar bendir á að komið hafi verið til móts við kröfur Ragnhildar með greiðslu á tæplega 2,4 milljónum króna. Fjárkröfur sem stofnist vegna brota á jafnréttislögum séu skaðabótakröfur og um þær gildi meginreglur skaðabótaréttar, m.a. að tjónþoli eigi ekki að hagnast á tjóni. Hafi því höfuðstóll hugsan- legrar kröfu Ragnhildar verið reiknaður út á þann hátt að bera saman raunverulegan launamun á störfum jafnréttis- og fræðslufull- trúa og atvinnumálafulltrúa á tímabilinu frá byrjun september 1995 til loka febrúar 1997, en á þeim tíma gegndi karlmaður stöðu atvinnumálafulltrúa. Síðari hluta tímabilsins hafi kona gegnt stöð- unni. Raunverulegur launamunur á tímabilinu hafi verið um 1,5 milljónir króna. Þessi útreikningur sé í samræmi við lög að mati lög- manns bæjarins. Yrði fallist á kröfu Ragnhildar myndi hún hagn- ast á meintu tjóni og færi það í bága við meginreglu skaðabóta- réttarins. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að Ragnhildur hafi á starfs- tíma sínum hjá Akureyrarbæ feng- ið fullar efndir á ráðningarsamn- ingi og launakrafa geti því ekki átt stoð í þeim samningi. Ekki þyki unnt að skilja málatilbúnað í þessu máli á aðra lund en að Ragnhildur byggi kröfu sína á á því að dómur Hæstaréttar hafi leitt til þess að ráðningarsamningur hennar hafi fallið úr gildi að hluta eða öllu leyti og í hans stað komið nýr samn- ingur sem gerði laun og önnur starfskjör þau sömu og atvinnu- fulltrúi bjó við. Ekki hafi þó verið vísað til viðhlítandi réttarheimilda og þessi túlkun fái ekki stoð í for- sendum dóms Hæstaréttar. Nið- urstaða dómsins er sú að Ragn- hildur hafi ekki stutt fullyrðingu sína um að krafa hennar sé launa- krafa haldbærum rökum og því verði ekki byggt á henni í málinu. Telur dómurinn ófært að fjalla frekar efnislega um kröfur Ragn- hildar og er Akureyrarbær sýkn- aður af kröfum hennar. Málskostn- aður var felldur niður. Héraðsdómur Norðurlands eystra í máli fyrrverandi jafnréttis- og fræðslufulltrúa Akureyrarbær var sýknaður af kröfum ÓTTINN við kúariðu breiðist hratt út í Evrópu og nú hafa heilbrigðisyfirvöld í Póllandi ákveðið að banna sölu á yfir 2 þús- und vörutegundum, innfluttum frá tólf löndum Evrópusambandsins þar sem kúariða hefur greinst og vörurnar innihalda einhvers konar nautgripaafurðir. Vörurnar hafa verið fjarlægðar úr hillum versl- ana en óttinn við kúariðu hefur magnast í Póllandi, samkvæmt er- lendum fréttaskeytum. Meðal vörutegunda er eftirsótt tyggi- gúmmí þar í landi en matarlím, unnið úr nautgripaafurðum, er gjarnan notað í gúmmíið. Hollustuvernd ríkisins hefur frá því fyrir jól verið að afla upplýs- inga frá íslenskum innflytjendum um vörur sem innihalda nautakjöt eða kjötafurðir af einhverju tagi. Sem dæmi um vörur má nefna frosið lasanja, kjötbollur, pitsur, kjötkraft, súpur og sælgæti sem inniheldur matarlím. Að sögn Sjafnar Sigurgísladóttur, forstöðu- manns matvælasviðs Hollustu- verndar, hefur þetta áhættumat ekki gengið samkvæmt áætlun. Treglega hefði gengið að fá upp- lýsingarnar frá öllum innflytjend- um, sem eru um 80 að tölu, og hafa þeir frest fram að helgi að skila áður en send verður ítrekun. Í samtali við Morgunblaðið sagði Sjöfn það vissulega koma til greina að banna sölu á ákveðnum vörutegundum, líkt og Pólverjar hafa gert, en aðrar leiðir væru einnig færar. Auk þess að banna ákveðnar vörur sagði Sjöfn þá leið einnig koma til greina að aðhafast ekki neitt. Þá mætti auka eftirlitið enn frekar með innflutningnum eða gera nokkurs konar samning við innflytjendur um að flytja ekki inn vörur frá kúariðusmituðum lönd- um. „Við sem störfum á matvæla- sviði tökum þetta alvarlega. Á næstu tveimur vikum mun það skýrast til hvaða aðgerða verður gripið. Fyrir liggur að við erum með vörur í sölu frá löndum þar sem kúariða hefur komið upp. Á meðan þetta áhættumat er í gangi er hins vegar erfitt fyrir okkur að banna tilteknar vörur,“ sagði Sjöfn. Hún benti á að sökum fámennis væri Ísland í annarri stöðu en stærri lönd á borð við Pólland eða til dæmis Ástralíu sem væru sjálf- um sér nóg um neysluvörur. Ef banna ætti allar innfluttar vörur sfem innihéldu nautakjöt eða af- urðir af nautgripum gætu hillur í verslunum nær tæmst. Neytendur haldi vöku sinni Meðan ekki liggja fyrir ná- kvæmar upplýsingar frá innflytj- endum sagði Sjöfn það sjálfsagt mál fyrir neytendur að halda vöku sinni en þeir yrðu að meta sjálfir hvort innfluttar vörur sem inni- héldu nautgripaafurðir væru keyptar. Hún gæti heldur ekki fullyrt að neytendur væri óhultir gagnvart þessum vörum. Sjöfn benti á að kröfur um framleiðslu matvæla hefðu aukist verulega í Evrópu á síðustu árum og hættan í dag á að kaupa mögulega sýkta vöru væri mun minni en til dæmis fyrir fimm árum. Pólverjar banna sölu á ýmsum vörum vegna kúariðu Álíka aðgerðir koma til greina hér á landi skildum, fluttu hingað 215 útlend- ingar, langflestir frá Þýskalandi, eða 143, og 41 frá Frakklandi. 113 fluttust hingað frá Ameríku, flestir frá Bandaríkjunum. Frá Afríku fluttust hingað 83 og þar af komu flestir frá Marokkó, eða 16. Frá Asíu fluttust hingað 375, flestir komu frá Filippseyjum en 95 frá Taílandi. ALLS fluttu 5.203 menn til Íslands á síðasta ári en brottfluttir voru 3.489. Pólverjar voru langstærsti hópur aðfluttra útlendinga, eða 276 talsins og þá fluttu hingað 153 frá Filippseyjum. 235 Norðurlandabú- ar fluttust hingað og munar þar mest um 120 Norðmenn og 75 Svía. Frá ríkjum á evrópska efnahags- svæðinu, að Norðurlöndum undan-                                     !   "                                ! "  #$"% &   '   (  )  *  )  &+     ,,, Pólverjar voru flestir aðfluttra „ÉG ER sáttur við þessa niður- stöðu,“ sagði Kristján Þór Júlíus- son, bæjarstjóri á Akureyri, um dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra í máli fyrrverandi jafnréttis- og fræðslufulltrúa gegn Akureyr- arbæ. „Í þessum dómi kemur fram að skilningur bæjarstjórnar Akureyrar á niðurstöðu Hæstaréttar í þessu máli er réttur. Samkvæmt þessari dómsniðurstöðu er túlkun okkar á hæstaréttardómnum rétt og ég er afskaplega ánægður með það. Það sem fólst í dómi Hæstaréttar var að um viðurkenningardóm var að ræða. Túlkunin hefur síðan verið ágrein- ingsefni,“ sagði Kristján Þór. Hann sagði þessa niðurstöðu sýna að sú gagnrýni sem Akureyrarbær sætti fyrir að fara þessa leið í mál- inu hefði verið ómakleg. „Hún átti ekki rétt á sér,“ sagði bæjarstjóri. Bæjarstjóri Akureyrar um dóm um launamál Sáttur við niður- stöðuna ÞAÐ blés byrlega til flugs á þessum mótordreka yfir Háukinn á Úlfarsfelli á dögunum þegar ljós- myndara Morgunblaðsins bar að. Útivistarfólk og ekki síst flugáhugamenn með hvers kyns flugtæki hafa löngum átt athvarf við Úlfarsfell og í nágrenni Hafravatns, enda er fátt betra eftir annríki hvunndagsins en skipta um umhverfi, svífa um og anda að sér hreinu fjallaloftinu og búa sig þannig undir verkefni næsta dags. Morgunblaðið/Ingólfur Guðmundsson Á vélknúnu fisi yfir Háukinn á Úlfarsfelli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.